Morgunblaðið - 12.08.1993, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993
11
Ljóslíkaminn
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Það hefur lítið borið á myndlistar-
konunni Margréti Elíasdóttur á
undanförnum árum, en myndir
hennar á_ sýningunni, að loknu
námi MHI og Konstfackskolen í
Stokkhólmi, vöktu drjúga athygli
í eina tíð.
Ástæðan mun vera sú að Mar-
grét hefur gert víðreist og önnur
áhugamál þrýst á í tvo áratugi
og tekið hug hennar allan, en
samt hefur hún náð að halda
fimm einkasýningar um dagana
og tekið þátt í allnokkrum sam-
sýningum.
Þessi áhugamál munu öðru
frekar vera af andlegum toga
eins og hugleiðsla og hvernig
menn öðlast sjálfsþekkingu, jafn-
framt því sem menn virkja lífs-
orkuna hið innra með sér.
Þessa vikuna er Margrét með
sýningu á vinnustofu sinni á
Bræðraborgarstíg 7, þriðju hæð,
og var sýningin opin á almennum
sýningartíma um síðustu helgi,
en síðan og til 13. ágúst er hún
opin eftir samkomulagi við
áhugasama og eiga þeir að
hringja í síma 624106.
Öll sýningin ber sterkan svip
af áhugamáli hennar og ber yfir-
skriftina Sólar Isis, sem mun
vafalítið segja ýmsum eitthvað.
Þetta verður að teljast all sér-
stæð sýning og verkin bera með
sanni svip af áhugamáli listakon-
unnar og hugleiðingum um sólar-
orkuna og hina innri hugarorku
yfirleitt. Uppbygging þeirra
minnir á sólarorkuna og jafn-
framt er eitthvða yfirskilvitlegt
í þeim og mætti nefna það innri
stíganda. Slíkur stígandi er að
sjálfsögðu til í málverkum al-
mennt, sem hafa þó ekki endilga
trúarlegt inntak að leiðarljósi, og
er i raun eitt af lögmálum
myndflatarins. En í þessum
myndum skín hið trúarlega í
gegn og á bókstaflega að gera
það, enda kemur útfærslan kunn-
uglega fyrir sjónir, því að hún
er skyld list dulvitundarinnar og
hefur komið fram í málverkum
að hún er skyld list dulvitundar-
innar og hefur komið fram í
málverkum fleiri íslenskra mynd-
listarmanna, t.d. Einars Jónsson-
ar myndhöggvara. Einnig má
minna á sýningu Jóns Baldvins-
sonar í Portinu nýverið, og sem
um þessar mundir sýnir i kaffi-
stofu Perlunnar. Þótt þetta séu
mjög óiíkir listamenn og gangi
út frá ólíkum forsendum og að-
hyllist ólíka geira í trúarmálum
er þeim það sameiginlegt að þeir
mála út frá sérstökum trúarskoð-
unum sínum.
Margrét Elíasdóttir leggur
áherslu á táknrænan, nær óhlut-
lægan stígandi i myndverkum
sínum og myndir hennar verða
að teljast fallegar í sjálfu sér og
búa jafnframt yfir litænum, sem
innri krafti. í þeim birtist líka
ýmislegt, sem maður fínnur og
kannast við sem sérstök einkenni
listakonunnar frá skólaárunum
og fýrri sýningum. Hins vegar
þykir mér skurn þeirra full sett-
legur og fjarlægur raunveruleik-
anum, og boðskapur hugljóm-
unarinnar sem þau eiga að opin-
bera full yfirgnæfandi, og þannig
séð höfða einkum til sérstaks
hóps innvígðra.
En vel að merkja gera það
einnig núlistir dagsins í mörgum
tilvikum.
