Morgunblaðið - 30.10.1993, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993
25
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir
messu. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Fiðluleikar-
ar Bryndís Pálsdóttir og Laufey Sig-
urðardóttir. Flutt verður „Unt thee
will I cry“ eftir Henry Purcell. Kór
Rangæinga syngur. Organisti Guðni
Þ. Guðmundsson. Messukaffi
Rangæinga. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Hámessa kl. 11.
Ferming. Prestur sr. Jakob Á. Hjálm-
arsson. Fermd verður Agnes Hrönn
Gunnarsdóttir, Ránargötu 9a. Tekið
verður við gjöfum í líknarsjóð KKD
(kirkjunefndar kvenna Dómkirkjunn-
ar). Barnastarf í safnaðarheimilinu á
sama tíma í umsjá sr. Maríu Ágústs-
dóttur. Eftir messu verður í safnað-
arheimilinu fundur í Safnaðarfélagi
Dómkirkjunnar. Á fundinum flytur
Kþstinn Magnússon erindi um forn-
leifafund við Nesstofu. Skírnarguðs-
þjónusta kl. 14. Prestur sr. Jakob
Á. Hjálmarsson.
GRENSÁSKIRKJA: Fjölskyldu-
messa og yngri barna starf kl. 11.
Prestur sr. Gylfi Jónsson. Barnakór
Grensáskirkju syngur, undir stjórn
Mprgrétar Pálmadóttur. Fræðsla,
söngur og framhaldssagan. Organ-
isti Árni Arinbjarnarson. 6 ára börn
og yngri á neðri hæð. Messa kl. 14.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Org-
anisti Árni Arinbjarnarson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Munið skólabflinn.
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Helgi
Bragason. Gunnþór Ingason.
HALLGRÍMSKIRKJA: Siðbótardag-
urinn. Fræðslustund kl. 10. Fyrir-
lestur með myndasýningu um Mart-
in Lúther og siðbótina. Sr. Sigurður
Pálsson. Messa og barnasamkoma
kl. 11. Sr. Sigurður Pálsson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Ferming. Fermdar verða María
Dröfn Egilsdóttir, Sléttuvegi 3, og
Rakel Gústafsdóttir, Eskihlíð 22.
Organisti Pavel Manásek. Sóknar-
prestur.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11.
Prestur sr. Flóki Kristinson. Organ-
isti Jón Stefánsson. Kór Kórskólans
syngur. Kaffisopi eftir messu.
Barnastarf kl. 13 í umsjá Hauks Jón-
assonar og Jóns Stefánssonar.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Jón D. Hró-
bjartsson. Organisti Ronald Turner.
Barnastarf á sama tíma í umsjá
Þórarins Björnssonar. Heitt á könn-
unni eftir guðsþjónustu.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11.
Munið kirkjubílinn. Sr. Frank M.
Halldórsson. Guðsþjónusta kl. 14.
Orgel- og kórstjórn Reynir Jónas-
son. Guðmundur Óskar Ólafsson.
Basar og kaffisala Kvenfélags Nes-
kirkju eftir guðsþjónustu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Prestur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir. Organisti Hákon Leifs-
son. Barnastarf á sama tíma í um-
sjá Eirnýjar og Báru. Fundur með
foreldrum fermingarbarna eftir
messu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Þór Hauksson.
Organisti Sigrún Steingrímsdóttir.
Barnaguðsþjónustur í Árbæjar-
kirkju, Ártúnsskóla og Selásskóla
kl. 11. Guðmundur Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur dr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson héraðsprestur. Org-
anisti Daníel Jónasson. Barnaguðs-
þjónusta á sama tíma. Samkoma
Ungs fólks með hlutverk kl. 20.30.
Gísli Jónasson.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Guðspjall dagsins:
(Jóh. 4.) Konungsmað-
urinn.
Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta
í Kópavogskirkju kl. 11. Þorbergur
Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Organisti Lenka Máté-
ová. Barnaguðsþjónusta á sama
tíma í umsjón Ragnars Schram.
Guðsþjónusta með altarisgöngu kl.
18. Prestur sr. Guðmundur Karl
Ágústsson. Prestarnir.
GRAFARVOGSSÓKN: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 í félagsmiðstöðinni
Fjörgyn. Elínborg, Guðmunda, Kar-
ítas og Valgerður aðstoða. Guðs-
þjónusta kl. 14. Organisti Þóra Guð-
mundsdóttir. Fundur með foreldrum
fermingarbarna að lokinni guðs-
þjónustu. Kaffiveitingar. Vigfús Þór
Árnason.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Barnastarf á sama tíma. Kór
Hjallakirkju syngur. Organisti Kristín
G. Jónsdóttir. Kristján Einar Þor-
varðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
starf í safnaðarheimilinu Borgum kl.
