Morgunblaðið - 17.10.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. QKTÓBER 1993
B 3
Sækjum styrk
í sameiningu!
Sveitarstjómarmenn um land allt hafa margítrekað þá skoðun sína að sameining
sveitarfélaga sé eitt besta ráðið til að sporna við mikilli byggðaröskun sem m.a. felst í
samþjöppun fólks, valds og fjármagns til höfuðborgarsvæðisins.
Efling sveitarstjórnarstigsins skapar skilyrði fyrir flutningi verkefna frá ri1<inu. Rikisstjómin
hefur nú ákveðið að þar verði um að ræða rekstur grunnskólans, heilsugæslu,
öldrunarþjónustu og málefni fatlaðra.Við það er miðað að hin nýja verkaskipting komi tií
framkvæmda á næstu 2-3 árum, enda verði um verulega sameiningu sveitarfélaga að ræða.
í stefnumörkun ríkisstjórnarinnar vegna átaks í sameiningu sveitarfélaga
kemur m.a.fram að ákveðið er að:
+ Stórefla Jöfnunarsjóð sveitarfélaga á árunum 1995-1998.
♦ Auka tekjur sveitarfélaga um 12-15 milljarða á ári og gera þeim þannig kleift
að takast á við ný verkefni.
♦ Undirbúa sérstakar aðgerðir í atvinnumálum einstakra héraða.
♦ Sameinuð sveitarfélög njóti forgangs um fé til samgöngubóta.
Kosningarnar 20. nóvember nk. eru fyrstu almennu kosningarnar um sameiningu
sveitarfélaga. Þá gefst fólki kostur á að segja álit sitt á tillögum umdæmanefndanna og taka
þátt íað móta framtíð eigin byggðar
MÆTUM ÖLL Á KJÖRSTAÐ 20. NÓVEMBER
OG LEGGJUM GRUNN AÐ EFLINGU BYGGÐANNA!
jÉ ^ Sameining sveitarfélaga
ALMENNAR K0SNIN6AR 20. NÓVEMBER 1993
Samráðsnefnd um sameiningu sveitarfélaga