Morgunblaðið - 12.08.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993
7
Elito
Sumartilboð á sturtuklef um, bað-
innréttingum og hreinlætistækjum
DUSAR sturtuklefar og baökarshurðir. 50 geröir við allra hæfi.'Y
—m "^anrwTI f£~
Malibu 120 og 166 cm.
Verð frá kr. 16.462
AZUR ur oryggisgleri
Verö frá kr. 26.948
Ibizza. Verö frá
kr. 15.864
Borðhandlaugar, vegghandlaugar, baö-
kör og salerni. IFÖ og ROYAL Sphinx.
15% afsl.
Baöherbergisinnrettingar frá Fackelmann.
Verð og gæði við allra hæfi.
Standard 215 cm á aðeins kr. 49.500
▲ Harmony, rómantíska línan í
baðherbergisáhöldum, á ótrúlegu veröi.
Mikið úrval af sturtusettum,
handsturtuhausum og baðkarssettum.
5 Verö frá
o * 2.953
Verð frá
2.965
Blöndunartæki í miklu
úrvali í gömlum og
nýjum stíl. Frábært verö.
Aquabella
baðherbergisáhöld
úr messing, krómi,
króm/hvftt og
króm/messing.
Glæsilegt úrval á
kjaraverði.
◄
Raðgreiöslur allt upp í 18 mánuði
Innihuröahandföng fyrir Assa og þýskar
Breytt búð Skrár. Formfögur lína frá Eurobrass.
með fjölbreyttu vöruvali og betra verði
Opiö laugardag frá kl. 10-14
BYGGINGAVÖRUR
Skeifunni 11 b, Reykjavík, sími 681570
Hass frá
Amsterdam
TOLLVERÐIR á Keflavíkurnug-
velli fundu í gær kíló af hassi í
fórum rúmlega tvítugs manns
sem var að koma með flugi frá
Amsterdam.
Maðurinn hefur aldrei áður kom-
ið við sögu fíkniefnamála hér á
landi, öfugt við félaga hans sem
einnig var handtekinn í flugstöðinni
og er talinn hafa átt efnið sem hinn
tók að sér að bera í gegnum tollinn.
Mennirnir voru færðir í yfir-
heyrslur en látnir lausir í gærmorg-
un enda var málið þá talið upplýst,
að sögn fíkniefnalögreglunnar.
---------» ♦ ♦---
Ok um með
15 grömm
af hassi
ÖKUMAÐUR sem Kópavogslög-
reglan hafði afskipti af í fyrra-
dag reyndist vera með 15 grömm
af hassi í fórum sínum.
Almenna lögreglan í Kópavogi
hafði afskipti af manninum við
Hamraborg og hugðist í fyrstu
kanna ökuréttindi hans. Lögreglu-
menn þekktu ökumanninn, sem er
um fertugt, að því að hafa tengst
fíkniefnamálum og gerðu leit sem
leiddi til þess að 15 grömm af hassi
komu í ljós. Maðurinn aftók þó að
ætla að selja efnið. Hann var látinn
laus að loknum yfirheyrslum.
Ríkisstjórnin
1.250.000
til Sophiu
Hansen
RÍKISSTJÓRNIN hefur tek-
ið ákvörðun um að veita
1.250 þúsund króna aukafj-
árveitingu til málareksturs
Sophiu Hansen í Tyrklandi.
Benedikt Jónsson, skrifstofu-
stjóri í utanríkisráðuneytinu,
segir að utanríkisráðuneytið
muni hafa ráðstöfun fjárins
með höndum.
Benedikt segir að ráðuneyt-
inu hafí borist óformlegt svar
tyrkneskra stjórnvalda við ít-
rekuðum tilmælum -íslenskra
stjórnvalda í lok júlí. „Við höf-
um fengið þau svör að utanrík-
is- og dómsmálaráðuneytin í
Tyrklandi muni gera það sem
hægt er og falli undir verksvið
þeirra ráðuneyta," sagði Bene-
dikt. Þegar hins vegar bent var
á að lítið hefði borið á raunhæf-
um aðgerðum á vegum ráðu-
neytanna frá því svar barst
sagði Benedikt að ekki væri
hægt að saka ráðuneytin um
að fara með ósannsögli. „Hins
vegar kann vel að vera svo að
hlutimir taki lengri tíma en við
hefðum helst viljað,“ sagði
hann.
Hvað aðrar aðgerðir á vegum
ráðuneytisins varðaði sagðist
Benedikt ekki geta upplýst
annað en málið færi á hveijum
degi upp á borð í ráðuneytinu.
Auglýsingar framhaldsskólans í Reykholti bera árangur
Ekki fleiri umsóknir í 5 ár
90 UMSÓKNIR eru komnar um skólavist í Framhaldsskólanum
í Reykholti og hafa umsóknir ekki verið fleiri í fimm ár að
sögn skólastjórans Odds Albertssonar, en nemendafjöldi var
kominn niður í 30 nemendur fyrir tveimur árum síðan. Hefur
Oddur skólastjóri auglýst Reykholtsskóla sem öðruvísi fram-
haldsskóla og viðtökur verið þessar, að þrefalt fleiri hyggja
á nám nú í vetur í skólanum en var fyrir tveimur árum.
Nemendur geta valið um fleiri
áfanga en áður. M.a. eru komnar
PC 496 tölvur, myndbandsklippi-
tæki, auk myndvers, líkamsræktar-
tæki og matreiðslubraut.
„Mjúkur skóli
Auglýsingar um skólavist hafa
höfðað til þess að Reykholtsskóli
væri mjúkur skóli. Hinn mjúki
menntavegur sem þar væri lagður
fælist í nemendalýðræði, þar sem
krakkarnir tækju ábyrgð á veru
sinni í skólanum. Þótt nemendur
væru teknir inn á teppið þá væri
það mjög mjúkt teppi, sem nemend-
ur og skólastjóri sætu saman á og
gætu þannig á jafnréttisgrundvelli
tekið á málum án þess að um aga-
leysi væri að ræða.
Oddur skólastjóri hefur höfðað
til þess, sem Reykholt er þekkt fyr-
ir í sögunni, að Snorri hafí valið
Reykholti og þess vegna séu þenkj-
andi nemendur tilbúnir til þess að
koma þangað líkt og Snorri gerði
á sínum tíma.
Fjórir nýir kennarar koma til
starfa við Framhaldsskólann í
Reykholti nú í haust. Gestakennar-
ar koma í heimsókn í Reykholt, sem
kenna myndlist, hönnun, ljósmynd-
un, leiklist og tungumál. Má þar
nefna tvo Dani sem verða matvinn-
ungar fyrsta mánuðinn sem skólinn
starfar. - - P.Þ.
Morgunblaðið/pþ
Þeir félagarnir Snorri og Oddur
eru sammála um það að þeir
hafi valið rétt sem hafa valið
Framhaldsskólann í Reykholti
sem sitt fræðasetur og enn kom-
ast örfáir nemendur að í skólan-
um í vetur.