Morgunblaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrtitur
(21. mars - 19. apríl)
Ef þú ætlast til of mikils
geturðu lent í ógöngum.
Sameiginlegir hagsmunir
maka hafa forgang í dag,
en ráðgjöf getur verið göll-
uð.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér opnast nýjar leiðir til
aukins frama. Þú ert á báð-
um áttum varðandi fjárfest-
ingu. Gakktu hægt um gleð-
innar dyr í kvöld.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Leitaðu tilboða frá fleirum
en einum varðandi viðgerð-
arkostnað. Hagsmunir sam-
heija þróast til betri vegar
í dag.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) H$0
Hikaðu ekki við að leita að-
stoðar við lausn verkefnis.
Þú afkastar meiru í einrúmi
heima fyrir í dag en á vinnu-
stað.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu ekki sölumennsku
glepja þig til að kaupa það
sem þú hefur ekki not fyrir.
Leitaðu ráða hjá fagmönn-
um ef þú ert í vafa.
Meyja
(23. ágúst - 22. septcmber) jjí'
Þú hikar við að taka á þig
aukna ábyrgð. Þú getur gert
góð kaup í dag. Varastu of
mikið sjálfsdekur í kvöld.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú nýtur góðs af bjartsýni
þinni, en átt erfitt með að
gera upp hug þinn varðandi
viðskipti. Kynntu þér vel
bæði kosti og galla.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Ummæli vinar geta verið
villandi. Þér gefst tækifæri
til tekjuöflunar, en það felur
ekki í sér að þú þurfir að
kaupa einhvem óþarfa.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) m
Vinir veita þér brautargengi
í dag. Tilboð um skyndi-
gróða getur verið varasamt.
Farðu varlega með kredit-
kortið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú vinnur vel á bak við tjöld-
in í dag. Þú heillast af ný-
stárlegri kenningu en lætur
þó skynsemina ráða gerðum
þínum.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þú ert að íhuga heimsókn
til vinafólks úti á landi.
Freistandi tilboð getur verið
varasamt. Ekki eiga við-
skipti við okrara.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) £
Dagurinn færir þér ný tæki-
færi og þú átt erfítt með að
einbeita þér að skyldustörf-
unum. Láttu ekki draumóra
taka völdin.
Stjörnuspá á að lesa sem dægra-
dvöl. Spár af þessu tagi byggjast
ekki á traustum grunni vísinda-
legra staðreynda.
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
FERDINAND
Er manni nokkurn tímann leyft að koma aftur, þegar Aðeins ef maður hefur höndina stimplaða.
maður deyr?
BRIDS
Þetta gæti verið reiknings-
dæmi í grunnskóla: „Jón skellir
sér í sjöbíó, en er seinn fyrir.
Það er búið að dempa ijósin þeg-
ar hann gengur inn svo hann
verður að velja sér sæti af
handahófí. Þetta er lítill salur
með aðeins 26 sætum og þar
af eru 10 þegar upptekin. Svo
vill til að af þeim 10 sætum sem
eru upptekin eru 7 númeruð með
oddatölu, en 3 með jafnri tölu.
Hveijar eru þá líkurnar á því
að Jón setjist í oddatölusæti?"
(Gamli reikningskennarinn minn
hefði spurt: „Hvaða mynd var
verið að sýna?“,
Norður
♦ ÁK762
V KD5
♦ 7
♦ K1032
Suður
♦ DG983
y Ás
♦ Á4
♦ ÁG74
Hér er reikningsdæmi af ná-
kvæmlega sama toga: Suður
spilar 7 spaða og fær út tígul-
drottningu. Hann þarf bersýni-
lega að fínna laufdrottninguna
og getur svínað á hvorn veginn
sem er. En fyrst tekur hann
trompin. Það kemur í Ijós að
austur á ekkert og hann hendir
þremur tíglum. Báðir mótheijar
fylgja lit í hjartanu og eins þeg-
ar tígullinn er trompaður. Nú
er stóra stundin runnin upp og
spurningin er: Hvernig á að fara
í laufíð.
Skoðum fyrst aftur fyrra
reikningsdæmið. 16 sæti eru
laus, þar af 6 merkt oddatölu
og 10 merkt sléttri tölu. Líkurn-
ar á því að Jón setjist i oddatölu-
sæti eru því greinilega 3 á móti
5, eða 38%.
í brids má beita sömu rök-
fræði „lausra sæta“. Lítum nú
á reikningsdæmið hið síðara.
Báðir mótheijarnir byija með
13 spil. Það sannast strax að
austur á engan spaða, en vestur
þijá. Þar með hefur austur 13
auð sæti fyrir laufdrottninguna,
en vestur aðeins 10. Þar eð taln-
ing fæst ekki í rauðu litunum
teljast þeir ekki með, og endan-
legar líkur þegar ákvörðun er
tekin eru 13 á móti 10 að lauf-
drottningin liggi í austur.
SKÁK
Á árlega minningarmótinu um
Capablanca á Kúbu kom þessi
staða upp í viðureign alþjóðlegu
meistaranna James Howell
(2.470), Englandi, sem hafði hvítt
og átti leik, og Jorge Vilela
(2.430), Kúbu.
29. Dxb7! — Rd5 (Uppgjöf, en
svartur mátti ekki þiggja drottn-
ingarfómina: 29. — Dxb7, 30.
Bc5h— Hd6, 31. Hxd6 og svart-
ur getur ekki varist tví- og frá-
skákarhótunum hvíts.) 30. Bc5+
— Kf6, 31. Dxc7 (Með peði yfír
hefur hvítur ekkert á móti upp-
skiptum) 31. — Rxc7, 32. Hxd8
- Hxd8, 33. Bb6 - Hd8, 34.
Hdl — Ke7, 35. Bxc7 og svartur
gaf fljótlega þetta vonlausa enda-
tafl. Mark Hebden, nýbakaður
enskur stórmeistari um þrítugt
sigraði á mótinu með 9 v. af 13
mögulegum. Jesus Nogueiras,
öflugasti skákmaður Kúbveija
kom næstur með 8V2 v. <jg landi
hans Vera varð þriðji með 8 v.
ásamt Spánveijanum Magem.
Hebden sem tefldi á alþjóðamót-
inu á Vestfjörðum í nóvember
hefur verið sigursæll í vor, sigraði
einnig á sterku opnu móti á
Benedorm á Spáni.