Morgunblaðið - 12.08.1993, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993
Borgarspítalinn segir upp námssamn-
ingum sjúkraliðanema í sparnaðarskyni
Sjúkraliðar mót-
mæla harðlega
„Hluti af aðhaldsaðgerðum okkar,“
segir Árni Sigfússon formaður spítalans
BORGARSPÍTALINN hefur sagt upp námssamningum við sjúkra-
liðanema frá fjölbrautarskólunum í Breiðholti og við Armúla sem
taka áttu gildi 15. ágúst. Stjórn og fræðslunefnd Sjúkraliðafélags
íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem þessu er mótmælt
harðlega. Árni Sigfússon formaður stjórnar Sjúkrastofnana
Reykjavíkur segir að því miður hafi þurft að grípa til þessa niður-
skurðar í aðhaldsaðgerðum þeim sem Borgarspítalinn stendur í
til að geta verið innan þeirra fjárlaga sem spítalanum eru ætluð.
Kristín Á. Guðmundsdóttir for-
maður Sjúkraliðafélagsins segir
að þessi ákvörðun stjórnar Sjúkra-
stofnana Reykjavíkur hafí komið
þeim algerlega á óvart og þær
hafi ekki frétt af málinu fyrr en
skólarnir höfðu samband og
greindu þeim frá henni. Kristín
segir að félagið beini nú þeim til-
mælum til heilbrigðisráðherra og
menntamálaráðherra að þeir geri
það sem í þeirra valdi stendur til
þess að fínna viðunandi lausn á
fjárhagsvandræðum Borgarspítal-
ans svo spítalinn geti staðið undir
skuldbindingum sínum við fjöl-
brautarskóla landsins um menntun
sjúkraliða.
í ályktun stjórnar Sjúkraliðafé-
lagsins segir m.a.: „Stjórn og
fræðslunefnd SLFÍ beinir þeirri
kröfu til stjómenda sjúkrahússins
að taka fyrri ákvörðun um samn-
ingsrof við tiltekna fjölbrautar-
skóla til endurskoðunar og um-
ræddum sjúkraliðanemum heimil-
að að Ijúka námi sínu við Borgar-
sjúkrahúsið eins og um er samið.“
Aðhaldsaðgerðir
Árni Sigfússon segir að þessi
mótmæli sjúkraliða tengist að-
haldsaðgerðum á Borgarspítalan-
um. „Við erum í þeim vanda að
þurfa að skera niður í rekstrinum
til að halda okkur innan fjárlaga
til spítalans. Við höfum haft að
leiðarljósi að aðhaldsaðgerðir okk-
ar bitni sem minnst á sjúklingum
og því miður urðum við að segja
upp þessum námssamningi," segir
Ámi. „En ég reikna ekki með að
þessi ákvörðun stjómarinnar sé
varanleg."
Aðspurður um hvort hér sé um
háar fjárhæðir að ræða segir Árni
svo ekki vera en i aðhaldsaðgerð-
um þeim sem gripið hefur verið
til geri margt smátt eitt stórt.
Nefnd semur frumvarp
um skatt á vaxtatekjur
FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur ákveðið að skipa nefnd til að semja
frumvarp til laga um skatt á vaxtatekjur í samræmi við yfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar frá 21. maí sl. í tengslum við gerð kjara-
samninga. I framhaldi af fyrirheiti um lækkun virðisaukaskatts
á matvæli í 14% segir í yfirlýsingunni: „Til að fjármagna þessa
lækkun að hluta verður lagður skattur á fjármagnstekjur frá 1.
janúar 1994. Miðað verður við 10% skatt á nafnvexti sem verður
innheimtur í staðgreiðslu."
Við samningu frumvarpsins
skaL nefndin stefna að eftirfarandi:
Heimsmeistaramót U-21 í snóker stendur yfir í Reykjavík
Einbeiting
Morgunblaðið/Þorkell
ÞORBJÖRN A. Sveinsson í leik gegn Pasanen frá Finnlandi. Þorbirni hefur ekki gengið sem best
í upphafi mótsins, enda hefur hann lítið getað æft vegna anna við knattspyrnuiðkun. Þorbjörn er
fjölhæfur maður, leikur í landsliði íslands í snóker og knattspyrnu.
