Morgunblaðið - 12.08.1993, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 12.08.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993 15 l ) \ ) > ) í Minning Þorbjörg Gríms- dóttír frá Litia-Seli Fædd 8. júlí 1889 Dáin 3. ágúst 1993 Þá vissi' ég fyrst, hvað tregi er og tár, sem tungn heftir, - bijósti veitir sár - er flutt mér var sú feigðarsaga hörð, að framar ei þig sæi’ ég á jörð; Er flutt mér var hin sára sorgarfregn, - er sálu mína og hjarta níst’ í gegn - að þú hefðir háð þitt hinzta stríð svo harla fjarri þeim, sem þú varst blíð. Ég veit hver var þín hinzta hjartans þrá, hugljúf móðir, - bömin þín að sjá; ég veit þau orð, er síðast sagðir þú,. sem sorgleg mér í eymm hljóma nú. Nú er mér ljóst, hvað átt ég hefi bezt, hver unni mér og hjálpaði mér mest, sem stríddi, svo ég fengi ró og frið og fúsast veitti mér í þrautum lið. Það var enginn, enginn nema þú, elsku móðir - glöggt ég sé það nú. Nú sé ég fyrst, að vinafár ég er, því enginn móðurelsku til mín ber. Þér þakka’ ég, móðir, fyrri trú og tryggð; á traustum gmnni var þín hugsun byggð. Þú stríddir vel, unz stríðið endað var, og starf þitt vott um mannkærleika bar. Hvíl þig, móðir, hvíl þig, þú varst þreytt; þinni hvíld ei raskar framar neitt. Á þína gröf um mörg ókomin ár, ótal munu falla þakkartár. (Jóhann M. Bjamason, Móðir mín) . Sonarkveðja. Aðalbjörn Aðalbjörnsson. Ástkær móðuramma mín, Þor- björg Grímsdóttir, fyrrverandi hús- móðir á Skólavörðustíg 24a, Reykja- vík, lést á Droplaugarstöðum 3. ág- úst sl. í hárri elli, eða liðlega 104 ára gömul. Þorbjörg var fædd að Litla-Seli, nú Vesturgötu 59, í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Katrín Ey- jólfsdóttir, fædd á Hausastaða-koti á Álftanesi, og Grímur Jakobsson, sjómaður í Litla-Seli. Þorbjörg ólst upp í foreldrahúsum og vann að mestu við fisk-vinnslu- störf og kaupamennsku þar til hún fluttist að Skólavörðustíg 24a, árið 1914, þar sem hún gerðist ráðskona hjá Aðalbirni Stefánssyni, prentara, eftir að hann missti fyrri konu sína, Kristínu Þorsteinsdóttur, það ár. Kristín var frá Úthlíð í Biskupstung- um og voru þau Aðalbjöm barnlaus. Þorbjörg og Aðalbjöm giftust 22. apríl 1915 og hófu þau búskap á Skólavörðustíg 24a þar sem þau bjuggu alla sína hjúskapartíð. Aðalbjöm fæddist 28. desember 1873 að Garðsá í Eyjafirði, sonur Stefáns Jónassonar bónda á Öngul- stöðum við Eyjafjörð og konu hans Guðrúnar Jónasdóttur. Aðalbjöm gerðist einn af stofnendum prent- smiðjunnar Gutenbergs og vann þar til dauðadags. Hann var einn af stofnendum Hins íslenska prentara- félags. Auk þess var hann mjög virk- ur í starfi templara og meðlimur í stúkunum „Verðanda" og „Æsk- unni“ og heiðursfélagi í þeim báðum. Þá var hann ritfær vel og gaf út bækur og tímarit. Ég átti því miður ekki kost á að kynnast afa nafna mínum, en hann lést 18. júní 1938. Þorbjörg og Aðalbjöm eignuðust 8 böm, sem öll fæddust á Skóla- vörðustíg 24a. Þau em: Aðalbjöm, f. 3. ágúst 1915, verkamaður, ókvæntur og bamlaus, búsettur á Skólavörðustíg 24a; Grímur, ,f. 1. mars 1917, d. 2. feb. 1987, verslun- armaður, kvæntur Lovísu Rut Bjarg- mundsdóttur. Þau eignuðust 4 böm og bjuggu í Rvk; Stefán, f. 20. júlí 1918, d. 26. sept. 1991, bifreiða- stjóri, kvæntur Sigurlaugu Guð- mundsdóttur, d.lO.maí 1977. Þau eignuðust 8 börn og bjuggu í Rvk; Kristín, f. 2.júní 1920, d. 12. mars 1981, húsmóðir á Skólavörðustíg 24a. Hún var ógift, en átti 1 barn með Karli Emilssyni, sjóm. á Djúpa- vogi; Katrín, f. 17. ágúst 1922, d. lO.júlí 1986, húsmóðir og verkakona, gift Kjartani Einarssyni, húsasmíða- meistara, d. 31. des. 1961. Þau eign- uðust 2 böm og bjuggu á Hvolsvelli; Guðjón, f. 30. okt. 1924, d. 31. des. 1979, slökkviliðsmaður, ókvæntur og bamlaus og bjó á