Morgunblaðið - 01.07.1993, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ Í993
39
VELVAKANDI
EKKERT AÐ
ÞJÓNUSTU
SKÍÐASKÁLANS
ÉG GET ekki orða bundist eft-
ir lestur bréfs Kristínar Guð-
mundsdóttur sem birtist í
Morgunblaðinu sl. þriðjudag
þar sem hún lýsir slælegri þjón-
ustu starfsfólks Skíðaskálans í
Hveradölum. Ég kom þarna um
daginn I sömu erindagjörðum
og Kristín og ætlaði bara að
fá mér kaffi. Eins og Kristínu
var mér vísað niður þar sem
sófarnir eru og er skemmst frá
því að segja að þarna var mjög
huggulegt og rójegt, þjónustan
og kaffið gott. Ég held að hún
ætti að þiggja boð þjónustu-
fólksins um að drekka kaffið
niðri þar sem hún ætlaði ekki
að nýta sér þjónustuna sem
veitt er uppi í matsal næst þeg-
ar hún kemur þangað.
Elsa.
KAFFI-KRÚS,
SELFOSSI
MAGNÚS og Pétur vildu færa
eigendum Kaffi-krúsar á Sel-
fossi bestu þakkir fyrir frábæra
þjónustu og veitingar, og þá
sérstaklega fyrir „skífuskons-
una“ og kaffið. Þeir vilja benda
fólki á að nýta sér þessa góðu
þjónustu.
ÍSBJARNARMORÐ
ÉG ER öskureiður og sár vegna
morðsins á ísbirninum og finnst
ég verða að segja eitthvað. Ég
nota orðið morð af ásettu ráði.
Ég held að það séu eimmitt
svona menn, hjarta- og tilfinn-
ingalausir að mínu áliti, sem
eru að þurrka út heilu dýra-
stofnana. Dýrin eru bræður
okkar og systur á þessari jörð.
Það er einnig sama tegund af
mönnum sem er að eyðileggja
jörðina okkar, gefa skít og djöf-
ulinn í allt nema peninga og
gróða. Lífinu á jörðinni stafar
mikil hætta af svona mönnum.
Stöndum vörð um dýrin og jörð-
ina okkar og pössum okkur á
mönnum sem eru hjarta- og
tilfinningalausir.
Bjarni Þórarinsson,
Háagerði 35.
BARNAGARDÍNU-
EFNI?
MIG langaði að vekja athygli á
orðinu „barnagardínuefni", en
það kom fyrir í auglýsingu frá
Galleríi Söru í Morgunblaðinu
sl. sunnudag. Er átt við glugga-
tjaldaefni í barnaherbergi?
Ingibjörg Sigurðardóttir.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Hjól tapaðist
HUFFY-kvenreiðhjól, hvítt og
lillablátt að lit, hvarf úr Túnun-
um í apríl. Hafi einhver orðið
hjólsins var er hann beðinn um
að hafa samband í síma
616411.
Gleraugu töpuðust
KVENGLERAU GU í gráu
hulstri týndust við bensínstöð-
ina í Hamraborg í Kópavogi sl.
sunnudagskvöld. Finnandi vin-
samlega hringi í síma 41389
eftir kl. 18.
Lítil skjóða tapaðist
LÍTIL svört taubudda, eða
skjóða, með bandi í opinu tap-
aðist í Hljómskálagarðinum 17.
júní. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 677442.
Jakki tapaðist í
Kvennahlaupinu
BLEIKUR og blágrænn vind-
jakki tíu ára stúlku tapaðist í
Kvennahlaupinu 19. júní sl. Ef
einhver veit hvar óskilamuni
úr hlaupinu er að finna eða
hefur fundið jakkann er hann
vinsamlega beðinn um að
hringja í síma 72728.
Bolur týndist í
Kringlunni
HVÍTUR bómullarbolur,
hnepptur og með blúndum,
týndist í Kringlunni fimmtu-
daginn 24. júní sl. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
627100.
GÆLUDYR
Kettlingar
KETTLINGAR fæddir 16. apríl
sl. fást gefins á gott heimili.
Upplýsingar í síma 30053 eftir
kl. 17.
Kettlingar
KETTLINGAR fást gefins.
Blíðir og kassavanir. Upplýs-
ingar í síma 42384.
