Morgunblaðið - 12.08.1993, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 12.08.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993 33 RALLÍKROSSBRAUTIN Ungu áhorfend- urnir áhugasamir Haldi fólk að það séu einungis karlar sem koma að fylgjast með akstursíþróttakeppnum eða setjist undir stýri geta þeir hinir sömu farið að skipta um skoðun. Að minnsta kosti voru áhorfendur af báðum kynjum og ýmsum kyn- slóðum sem mættu á rallíkross- brautina í Kapelluhrauni sl. sunnu- dag og talsvert um að heilu íjöl- skyldurnar kæmu þar að hvetja sína menn þrátt fyrir ausandi rign- ingu. Kvenökumennirnir Kristín Birna Garðarsdóttir, íslandsmeist- ari í rallíkrossi og Guðný Úlfars- dóttir, sem keppir í flokki krónu- bíla sýndu hörkukeyrslu að vanda og Kristín Birna gerði reyndar gott betur. Lét drauma tveggja ungra rallíkrossáhugamanna ræt- ast með því að bjóða þeim að sitja í sitthvorn hringinn á brautinni að lokinni keppni. Sigurvegari í rallíkrossflokkn- um á sunnudag var Hjörtur Jóns- son á BMW, Garðar Þ. Hilmarsson á Mitsubishi á Sapporo sigraði í flokki krónubíla og í Teppaflokki sigraði Brynjar Kristjánsson á Malibu. Guðni Guðnason sigraði svo á grind í opnum flokki. Þessi litlu, Ás- laug Ingþórsdótt- ir og Kristján Einar Kristjáns- son, voru bæði mætt til að hvetja sína menn og fannst mikið til þess koma að fá að skoða bílana að lokinni keppni. Síðasta rallíkrosskeppnin sem gefur stig til íslandsmeistara verð- ur haldin 29.. ágúst nk. og má þá eiga von á mikilli keppni, t.d. í rallíkrossflokknum, en þar eiga þrír ökumenn möguleika á að hljóta íslandsmeistaratitilinn. Kristín Birna og Elías Pétursson eru jöfn að stigum, með 57 stig hvort og Guðmundur Friðrik Páls- son er líklegur til að veitá þeim harða keppni, því hann er aðeins tveimur stigum lægri. Lovísa Guðmundsdóttir sómdi sér vel í hópi aðstoðarmanna föður síns og var bara ánægð með frammistöðu hans. Guð- mundur Friðrik Pálsson var í 2. sæti í rallíkrossflokki á Toy- otu Supra og er einn ökumann- anna þriggja sem munu beijast um Islandsmeistaratitilinn í lokakeppninni 29. ágúst. STJÖRNUR Skýlir sér á bak við skupluna Kvikmyndaleikkonan Joan Collins er víðfræg fyrir ung- legt útlit sitt en hún er komin vel á sextugsaldurinn. Hingað til hef- ur hún ekki þótt líta út fyrir að vera deginum eldri en fertugt en af þessari ljósmynd verður ekki annað séð en að þeir dýrðardagar séu að baki. Myndin var tekin af Collins á búðarrölti í London, og hafði hún brugðið skuplu á höfuð sér og skellt upp sólgleraugum til að þekkjast síður. Fátt minnir á glæsikvendið úr Dynasty, leikkon- an minnir einna helst á Elísabetu Bretadrottningu, sem klæðir ekki ósvipað þegar hún slakar á. Það var sælusvipur á andlitum ungu mannanna sem fengu að fara einn hring á brautinni í Porche-keppnisbifreið íslandsmeistar- ans, Kristínar Birnu Garðarsdóttur. Hér er hún komin á leiðar- enda með 10 ára gamlan farþega, Friðrik Kristjánsson og brosið leynir sér ekki þrátt fyrir lokaðan hjálm. Við bjóðum fullkomnar myndavélar, svart/hvítar og lit og allan fylgibúnað. • Úti og inni. • Aukið öryggi. • Til sjós og lands. • Upplýsir misferli. Hafðu samband viö sölumenn okkar i síma 67 37 37 og fáðu nánari upplýsingar - við gætum sparaö þér fé og fyrirhöfn. <Ö> nýherji RADIOSTOFA N SKIPHOLTI 37 - SÍMI67 37 37 YYS/Mu/ BORGARKRINGLUNNI, SÍMI 677230 Þvottavélar á verði sem allir ráða við! Þær nota HEITT 0G KALT vatn - spara tíma og rafmagn •Fjöldi þvottakerfa eftir þínu vali •Sérstakt ullarþvottakerfi •Fjölþætt hitastilling •Sparnaöarrofi •Stilling fyrir hálfa hleöslu 64-600 sn. vinda. Verð 52.500,- 49.875,-Stgr. L85-800 sn. vinda. Verð 57.500,- 54.625,- Stgr. (D .0 munXlán Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SfMI 69 15 00 . FAX 69 15 55 ÚTSALAN í FULLUM GANGI Ath: Tökum upp nýjar vörur á hverjum degi Toppskórinn X VELTUSUNDI • SÍMI 2 SIMI 21212

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.