Morgunblaðið - 30.10.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.10.1993, Blaðsíða 1
64 SIÐUR LESBOK/C STOFNAÐ 1913 247. tbl. 81.árg. LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Brúka klæki viðkaup á kvóta Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. NORSKIR kaupsýslumenn kaupa aflakvóta af Rússum undir borðið og bjóða þá út- gerðarfyrirtækjum í Norður- Noregi til kaups, að því er segir í blaðinu Klassekam- pen. Samkvæmt upplýsing- um rússneskra stjórnvalda hefur verið útilokað að koma böndum á viðskipti af þessu tagi. Norður-norskur kaupsýslumað- ur, sem stundað hefur viðskipti af þessu tagi og heitið var nafn- leynd, féllst á að skýra blaðinu frá hvernig hann hefði komist yfir 2.000 tonn af rússneskum fiski. „Ég útvega skip í Noregi, um- skrái það á rússneska útgerð, veiði kvótann og sel aflann í Noregi. Með einföldum' hætti má segja að viðskiptin gangi þannig fyrir sig,“ segir hann í viðtali við blaðið. Vasílíj Níktín, talsmaður utan- ríkisviðskiptaráðuneytisins í Moskvu, segir í viðtali við Klasse- kampen að yfirvöld fái ekki neitt við ráðið. „Ekki ferá milli mála að fiskur er seldur úr landi á svört- um markaði. Ég viðurkenni að rússnesk veiðiskip sigla óáreitt til Noregs og selja þar afla án þess að h5a útflutningsheimild," segir Níktín. Fiskvinnslan í Norður-Noregi hefur á undanfömum misserum reitt sig á Rússafisk. Samkvæmt opinberum skýrslum lönduðu út- lend veiðiskip afla að verðmæti 895 milljónir norskra króna, jafn- virði 8,7 milljarða íslenskra kr., í Noregi. Samkvæmt fullyrðingum G.G. Matísjovs, forstjóra hafrann- sóknarstofnunarinnar í Múr- mansk, nam ofveiði þorsks í Bar- entshafi í fyrra 100.000 tonnum. EYÐILEGGING Reuter EYÐILEGGING af völdum skógarelda í Suður-Kaliforníu síðustu daga er gífurleg. í gær tókst her- og slökkviliði að ná tökum á eldunum og slökkva marga þeirra. Óttast var að allt kynni að fara úr böndum á ný ef spár um vaxandi vind sl. nótt og í dag gengju eftir. Vitað var um 650 íbúðarhús sem eyðilögðust á belti sem nær frá landamærum Mexíkós og norður fyrir Los Angeles. Eignatjón nemur hundruðum milljóna dollara. Kraftaverk þykir að ekkert manntjón hefur orðið. Myndin var tekin í hverfi milljónamæringa í bænum Laguna Beach í gær og sætir undrun að húsið eina skyldi sleppa. Sjá „Við erum við öllu búin ef hann hvessir" á bls. 20. Maastricht-samkomulagið umdeilda tekur gildi eftir helgina Fyrirhugaður seðlabanki EB verður í Þýskalandi Ekkert stöðvar lækkun olíuverðs London. Reuter. HEIMSMARKAÐSVERÐ á olíu lækkaði í gær um hálfan dollara fatið. Kostaði það við Iok viðskipta 15,92 dollara og spáðu sér- fræðingar að það ætti enn eftir að lækka. Hefur samkomulag olíuráðherra OPEC-ríkjanna fyrir rúmum mánuði um þak á framleiðslu til að stuðla að verðhækkun ekki haldið. Þakið var miðað við 24,5 millj- ónir tunna framleiðslu á dag í október. Hafa löndin ekki virt samkomulagið og gerir mark- aðurinn ekki ráð fyrir að það haldi. Er það ein ástæða verð- lækkunarinnar í gær og síðustu daga. Einnig á aukin olíufram- Brussel. Reuter. LEIÐTOGAR