Morgunblaðið - 01.07.1993, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993
43
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KARLA
Sanngjam KR-sigur í
Reykjavíkurslagnum
KR-INGAR sigruðu Valsmenn
2:0 í fyrsta leik 7. umferðar 1.
deildar á KR velli í gærkvöldi,
með mörkum Tómasar Inga
Tómassonar og Ómars
Bendtsen. Úrslitin voru sann-
gjörn. Valsmenn voru reyndar
nokkuð ákveðnir í fyrri hálf-
leiknum, sem var þó í daufari
kantinum og lítið um færi, en
KR-ingar gerðu eina markið
fyrir hlé og voru síðan mun
betri í seinni hálfleik.
Hvorugt liðið náði sér á strik í
fyrri hálfleik. Hann ein-
kenndist af mikilli baráttu
um miðjuna, lítil áhætta var tekin
og lítið um færi.
Skapti Valsmenn virkuðu
Hallgrímsson öllu sókndjarfari ef
skrifar eitthvað var, spiluðu
þokkalega úti á vellinum en síðasta
sending brást allt of oft þegar þeir
nálguðust vítateig KR. Svipað var
reyndar upp á teningnum hjá Vals-
mönnum í seinni hálfleik. Þeir ógn-
uðu sjaldan; þrátt fyrir að Antony
Karl væri sívinnandi í framlínunni,
fékk hann ekki úr miklu að moða.
Skallaði knöttinn að vísu einu sinni
laglega í KR-markið seint í leikn-
um, en Atli Eðvaldsson, sem var
við hlið hans í teignum, stoppaði
snögglega um leið og sendingin
kom og gerði Valsmanninn þar með
rangstæðan. Skynsamlega gert hjá
Atla.
KR-ingar virkuðu taugaóstyrkir
framan af leiknum, en liðsmenn
róuðust ögn eftir að Tómas Ingi
náði forystunni á 19. mín. með
góðu marki. Bjarki Pétursson var
svo nálægt því að bæta við marki
á lokasekúndum fyrri hálfleiks:
þrumaði í stöng fyrir opnu marki
eftir góða fyrir gjöf Einars Þórs.
Heimamenn voru mun sterkari
í seinni hálfleiknum. Réðu nánast
alveg gangi leiksins, voru ákveðn-
ari í sóknaraðgerðum sínum og
fengu ágætis færi til að skora. Það
tókst hins vegar aðeins einu sinni;
Ómar Bendtsen var þar að verki,
en Bjami Sigurðsson kom í veg
fyrir að mörkin yrðu fleiri með
glæsilegri markvörslu. Hann var
besti maður Vals í leiknum, og í
raun sá eini sem lék af eðlilegri
getu. Sævar Jónsson var og góður
en aðrir náðu sér lítt á strik. KR-
ingar unnu sanngjarnan sigur, án
þess þó að vera mjög sannfærandi.
Liðið getur betur en það sýndi í
gærkvöldi.
1«|^KR-ingar náðu
■ ^Jknettinum á vallar-
helmingi sínum og snéru vöm í
sókn. Heimir Guðjónsson sendi
út á hægri kant á Bjarka Péturs-
son, sem sendi knöttinn síðan
fallega inn á teig á Tómas Inga
Tómasson. Hann þóttist ætla
að skjóta, en lék laglega á Jón
S. Helgason, sem kastaði sér
fyrir hann, og skoraði með fai-
legu skoti yst úr teignum neðst
í bláhomiö Qær. Þettía var á 19.
mínútu.
2«^\Sigurbjöm Hreiðars-
■ \r son var með knöttinn
rétt framan við miðju en rann
til og KR-ingar náðu honum.
Einar Þór lék fram undír miðjan
vallarhelming Vals, sendi út til
vinstri á Tómas Inga sem lék
inná teig og gaf síðan knöttinn
fyrir markið þar sem Ómar
Bendtsen skoraði af öryggi.
Bjami markvörður fór á móti
Tómasi, og KR-ingar voru þrír
Keinum vamarmanni er
r skoraði. Þetta var á 82.
mín.
Morgunblaðið/Kristinn
Einar Þór Danfelsson, leikmaður KR, sem hér er með knöttinn, stóð sig vel í gærkvöldi. Það er Agúst Gylfason
sem sækir að honum.