Skólavörðustíg 24a; Guðrún, f. 10. feb. 1928, hús- móðir og verkakona, gift Helga Ein- arssyni, múrarameistara, og eiga þau 3 böm og búa á Hvolsvelli; Þorbjörn, f. 21. nóv. 1932, d. 4. ágúst 1977, sjómaður, ókvæntur og barnlaus. Hann bjó á Skólavörðustíg 24a. Systkini Þorbjargar voru; Jakob- ína, sem dó fárra vikna gömul, og Georg, sem dó ókvæntur og barn- laus. Fósturbróðir hennar var Jó- hannes Sörensen og fóstursystir, Geirþrúður Anna Gísladóttir. Eftir lát Aðalbjörns kynntist amma öðlingsmanninum Þorsteini Jónssyni, sjómanni, f. 29. jan. 1897 á Hafurbjarnarstöðum á Miðnesi. Þau giftust 23. des. 1944. Þau Þor- steinn vom barnlaus, en með honum átti hún og fjölskyldan góða daga, og meðal annarra sá sem þetta ritar og eiginkona hans, svo tilviljana- kennt sem það nú er’. Steini afi var óþreyttur við að kenna ungum sem öldnum skyld- mennum ömmu, svo og gestum og gangandi, ýmis heilræði og orð hins daglega lífs sem nauðsynleg þykja til að túlka áherslur og viðhorf og til að komast áfram í lífinu að hans mati. Þorsteinn, sem lést 5. sept. 1958, var áður giftur Guðmundínu M. Sigurðardóttur og áttu þau 5 syni. Eins og fram kemur, átti amma miklu barnaláni að fagna, en nú eru aðeins tvö af átta börnum hennar á lífi, þau Guðrún og frumburðurinn, Aðalbjörn, en andlát ömmu bar að á 78 ára afmælisdegi hans sem sjálf- sagt er tilviljun, en að sama skapi táknrænt vegna þess hversu vel hann annaðist móður sína allt frá því þau urðu tvö ein eftir á Skólavörðustígn- um, þar til hún fluttist að Drop- laugarstöðum fyrir nokkrum árum, en þar var sonurinn tíðförull gestur svo af bar. Talsvert hefur verið höggvið í barna- og tengdafólkshópinn. Þenn- an lífsglaða og fjöruga hóp sem margir muna vel. Áð sjá á eftir svo mörgum börnum hlýtur ávallt að vera þung raun hverri móður. En auk þess að eiga góða að, var amma andlega sterk manneskja og bar harm sinn í hljóði þegar slíkir atburð- ir gerðust, enda trúuð mjög og vel lesin í þeim efnum. Hún taldi fólki vel borgið í höndum síns besta vin- ar, Guðs almáttugs. Hún kveið ekki brottför sinni úr þessari tilvist. Hafði reyndar óskað sér þegar hún skynj- aði hinn háa aldur sinn, að tími væri kominn til að eiga aftur sam- vistir við brottkveðna ástvini sína, frekar en að missa stjórnina í aðrar hendur og láta stjana við sig, en það var ekki beint að skapi ömmu. Hún vildi sjálf vera í því hlutverkinu hérna megin. Skap hennar var mikið og enginn fór í grafgötur um hver var yfirmaður heimilisins, en undir niðri bjó hlýtt hjarta og stutt var í húmor- inn. Amma hafði fastmótaðar skoðanir á mönnum og málefnum, en aldrei man ég eftir að hún hafi látið slæm orð falla til nokkurs manns nema þá ef vera skyldi fýrir þá sök að við- komandi þætti sopinn fullgóður, enda var amma, eins og Aðalbjörn afi, stök bindindismanneskja, jafnvel þegar hún fékk sér eitt og eitt sérrý- staup á efri árum í góðra vina hópi. En í því var ekki alkóhól og þess vegna ekki „brennivín" eins og þetta sull hét einu nafni. Ein af sameiginlegum lífsskoðun- um ömmu og afa var pólitíkin, en þau voru bæði miklir stuðningsmenn Alþýðuflokksins og var amma heið- ursfélagi flokksins í Reykjavík hin síðari ár. Ekki þótti henni allskostar gott ef um pólitíska undanvillinga í ættinni var að ræða, en lét sér gott líka. Oft var fjörugt við matarborðið á Skóló, enda mannmargt oft og flestar stefnur í pólitík viðraðar og varðar. Á bestu árum ævi sinnar gafst ömmu ekki mikill tími til annarra hugðarefna en að halda börnum sín- um heimili og koma þeim til vits og ára. En þegar aðrir tóku við sem hún treysti fyrir heimilisverkunum, greip hún oft í pijónana auk lesturs blaða og bóka, en oft sá maður til hennar rýna í blöð gleraugnalaust og það jafnvel í