Jóhannes varð fyrstur
til að ná 100 stigum
Heimsmeistaramótið í snóker 21 árs og yngri er haldið þessa
dagana í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni. Þrettán ís-
lendingar taka þátt í mótinu auk bestu erlendu spilaranna í þess-
um aldursflokki, þar á meðal er Sri Lanka-búinn Indika, sem
hafnaði í öðru sæti á HM í Brunei í fyrra. Gengi Islendinganna
fram að þessu hefur verið upp og ofan en Jóhannes B. Jóhannes-
son er sá eini þeirra sem náð hefur meira en 100 stigum, en
hann náði 109 stigum. Hæst er hægt að ná 147 stigum í snóker.
Þetta er í annað sinn sem HM
undir 21 árs er haldið hér á landi
og mótið núna er merkilegt fyrir
íslendinga því tvemur af spilur-
unum er raðað á meðal tíu bestu.
Kristjáni Helgasyni er raðað í
fjórða sæti og Jóhannesi B. Jó-
hannessyni í tíunda sæti, en röð-
unin reiknast út frá árangri spil-
aranna á mótum á síðasta ári.
íslendingar í stuði
Bjöm Elísson, sem situr í stjójn
Billjard- og snókersambands ís-
lands, telur bestu íslensku spilar-
ana eiga góða möguleika á að
komast í úrslit, en leikið er í átta
riðlum í undankeppninni. Kristján
Helgason, sem riðli 4, þykir til
alls líklegur, og hann náði 147
stigum á æfingu nýverið. Hann
vann Inveijann Kalidindi 4:2 í
fyrstu umferð mótsins. Jóhannes
B. vann Weerakkody frá Sri
Lanka og Jóhannes R. vann Pas-
anen frá Finnlandi 4:2 og Swee
frá Singapore 4:1.
Leiknar eru þrjár umferðir á
dag, kl. 12, 16 og 20 á fimm
borðum. Reiknað er með að riðla-
keppni ljúki um helgina og sextán
manna úrslitum á mánudag. Ékk-
ert verður leikið á þriðjudag en á
miðvikudag verða átta manna
úrslit. Undanúrslit verða á
fimmtudag og föstudag en úrslita-
leikurinn, sem er 21 rammi, verð-
ur á sunnudaginn 22. ágúst.
SKEMMTANIR
Skatturinn nái til allra fjár-
magnstekna einstaklinga, sem eru
skattfijálsar samkvæmt núgild-
andi tekjuskattslögum, þ.m.t.
vaxta af hvers kyns peningalegum
eignum, verðbréfum og innistæð-
um í innlánsstofnunum.
Skattstofn verði vextir, verð-
bætur, afföll og hvers kyns sölu-
hagnaður af peningalegum eign-
um.
Skatturinn verði innheimtur í
staðgreiðslu og án eftirálagningar
þegar vextir eru greiddir rétthafa,
færðir honum til tekna eða eru til
ráðstöfunar með öðrum hætti.
Afföll verði skattlögð við sölu eða
kaup verðbréfa.
Eftir því sem við á verði álagn-
ing og innheimta skattsins í hönd-
um banka, sparisjóða, verðbréfa-
fyrirtækja og annarra, sem inna
af hendi, móttaka eða hafa milli-
göngu um skattskyldar tekjur.
í nefndinni eru skipuð: Stein-
grímur Ari Arason, aðstoðarmaður
ráðherra, formaður, Bolli Þór
Bollason, skristofustjóri, Indriði
H. Þorláksson, skrifstofustjóri,
Rannveig Guðmundsdóttir, alþing-
ismaður, Sigurður B. Stefánsson,
framkvæmdastjóri, Sveinn Jóns-
son, aðstoðarbankastjóri, og Vil-
hjálmur Egilsson, alþingismaður.
Starfsmaður deildarinnar verð-
ur Bragi Gunnarsson, lögfræðing-
ur. Nefndin Ijúki störfum og skili
drögum að frumvarpi eigi síðar
en 15. sept. nk.
■ STJÓRNIN lýkur sumarferð
sinni um landið með dansleik föstu-
dagskvöld á Dalvík og á laugar-
dagskvöldinu verður hljómsveitin í
Ýdölum í Aðaldal.
■ LEIKSVIÐ FÁRÁNLEIK-
ANS stendur fyrir „mini-rokkfes-
tivali“ í Tunglinu við Lækjartorg
laugardaginn 14. ágúst. Þetta er í
síðasta sinn sem hljómsveitin kemur
fram. Leiksviðið var lagt niður á
síðasta ári en fyrir misskilning bók-
uð á óháðu listahátíðina sem haldin
var í sumar. Eftir að hafa troðið
þar upp var ákveðið að halda eina
tónleika enn fyrir haustið þar sem
flestir sem komið hafa við sögu
sveitarinnar tækju þátt. Þeir eru
Alfreð Alfreðsson, Harry Ósk-
arsson og Hreiðar Hreiðarsson.
