Morgunblaðið - 12.08.1993, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.08.1993, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993 Hálfur lambaskrokkur á 299 krónur kílóið hjá Hagkaup í DAG hófst sérstakt kjöttilboð hjá verslunum Hagkaups og kost- ar kílóið af hálfum lambaskrokki Dla frá Goða 299 krónur. í pokunum eru eitt lambalæri, hálfur hryggur, slag og frampart- ur sagaður í súpukjöt. Meðalþyngd er 6-7 kíló. Þetta þýðir að sjö kílóa poki er á rúmlega tvö þúsund krón- ur. Venjulega er gott læri á bilinu 1.800-2.200 krónur. Alls eru 100 tonn af þessu kjöti afgreidd í verslanir Hagkaups og mun tilboðið standa á meðan birgðir endast eða til 18. ágúst. Sólunin kostaði 1.850 krónur, nýir skór 2.495 krónur JANÚAR s.l voru keyptir karlmannaskór á útsölu hjá Steinari Waage í Toppskónum, Veltusundi, sem útaf fyrir sig er ekki merki- legt nema að einungis voru borgaðar 1.995 kr. fyrir settið. Skómir eru hinir vönduðustu og kostuðu líklega helmingi meira áður en þeir lentu á útsölu. Eigandi hef- ur notað skóna mikið og kominn tími til að sóla fótabúnaðinn. Þegar til skósmiðsins kom upp- lýsti hann að gúmmísólun með hæl kostaði 1.700 kr. og ef botninn væri heill undir kostaði hann 3.000 kr. Þessar 1.700 krónur væru grunnverð og ef aukavinnu þyrfti að leggja í skóna myndi upphæðin hækka. Þetta þótti dýrt og var ákveðið að leita til fleiri. Sá næsti •^&gðist taka 1.850 kr. fyrir sólun með hæl og sá þriðji 1.820 kr. Nú voru góð ráð dýr. Átti að borga um 2 þús.kr. fyrir að láta sóla skóna eða kaupa nýja á útsöl- unni sem var hafín í umræddri verslun. Ut úr versluninni Veltu- sundi var farið með stóran poka, m. a nýja, nokkuð vandaða ítalska herraskó á 2.495 kr. Skór í dýmm merkjum eins og Lloyds og Sala- mander eru seldir á um 4.000 kr. Geta má geta að síðustu daga útsöl- ■^mnar lækkar verðið á herraskónum 'til muna og líklega verða allir kven- og herraskór þá á um 1.500 kr. Eflaust má gera svipuð kaup hjá öðrum skókaupmönnum þessa dag- ana. Kolbeinn Gíslason, form. lands- sambands skósmiða, segir að verðið á skósólun sé ekki hátt ef tekið er tillit til rekstrarkostnaðar og bendir á að miðað við Norðurlöndin séu íslenskir skósmiðir yfirleitt sann- gjarnir. Skósmiðir hafa um 750 kr. á tímann og það verð hefur verið óbreytt lengi vegna samkeppni við skóverslanirnar. „Það er ekki sam- bærilegt að taka skó sem eru fram- leiddir í Tævan eða skó sem verslun- areigendur eru að reyna að losna við og miða við okkar vinnu á ein- stökum skópörum. Kolbeinn segist viss um að vandaðir skór sem séu á útsölu á áðumefndu verði séu seldir langt undir kostnaðarverði og enginn vegur sé að selja skó á þessu verði nema fjöldaframleidda í Austurlöndum. ■ grg Verdkönnun vikunnar 5 0 % verðmunur á dýrasta og ódýrasta villta laxinum VILLTUR lax í heilu er um 50% dýrari' í Fjarðarkaupum en í versluninni Kjöti og fiski í Mjódd. I Fjarðarkaupum kostar kíló 695 kr., en í Kjöti og fiski 465 kr. Verðmunur er enn meiri þegar kemur að sölu villta laxins niður- sneiddum og munar allt að 57% á hæsta og lægsta verði, skv. skyndiverðkönnun Daglegs lífs sem gerð var í lok síðustu viku. Kannað var verð á ferskum laxi í átta verslunum á höfuðborgar- svæðinu, fímm stórmörkuðum og þremur fískbúðum. Að gefnu tilefni skal tekið fram að ekki er tekið til- lit til gæða hráefnisins. Hér er ein- göngu um verðkönnun að ræða, en gerður er greinarmunur á villtum laxi, eldislaxi og hafbeitarlaxi.. 