Morgunblaðið - 12.08.1993, Side 3

Morgunblaðið - 12.08.1993, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993 3 Framfærsluvísitalan íágúst 1993(169,2) Breytmg ______ fráfyrri Ferðir og flutningar (20,0) Húsnæði, rafmagn og hiti (18,1) Matvörur(16,5) Tómstundaiðkun og menntun (11,5) Húsgögn og heimilisbún. (6,7) Föt og skófatnaður (6,0) Drykkjarvörur og tóbak (4,3) Heilsuvemd (2,8) Aðrar vörur og þjónusta (14,1) Vísitala vöru og þjónustu FRAMFÆRSLUVÍSITALAN Tölur í svigum vísa til vægis einstakra liða af 100. Mest hækkun á mat- og drykkj arvörum Skráði lögheimili sitt hjá fólki án samþykkis þess HJÓNUM nokkrum í Reykjavík brá heldur betur í brún er þau fóru að fá póst ókunnugs manns sendan á heimili sitt. Þegar þau fóru að grafast fyrir um málið kom í Ijós að maðurinn var kunn- ingi dóttur þeirra og hafði hann flutt lögheimili sitt á heimili þeirra án þess þó að flytjast þangað sjálfur. Við nánari eftir- grennslan komust hjónin að því að hægt er að flytja lögheimili án þess að þurfa samþykki húsráðenda þangað sem lögheimilið er flutt. „Þetta er niaður sem dóttir okk- ar þekkir, sem skráir sig hér á heimilið án okkar samþykkis. Svo fer póstur þessa manns að koma hingað heim og þar sem við erum ekki sátt við þetta hringir maður- inn minn á Hagstofuna. Þar fær hann þau svör að ekki þurfi sam- þykki húsráðenda þess heimilis sem lögheimilið er flutt til. Þegar hann sagðist vilja taka nafn þessa manns af skrá hjá okkur er honum sagt að hann verði að koma sjálf- ur niður á Hagstofu og fylla þar út eyðublað til þess að það geti gerst,“ segir eiginkonan og annar húsráðandinn. Hún segir að nú verði annað hvort hún eða maður hennar að fara og fylla út eyðublaðið, þar sem þau kæri sig ekki um að hafa þennan mann, sem áður var með lögheimili úti á landi, skráðan með lögheimili hjá sér. Dóttirin hafi, án samþykkis foreldra sinna, sem eru húsráðendur, leyft manninum að skrá sig á heimili þeirra. „Það er nú alveg fáránlegt að ekki sé talað við okkur eða undir- skrift okkar fengin til leyfa ókunn- ugum manni að skrá sig heima hjá okkur. Samkvæmt þeim upp- lýsingum sem við fengum hjá Hagstofunni getur hver sem er flutt lögheimili sitt án þess að það sé athugað hvort það sé í lagi húsráðendanna vegna,“ segir hún. VÍSITALA framfærslukostnaðar er 0,9% hærri í ágúst en í síðasta mánuði. Hækkunin samsvarar 11,3% verðbólgu á ári. Hækkun vísitölunnar síðustu þrjá mánuði samsvarar 7,2% verðbólgu á ári. Hækkun hennar síðustu sex og tólf mánuði samsvarar 4,8% verð- bólgu. Rúmur þriðjungur vísitöluhækk- unarinnar, eða 0,32%, stafar af hækkun mat- og drykkjarvara. Þannig hækkaði verð á brauði til dæmis um 6%, grænmeti og ávext- ir um 8,3% og nýjar kartöflur um 33,6%. A móti kemur 6,1% lækkun á dilkakjöti. Viðhaldskostnaður hækkar Viðhaldskostnaður húsnæðis hækkar um 2,7% og hefur í för með sér 0,10% vísitöluhækkun. Rafmagn og húshitun hækka um 2,3% sem veldur 0,07% hækkun vísistölu framfærslukostnaðar. Hækkun á nýjum bílum um 1,2% veldur 0,09% hækkun vísitölunnar. Húsgögn og aðrar vörur til heimilis hækka um 1,8% og valda 0,12% vísitöluhækkun og gjafir hækkuðu um 5,6% sem veldur 0,11% hækkun framfærsluvísitölunnar. 3 tonn féllu til jarðar er vír slitnaði TALSVERT tjón varð þegar vír í krana togarans Más SH slitnaði þegar verið var að hífa 3 tonna rafmótor um borð í skipið eftir viðgerð þar sem það lá við bryggju í Hafnarfirði í gærmorg- un. Að sögn lögreglu féll mótorinn niður á dekk skipsins og stór- skemmdist og mátti litlu muna að menn yrðu undir hlassinu. Um var að ræða mótor fýrir spil skipsins. Að sögn lögreglunnar er talið að vírar í löndunarkrananum hafi verið í lélegu ástandi og ekki verið nægi- lega traustir til að bera hlassið. -----♦ ♦ «---- Grunnskólar Reykjavíkur Sótt um styrk til verkefna BORGARRAÐ hefur samþykkt að sækja um styrk úr Atvinnu- Ieysistryggingasjóði til ráðning- ar fólks í 64 störf við verkefni í grunnskólum borgarinnar. Ráðið verður í störfin í 6 mánuði, frá septemberbyijun til áramóta. Verkefnin eru þau sömu og þau sem styrkur var veittur til frá mars- mánuði til mafloka á þessu ári, eða til umferðaröryggisgæslu 26 störf, næringarátaks í grunnskólum 26 störf og vegna undirbúnings tölvu- væðingar skólasafna 12 störf. Kostnaður við verkefnin er áætlað- ur samtals um 28 milljónir króna. Sparnaðnr! Sparnaðnr! Spajnaður! ÍJrval! ÍJrval! Urval! Gaman! Gaman! Gaman! NYR HADST OG VETRARLISTI1993 FREEMANS UClí Á {S LAN DI Haust og vetrarlisti Freemans 1993 er kominn. Ótrúlega fjölbreytt vöruúrval á um 700 litprentuðum síðum. Athugið að verðið hefur aldrei verið hagstæðara. Verð frá því fyrir gengisfellingu! 91-65 39 00 Ósícir þú eftir að fá listann sendan þá getur þú hringt í síma: Eða sent meðfylgjandi miða. Haust og vetrarlisti Freemans 1993 kostar 490 kr., sem fæst endurgreitt við fyrstu pöntun, ekkert burðargjald. >1 Ég óska cftir aö fá sendan nýja haust og vetrarlista Freemans 1993. Nafn: //i'illl{l/sf. _ Pástnúmer: Kennit. Sladur: - Sendist til: Freemans, Bæjarhrauni 14, 222 Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.