Yiðgerð á Korpúlfsstöðum yrði um 1.400 milljónir króna
Skoða beri mögn-
leika á nýbyggmgu
HARALDUR Sumarliðason, forseti Landssambands iðnaðarmanna
sem sæti á í byggingarnefnd borgarinnar, telur að skoða beri
möguleikann á að rífa Korpúlfsstaði og byggja nýtt hús vegna
þess hve illa húsið sé farið og viðgerð á því verði dýr. Áætlaður
kostnaður við að endurbæta Korpúlfsstaði er um 1.400 miiyónir.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er talið að ódýrara yrði
að rífa húsið og byggja nýtt, þó muni þar litlu. Hulda Valtýsdótt-
ir, formaður Korpúlfsstaðanefndar, segir það vilja nefndarmanna
að endurbæta húsið frekar en að byggja nýtt.
í bókun sem Gunnar H. Gunn-
arsson, fulltrúi Nýs vettvangs í
byggingarnefnd borgarinnar,
lagði fram á fundi nefndarinnar
fyrir skömmu segir að nýtt ytra
og innra byrði þurfi í útveggi
Korpúlfsstaða, skipta þurfi um
gólf í húsinu og þak á því og flest-
ir jámgluggar séu ónýtir. Vegna
breyttrar notkunar þurfi auk þess
að gera ýmsar breytingar á hús-
inu. Lækka eigi kjallaragólfið en
vegna þess þurfi að slkka sökkla,
bréyta þurfi gluggasetningu og
dyraopum ásamt innveggjum.
„Þetta verður til þess að enn minna
nýtist af gamla húsinu en ella,“
segir hann.
Betra að byggja nýtt
Gunnar segist telja að skynsam-
legra væri að rífa húsið til grunna
og byggja nýtt. „Húsið yrði tækni-
lega séð betra, ódýrara í viðhaldi
og traustara í jarðskjálftum. Meira
svigrúm myndi skapast til nýting-
ar á rúmmetrum, menn yrðu ekki
bundnir af innveggjum og gólfum
sem nú eru í húsinu og það gæti
legið hærra eða lægra,“ segir
Gunnar. „Þessi lausn yrði ódýrari
en að endurbyggja húsið,“ segir
hann.
Viðgerð verður dýr
Haraldur Sumarliðason segist
ekki hafa verið tilbúinn að styðja
bókun Gunnars á fundi nefndar-
innar þar sem hann telji þar vera
farið út fyrir verksvið nefndarinn-
ar. Hann segist á hinn bóginn
geta tekið undir margt af því sem
komi fram í bókuninni. „Það er
mín skoðun að athuga eigi þann
möguleika í fullri alvöru að rífa
húsið og byggja nýtt samskonar.
Húsið er afar illa farið, það hefur
ekkert verið gert fyrir það í langan
tíma og viðgerð verður mjög dýr,“
segir hann.
Endurreist í sömu mynd
Magnús Sædal Svavarsson,
byggingartæknifræðingur hjá
byggingardeild borgarinnar og
verkefnisstjóri á Korpúlfsstöðum,
segir að tvær aðferðir séu notaðar
við endurbyggingu húsa, annars
vegar sé sú aðferð að láta gömlu
húsin standa en endurbæta þau
og og hins vegar rífa húsin en
endurreisa þau í sömu mynd. „Það
er hægt að reisa hús nákvæmlega
stein fyrir stein þannig að aðeins
fagmenn sjái að húsið sé nýgert,“
segir Magnús. Hann segir að þetta
hafi verið gert víða erlendis. „Ef
sú leið verður valin að fjarlægja
Korpúlfsstaði vegna þess hve hrör-
legt mannvirkið er orðið yrði það
gert með þessum hætti og endur-
reist í nákvæmlega sömu mynd,“
segir Magnús.
