Morgunblaðið - 12.08.1993, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.08.1993, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993 Styðjum Guðlaug1 til áfram- haldandi formennsku í SUS eftirAra Edwald og Þorgrím Daníelsson Næstkomandi sunnudag kjósa ungir sjálfstæðismenn sér forystu til næstu tveggja ára, á landsþingi Sambands ungra sjálfstæðismanna á Selfossi og í Hveragerði. Tveir menn verða í framboði til for- mennsku sambandsins, þeir Guð- laugur Þór Þórðarson, formaður, og Jónas Fr. Jónsson, sem á sæti í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna. Öflug hreyfing ungs fólks Það skiptir miklu máii, nú þegar tvennar kosningar eru framundan, að valinn maður skipi hvert sæti í forystu Sambands ungra sjálfstæð- ismanna. Samtökin hafa átt stóran þátt í kosningabaráttu Sjálfstæðis- flokksins undanfamar kosningar og í ljósi stöðu flokksins nú má ætla að það verði enn mikilvægara. í síðustu kosningum, bæði til Al- þingis og sveitarstjórna, hefur Sam- band ungra sjálfstæðismanna kosið að fara nýjar leiðir til að laða ungt fólk til fylgis við flokkinn, og meðal annars komið hugmyndum og sjón- armiðum flokksins á framfæri í kvik- myndahúsum og á hljómplötu. Það starf hefur skilað miklum árangri og skoðanakannanir sýna yfirgnæf- andi fylgi ungs fólks, sem afstöðu tekur til stjórnmálaflokka, við Sjálf- stæðisflokkinn. Traust forysta Guðlaugur Þór Þórðarson, for- „Innan Sambands ungra sjálfstæðis- manna mætist fólk með fjölbreytt viðhorf og ólíkan bakgrunn. Strengir samtakanna verða því ekki stilltir saman með einsýni og kreddufestu, heldur verður formaður sam- takanna að kunna þá list að leiða saman ólíka einstaklinga, jafnt sem stjórnandi og félagi, og vera um leið trúr þeim hugsjónum sem sam- eina sjálfstæðismenn.“ maður SUS, hefur átt stóran þátt í nýjum leiðum í starfi samtakanna undanfarin ár. Hann hefur gegnt þar varaformennsku síðustu fjögur ár og setið í stjórn í sex ár samtals. Þar áður hefur hann verið formaður félaga ungra sjálfstæðismanna í Borgarnesi og á Akureyri. Guðlaug- ur hefur því mikla reynslu sem ætti að nýtast vel þegar til kosninga kemur. Hann situr jafnframt í mið- stjórn Sjálfstæðisflokksins og er hann yngsti maður sem þangað hef- ur verið kjörinn, sem sýnir vel það traust sem hann nýtur meðal sjálf- stæðismanna um alit land. Lýðræðislegri vinnubrögð Margt gott hefur áunnist í starfi ungra sjálfstæðismanna undanfarin ár. Félögum hefur fjölgað mikið um allt land og góður árangur náðst í kosningum. Félagsmenn í SUS eru nú um átta þúsund talsins og SUS þar með tvímælalaust stærsta og öflugasta fjöldahreyfing ungs fólks á Islandi. Nú í vor hófst málefnaund- irbúningur fyrir sambandsþingið og að frumkvæði Guðlaugs Þórs Þórð- arsonar, sem þá var nýorðinn for- maður samtakanna, var ákveðið að beita nýjum og lýðræðislegri vinnu- brögðum í þessu starfi og fá fleiri til að taka virkan þátt. Árangurinn hefur orðið sá að aldrei hafa fleiri komið að málefnastarfi ungra sjálf- stæðismanna, eða á þriðja hundrað manns. Mikilvæg verkefni bíða En þótt margt hafi áunnist í starfi hreyfingarinnar á undanförnum árum bíða stór verkefni. Skoðana- kannanir sýna minnkandi fylgi kvenna við Sjálfstæðisflokkinn og staða flokksins á