88% verðmunur á reyktum laxi Jafnframt var gerð athugun á verðlagningu reykts og grafins lax, sem ýmist er seldur í bitum eða sneiðum og reyndist verðmunurinn allt að 88% á ódýrasta og dýrasta reykta laxinum, sem seldur var í bitum. Ódýrasti reykti laxinn var á 1.198 kr. kg frá Reykveri á Höfnum og fékkst hann í Bónus, en sá dýr- asti var til í öllum verslunum, sem farið var í. Sá var frá íslenskum matvælum í Hafnarfirði á 2.256 kr. kg. í nokkrum tilfellum fæst reyktur og grafinn lax í heilum flökum og er kílóverðið þá nokkru lægra en þegar hann er seldur í minni pakkn- ingum. Það skal ítrekað að ekki er tekið tillit til gæða, verkunar- eða reykingaraðferða vörunnar. ■ ji „Lax, lax, lax og aftur lax" Haf-/ beitar- Villtur lax Villtur lax Eldislax Eldislax beitar- lax í heill ísneiðum heill ísnelðum laxheill sneiðum Hagkaup 569 755 698 869 Fjarðarkaup 695 915 T~ / Garðakaup 640 910 585 810 Kjöt og fiskur 465 584 465 584 1 / Nóatún 598 798 Fiskbúðin Arnarbakka y 590 690 Fiskbúðin Hafrún 695 795 Fiskbúð Hafliða 650 750 Laxinn reyktur eða grafinn Reyktur lax Reyktur lax Grafinn lax Grafinn lax í bltum í sneiðum í bitum í sneiðum íslensk matvæli, Hafnarfiröi 2.256 2.496 2.256 2.496 Eðalfiskur, Borgarnesi 2.015 2.441 2.093 2.488 Silfurborg, Reykiavík 2.194 2.474 2.194 2.474 Reykhúsið, Reykjavík 1.860 Egilssíld, Siglufiröi 1.946 Eldisfiskur, Garðabæ 1.398-1.465* Reykver, Höfnum 1.198-1.450* 1.450 Borgarbræður, Kópavoqi 1.898 Reykhúsið, 1.849 , Geiteyiarströnd, Mývatnssveit * í Fjaröarkaupi kostaöi reyktur lax I bitum frá Eldisfiski 1.398 krVkg, en (Kjöt og fiski 1.465. Sömuleiðis var laxinn frá Reykveri á 1.198 krTkg í Bónus en 1.4501 Kjðt og fiski. Morgunblaðið/Ámi Sæberg I hverju hádegi er hlaupið með bakkana tilbúna yfir götuna frá veitingahúsinu. Verslun á Baldursgötu selur tilbúinn mat frá Þremur Frökkum VERSLUNIN á Baldursgötu 11 byrjaði nýlega að selja matar- bakka frá veitingahúsinu Þremur Frökkum sem er í næsta nágrenni við verslunina. Sigfús Almarsson, eigandi verslun- arinnar, sagði að þar sem fyrirtækin væru svo til hlið við hlið hefði þessi hugmynd komið upp hjá honum og Úlfari Eysteinssyni matreiðslumanni. Það eru eingöngu fiskréttii' sem eru á boðstólnum og sagði Sigfús að meðlæti fylgdi með og kostaði bakk- inn 350 kr. „Við vildum reyna að bjóða upp á ódýran mat í hádeginu,“ sagði Sigfús. Hann sagði að það væru fastir við- skiptavinir búðarinnar sem vissu af þessu sem keyptu bakkana, en þeir Úlfar hefðu ekkert auglýst þessa matsölu. Segir hann að það seldust um 12-15 bakkar á dag, en þeir kæmu tilbúnir frá Þremur Frökkum og væri skokkað með þá yfír götuna