Einnig skipa^ sveitina Sigurbjörn
Úlfsson og Ágúst Karlsson. Auk
Leiksviðsins koma fram hljómsveit-
irnar INRI, Yucatan, Púff og
Curver. Dagskráin hefst um kl. 23.
■ PLÁHNETAN leikur fyrir
Norðlendinga um helgina. Á föstu-
dagskvöldið leikur hljómsveitin í
Sjallanum á Akureyri en á laugar-
dagskvöldið verður sveitin í Mið-
garði i Skagafirði.
■ LIPSTICK LOVERS skemmtir
gestum í nýju og endurbættu
Tungli á föstudagskvöld. Á laugar-
dagskvöld verður hljómsveitin gest-
ur Stjórnarinnar á dansleik í Ýdöl-
um, Aðaldal.
■ DJASSTRÍÓ VESTURBÆJ-
AR heldur tónleika í Djúpinu,
Hafnarstræti 15, í kvöld, fimmtu-
daginn 12. ágúst. Tríóið skipa
Ómar Einarsson á gítar, Stefán
S. Stefánsson á saxófón og Gunn-
ar Hrafnsson á bassa. Gestur
kvöldsins er Einar Valur Scheving
trommuleikari. Fjölbreytt dagskrá
verður á tónleikunum sem hefjast
kl. 21.30. Aðgangur er ókeypis.
■ UNDIR TUNGLINU leikur
fyrir dansi í Inghóli á Selfossi
föstudagskvöld. Hljómsveitina
skipa Elfar Aðalsteinsson, Tómas
Gunnarsson, Almar Sveinsson,
Ólafur Már Guðmundsson og Sig-
mundur Sigurgeirsson.
■ LA CAFÉ heldur áfram með
sitt svokallaða Fimmtudagsfestival.
í kvöld, fimmtudag, verður haldið
rokkkvöld á veitingahúsinu en þá
verða heiðursgestir The Rolling
Stones.
■ BAROKK. Föstudags- og laug-
ardagskvöld skemmta Stefán E.
Petersen píanóleikari og Erla
Gígja Garðarsdóttir söngkona
gestum veitingahússins.
■ JÖTUNUXAR halda í kvöld,
fimmtudag, tónleika á veitingahús-
inu Hressó. Hljómsveitin var stofn-
uð fyrir þremur árum og hafa þeir
gefið út eina hljómplötu. Hljóm-
sveitina skipa: Rúnar Örn Frið-
riksson, Guðmundur Gunnlaugs-
son, Svavar Sigurðsson, Jón Ósk-
ar Gíslason og Hlöðver Ellerts-
son.
■ NÝDÖNSK lejkur um helg-
ina í Sjallanum á ísafirði föstu-
daginn 13. ágúst og laugardaginn
14. ágúst. Þess má geta að hljóm-
sveitin hefur nýlokið við upptökur
á hljómplötu sem kemur út á hausti
komandi og er nú unnið að hljóð-
blöndun hennar.
■ SNIGLABANDIÐ skemmtir
föstudagskvöldið á Tveimur vin-
um. Sama kvöld verður Sniglaband-
inu afhent svokölluð Bullplata fyrir
mjög viðunandi árangur á árinu.
Boðið verður upp á drykki kl. 23-24.
Laugardagskvöldið verður hljóm-
sveitin með dansleik í Lýsuhóli á
Snæfellsnesi.
■ SSSÓL leikur í Festi í Grinda-
vík á föstudagskvöldið og er aldurs-
takmarkið 18 ár. Laugardagskvöld-
ið skemmtir hljómsveitin í Njálsbúð
í V-Landeyjum en aldurstakmark-
ið þar eru 16 ár.
■ SÍN leikur um helgina á veit-
ingahúsinu Ránni í Keflavík.
Hljómsveitina skipa Arna Þorsteins,
söngur, Guðmundur Símonarson,
gítar og söngur, og Guðlaugur
Sigurðsson, hljómþorð og röddun.
Lagaval hljómsveitarinnar er fjöl-
breytt og hafa þau leikið víða um
land.