Morgunblaðið - 12.08.1993, Page 2

Morgunblaðið - 12.08.1993, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993 Ökumaður grunaður um ölvun velti jeppa við brúna yfir Kársnesbraut Morgunblaðið/Ingvar Hætt kominn í veltu OKUMAÐUR Bronco-jeppa vap hætt kominn er bifreið hans valt nokkrar veltur á Reykjavíkurvegi við brúna yfir Kársnesbraut. Maðurinn er grunaður um ölvun, en hann hafði áður ekið á kyrrstæðan bíl og götuvita. Ok á bíl, götuvita og ljósastaur MAÐUR slasaðist lítillega er Bronco-jeppi sem hann ók lenti á ljósa- staur við Reykjavíkurveg nálægt brúnni yfir Kársnesbraut. Við þetta fór bíllinn nokkrar veltur og mátti litlu muna að hann færi niður bratta brekku og hafnaði á Kársnesbrautinni. Skömmu áður hafði lögreglunni í Reykjavík borist tilkynning um að jeppinn hefði ekið utaní bfl við gatnamót Lönguhlíðar og Miklubrautar, farið af vett- vangi og lent við það á götuvita. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík er maðurinn talinn hafa verið ölvaður og var tekið úr honum blóð- sýni til rannsóknar. Hann gekkst undir minniháttar aðgerð í gær, þar sem gert var að sárum hans. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík hlíð við Miklubraut er hann ók utan var maðurinn á leið suður Löngu- í kyrrstæðan bíl við umferðarljósin. Eftir að maðurinn hafði ekið yfir Miklubraut á ljósunum tók hann u-beygju við Barmahlíð, en lenti á götuvita er hann kom aftur að Miklubraut. Bakkaði hann frá og hélt í átt til Kópavogs. Fór nokkrar veltur Þremur mínútum síðar, klukkan 18.18, barst lögreglunni í Kópavogi tilkynning um að bíllinn hefði lent utaní ljósastaur við Reykjavíkur- veg, nálægt brúnni yfir Kársnes- braut. Við það fór bíllinn nokkrar veltur yfir og útfyrir vegrið. Mátti ekki miklu muna að hann færi nið- ur bratta brekku sem þar er og hafnaði á Kársnesbrautinni. Tækjabíll slökkviliðs var kallaður á staðinn, því klippa þurfti manninn úr bílnum eftir veltuna. Hann var svo fluttur með sjúkrabíl á slysa- varðstofu en meiðsli hans munu ekkj vera alvarleg. Sjómað- urinn lát- inn laus ÍSLENSKI sjómaðurínn, sem set- ið hefur í fangelsi í borginni Mobile í Alabama-fylki í Banda- ríkjunum frá því á Iaugardag, var látinn laus í gær. Sjómaðurinn, Valdimar Haraldsson, tók skammbyssu af öryggisverði við höfnina í Mobile á laugarjjag er vörðurinn ætlaði að taka'hann fastan fyrir að vera í leyfisleysi á lokuðu svæði. Valdimar kom fyrir dómara í gær og var sektað- ur um 18 þúsund krónur, en hann átti áður yfir höfði sér kæru fyr- ir gróft rán. Að sögn Guðmundar Ásgeirssonar, framkvæmda- stjóra Nesskipa, mun Valdimar koma aftur um borð í skip sitt, Akranesið, í dag. Nancy Turner, blaðamaður á dag- blaðinu Newark Post, hitti Valdimar að máli eftir að hann var látinn laus í gær. Hún sagði að allt hefði þetta byggst- á misskilningi - Valdimar hafi verið á ieiðinni til skips af bar, er hann fór yfir lokað svæði við höfnina. „Öryggisvörðurinn kom að honum mjög snögglega og reyndi að hafa hendur á honum. Valdimar hélt að til stæði að ræna hann eða misþyrma, því vörðurinn setti byss- una upp í andlitið á honum og sagð- ist ætla að skjóta hann. Þá tók Valdimar byssuna af verðinum, án þess þó að meiða hann, og þegar lögreglan tók hann var hann enn með byssuna.