Morgunblaðið - 29.08.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.08.1993, Blaðsíða 30
30 B MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 1993 ÆSK1IMYNDIN... ERAF VIÐARl EGGERTSSYNILEIKHÚSSTJÓRA Skemmti- kraftur í afinælum VIÐAR Eggertsson leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akureyrar og Björk tvíburasystir hans fædd- 'ust á fæðingardeild Landspítalans í Reykjavík. Þau ólust upp í Reykjavík og Njarðvíkum þang- að til þau fluttust til Akureyrar þrettán ára gömul. Hulda Kristinsdóttir móðir Við- ars segir að hann hafi verið ákafiega blítt, fallegt og skemmti- legt barn. Hún minnist þess sér- staklega hve eftirsóttur Viðar var í barnaafmælum þar sem hann var ævinlega skemmtikrafturinn. „En hann var ekkert sérstaklega kjark- mikill sem strákur og dró sig ævin- lega í hlé þegar jafnaldrar hans fóru að slást“, segir Hulda. * Hulda segir að Viðar hafi lesið ákaflega mikið sem drengur. „Ég fór stundum inn til hans á kvöldin þegar komið var fram yfir mið- nætti og slökkti hjá honum ljósið. Svo þegar ég komst að því að hann var farinn að lesa við vasa- ljós undir sænginni hætti ég að skipta mér af þessum næturlestri." Esther Blöndal tók mikinn þátt í uppeldi Viðars. Hún bjó á bernskuheimili hans um sex ára skeið. „Þau tvíburasystkinin voru á vöggustofu þangað til þau voru tveggja og hálfs árs“, segir Esth- er. „Það var sárt og erfitt fyrir mömmu þeirra sem aldrei fékk að sjá þau nema í gegnum gler. Við Hulda bjuggum saman í herbergi og þegar hún ákvað að freista þess að fá sér íbúð til þess að geta haft bömin fór ég að leigja hjá henni. Tvíburarnir voru ekki famir að tala neitt, höfðu þróað sitt eigið Viðar tíu ára með Björk tvíbura- systur sinni. Morgunblaðið/Sverrir mál sem enginn skildi nema þau. Viðar hændist mikið að mér og ég sat oft með hann í fanginu. Einu sinni var ég að gefa honum að borða og ætlaði að fara að taka frá honum diskinn. Bíddu, ég er ekki búinn, sagði drengurinn. Það var fyrsta heila setningin sem hann sagði og ég man hvað ég varð óskaplega glöð.“ Sigmundur Örn Arngrímsson leikari var framkvæmdastjóri Leik- félags Akureyrar þegar Viðar var á unglingsárum. „Hann var öllum_ stundum að sniglast í leikhúsinu og var áhugasamur um allt sem viðkom því“, segir Sigmundur Örn. „Viðar kom mér fyrir sjónir sem ákaflega viðkvæmur og næmur ungur drengur. Hann var líka mjög meðvitaður um umhverfið og sam- félagið og gerði sér grein fyrir því að lífið er ekki allt dans á rósum. Framar öðru einkenndi hann þetta undarlega sambland af hlédrægni og þörfinni fyrir að standa í sviðs- ljósinu, sambland sem einkennir marga leikara." ÚR MYNDASAFNINU ÓLAFUR K. MAGNÚSSON Innrásin í Tékkóslóvakíu Nóttina 21. ágúst árið 1968 bár- ust þær fregnir að útvarpið í Prag hefði skýrt frá ferðum her- sveita inn yfir landamæri Tékkó- slóvakíu. Hersveitirnar, sem komu frá Sovétríkj- unum, Austur-Þýska- landi, Póllandi, Ung- verjalandi og Búlgaríu, höfðu ekki gert nokkur boð á undan sér og skor- aði útvarpið á íbúa lands- ins að sýna stillingu og veita hvergi mótspyrnu. Leiðtogar ríkisins vissu engu meira um fyrirætlun Varsjárbandalagsins en hinn almenni borgari á götum Prag, þ.e. nákvæmlega ekkert. Skriðdrekarnir streymdu inn í land- ið og fljótlega komust Tékkar að því að landamærum þeirra hefði verið lokað. Þannig hófst innrásin í Tekkóslóvakíu. Sókn innrásarsveitanna sóttist vel enda bönnuðu tékknesk yfirvöld hermönnum sínum að veijast. Þeg- ar dagurinn var að kvöldi kominn hafði landið allt verið hernumið. Alexander Dubcek, leiðtogi lands- ins, var hnepptur í stofu- fangelsi ásamt helstu fýlgismönnum fijálsræð- isstefnu Tékka. En margir Tékkanna neit- uðu að gefast upp. Rödd þeirra var útvarpað til landsmanna frá leynilegum út- varpsstöðvum sem Sovétmenn kepptust við að uppræta. Þannig gátu menn og konur um allan heim hlýtt á örvæntingarfulla tilraun þeirra til þess að koma vitinu fyrir innrásarhermenninna sem hikuðu ekki við að beita vopnum og valdi. Hlýtt á nýjustu fréttir af innrásinni. F.v. Björn Thors, Matthí- as Johannessen ritstjóri, Elín Pálmadóttir, Þór Whitehead, Haraldur Blöndal og Vignir Guðmundsson. ÉG HEITI... SÝTA RÚNA DAL HARALDSDÓTTIR ÍSLENSK nöfn hljóma ekki öll kunnuglega í eyrum lands- manna. Nafnið Sýta hefur til dæmis vafist fyrir fólki og telja margir