11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 14. Börn frá leikskólanum Kópa-
steini koma í heimsókn og syngja
ásamt kór Kópavogskirkju. Organ-
isti Örn Falkner. Ægir Fr. Sigurgeirs-
son.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Dóm-
prófastur sr. Guðmundur Þorsteins-
son vísiterar Seljakirkju og prédikar
í guðsþjónustunni. Altarisganga.
Kirkjukórinn og barnakórinn syngja.
Organisti Kjartan Sigurjónsson.
Sóknarprestur.
ÓHÁÐI söfnuðurinn: Guðsþjónusta
kl. 14. Organisti Vera Gulázsiová.
Kaffi eftir guðsþjónustuna. Safnað-
arprestur.
FRÍKIRKJAN, Reykjavík: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 14. Prédikun sr.
Sigurður Haukur Guðjónsson. Hug-
leiðsla Erla Stefánsdóttir. Flautu-
leikur Anna Kristín Einarsdóttir.
Organisti Pavel Smid. Cecil Har-
aldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Messa
kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Messa
kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugar-
daga messa kl. 14 og ensk messa
kl. 20. Aðra rúmhelga daga messur
kl. 8 og kl. 18.
SÍK, KFUM/KFUK, KSH: Almenn
samkoma kl. 20.30. Jóhanna Zimsen
hefur upphafsorð og bæn. Hildur
Sigurðardóttir talar. Yfirskrift sam-
komunnar er „Lífið er mér Kristur'1
- Fil. 1,12.-30.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11. Alla rúmhelga daga messa
kl. 18.30.
FÆREYSKA sjómannaheimilið:
Samkoma sunnudag kl. 17.
GARÐASÓKN: Fyrirlestur sr. Braga
Skúlasonar um „Sorg og trú" verður
í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 13
í dag. Sunnudagaskóli í Kirkjuhvoli
kl. 13. Unglingaguðsþjónusta með
„poppívafi“ í Kirkjuhvoli kl. 20.30.
Yfirskrift hennar er: „Náungakær-
leikurinn." Unglingar í Æskulýðsfé-
lagi Garðakirkju taka virkan þátt í
athöfninni. Unglingahljómsveitin
„Dishörmung" sér um alla tónlist.
Leikræn tjáning. Veitingar að athöfn
lokinni. Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐASÓKN: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta á Hrafn-
istu kl. 13. Guðsþjónusta með altar-
isgöngu c Víðistaðakirkju kl. 14. Kór
Víðistaðasóknar syngur. Organisti
Úlrik Ólason. Ólafur Jóhannsson.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Einar Eyjólfs-
son.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli
í Stóru-Vogaskóla í dag kl. 11.
Messa í Kálfatjarnarkirkju kl. 14.
Bragi Friðriksson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11 árd. Munið skólabílinn.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.
Fermingarbörn aðstoða og flytja
leikræna prédikun. Vænst er þátt-
töku fermingarbarna og foreldra
þeirra. Suðurafrísk tónlist í flutningi
kóra Keflavíkur- og Ytri-Njarðvíkur-
kirkna og organistanna Gróu
Hreinsdóttur og Einars Arnar Ein-
arssonar.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Flutt verður trúarleg
tónlist frá Suður-Afríku. Organisti
Gróa Hreinsdóttir. Unglingastarf kl.
20.30. Baldur Rafn Sigurðsson.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 16. '
MOSFELLSPRESTAKALL: Messa í
Lágafellskirkju kl. 14. Barnastarf í
safnaöarheimilinu kl. 11. Bíll frá
Mosfellsleið fer venjulegan hring.
Jón Þorsteinsson.
SELFOSSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Messa kl. 14sunnudag.
Æskulýðsfundur kl. 20.15 mánu-
dagskvöld. Fundur um sorg og sorg-
arviðbrögð á vegum Geisla í safnað-
arheimili þriðjudagskvöld. Fyrirles-
ari séra Sigfinnur Þorleifsson,
sjúkrahúsprestur á Borgarspítala.
Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11.
GAULVERJABÆJARKIRKJA: Messa
kl. 14. Sr. Magnús Guðjónsson
messar. Kaffiveitingar eftir messu.
ODDAKIRKJA: Messa sunnudag kl.
14. Sunnudagaskóli i grunnskólan-
um Hellu kl. 11. Sóknarprestur.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA: Guðs-
þjónusta sunnudag kl. 11. Fundur
með fermingarbörnum og foreldrum
þeirra að athöfn lokinni. Kirkjuskóli
alla laugardagsmorgna kl. 11. Sókn-
arprestur.
HVAMMSTANGAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Kristján Björns-
son.
VÍÐIDALSTUNGUKIRKJA: Messu-
heimsókn frá Lundarkirkju í Borgar-
firði ki. 14. Sr. Agnes M. Sigurðar-
dóttir prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt staðarpresti. Altarisganga.