“ Gikkurinn spenntur Að sögn Nancyar var skothylki í hlaupi byssunnar og gikkurinn spenntur þegar vörðurinn beindi henni að Valdimar. Eftir að hafa tekið byssuna af verðinum hleypti Valdimar skotinu af í jörðina, en vörðurinn var þá á bak og burt. Guðmundur Ásgeirsson sagði að ötullega hefði verið unnið að því á vegum Nesskipa að leysa málið. Það væri þó meðal annars því að-þakka að málið leystist svo fljótt, að örygg- isvörðurinn hafí ekki sett sig upp á móti niðurstöðu dómsins, en það hefði getað flækt málið og dregið það á langinn. Víkingalottó Norðmaður fær 133 millj. FYRSTI vinningur í Víkinga- lottóinu upp á tæplega 133 miiy- ónir króna féll óskiptur í hlut Norðmanns í gærkvöldi. Bónus- vinningurinn, 1,5 milljónir, gekk út hér á landi. Að sögn Alfreðs Þorsteinssonar, stjómarformanns íslenskrar get- spár, var slegið sölumet hér á landi og lottómiðar seldir fyrir tæplega 20 milljónir króna. í dag Snóker Heimsmeistaramót 21 árs ogyngri í snóker er haldið í Reykjavík 16 Álfar í Hafnarfirði Huliðsheimar Hafnarfjarðar hafa verið kortlagðir 17 Gengur með níbura Dönsk kona gengur með níbura eftir frjósemisaðgerð 20 Verðkönnun vikunnar 50% verðmunur á villtum laxi 26 Leiðarí _______________________ Sjúkrahjálp og sjálfsvirðing íslend- inga 22 Breki VE heldur til veiða í Barentshafi á morgnn „Skuldum Norðmönnum ekki neitt,“ segir Sighvatur Bjarnason ótgerðarmaður VINNSLUSTÖÐIN í Vestmanna- eyjum hefur ákveðið að senda togarann Breka á veiðar í Bar- entshafi gegn vilja stjórnvalda. Mun Breki halda til veiða á morg- I ______ j! un, föstudag. Togaranum er ætl- að að stunda veiðar á alþjóðlega svæðinu fyrir utan 200 mílna lög- sögu Noregs og Rússlands, í grennd við Svalbarða, en tveir Viðskipti/Atvinnulíf ► Hagnaður hjá Hampiðjunni og Granda - Upplýsingar fyrir er- Ienda íjárfesta - Islendinganý- lenda á Kamsjatka - Verður grænmeti dreift um fiskmarkaði? Dagskm ► Bókaflokkur byggður á Be- verly Hills 90210 - Myndbönd - Hetjur breskra sakamálaþátta - Evrópubandalagið og bandarískt sjónvarpsefni - Bíóin í borginni togarar skráðir í Dóminíkanska lýðveldinu hafa landað afla það- an á Norðausturlandi. Sighvatur Bjarnason, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, segir að hann sjái ekki ástæðu til að taka tillit til óska Norðmanna um að veiða ekki á svæðinu, þar sem Islendingar skuldi Norðmönnum ekki neitt í þessum efnum. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra hefur gefið út yfirlýsingar um að stjórnvöld hérlendis séu al- farið á móti því að íslensk skip stundi veiðar á fyrrgreindu svæði í óþökk Norðmanna. Eins og fram kom í frétt Morgunblaðsins í gær- dag hefur sjávarútvegsráðuneytið nú til athugunar að setja reglugerð sem banni íslenskum skipum veiðar á hafsvæðum utan lögsögu ríkja og hyggst Þorsteinn Pálsson kynna þær hugmyndir í ríkisstjórn í næstu viku. Sighvatur Bjarnason segir hinsvegar að Vinnslustöðin sé stað- ráðin í að nýta sér þá möguleika sem til staðar eru á þessu veiði- svæði í Barentshafi. Skilja ekki afstöðu ráðherrans Sighvatur Bjarnason segir að hann skilji ekki þá afstöðu ráðherr- ans að taka tillit til óska Norð- manna í þessu máli. „Norðmenn hafa hvað eftir annað eyðilagt fyrir okkur markaði ytra eins og til dæm- is saltfiskmarkaði og nú síðast ufsa- markaðinn í Þýskalandi," segir Sig- hvatur. „Að mínu mati skuldum við Norðmönnum ekki neitt.“ Afstaða Þorsteins Pálssonar byggir m.a. á því sjónarmiði að fá aðstoð Norðmanna til að reyna að koma stjórn á veiðar á alþjöðlega veiðisvæðinu suður á Reykjanes- hrygg. Sighvatur segist hafa skiln- ing á því sjónarmiði og það sé gott °S gilt. „Hinsvegar eigum við ekki að sitja hjá meðan verið er að koma þessum málum í höfn heldur nýta þá möguleika sem okkur gefast nú á öðrum miðum en okkar eigin enda eftir heldur litlu að slægjast hér við land sem stendur,“ segir Sighvatur. Aðspurður um aflabrögðin á fyrr- greindu veiðisvæði segir Sighvatur að honum skiljist að þessir dóminík- önsku togarar hafi gert það ágætt. Hinsvegar sé Breki mun öflugra og betur búið togskip og geti tekið um 300 tonn af fiski í kör. Hann sé því bjartsýnn á þessa útgerð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.