það vera útlent nafn, danskt eða jafnvel ít- alskt og vilja þá skrifa það Zita. Sýta Rúna Dal Haralds- dóttir er eina íslenska konan sem heitir Sýta að fyrra nafni og fólk er svo óvant nafninu hennar að hún þarf jafnan að stafa það. Eg er löngu hætt að kippa mér upp við það að þurfa að stafa nafnið mitt, er orðin vön því,“ segir Sýta. Hún er skírð eftir ömmu sinni sem nú er látin. Amma Sýtu var raunar skírð Sigríður en faðir hennar, langafi Sýtu Rúnu, kallaði hana jafnan Sýtu. Þegar hún fluttist til Bandaríkjanna lét hún breyta nafni sínu í Sída, en rithátturinn var leiðréttur í Sýta þegar hún fluttist aftur heim. Sýta Rúna hefur ævinlega notað fyrra nafnið, segist hafa gert tilraun til að láta kalla sig Rúnu þegar hún var krakki en ekkert orðið úr því. „Mér var auðvitað alltaf strítt hér áður fyrr. En það er liðin tíð og ég er ánægð með nafnið enda orðin vön því,“ segir Sýta. „Ég hef hins vegar ekki viljað skíra dæt- ur mínar óvenjulegum nöfnum. Mér finnst að fólk sem það ger- ir eigi að hugsa sig vel um áður Morgunblaðið/Kristinn Sýta Rúna Dal Haraldsdóttir. en það lætur verða af því.“ Sýta Rúna segir nafn sitt dregið af nafnorðinu „sút“, kvíði. í Nöfn íslendinga segir að uppr- uni nafnsins sé óviss, það sé ef til vill sama nafn og Síta en ein íslensk stúlka heitir það að fyrra nafni. Sítu-nafnið þekkist í Þýskalandi sem stytting af Ros- ita en einnig sem hliðarmynd af nafninu Zita. Það nafn er talið leitt af miðaldamállýskuorði frá Toscana, „zitta“, sem þýðir stúlka. ÞANNIG... ERU FÓSTURFORELDRAR VALDIR Vandlega valið „Við leitum yfirleitt ekki eftir fósturforeldrum heldur snýr það fólk sér til stofnunarinnar sem vill taka barn I fóstur,“ segir Andrea Guðmundsdóttir sem ásamt Hildi Sveinsdóttur, sem einnig er félagsráðgjafi, hefur umsjón með fósturmálefn- um hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkur. „Flest af því fólki sem til okkar leitar, hefur ekki geta eignast barn sjálft og reynir því að verða foreldrar á annan hátt. Við forðumst að auglýsa eftir fósturforeldrum, þótt það hafi orðið að gera í stöku til- vika, en viljum umfram allt að þeir sem hafa hug á að taka barn í fóstur setji sig í samband við okkur. Ekki síst er þörf á fólki sem treystir sér til að taka stálpuð og krefjandi börn í fóstur. Fólk sem til okkar leitar kemur í fyrsta umgangi í upplýs- ingaviðtal hjá okkur. Þá fær það að vita hvaða skilyrði fólk þarf að uppfylla til þess að verða fóstur- foreldrar og í hverju það felst að taka barn í fóstur. Við Hildur vinn- um eingöngu við að finna börnum nýja foreldra til frambúðar. Við segjum fólkinu hvaða erfiðleikar geta fylgt í kjölfar fósturhlut- verksins og hvaða samstarf þarf að vera á milli fósturheimilisins og stofnunarinnar. Þeir aðilar sem stíga næsta skref, að ákveða að taka barn í fóstur, fylla þessu næst út umsóknareyðublað og skila jafnframt ýmsum vottorðum og umsögnum sem umsókninni þurfa fylgja, svo sem sakavottorð, læknisvottorði o.fl. Síðan hittum við fólkið aftur og kynnum okkur þá hagi þess og aðstæður. Samhliða þessu þurfum við að fá meðmæli frá viðkomandi barna- verndarnefnd. Við sjáum sjálf um þetta hér í Reykjavík, en ef hjónin búa í öðru sveitarfélagi þarf barnaverndarnefnd þess að gera úttekt og mæla með eða móti umræddum hjónum. Hjón sem fá meðmæli sem hæfir fósturforeldr- ar þurfa m.a. að hafa verið gift eða í sambúð í fimm ár, lifa reglu- sömu og heilbrigðu lífi og geta veitt barni ástúð og öryggi, bæði fjárhagslega og í öðru tilliti. Síðan bjóðum við fólki upp á 2 daga námskeið og reynum þannig að undirbúa fólkið betur undir það Andrea Guðmundsdóttir félags- ráðgjafi hlutverk að taka að sér fóstur- barn. Þá er fólk komið á svokallað- an fósturbarnalista og kemur til greina þegar leitað er eftir fóstur- foreldrum. Eftir það þarf fólk að vera viðbúið því að leitað sé til þess með litlum fyrirvara. Áður en fósturforeldar taka við því barni sem þeim er ætlað, þurfa þeir að kynnast barninu undir handleiðslu starfsfólks, í um 6 vikur, á vistun- arheimili sem barnið dvelur á þar til kynnin eru orðin slík að starfs- fólk telji rétt að barnið flytji til þeirra. Starfsmenn fylgjast síðan með barninu á nýja fósturheimil- inu og veita fósturforeldrunum stuðning og ráðgjöf eftir þörfum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.