ríkja Evrópubandalagsins, EB, hvöttu til þess á fundi sínum í Brussel í gær að hleypt yrði á ný krafti í hugsjónina um sameinaða Evrópu en róttækar aðgerðir gegn efnahagskreppunni litu ekki dagsins ljós. Samþykkt var að vísir að seðlabanka EB yrði í Frankfurt í Þýskalandi. John Major, forsætisráðherra Bretlands, sagði að grípa yrði til aðgerða gegn atvinnuleysi í EB-löndunum til að vinna traust almennings. Fundurinn var haldinn í tilefni þess að Maastricht-samkomulagið um nánara samstarf bandalagsríkj- anna tekur gildi á mánudag. I drög- um að lokaályktun fundarins kom fram að samkomulag náðist um að markmiðið væri sem fyrr að koma á sameiginlegum gjaldmiðli EB fyrir lok aldarinnar en ekkert minnst á að það gæti tekist þegar árið 1997. Almennt er nú talið að ókyrrðin í gjaldeyrismálum aðildar- ríkjanna síðustu árin og efnahags- kreppan útiloki að svo fari. Francois Mitterrand Frakk- landsforseti varaði menn við því að hættulegir tímar gætu verið framundan í álfunni. „Við horf- umst í augu við fjöldamorð í þjóð- emiseijum sem gætu breyst í stað- bundnar styrjaldir. Það er mikil hætta á Evrópustríði í upphafí næstu aldar,“ sagði forsetinn. Helmut Kohl, kanslari Þýska- leiðsla í Norðursjó og minni eftir- spurn sinn þátt í verðlækkuninni. Fatið af Brent-olíu úr Norð- ursjó, sem kemur til afhendingar í desember, fór um tima í gær niður í 15,82 dollara, áður en það hækkaði aftur. Kostaði það 16,42 dollar í fyrradag. lands var ekki jafn svartsýnn, hann sagði að unnið væri að uppbygg- ingu nýrrar Evrópu og starfið gengi vel. Kohl og Mitterrand munu hafa lagt til að leiðtogarnir ættu tíðari fundi þar sem utanríkis- stefna yrði samræmd en undirtekt- ir voru dræmar. Sveigjanlegri vinnumarkaður John Major benti á að í banda- laginu væri hlutfall þeirra sem ver- ið hefðu án atvinnu í meira en ár margfalt hærra en í Bandaríkjun- um. Gera yrði samskiptareglur á vinnumarkaði sveigjanlegrí. Slaka bæri á reglum um lágmarkslaun, lækka skyldugreiðslur fyrirtækj- anna til félagslega kerfisins og gera mun eftirsóknarverðara fyrir fólk að starfa fremur en lifa á at- vinnuleysisbótum. Leiðtogarnir samþykktu að ljúka bæri nýjum GATT-samningi um tollámál og aukið frelsi í alþjóðavið- skiptum en orðalag um tímamörk er loðið. Stjórnendur GATT telja mikilvægt að staðið verði við áætl- un um undirritun í desember en Frakkar hafa hótað að tefja fyrir samningnum vegna ágreinings um stuðning franska ríkisins við bænd- ur. Sjá „Verður Evrópubandalag- ið að Evrópu . . .“ á bls. 21 Vinna að friðiáN- Irlandi Brussel. Reuter. JOHN Major og Albert Reyn- olds, forsætisráðherrar Bret- lands og írlands, hétu í gær • að leggjast á eitt um að stuðla að friði á Norður-írlandi. Leiðtogarnir sögðu í yfirlýs- ingu eftir fund þeirra i gær, að friðarviðræður yrðu að byggjast á pólitískum viðræðum stjórna Bretlands og írlands og helstu stjórnmálasamtaka á Norður- írlandi. Afneituðu aðilar deilunn- ar um framtíð héraðsins hryðju- verkum sögðu ráðherrarnir skjóta lausn mögulega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.