Mörg, stutt skref
Hulda Valtýsdóttir, formaður
Korpúlfsstaðanefndar, segir það
vilja nefndarmanna að gera við
Korpúlfsstaði í stað þess að rífa
húsið og endurbyggja það. „Auð-
vitað eru allir möguleikar í athug-
un og margs að gætá þegar um
er að ræða gamalt og illa farið
hús eins og þetta. Það hafa þó
ekki komið nein gögn fyrir nefnd-
ina sem sýna að ódýrara sé að
rífa það og byggja nýtt. Vilji
nefndarmanna er miklu frekar í
þá átt að gera við húsið en að
bijóta það niður,“ segir Hulda.
„Það dettur engum í hug að halda
því fram að þetta verði ódýrt en
nefndarmenn telja það vera sann-
ara að endurbæta húsið. Við ætl-
um að flýta okkur hægt og taka
stutt skref á hveiju ári fram á
næstu öld,“ segir hún.
21150-21370
LÁRUS Þ. VALDIMARSS0N framkvæmdastiori
KRISTINN SIGURJ0NSS0N, HRL. loggiiturfasteignasali
Til sýnis og sölu - eignir sem vekja athygli:
Úrvalsíbúð - bílskúr - frábært útsýni
4ra herb. íb. um 100 fm á 2. hæð við Digranesveg Kóp. Nýtt parket.
Rúmgóðar sólsvalir. Sérþvottahús. Góður bílskúr 27,3 fm. Stór ræktuð
lóð. Fráb. útsýni.
Á vinsælum stað í Garðabæ
Nýleg 4ra herb. íb. á 2. hæð, 3 svherb., þvottaaðstaða á baði. Góður
bílskúr. Útsýni. Eignaskipti möguleg.
Sérhæðir - Hvassaleiti - Rauðagerði
Efri hæðir 6 herb. glæsilegar eignir á þessum vinsælu stöðum. Bílskúr-
ar fylgja. Eignaskipti til umræðu. Mikið útsýni.
Skammt frá Hlemmtorgi
Neðri hæð í tvíbýlishúsi. 3ja herb. Ekki stór, vel skipulögð. Nýl. eld-
hús. Laus strax. Gott verð.
Einbýlishús í Hveragerði
Mjög gott timburhús ein hæð 117,4 fm nettó auk bílskúrs og geymslu
um 30 fm. 4 svherb. Skipti mögul. á lítilli íb. í borginni eða nágrenni.
Stelkshólar - sérþvottahús - bílskúr
Endaíbúð á 2. hæð 116,1 fm nettó. 3-4 svherb. Góður bílskúr. Skipti
möguleg á 3ja herb. íbúð í nágrenninu. Gott verð.
Fyrir fjársterka kaupendur
óskast á söluskrá 2ja-3ja herb. íb. sem næst Háskólanum. 3ja-5
herb. íb. í vestur- eða miðborginni með rúmgóðu sérherb. ásamt snyrt-
ingu. 2ja-3ja herb. íb. í Þingholtum eða nágrenni.
• • •
Lítið einbýlishús óskast f
Smáíbúðahverfi. Rúmgott
einbhús óskast í Hafnarf irði.
Opið á laugardaginn.
AIMENNA
FASTEIGNASAIAN
LAUGAVEGI18 SÍMAR 21150-21370
’kHeimsins bestu skemmtigarðar
'kÚtsölur árið um kring
'kMaturfrá öllum heimshornum
'kFrábærar strendur
'kGlæsilegur gististaður með öllum
hugsanlegum þægindum
Enn eru nokkur sæti laus!
Saini/iniHilertiir
Lanðsjn
Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 691010 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Simbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95
__ _ Ftít 7i ri MB Telex ' ^^,e' v'® hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 24 60 Halnarfjöröur: Reykjavikurvegur 72 • S. 91 - 5 11 55
E3AJL Keflavík: Hafnargötu 35 *S. 92 - 13 400 • Símbréf 92 - 13 490 Akranes: Breiðargötu 1 *S. 93 - 1 33 86-Símbrél 93 -1 11 95
EUROCARD. Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27200 • Simbréf 96 -1 10 35 Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 98 -1 12 71 - Simbrét 98 - 1 27 92