landsbyggðinni er víða alltof veik. Ungir sjálfstæð- ismenn þurfa að hleypa lífi í stefnu- mörkun flokksins í þeim málaflokk- um, sem ekki hefur verið sinnt nægi- lega. Þeir þurfa einnig sérstaklega að eiga uppbyggilegt framlag til þess hvernig leysa skuli þau vanda- mál sem blasa við í efnahagslífi okk- ar, án þess að alið sé á sundrungu milli þéttbýlis og dreifbýlis. Á þess- Ari Edwald um sviðum geta ungir sjálfstæðis- menn átt stóran þátt. Afram Guðlaugur! Hvaða framhald verður á því starfi, sem hafíst hefur, veltur að miklu leyti á þeirri forystu sem ung- ir sjálfstæðismenn kjósa sér á sunnu- dag. Miklu varðar að til formennsku veljist reyndur og hæfur maður, sem hefur starfað dyggilega innan hreyf- ingarinnar. Raunverulegur árangur byggist ekki á háværum yfirlýsing- um og upphrópunum, heldur á sam- stöðu og vinnu. Innan Sambands ungra sjálfstæðismanna mætist fólk með fjölbreytt viðhorf og ólíkan bak- gi-unn. Strengir samtakanna verða því ekki stilltir saman með einsýni og kreddufestu, heldur verður for- maður samtakanna að kunna þá list ★ * ★ * * ¥ Þaö verða sannkallaðir * i Sulnasal laugardagskvöld! &gfótrisoe/tín GLEÐIGJAFAR Carl Moller - hljómborö Einar Bragi - sax Árni Scheving - bassi Einar Scheving - trommur ANDRÉ BACHMANN S<BJARNI ARA ásamt MÓEIÐI JÚNÍUSDÓTTUR V Vi f/U/mcr/' f Hh'/vva\s'o// A'/ent/ft///' OPIÐ FRÁ KLUKKAN 1 9:00 - 03:00 Doktorsvörn í barnalækningnm ÞANN 28. maí sl. varði Geir Gunnlaugsson barnalæknir dokt- orsritgerð sína „Transmission of qualities through breast milk: breastfeeding practices and child health in Guinea-Bissau“. Vörnin fór fram við barnadeild Karol- inska sjúkrahússins/St. Göran í Stokkhólmi þar sem Geir hefur starfað undanfarin ár. Andmæ- landi var dósent Mehari Gebre- Mehin barnalæknir á Háskóla- sjúkrahúsinu í Uppsala og 5 manna dómnefnd var skipuð há- skólakennurum við Karolinska institutet. Doktorsritgerðina byggði Geir á vinnu sinni í Guineá-Bissau á vest- urströnd Afríku á árunum 1982-85. í ritgerðinni er lýst hug- myndum kvenna frá ýmsum ætt- flokkum í landinu um gæði brodds, fyrstu mjólk móður eftir fæðingu, og bijóstamjólkur yfirleitt. Konurn- ar hafa ýmsar aðferðir við að meta ágæti mjólkurinnar og til að bæta hana ef þær telja þörf á því. Þessar hugmyndir geta þó leitt til tafa, allt að nokkrum dögum, á bytjun bijóstagjafar. Slík töf gæti orðið nýfæddu barni til skaða, ekki aðeins fyrstu dagana eftir fæðingu heldur einnig fyrstu æviárin. Sú skoðun byggist á þeirri þekkingu sem við höfum í dag um sérstaka eiginleika brodds, aðallega hvað varðar vörn gegn sýkingum. Er nú almennt tal- ið æskilegt að hefja brjóstagjöf inn- an 30 mínútna frá fæðingu, og er unnið að því víða um heim með stuðningi Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar og Bamahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Til að kanna hversu mikil töfin á byijun bijóstagjafar er í reynd meðal gíneanskra kvenna var far- aldsfræðilegum aðferðum beitt. Kom í ljós að fáar konur í höfuð- borginni Bissau byija bijóstagjöf strax eftir fæðingu, hvort sem þær fæddu heima hjá sér eða á sjúkra- húsi, og að aðeins helmingur kvenn- anna hafði gefið barni sínu bijóst fyrsta sólarhringinn. Konur sem til- Sögrifræg- hús merkt