Morgunblaðið - 12.08.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.08.1993, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993 Línda til sölu REKSTUR Súkkulaðiverksmiðjunnar Lindu á Akureyri hefur verið auglýstur til sölu og virðist áhugi á kaupum verulegur, en margar fyrirspurnir bárust í gær til Faseignasölunnar við Gránu- félagsgötu sem hefur með söluna að gera. Landsbanki íslands er stærsti eigandi verksmiðjunnar. Súkkulaðiverksmiðjan Linda var stofnuð á Akureyri árið 1948 og hefur starfsemi farið þar fram síð- an, enda stefna eigenda að reka fyrirtækið í bænum. Erfiðleikar hafa verið í rekstri fyrirtækisins síðustu misseri, fyrir- tækið var með greiðslustöðvun hluta úr síðasta ári og var í árslok veitt heimild til nauðasamninga sem tókust fyrr á þessu ári. Landsbanki íslands eignaðist að loknum nauðasamningum rétt rúmlega 60% hlut í fyrirtækinu. Aðrir eigendur eru m.a. Lífeyris- sjóður Iðju, félags verksmiðjufólks, Esso, fjölskylda Eyþórs Tómasson- ar stofnanda súkkulaðiverksmiðj- unnar og Sigurður Amórsson. Margar fyrirspumir Margir hafa sýnt áhuga á að kaupa reksturinn og var hann aug- lýstur til sölu í gær. Um er að ræða sölu á vélum og tækjum ‘AK.unayri Fimmtudagur 12. ágúst. ■Deiglan kl. 20.30, tónleikar og kvöldvaka. Hljómsveitimar Helgi og hljóðfæraleikaramir, Skrokkabandið og Norðanpiltar leika. ■Listaskálinn kl. 10.00. Grafík- vinnudagar í vinnustofu Guð- mundar Ármanns. Opið öllum. ■Grafíkvinnudagar í Listaská- lanum. ásamt hráefnisbirgðum, birgðum fullunninna framleiðsluvara auk viðskiptavildar. Hjá fasteignasöl- unni, sem hefur með söluna að gera, fengust þær upplýsingar í gær að margir hefðu hringt til að spyijast fyrir, þannig að greinilegt væri að áhugi væri verulegur. ------» ♦ ♦ Krossanesverksmiðjan Tíu þúsund t af loðnu RÚMLEGA 10 þúsund tonn af loðnu hafa borist til Krossanes- verksmiðjunnar nú í sumar. Þórður Jónasson EA landar hjá verksmiðjunni síðdegis í dag, fimmtudag, um 700 tonnum eða um svipað leyti og bræðslu lýk- ur á síðasta loðnufarmi. „Við erum ánægðir með þetta. Það er skemmtilegra á meðan hjól verksmiðjunnar snúast af fullum krafti," sagði Jóhann Pétur And- erssen framkvæmdastjóri í Krossanesi. „Það hefur ekki verið neitt vandamál að ná í loðnu fram að þessu og vonandi verður góð veiði áfram, maður hefur ekki ástæðu til að ætla annað.“ ------» ♦ ♦---- ■ POPPHLJÓMS VEITIN Plá- hnetan leikur í Sjallanum á Akur- eyri föstudagskvöldið 13. ágúst. Hljómsveitin leikur síðan í Mið- garði Skagafirði á laugardags- kvöld, 14. ágúst. Pláhnetan er skip- uð þeim Stefáni Hilmarssyni, Ing- ólfi Guðjónssyni, Ingólfí Sigurðs- syni, Friðrik Sturlusyni og Sigurði Gröndal. Akureyrarbær Með tilvísun til 17. og 18. greinar skipulagslaga auglýsir Akureyrarbær hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 1990-2010. í breytingartillögunni er gert ráð fyrir að heimilt verði að byggja orlofshúsaþyrpingu norðan við Kjarnalund, hús Náttúrulækningafélags Akureyrar í Kjarnaskógi. Þar er óbyggðu svæði, útivistar- svæði, breytt í svæði fyrir orlofshúsabyggð. Einnig er lagt til að gert verði ráð fyrir að tengibraut frá væntanlegri íbúðarbyggð vestan svæðisins tengist Eyjafjarðarbraut í stað þess að tengjast Kjarna- skógi eins og sýnt er á gildandi aðalskipulagi. í samræmi við þetta eru gerðar minniháttar breyt- ingar á afmörkun byggingarsvæða aðliggjandi íbúðarsvæða. Breytingartillagan, uppdráttur