Nýstofnaður kirkjukór Lundarkirkju
syngur undir stjórn Hannesar Bald-
urssonar. Almennt kirkjukaffi í boði
sóknarinnar eftir messu í Víðihlíð
við söng heimakórs og gesta. Krist-
ján Björnsson.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum:
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Kjartan Sigurbjörnsson
ræðir við foreldra um málefni fjöl-
skyldunnar. Almenn guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Kjartan Sigurbjörnsson
þjónar fyrir altari ásmt prestum
safnaðarins og flytur prédikun dags-
ins. Barnagæsla. Boðið upp á akstur
frá Hraunbúðum. Messukaffi.
HALLGRÍMSKIRKJA, Saurbæ:
Guðsþjónusta kl. 11. Jón Einarsson.
INNRA-Hólmskirkja: Guðsþjónusta
kl. 14. Jón Einarsson.
AKRANESKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta í safnaðarheimilinu laugardag
kl. 11. Stjórnandi Haukur Jónasson.
Kirkjuskóli yngstu barnanna í dag,
laugardag, í safnaðarheimilinu kl.
13. Stjórnandi Axel Gústafsson.
Messa í safnaðarheimilinu kl. 14.
Messa í dvalarheimilinu Höfða kl.
12.45. Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Messa
veröur í Borgarneskirkju kl. 11.
Messa verður á Borg kl. 14. Þriðju-
daginn 2. nóvember kl. 18.30 verður
helgistund í Borgarneskirkju. Sókn-
arprestur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 14. Samkór Ása-
prestakalls í Vestur-Skaftafellssýslu
syngur við athöfnina. Fyrir altari
þjóna sr. Hjörtur Hjartarson og sr.
Sigurður Árni Þórðarson. Sóknar-
prestur prédikar.
PerlUbandið ásamt Hjördísi Geirsdóttur.
■ PERL UBANDIÐ leikur í Ráð-
húsi Reykjavíkur sunnudaginn 31.
október kl. 15, gestum og gangandi
til ánægju. Aðgangur er ókeypis.
Stórsveit Karls Jónatanssonar, öðru
nafni Perlubandið, hefur undanfar-
in sunnudagskvöld leikið á Hótel
íslandi við góðar undirtektir. Hljóm-
sveitin leikur alhliða danstónlist en
sérhæfír sig í suður-amerískri dans-
tónlist og swing-tónlist. Auk þess
bregður hún fyrir sig gömlu döns-
unum og rokktónlist ef með þarf.
Söngkona hljómsveitarinnar er
Hjördís Geirsdóttir.
■ PÉTUR Pétursson þulur, verð-
ur með myndaspjall í Ráðhúsinu,
laugardaginn 30. október kl. 14.
Pétur sýnir gamlar myndir úr
bæjarlífinu og þjóðlífinu og spjallar
um minningar sem í hugann koma
þegar myndirnar ber fyrir augu á
tjaldinu. Þar á meðal eru myndir
sem norskur ljósmyndari tók í
Reykjavík 1924, myndir af félögum
í barnastúkunni Æskunni 1927,
myndir frá fyrstu árum rúntsins,
myndir af prúðbúnufri brúðkauþs-
gestum, af starfsfólki ýmissa versl-
ana í Reykjavík á fyrstu áratugum
þessarar aldar og hópmynd af
starfsmönnum sem lögðu vatns-
veitu í Reykjavík.
■ LEIKHÓPURINN Vera á Fá-
skrúðsfirði frumsýndi sl. fimmtu-
dag alþýðusjónleikinn Mann og
konu í félagsheimilinu Skrúð við
góðar undirtektir sýningargesta.
Leikstjóri er Hörður Torfason en
með aðahlutverk fara Magnús
Stefánsson, Þóra Sverrisdóttir,
Páll Gunnarsson og Ingigerður
Jónsdóttir. Önnur sýning verður í
Skrúð nk. sunnudag en ráðgert er
að hafa sýningar í nágrannabæjum.
Formaður leikhópsins Veru er Sig-
urveig Agnarsdóttir.
- Albert.
■ HRAÐSKÁKMÓT Taflfélngs
Kópavogs verður haldið sunnudag-
inn 31. október kl. 14 í Hamraborg
5, 3. hæð.
■ 120 börh og unglingar bætast
í hóp seljenda í Kolaportinu nk.
surinudag én þá er þeini ' bóöið
ókeypis pláss til að kynna þeim
sölumöguleikana á markaðstorginu.
í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Haldið verður sérstaklega upp á
daginn með margvíslegum hætti.
Ýmis skemmtiatriði verða á boðstól-
um og má t.d. nefna leikhópa,
hljómlistarmenn og dansara.