um hádegisleytið. ■ Losun húsasorps í Sorpu hækkar sökum gengisfellingar SORPA tekur nú fjórar krónur fyrir móttöku á einu kílói af húsasorpi í stað 3,50 kr. áður. Hækkunin tók gildi þann 1. ág- úst sl. og kemur við eigendur Sorpu, sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu, sem sjá um sorp- hirðu hjá almenningi. Ásmundur Reykdal, stöðvar- stjóri, segir að rekja megi hækkun- ina til gengisfellingar krónunnar ekki alls fyrir löngu þar sem Sorpa væri með meirihluta fjárfestingar sinnar í erlendum lánum. Þá var um sl. mánaðamót sett afgreiðslugjald á litla farma til að stemma stigu við umferð smábíla upp í móttökustöð Sorpu í Gufu- nesi. „Við viljum beina smærri fyrir- tækjaförmum inn á gámastöðvam- , ar, sem einnig eiga fyrst og fremst að þjónusta einstaklinga, en það án gjaldtöku,“ segir Ásmundur. „Við settum upp lágmarksaf- greiðslugjald í Gufunesi, en fyrir- tæki verða samt eftir sem áður að greiða fyrir losun í gámastöðvun- um.“ í Gufunes kemur svo allur stærri framleiðsluúrgangur frá fyr- irtækjum og fer gjaldskráin eftir því hver úrgangurinn er og hversu þungur hann er. „Eftir því sem farmurinn er minni, þeim mun dýr- ari er losunin. Gjaldskrá Sorpu er uppbyggð þannig að hún „verðlaun- ar“ þá, sem flokka vel, annars veg- ar endurnýtanlegan og hins vegar óæskilegan úrgang frá alménnu Sorpeyðing höfuðborgarsvæðisins í Álsnesi. ónýtanlegu sorpi. Á sama hátt má segja að hún „refsi“ þeim sem gera ekkert eða gera illa,“ segir Ás- mundur. Hann segir að gjaldskráin bjóði upp á mjög breytilega möguleika fyrir þá, sem eru að henda rusli og með henni væri verið að reyna að stýra því hvernig sorpið kæmi inn á móttökustað, en þess má geta að alls tekur Sorpa að jafnaði við 7-8 þúsund tonnum á mánuði af úr- gangi. Fyrirtækjum verður heimiluð los- un á úrgangi í móttökustöðinni í Gufunesi eins og áður en lágmarks greiðsla fyrir hvern farm verður 1.370 kr. með vsk. óháð tímastýr- ingu, en ódýrast er að losa þar úr- gang fyrir kl. 10.00 á morgnana, þegar er 20% afsláttur af gjaldskrá. A gámastöðvunum mun fyrir- tækjum áfram verða heimil losun á flokkuðum úrgangi fyrir 875 kr. á rúmmetrann, en sú breyting hefur verið gerð að losa má minnst hálfan rúmmetra og hámarkslosun verður þar áfram tveir rúmmetrar. ■ Hvernig á að flokka? HÚSASORP er að meiri hluta til „lífrænn“ úrgangur, t.d. frá heimilum, veitingahúsum, matvælaiðnaði og matvöru- verslunum. I því má vera matarúrgangur og alls konar smáar umbúðir. Engir timb- ur- eða málmhlutir mega vera í húsasorpi vegna skemmda, sem slíkt getur valdið á vél- búnaði Sorpu. Ekki eru nema rúm tvö ár síðan Sorpa tók til starfa og má fullyrða að flokkun sorps sé enn ekki orðin almenn á íslensk- um heimilum. Til að auðvelda almenningi flokkunina, látum við hér fylgja nokkur heilræði frá Sorpu. Við flokkum í: - dagblöð, tímarit, prentpappír - bylgjupappa - timbur - málma - garðaúrgang og gróðurmold - steinefni, múrbrot, gler - drykkjarumbúðir - annan úrgang - spilliefni ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.