á afmælisdegi Reykjavíkur BORGARRÁÐ hefur samþykkt að 10 söguleg hús í Reykjavík verði merkt á afmælisdegi borg- arinnar 18. ágúst nk. Árbæjar- safn hefur látið vinna útlit skilt- anna og mun hafa umsjón með staðsetningu þeirra á húsin. Skiltin verða í A - 5 stærð og úr koparblöndu. Umhverfis- málaráð Reykjavíkur greiðir kostnað af merkingunum. Valin hafa verið 10 gömul hús til að merkja í fyrsta áfanga en þau eru eftirfarandi: Geysishúsið að Aðalstræti 2, Stöðlakot að Bók- hlöðustíg 6, Bjamaborg að Hverfisgötu 83, Lækjargata 2, Bryggjuhúsið að Vesturgötu 2, Bankastræti 3, Norska bakaríið að Fishersundi 3, Franski spítalinn að Lindargötu 51, Hótel Borg að Pósthússtræti 11 og Iðnó að Von- arstræti 3. Danskeppni í Singapore Komust í undanúrslit BJARNI Þór Bjarnason og Jó- hanna Jónsdóttir frá Nýja Dans- skólanum eru nú í Singapore og tóku þar þátt í danskeppni laug- ardaginn 7. ágúst st. Bjarni Þór og Jóhanna náðu þeim árangri að komast í undanúrslit bæði í latín og standard dönsum. Á mánudag fara þau til Ástralíu og keppa fyrir ísland í heimsmeist- arakeppni í 10 dönsum. Þorgrímur Daníelsson að leiða saman ólíka einstaklinga, jafnt sem stjórnandi og félagi, og vera um leið trúr þeim hugsjónum sem sameina sjálfstæðismenn. Undirritaðir hafa átt þess kost að starfa með Guðlaugi Þór á ýmsum vettvangi í Sjálfstæðisflokknum. Það er vegna þeirrar reynslu, sem við treystum okkur til að fullyrða að öflugt framlag ungra sjálfstæðis- manna, innán flokksins og í þjóðfé- laginu, verður best tryggt á kom- andi árum með áframhaldandi for- mennsku Guðlaugs Þórs Þórðarson- ar. Við skorum á ungt sjálfstæð- isfólk að kjósa Guðlaug í formanns- kjörinu á sunnudag. Arí Edwald er 1. varaformaður SUS og Þorgrímur Daníelsson situr í miðstjóm Sjálfstæðisflokksins Dr. Geir Gunnlaugsson heyra balanta-ættflokknum höfðu tilhneigingu til að seinka byijun bijóstagjafar í allt að 3-7 daga í samræmi við hugmyndir þeirra um skaðsemi brodds fyrir nýfætt barn- ið. Allar gáfu þó konumar að lokum bijóst og héldu því áfram í allt að 2-3 ár. Sú seinkun sem varð á bijóstagjöfinni hafði engin augljós áhrif á vöxt eða lifun barnanna fyrstu þijú æviárin. Næringar- ástand þeirra var almennt slæmt og dánartíðni há. Líkindi voru á að 215 af 1.000 frískum börnum deyi á aldrinum 1-35 mánaða (til sam- anburðar má geta að á íslandi deyja 6-7 af hveijum 1.000 fæddum börnum innan 12 mánaða aldurs). Aftur á móti fannst vísbending um að seinkun bijóstagjafar geti valdið meiri tíðni niðurgangs fyrsta æviár- ið. Tímalengd bijóstagjafar gínean- skra barna virtist þó ekki hafa nein verndandi áhrif á sýkingu í niður- gangi af völdum rotavírus, einni algengustu orsök niðurgangs hjá börnum um allan heim. Geir fæddist 24. maí 1951 og er sonur hjónanna Gunnlaugs Pálsson- ar arkitekts og konu hans, Áslaugar Zoéga. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1971. Hann stundaði nám við lækna- deild Háskóla íslands 1972-78 og varð sérfræðingur í bamalækning- um 1990. Geir er kvæntur Jónínu Einarsdóttur kennara og mannfræð- ingi og eiga þau þijá syni. Fjölskyld- an er nú á förum til starfa í Guinea- Bissau á vegum Hjálparstofnunar dönsku kirkjunnar. € 1 I 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.