og greinargerð, ligg- ur frammi almenningi til sýnis á Skipulagsdeild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð, næstu 8 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til mánudagsins 7. október 1993, þannig að þeir, sem þess óska, geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Athugasemdafrestur er til 7. október 1993. Þeir, sem telja sig verða fyrir bóta- skyldu tjóni vegna skipulagsgerðarinnar, er bent á að gera athugasemdir innan tilgreinds frests, ella teljast þeir samþykkir tilögunni. Jafnframt hangir uppi til sýnis tillaga að deiliskipu- lagi orlofshúsabyggðarinnar, sem auglýst var í lok júní sl. Athugasemdafrestur vegna deiliskipulags- tillögunnar er framlengdur til sama tíma. Skipulagsstjóri Akureyrar. Girðingarvinna BRÆÐURNIR'Jngólfur og Sveinn brugðu sér út og notuðu langþráð blíðviðrið til að dytta að girð- ingum sínum. Hundarnir Kobbi og Hringur snérust í kringum þá. Loksins UNDUR og stórmerki, hafa sjálfsagt margir veðurbarðir Akureyringar hugsað í gær, en þá brá svo við að ekki varð vart norðanáttarinnar sem þrálátlega hefur hrellt íbúa um landið norðan- og austanvert í sumar. Lítið sást samt til sólar, en það eitt að sleppa undan hinni gamalkunnu nöpru norðanátt kom ijölmörgum í sumarskap Veðurstofan spáir því að í dag verði léttskýj- að og hlýjast á norðausturhluta landsins. Hins vegar er búist við að aftur dragi til norðanátt- ar um helgina en talið að hún standi aðeins í tvo daga að þessu sinni. Andarungaveiðar ÞESSIR ungu innbæingar voru eins og aðrir Akur- eyringar fegnir að geta geymt lopapeysuna inn í skáp í gær. Þeir ýttu bát sínum á flot út á tjörn, en tilgangurinn var að veiða andarunga. Fyrir eiga krakkarnir 10 ándarunga sem þeir ala í gömlum skúr í nágrenninu. Samvinna Svarfaðardalshrepps og félagasamtaka í sveitinni Framkvæmdir við félagsheimili Dalvík. í SVARFAÐARDAL eru hafnar framkvæmdir við byggingu fé- lagsheimilis fyrir sveitina sem koma mun í stað gamla Þinghúss- ins á Grund. Byggingin er við Húsabakkaskóla og á jafnframt að nýtast sem íþróttasalur fyrir skólann. Það er Svarfaðardals- hreppur sém stendur að byggingunni í samvinnu við félagasam- tök í sveitinni og er heildarkostnaður við framkvæmdina áætlað- ur liðlega 60 milljónir króna. hússins er Helgi Már Halldórsson hjá Arkitektum sf. í Reykjavík, en Helgi er frá Jarðbrú í Svarfaðar- dal. Burðarþolsteikningar eru gerðar af Þorsteini Friðþjófssyni frá Dalvík. Framkvæmdir hafnar Þetta nýja húsnæði sem er 516 ili, íþróttasal og leikskóla en í kjall- fermetrar að grunnfleti byggt úr ara verða 170 fermetrar fyrir bún- steinsteypu mun hýsa félagsheim- ingsaðstöðu og geymslur. Arkitekt Skr ifstof u h úsnæði Til sölu eða leigu er skrifstofuhúsnæði á 2. hæð í versl- unarmiðstöðinni Kaupangi á Akureyri. Stærð 117 fm ásamt 10 fm í sameign. Gott ástand. Laust strax. Góð staðsetning. Góð greiðslukjör. Upplýsingar veita: Hólmgeir, sími 96-21344, Baldvin, sími 96-27344. Fyrsti áfangi hússins, uppsteypt og fokhelt var boðinn út í sumar og bárust fímm tilboð í verkið. Lægsta tilboð var frá Tréverk hf. á Dalvík, 24,7 milljónir króna en það er 88% af áætluðu kostnaðar- verði. Tilboði Tréverks var tekið og hefur fyrirtækið þegar hafið framkvæmdir við grunn hússins. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við fyrsta áfanga ljúki fyrir ára- mót. Fréttaritari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.