Morgunblaðið - 12.08.1993, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 12.08.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993 17 Yfírlýsing stjórnar FUS á Sauðárkróki MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing: Vegna greinar Andra Kárasonar í Morgunblaðinu í gær, fimmtudag, getur stjórn Víkings, félags ungra sjálfstæðismanna á Sauðárkróki, ekki látið hjá líða að koma eftirfar- andi á framfæri. Fjórir félagsmenn, þeir Þorleifur Óskarsson, formaður Víkings, Fjöln- ir Ásbjörnsson gjaldkeri, Páll Brynj- arsson, varaformaður og formaður Kjördæmissamtaka ungra sjálfstæð- ismanna á Norðurlandi Vestra, og Andri Kárason, fyrrverandi formað- ur Víkings (1987-1990) óskuðu eftir því að fara sem fulltrúar félagsins á þing Sambands ungra sjálfsætðis- Borgin með í rekstri verk- menntabúða BORGARRÁÐ hefur samþykkt að taka þátt í rekstri „Verkmennta- búða í Reykjavík" á árinu 1994 en það er þróunarverkefni sem ákveðið hefur verið að fara af stað með í tveimur grunnskólum í borginni. Markmið verkefnisins er að koma inn markvissri fræðslu í grunnskólanámið svo nemendur eigi auðveldara með að velja sér iðnaðarstörf í fram- tíðinni. Gert er ráð fyrir að kostn- aðarhluti borgarinnar nemi 380.000 krónum. Um er að ræða samstarfsverkefni Fræðslumiðstöðva iðnaðarins, ASÍ, Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur, VSI og tveggja grunnskóla. Fræðslumið- stöðvar atvinnulífsins munu fræða unglingana um tilteknar iðngreinar í þijú ár. ♦ ♦ ♦ Sveppur veld- ur hárlosi á hrossum manna, sem haldið verður á Selfossi 13.-15. ágúst. Þar eð félagið hefur aðeins rétt á að senda þijá fulltrúa á þingið var efnt til atkvæðagreiðslu innan stjórnar um það hveijir yrðu fulltrúar Víkings. Við höfðum því sama hátt á og flest önnur félög SUS um val fulltrúa. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar varð sú að þeir Þorleifur, Páll og Fjölnir voru kjörnir fulltrúar félags- ins. Við teljum að þessi atkvæða- greiðsla hafi á allan hátt verið eðli- leg og lýsum yfir undrun okkar á því hvers vegna Andri Kárason get- ur ekki tekið því að hafa orðið undir í atkvæðagreiðslu. Hann getur varla borið brigður á að hinir fulltrúarnir þrír hafi verið virkir í starfi Víkings. í greininni ýjar Andri að því að stjórn Víkings sé aðeins viljalaust verkfæri í höndum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, formanns SUS. Það eru okkur sár vonbrigði að Andri skuli ekki bera meira traust til okk- ar en svo að telja okkur ófæra um að taka sjálfstæðar ákvarðanir. Reyndar má geta þess að þessi sami Guðlaugur, sem Andri ræðst harkalega á í grein sinni, hefur unn- ið ötullega að því að tryggja Andra stuðning til kjörs sem fulltrúi Norð- urlands vestra í stjórn SUS. Stjórn Víkings FUS á Sauðár- króki, Þorleifur H. Óskarsson formaður, Páll Brynjarsson varaformaður, Fjölnir Ás- björnsson gjaldkeri og ritari, Ragnar Pálsson, Kristjana Jónsdóttir. ------♦ ♦ ♦------ Nýtt hús Hæstaréttar Sýning- á tillög- um arkitekta Sýning á samkeppnistillögum frá arkitektum fyrir nýbyggingu Hæsta- réttar Islands verður í anddyri Borg- arleikhússins virka daga frá kl. 14 til 20 og frá kl. 14 til 18 um helgar. Sýningin er opin almenningi og •lýkur sunnudaginn 22. ágúst nk. (Fréttatilkynning) Morgunblaðið/Þorkell