hálfrökkri, enda mátti ekki eyða í óþarfa ljósanotkun. Síðustu ár ævi sinnar á Skólavörðustfgnum dundaði hún sér við að pijóna sokka og urðu margir ættingjar og vinir þéss aðnjótandi. Fyrir mig var og er heimilið á Skólavörðustíg 24a hvort tveggja, minningarsjóður ungdómsáranna og mitt annað heimili, enda fæddur þar og uppalinn og ber lykil að mínu „hóteli“ í Reykjavíkurferðum enn þann dag í dag. Að vísu er þar ansi fámennt orðið miðað við það sem var í mínu ungdæmi. Húsrými er ekki stórt, en þó alltaf nóg. Þar hafa ætíð, auk fjölskyldunnar, notið hús- rýmis frændvinir ýmsir sem og aðrir vinir, auk allra blómanna sem amma hafði mikið dálæti á og talaði dag- lega til. Hún bauð þeim góðan dag og góða nótt eins og öllum ættingjun- um og vinunum sem myndir voru af og betrekktu alla veggi heimilisins. Nú er hún gengin, elsti innfæddi Reykvíkingurinn, Þorbjörg Gríms- dóttir, á vit þess sem öllu ræður, en það var henni mikið tilhlökkunarefni og fyrir það samgleðst ég henni. Á 104 ára afmælisdegi sínum, 8. júlí sl., meðtók hún og hafði uppi spaugs- yrði við okkur nafnana. Henni varð aldrei misdægurt fyrir utan það að eignast 8 börn og fá barnaveiki ásamt tveimur bömum sínum sem þá vom ung, en yfir það var komist. Hún andaðist drottni sínum í friði og ró, södd iífdaga. Afkomendur hennar eru nú orðnir nærri 100 tals- ins. Á Droplaugarstöðum átti amma sitt heimili síðustu árin og naut þar frábærrar umönnunar sem bestu þakkir em færðar fyrir, svo og þeim ættingjum og vinum sem heimsóttu hana meðan á dvöl hennar stóð þar. Ég vil að lokum þakka ömmu sam- fylgdina í 50 ár, ásamt umönnun og þátt hennar í uppeldinu sem hún reyndi eftir fremsta megni og þolin- mæði að sinna. Við fyölskyldan á Hvolsvelli þökkum fyrir húsaskjól og veitingar á Skólavörðustíg 24a. I þeirri vissu að móttakan í nýjum heimkynnum verði sem hún, fögur og hlý, biðjum við henni, sem og ættingjum.og vinum, allrar blessun- Aðalbjörn Kjartansson. Móðir mín Ertu horfin? Ertu dáin? Er nú lokuð glaða bráin? Anprs horfi ég út í bláinn, autt er rúm og stofan þín, elskutega mamma mín. Gesturinn með grimma Ijáinn glöggt hefur unnið verkin sín. Ég hef þinni leiðsögn lotið, líka þinnar ástar notið, finn, hvað allt er beiskt og brotið, burt er víkur aðstoð þín elsku góða mamma mín. - Allt sem gott ég hefi hlotið, hefir eflt við ráðin þín. Þó skal ekki víla og vola, veröld þótt oss bijóti í mola. Starfa, hjálpa, þjóna, þola, það var alltaf hugsun þín, elsku góða mamma mín. - Og úr rústum kaldra kola kveiktirðu skærust blysin þín. Flýg ég heim úr fyarlægðinni, fylgi þér í hinsta sinni, krýp með þökk að kistu þinni, kyssi í anda sporin þín, elsku góða mamma mín. - Okkur seinna í eilífðinni eilíft ljós frá guði skín. (Ámi Helgason - Móðir mín) Kveðja frá dóttur. Optan daguf sunnurf^ a ríelstu sb skólinr)/a Hvarrt aöarinsúBanþfsóknar: 'rins og^ielstu verkej ar kynningán m.a. á matvælum, nýjum búvélunrog Nautastpö B.í. fj n, úllarsel, húsdýr, ýmsar ðyæfytar uppákomur. H/iu, kaffivettvo^ ALLIR VELKOMNIR Bandaftkóllnn á Hvannayrf Hagþjönusta landbúnaöarfns Rannsöknarstofnun landbúnaöartns Gefðu þig töfrum Bæjaralands á vald í þessari einstöku ferð. Glaðvært götulíf, fráþærar verslanir, Alparnir í seilingarfjarlægð og ómótstæðilegur bæverskur matur og mjöður. 44.900 kr. á mann í tvíbýli. Gist á góðu hóteli í miðborg Munchen. Örugg íslensk fararstjórn. Aðeins þessi eina ferð. Innifalið: Flug, gisting, skattar, ferðir til og frá flugvelli erlendis, íslensk fararstjórn. *Forfallagjald 1.200 kr. er ekki innifalið í verði. Forfallagjald er valfrjálst en Flugleiðir hvetja farþega til aö greiða það til að firra^^^^pa^j^áh Traustur tslenskur ferðafe'lagi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.