Morgunblaðið - 12.08.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.08.1993, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 199S Undirmenn á Herjólfi segja úskurð gerðardóms rugl Launalækkunin verður 15-17 þúsund á mánuði „ALGJÖRT rugl. Það er það eina sem ég vil segja um þetta,“ sagði Ágúst Ingvarsson, bátsmaður í Herjólfi, um þann úrskurð gerðardóms að fella niður óunna yfirvinnutíma sem hásetar og bátsmaður hafa fengið samkvæmt sérsamningum við stjórn Herjólfs hf. og nemur einni klukkustund hvern virkan daga. Grétar Þorgilsson, háseti, kveðst full- viss um að dómnum verði freklega mótmælt. Hjá skrifstofu Heijólfs fengust þær upplýsingar að laun undirmanna lækkuðu sem svaraði 15.000 kr. á háseta og 17.000 kr. á bátsmann ef miðað er við stöðugildi á mánuði við úrskurð gerðardóms. Grétar sagðist aðeins hafa fréttir af niðurstöðu dómsins úr fjölmiðlum þegar rætt var við hann. „En við vissum auðvitað að þetta myndi fara svona og bitna á þeim sem ekki voru í verkfalli og vildu aðeins halda sínu,“ sagði Grétar. Aðspurður sagði hann að dómur- inn væri svo nýfallinn að menn hefðu ekki haft tíma til að ræða hann. „En ég held að honum verði mjög frek- lega mótmælt'því þetta er algjört svínarí. Við fengum þessa tíma upp- haflega vegna þess að við voru færri en við áttum að vera og erum enn jafn fáir,“ sagði Grétar og vísaði þannig til þess að 4 undirmenn, há- setar og bátsmaður, væru að jafnaði í skipinu í stað 6 sem upphaflega hefði verið gert ráð fyrir. Að auki sagði hann að gengið hefði verið á rétt undirmannanna með því að hætta að greiða út frí- daga ef svo hitti á að þeir Ientu á sunnudegi. „Þeir tóku þetta af þegj- andi og hljóðalaust þegar verkfallið byijaði í vetur en það hlýtur að fara í mál,“ sagði Grétar. Hann neitaði því að laun stýri- manna hefðu verið verri en undir- manna. „Þeir eru ekki með lélegri laun en við því vinnutími þeirra er mun styttri en okkar,“ sagði hann og benti á að undirmenn ynnu 24 daga í mánuði en stýrimenn 21 dag. Tvígreiðsla Jón H. Magnússon, lögfræðingur VSÍ, var fulltrúi útgerðarinnar fyrir gerðardómi. Hann segir að með úr- skurðinum sé verið að leiðrétta tví- greiðslu til undirmannanna því þeir hafi bæði fengið 5% grunnkaups- hækkun 1984 og einn óunnfmn yfir- vinnutíma á hvem virkan dag með samningi við stjórn Heijólfs 1981 en ættu aðeins að fá annað hvort. Hann segir að seinni samningurinn hafi orðið upphafið af samanburðardeild- um um borð en með dómnum sé launamunur milli hópa nær því sem gerist á öðmm kaupskipum. \ y Y 10° t__i/ ^ fJ r ,u VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 i gær að ísl. tíma hili voöur , Akureyri 9 fikýjeft Reykjavík 8 lénskýjað Bergen 11 skýjaö Helsinki 19 skýjað Kaupmannahöfn 17 skýjað Narssarssuaq 11 hálfskýjað Nuuk 6 þokaígrend Osló 16 skýjað Stokkhólmur 18 skýjað Þórshöfn 8 skýjað Algarve 28 heiðskírt Amsterdam 14 súld Barcelona 26 léttskýjað Berlín 17 hálfskýjað Chicago 21 þoka Feneyjar 26 léttskýjað Frankfurt 19 skýjað Glasgow 12 rigning Hamborg 18 skýjað London 21 skýjað LosAngeles 18 skýjað Lúxemborg 18 hálfskýjað Madríd 32 léttskýjað Malaga 28 mistur Mallorca 29 skýjað Montreai 20 mistur NewYork vantar Orlando 24 léttskýjað Paris 21 skýjað Madelra 23 léttskýjað Róm 29 léttskýjað Vín 20 skýjað Washlngton 22 mlstur Wlnnipeg vantar m •' ' 5 i Morgunblaðið/Kristinn Trjagroour snyrtur MARGT bendir til þess að