Erla Stefánsdóttir, sjáandi, bendir á hulduverur og bústaði þeirra í Hellisgerði í Hafnarfirði. Huliðsheimar Hafnarfjarðar kortlagðir „ÞAÐ ER alltaf sólskin hjá álfunum, eins þó það sé rigning hjá okkur,“ sagði Erla Stefánsdóttir, sjáandi, í álfaskoðunarferð um Hafnarfjörð með fjölmiðlafólki í gær. Ferðin var farin í tilefni af útkomu huliðsheimakorts af Hafnarfirði, en þar eru kortlagaðar byggðir álfa, huldufóiks, dverga og fleiri vera. Það er Erla sem sá um teikningar álfabyggða og texta en Koibrún Þóra Oddsdóttir iandslagsarkitekt sá um kortlagningu og ljósmyndir. Kortið er fáanlegt í Upplýsingamiðstöð ferðamanna, Vesturgötu 8, Hafnar- firði. Erla hefur um árabil fengist við að teikna álfabyggðir víða um land en útgáfa Hafnarfjarðarbæjar á huliðsheimakortinu mun vera ein- stætt framtak. Á kortinu er ekki aðeins að fínna skilmerkilegt yfir- lit um byggð hulduvera í Hafnar- firði heldur eru þar teikningar af verunum_ sjálfum og híbýlum þeirra. Á bakhlið kortsins er að finna ýmsar upplýsingar um ver- urnar og þar er einnig kort yfir „orkulínur“ í nágrenni Hafnar- fjarðar og hvernig þær tengjast „orkulínum" landsins. Lífsorka Erla sagði að álfabyggðin í Hafnarfirði væri að mörgu leyti einstæð og verurnar velviljaðar mannfólkinu. Hún sagði að mikil iífsorka væri í Hamrinum og yfir bænum væri risastór engilvera sem væri verndari Hafnarfjarðar. í Hellisgerði var staldrað við og lýsti Erla þar allskyns hulduverum; álf- um, dvergum, jarðdvergum og byggingum þeirra. Hún sagði að þessar verur lifðu margar langa ævi, yrðu mörg hundruð ára gaml- Engilvera Huliðsheimakortið. Á kápu þess er teikning eftir Erlu af engil- veru yfir Hamrinum. ar en aðrar lifðu aðeins nokkra daga. Erla hvatti fjölmiðlafólkið til að opna innri sjónir fyrir ævintýri lífsins og litast um í álfabyggð- inni. Mátti heyra að viðstaddir voru misjafnlega trúaðir og var Erla spurð spjörunum úr um hina ósýnilegu íbúa Hafnarfjarðar. Kolbrún Þóra Oddsdóttir lands- lagsarkitekt benti á að hvort sem fólki finnsit að umfjöllun um álfa- byggðir samræmdust nútímanum eða ekki væru álfar órjúfanlega tengdir íslenskri menningu eins og fjölmörg örnefni sönnuðu. Fróðleik um álfa bæri því að halda til haga og væri huliðsheimakortið dæmi um slíka viðleitni. Erla Stefnásdóttir mun efna til álfaskoðunarferðar um Hafnar- fjörð í kvöld kl. 19. Farið verður með rútubíl frá Upplýsingastöð ferðamanna og mun ferðin taka um tvær klukkustundir. Ferðin kostar 250 kr. fyrir fullorðna en 100 kr. fyrir börn. GRUNUR leikur á að hross frá bæ á RangárvöIIum hafi smitast af sveppasýkingu sem veldur hár- losi. Að sögn Lars Hansen, dýra- læknis, kom sýkingin meðal ann- ars fram á hrossum í Skagafirði og Reykjavík í fyrravetur. Lars segir niðurstöður úr grein- ingu sýna sem tekin voru af hross- unum á Rangárvöllum ekki liggja fyrir, en líklegt væri að um væri að ræða svepp sem getur valdið hárlosi á blettum. Aðspurður sagði Lars að sýkingin væri ekki alvarleg, en smit gæti átt sér stað með reiðtygjum, þegar hross nudduðu sér við girðingarstaura eða væru að kljást. Oftast læknuðust þau sjálf á nokkrum vikum, en einfalt væri að ráða niðurlögum sveppasýk- ingarinnar. Ómissandi uppljsingabanki RVORUR VEGI 18 S RAÐV

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.