2. DEILD
Marfcasúpa á Króknum
Fyrstu grasleikir sumarsins á ísafirði og Neskaupstað
Bjöm
Bjömsson
skrífar frá
Sauðárkróki
Stjaman sigraði Tindastól 3:5 á
Sauðárkróki í gærkvöldi.
Tindastóll fékk óskabyijun er
Sverrir Sverrisson
skoraði úr fyrstu
sók þeirra í leiknum.
Jón Þórðarson jafn-
aði úr víti á 23. mín-
útu og á 35. mínútu kom Leifur
Geir Hafsteinsson Stjömunni yfir.
Magnús Gylfason bætti þriðja
markinu við á 43. mínútu, með ótrú-
lega fallegu skoti af löngu færi, sem
fór í þverslána og inn. Bjöm Bjöms-
son lagaði stöðuna rétt fyrir leikhlé
í 2:3.
Stjömumenn voru frískari í síð-
ari hálfleik þó Tindastólsmenn
fengu sín færi. Bjami Benediktsson
gerði fjórða mark Stjömunnar á
65. mínútu, og á 85. minútu gerði
Jón Þórðarson annað mark sitt úr
víti. Guðbjartur Haraldsson lagaði
stöðuna í 3:5 mínútu síðar og það
urðu lokatölur leiksins.
Leikurinn var ekki vel leikinn,
veðrið var kyrrt en völlurinn mjög
háll. Dómari leiksins var Einar Sig-
urðsson og var hann ngög slakur.
Jafnt á ísafirAf
Isfirðingar náðu jafntefli, 2:2,
gegn Reykjavíkur Þrótti í fyrsta
grasleik sumarsins á ísafirði. Þrótt-
UgjBUM arar leikinn
Rúnar með látum og eftir
Jónatansson 15 mínútur voru þeir
skrífarfrá komnir í 2:0 með
isafirði mörkum Steinars
Helgasonar og Ingvars Ólasonar,
og allt stefndi í stórsigur. Þeir náðu
hins vegar ekki að skora fleiri mörk
og þegar skammt var til leikhlés
var Axel Gomes markvörður Þrótt-
ar rekinn af leikvelli fyrir að kasta
sér aftan á fætur Jóhanns Ævars-
sonar sem búinn var að leika á
hann. Ur vítinu sem dæmt var skor-
aði Tosic og eftir tveggja mínútna
leik í síðari hálfleik bætti hann öðru
við beint úr aukaspyrnu.
Þó svo að ísfirðingar væra einum
fleiri voru Þróttarar sprækari, þeir
börðust mjg vel allan seinni hálf-
leikinn án þess þó að skora. Ágúst
Hauksson var bestur Þróttara en
hjá BÍ bræðumi Jóhann og Svavar
Ævarssynir.
Þróttur Nes sigraðí á graslnu
Þróttur Neskaupstað sigraði
Grindavík 2:1, í fyrsta gras-
HANDBOLTI
Ágúst
Blöndai
skrifar frá
Neskaupstað
leik sumarsins á Neskaupstað. Gor-
an Micic skoraði
strax á 10. mínútu
fyrir Þrótt eftir mis-
tök Þorsteins
Bjarnasonar mark-
varðar. Fátt markvert gerðist annað
í fyrri hálfleik. Grindvíkingar sóttu
meira í byijun síðari hálfleiks án
þess að skapa sér vænleg færi. Á
68. mínútu fækkaði Þrótturam um
einn er Eysteinn Kristinsson var
rekinn út af, en þeir létu það lítið
á sig fá og bættu við marki á 75.
mínútu, og var þar að verki Þráinn
Haraldsson. Þórarinn Ólafsson
minnkaði muninn tíu mínútum síð-
ar, en þó svo að Þróttarar drægju
sig aftur undir lokinn var sigurinn
aldrei í hættu. Þróttarinn Goran
Micic var langbesti maður vallars-
ins.
Hollensku meistaramir í Sittard
frá samnefndri borg hafa sett
sig í samband við Valdimar Gríms-
son, landsliðsmann í Val, og vilja
fá hann til liðsins. Formaður hol-
lenska liðsins kemur til landsins á
mánudaginn að ræða við Valdimar.