tijágróður geti skemmst í vetur og þá einkum á Norðurlandi. Það kemur til vegna slæms árferðis í fyrra- sumar og sviptingasams veðurs það sem af er þessa sumars. Tijávöxtur hefur lítill á norðan- og austanverðu Iandinu en í þokka- legu meðallagi sunnan- og vestanlands. Trjávöxtur verður í meðallagi sunnan og vestanlands Hætta á skemmd- um á Norðurlandi TRJÁVÖXTUR hefur verið lítill á Norður- og Austurlandi það sem af er sumri. Vöxtur hefur verið í þokkalegu meðallagi annars staðar á landinu. Aðalsteinn Sigurgeirsson skógerfðafræðingur segir að vaxtarskilyrði allra tegunda tijáa ráðist af árferði síðasta árs og ára. í fyrrasumar hafi sumarið verið kalt og blautt en afleiðingar þess koma nú fram í takmörkuðum vexti tijáa. Hann telur að ef vaxtar- skilyrði batni ekki í þeim mánuði, sem er að líða, vofi hætta á tijá- skemmdum í vetur yfir, einkum á Norðurlandi. „Það má segja að afkoma trjá- gróðurs skiptist í tvo horn,“ sagði Aðalsteinn Sigurgeirsson skó- gerfðafræðingur. „Á Suður- og Vesturlandi hefur trjávöxtur verið í þokkalegu meðallagi en á Norður- og Austurlandi er ástandið mun verra og vöxtur verið almennt mjög lítill. „Suðvestanlands má greina góð- an vöxt hjá lauftijátegundum á borð við ösp og víði. Vöxtur er einn- ig í meðallagi hjá greni en afkoma furutegunda er afleit," sagði hann. „Um norðanvert landið og austan- vert er vöxtur lítill í flestum tegund- um en sérstaklega hjá þeim tegund- um, sem fóru illa í vorhretinu um mánaðamótin maí og júní. í því sambandi nefni ég lerkið sérstak- lega en sú tegund hefur alls ekki náð sér á strik í sumar.“ Tijáskemmdir? Aðalsteinn segir að þar sem sum- arið sé senn búið sé útlit fyrir að töluverðar skemmdir kunni að eiga sér stað á tijágróðri í vetur, einkum á Norðurlandi. „Það getur þó enn brugðið til beggja vona og ef veður batnar eitthvað síðasta mánuðinn kann það koma í veg fyrir hugsan- legar skemmdir." En hvemig þarf að viðra til að trén taki við sér? „Það þarf að vera vel hlýtt yfir daginn. Ennfremur er ágætt að hitamunur sé nokkur milli dags og nætur en þó má hann ekki vera svo mikill að það geri snögg næturfrost. Næsta 'víst má þykja að kal muni myndast í þessum síðasta ársvexti en reynslan kennir okkur þó að við þurfum ekki að vera ugg- andi um að tijágróður eyðileggist eða drepist alveg. Ég bendi á að við höfum upplifað álíka slæm sumur og sem dæmi má nefna sumarið 1979 þegar kals varð vart í barrtij- ám. Þau náðu sér á strik síðar.“ Aðalsteinn segir ábyggilegt að lítils vaxtar sé að vænta næsta sumar og ftuldinn í ár líklega eink- um bitna á barrtrjám um allt land og öllum tijágróðri á Norðurlandi. ------♦ ♦ ♦----- Loðnuveiðar glæðast á ný BATNANDI verður er á loðnu- miðunum eftir brælu að undan- förnu og hafa loðnuveiðar glæðst á ný. Nokkrir bátar voru á leið í Iand með fullfermi £ gær. Um 180 þúsund tonn hafa borist í land á vertíðinni en þar af hafa erlend skip landað tæplega 8 þúsund tonnum. Loðnubræðslur SR-mjöls hafa tekið á móti um 100 tonnum það sem af er vertíðinni. Hvergi löndunarbið Að sögn Árna Sörenssonar, verk- smiðjustjóra hjá SR-mjöli á Raufar- höfn, hefur verksmiðjan haft nægi- legt hráefni og von var á tveimur loðnubátum með fullfermi til Rauf- arhafnar í dag. Rúmlega sólarhrings sigling er á loðnumiðin og hægir það mjög á veiðunum. Hvergi mun vera löndunarbið þessa dagana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.