■ VEGURINN, kristilegt sam-
félag, verður með samkomur föstu-
dag, laugardag og sunnudag kl. 8
á Smiðjuvegi 5. Gestur á sam-
komunum verð-
ur Richard Per-
enchief en hann
byijaði þjónustu
árið 1987 undir
leiðsögn Benni
Hinn. Richard er
alinn upp í hefð-
bundinni krist-
inni kirkju og er
nú pastor yfír
tveimur kirkjum í mið Flórída. Einn-
ig leiðir hann biblíuskóla sem þjálf-
ar fólk í þjónustu. Þetta er í fímmta
skiptið sem Richard kemur til ís-
lands síðastliðin tvö ár.
■ SKÁTAFÉLAGIÐ Hraunbúar
í Hafnarfirði hefur staðið fyrir
stuttum gönguferðum fyrir almenn-
ing um Hafnarfjörð og nágrenni
síðasta sunnudag í hveijum mán-
uði. Hafa þær vakið mikla athygli
enda fróðir Hafnfirðingar ávallt
leitt göngurnar og kunna þeir frá
mörgu skemmtilegu og fræðandi
að segja. Hafnarfjarðargangan
sunnudaginn 31. október verður um
skógræktarsvæði Hafnarfjarðar við
Hvaleyrarvatn. Göngustjóri verður
Hólmfríður Finnbogadóttir, for-
maður Skógræktarfélags Hafnfírð-
inga. Gengið verður frá gróðrastöð-
inni Höfða kl. 14.
Richard
Perenchief.
■ FERÐAFELAG ISLANDS
efnir til tveggja gönguferða sunnu-
daginn 31. október. Kl. 13 er farin
gönguferð norðan Grindavíkur hjá
Gálgakletti um Sýlingarfell að Bláa
lóninu. Brottför er frá BSÍ, austan-
megin. Kl. 14 er fjölskylduganga
um Öskjuhlíð í tilefni sýningarinnar
Hugspil, leikföng og tómstundir,
sem lýkur í Perlunni þennan dag.
Helgi M. Sigurðsson sagnfræðing-
ur, annar tveggja höfunda nýrrar
bókar um náttúrufar og sögu
Öskjuhlíðar, mun leiða hópinn í um
einnar og hálfrar stundar göngu.
M.a. verða skoðaðar minjar frá
stríðsárunum, leyfar af fjárborg og
selstöðu sem fáir þekkja. Það er
ekkert þátttökugjald í gönguna og
brottför og mæting við anddyri
Perlunnar.
■ STARFSNÁMSKEIÐ hefst í
Reykjavík 1. nóvember nk. fyrir
meðferðar- og uppeldisfulltrúa
sem starfa á heimilum og stofnun-
um fyrir fatlaða og á stofnunum
sem sinna uppeldi, meðferð og þjálf-
un bama og unglinga sem þurfa á
sérhæfðri þjónustu að halda. Gert
er ráð fýrir 25-30 þátttakendum í
senn á hvert námskeið, en hið fýrsta
var formlega sett í gær. Kennt verð-
ur fýrstu vikuna í Borgartúni 6,
en síðan fer kennsla fram í húsa-
kynnum BSRB, Grettisgötu 89.
Frekari upplýsingar fást í félags-
málaráðuneytinu, Hafnarhúsinu 8,
Tryggvagötu, og hjá Starfsmanna-
félagi ríkisstofnana, Grettisgötu 89,
Reykjavík.
■ STEINUNN Jóhannesdóttir,
leikskáld verður gestur í laugar-
dagskaffi Kvennalistans 30. októ-
ber. Þar mun hún ræða um leikrit
sitt-Ferðalok-, -sem -sýnt-er-í -Þjóðleik-
húsinu um þessar mundir. Kaffíð
hefst kl. 11 og er á Laugavegi 17,
2. hæð. Allir velkomnir.
■ KVIKMYNDIN Sannir vinir
verður sýnd í bíósal MÍR, Vatns-
stíg 10, nk. sunnudag, 31. október,
kl. 16. Þetta er gömul mynd gerð
á sjötta áratugnum og fjallar um
þrjá unga stráka, vináttu þeirra,
ráðabrugg og ævintýri og er fýrir
alla fjölskylduna. Leikstjóri er Kal-
atozov og tónlistin er eftir Tikhon
Khrennikov. Aðgangur er ókeypis
og öllum heimill.
HÓTEL
LEIFUR EIRÍKSSON
Skólavörðustíg 45
Reykjavík
slml 620800
Fax 620804
Hagkvæm gisting
íhjarta borgarinnar* -
Einst.herb.
kr. 2.800
Tveggja m. herb.
kr. 3.950
Þriggja m. herb.
kr. 4.950
Morgunverðurinnifalinn1-'