Pennavinir
Átján ára japönsk stúlka með
áhuga á tónlist, söng og íþróttum:
Masako Terada,
29-8 Tokito-cho Hakodate-shi,
Hokkaido,
040 Japan.
Frá Ghana skrifar 24 ára kona
með áhuga á bókalestri, matargerð,
bréfaskriftum o.fl.:
Elisabeth Ivy Mensah,
P.O. Box A 108,
Adisadel,
Cape Coast,
Ghana.
Nítján ára norsk stúlka sem safn-
ar póstkortum og frímerkjum:
LiseStrudshavn,
7176 Linesoya,
Norway.
Tvítugur breskur piltur með marg-
vísleg áhugamál:
Peter Thomson,
24 Heath Road North,
Locks Heath,
Southampton,
Hampshire,
England S03 6PL.
Tuttugu og fimm ára Ghana-
stúlka með almenn og margvísleg
áhugamál:
Princella Anbladid,
P.O. Box 997,
Cape Coast,
Ghana.
JAPÖNSK stúlka með áhuga tónlist
og íslandi:
Hitomi Tanahashi,
12-304 Minamishinden 1
chome,
Daito-shi,
Osaka,
574 Japan.
Frá Litháen skrifar 26 ára há-
skólastúdent með áhuga á tónlist
og safnar póstkortum og frímerkj-
um:
Viktoras Uleckis,
Poste Restante,
2000 Vilnius-C,
Lithuania.
LEIÐRETTIN G
Verð á bókum
hækkar ekki
Varðandi grein um virðisauka-
skatt á íslenska útgáfu og fjöl-
miðla, sem birtist á bls. 2 í Morgun-
blaðinu í gær, vill Vilborg Harðar-
dóttir, framkvæmdastjóri Félags
íslenskra bókaútgefenda, að það
komi skýrt fram að félagið hafi
ekki beint þeim tilmælum til félags-
manna sinna að hækka verð bók-
anna heldur þvert á móti að hreyfa
ekkert við því. Félagið vilji að 14%
vsk. leggist ofan á óbreytt verð
bókanna þannig að útsöluverð til
kaupenda muni hækka en ekki
sjálft verðið.
I JULI EIGUM VIÐ
15 ÁRA AFMÆLI
Þess vegna hetur þð
5 ástæðar til að
koma til okkar
vikuna 1.-9. iðlí:
1. 15% afsláttur af öllum baðborðum.
2. 1.000 kr. afsláttur af Baby Björn magapoka
eða skiptitösku.
3. Öllum kerrum eða vögnum frá SIMO fylgir úr
og regnplast.
4. Öllum Maxi Cosi ungbarnabílstólum fylgir ann-
að hvort höfuðpúði eða sólskyggni.
5. Loks rúsínan í pylsuendanum:
50% afsláttur af pokum í Maxi Cosi úr
3.990 kr. í 1.995 kr.
Lokað á laugardögum í sumar.
Klapparstíg 27 - Sími 19910
NONAME
'COSMETICS'
FORÐUNARNAMSKEIÐ
Nú hefjast að nýju hin geysi
vinsælu förðunarnámskeið
Kristínar Stefánsdóttur.
- Eitt kvöfd.
- Dog- og kvöldförðun
- Persónuleg róðgjöf.
■ Aðeins 8 í hóp.
NYJUNG
Erla Magnúsdóttir hjá Hári og förðun mun koma
og veita hverri og einni persónulega ráðgjöf
um eigið hár og hárgreiðslu.
VILTUVERA EIN!
Býð einnig upp á sérkennslu sérstaklega hannaða fyrir þig
í 2 klukkustundir. Verð 6.600,-
Tek að mér alla almenna förðun.
ATH. Pantið tímanlega í
brúðarförðunina fýrir sumarið
allir tíma að fyllast fram í
september.
íslandsmeistari í Dagförðun ’92
og '93 og Ijósmynda ’93.
Innritun og nánari upplýsingar
ísíma 26525 milli kl. 10 og 17
alla virka daga.
Félag íslenskra
förðunarfrœöinga
lí.LAti ISl.tNSKKA
SNVKltFRÆDlNGA
i ■ EtrumitipICít^ib
| Meim en þú getur ímyndctð þér!