„Það er vel athugandi að fara til
Hollands. Annars þekki ég ekki
mikið til þessa liðs. Ég veit að liðið
er núverandi meistari og hefur unn-
ið meistaratitilinn tólf sinnum á síð-
ustu sautján árum. Fyrirliði hol-
Hilmar í FH
KR-ingurinn Hilmar Björns-
son gekk í gærkvöldi til
liðs við FH. Félagaskiptin vora
tilkynnt skrifstofu KSI á tólfta
tímanum í gærkvöldi og ætti
Hilmar því að verða löglegur
með liðinu í bikarieiknum gegn
Fylki 8. júlí. Fyrsti leikur hans
í deildinni verður hins vegar
gegn KR 15. júlí.
ípfémR
FOLK
ÓSKAR Hrafn Þorvaldsson,
varnarmaðurinn ungi í KR, sem
meiddist snemma í sumar, meiddist
aftur á æfingu í fyrrakvöld og verð-
ur ekki með á næstunni. Liðband í
hné tognaði — sama hné og Óskar
meiddist í fyrr á keppnistímabilinu
— og hann leikur varla fyrr en eft-
ir miðjan ágúst, ef hann yerður þá
meira með í sumar.
TOMASZ Jaworek, 23 ára
pólskur framheiji, er á leið til Vík-
inga, og leikur með þeim það sem
eftir er keppnistímabilsins. Hann
verður löglegur í bikarleiknum gegn
Víði í næstu viku. Jaworek lék í
vetur í þýsku 2. deildinni en var
áður hjá pólsku 1. deildarliði.
■ GUNNAR Skúlason fékk
blómvönd fyrir leikinn í gærkvöldi
í tilefni þess að hafa náð 150 leikja
markinu í meistaraflokki KR. Hann
náði þeim áfanga gegn ÍBK í síð-
ustu viku.
ANDRI Marteinsson verður
ekki með FH gegn Fram í kvöld
vegna meiðsla og óvíst er hvort
Hörður Magnússon getur leikið,
af sömu ástæðu. Þeir meiddust báð-
ir gegn Val í síðustu viku.
■ FRAMARAR verða einnig án
tveggja góðra leikmanna; Kristján
Jónsson og Valdimar Kristófers-
son era báðir meiddir. Atli Einars-
son, sem kom frá Víkingi á dögun-
um, verður hins vegar að öllum lík-
indum í byijunarliði Fram í fyrsta
skipti í kvöld.
■ PAOLO Futre, portúgalski
knattspymumaðurinn frábæri, hef-
ur verið seldur frá Benfica til
franska meistaraliðsins Marseille.
Frá þessu var greint í gærkvqid^
en ekkert var látið frekar uppi;
hvorki um kaupverð né annað.
1.DEILD KARLA
Valdimar til Hollands?
Fj. leikja U j T Mörk Stig
ÍA 6 5 O 1 22: 6 15
KR 7 4 1 2 18: 8 13
FH 6 3 2 1 13: 9 11
ÞÓR 6 3 1 2 6: 6 10
VALUR 7 3 0 4 12: 10 9
FRAM 6 3 0 3 13: 12 9
ÍBK 6 3 0 3 9: 15 9
ÍBV 6 1 3 2 8: 9 6
FYLKIR 6 2 0 4 6: 12 6
VlKINGUR 6 0 1 5 6: 26 1
lenska landsliðsins og markvörður
þess leika með liðinu," sagði Valdi-
mar við Morgunblaðið.
Valdimar er einnig með þjálfara-
tilboð frá Eyjamönnum og eins hafa
Þórsarar frá Akureyri haft sam-
band við hann. „Eg hafði ekki
áhuga á Þór, en er enn að skoða
málin varðandi ÍBV. Svo gæti einn-
ig farið að ég yrði áfram hjá Val.
En þetta skýrist vonandi allt í næstu
viku,“ sagði Valdimar.
I kvöld
Knattspyrna kl. 20.00
1. deild karla:
Kaplakriki: FH - Fram
Akranes: ÍA - IBV
Akureyrarv.: Þór - ÍBK
Laugardalsvöllur: Vfkingur - Fylkir
4. deild karla:
Melar, Hörgárdal; SM - Dagsbrún
Fáskrúðsg: KBS - Valur Rf.
Vopanfjörður: Einheiji - Austri
SeyðisQörður: Huginn - Höttur