Morgunblaðið - 30.10.1993, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993
í bílaleik
FÉLAGARNIR Jósef, Ragnar og Eyjólfur sem eru í sjöunda bekk í Odd-
eyrarskóla voru að leika sér í fjörunni við Strandgötu í gær þegar ljós-
myndari átti leið um.
Fundur umdæmanefndar Eyþings
Sameiningartil-
lögumar kynntar
FYRSTU almennu kynningarfundirnir á vegum umdæmanefndar Ey-
þings um sameiningu sveitarfélaga verða haldnir í dag, laugardaginn
30. nóvember.
Flugfélag Norðurlands
Keflavíkurflugið
fellt niður í vetur
Messur á
morgun
■Sunnudagaskóli Akur-
eyrarkirkju verður á morgun
kl. 11 f.h. Öll börn velkomin
og foreldrar eru einnig hvattir
til þátttöku. Munið kirkjubíl-
ana. Æskulýðs- og fjölskyldu-
messa verður í Akureyrarkirkju
kl. 14 á morgun. Ungmenni
aðstoða. Sérstaklega er vænst
þátttöku fermingarbama og
fjölskyldu þeirra. Æskulýðsfé-
lagið heldur fund í kapellunni
kl. 17. Biblíulestur í safnaðar-
heimilinu mánudagskvöldið 1.
nóvember kl. 20.30.
■Glerárkirkja Biblíulestur og
bænastund í kirkjunni kl. 13.
Allir velkomnir. Fjölskyldu-
guðsþjónusta verður kl. 11 á
morgun, sunnudag, fundur
æskulýðsfélagsins kl. 17.30.
■Hvítasunnukirkjan Biblíu-
lestur með Helgu Zidermanis
kl. 20. í kvöld, laugardaginn
30. október. Bamakirkjan kl.
11 á morgun, sunnudag. Sam-
koma kl. 15.30, ræðumaður er
Helga Ziedermanis. Bama-
gæsla meðan á samkomu
stendur. Á samkomunum er
mikill söngur.
■Kaþólska kirkjan Messur
kl. 18.00 í kvöld, laugardaginn
30. október og á morgun,
sunnudag kl. 11. Alira heilagra
messa mánudag 1. nóvember
kl. 18. Allra sálna messa 2.
nóvember kl. 8 og 10.
Tveir fundir verða haldnir í 'dag,
í Víkurröst á Dalvík og á Hótel Húsa-
vík, og hefjast þeir báðir kl. 14. Á
miðvikudag, 3. nóvember verða einn-
ig tveir fundir um sameiningu sveit-
arfélaga, í Laugarborg, Eyjafjarðar-
sveit, og Skúlagarði í Kelduhverfi.
Tillögur umdæmanefndar fela f sér
að öll sveitarfélög við Eyjafjörð sam-
einist í eitt, Suður-Þingeyjarsýsla
verði að einu sveitarfélagi, en norður-
sýslunni verði skipt í þijú sveitarfé-
lög.
FLUGFÉLAG Norðurlands hf.
hefur ákveðið að fella áætlun-
arflug niður milli Akureyrar
og Keflavíkur í vetur, frá 1.
nóvember næstkomandi og til
30. apríl. Frá og með 1. maí á
næsta ári verður flugið hafið
að nýju og verða daglegar ferð-
ir milli þessara staða næsta
sumar.
Frá því að félagið hóf áætlunar-
flug milli Akureyrar og Keflavíkur
í maí árið 1991 hafa um tíu þúsund
farþegar verið fluttir á þessari leið.
Há afgreiðslugjöld
Ástæður þess að áætlunarflugið
er fellt niður eru aðallega tvíþætt-
ar. Annars vegar dragast flutningar
mjög saman á þessari flugleið á
veturna og hins vegar eru af-
greiðslugjöld á Keflavíkurflugvelli
mjög há, sem leiðir til meiri kostn-
aðar á hvern farþega en annars
staðar. Einnig eru meðaltekjur fé-
lagsins af hveijum farþega milli
Akureyrar og Keflavíkur lægri en
á öðrum flugleiðum.
Reynsla Flugfélags Norðurlands
af Keflavíkurfluginu hefur leitt í
ljós mikinn mun sumars og veturs
á flutningum og þótt farþeganýting
í fluginu hafi verið mjög góð í sum-
ar og um verulega aukningu að
ræða frá síðasta ári tók stjórn fé-
lagsins þá ákvörðun að fella niður
umrætt áætlunarflug, en sú ákvörð-
un þótti nauðsynleg til að tryggja
arðbæran rekstur fyrirtækisins ut-
an háannatíma.
-----♦ ♦ ♦
Loftskeyta-
maðurinn
sýndí
Borgarbíói
Kvikmyndaklúbbur Akureyrar
sýnir norsku kvikmyndina Loft-
skeytamanninn í Borgarbíói á
morgnn, sunnudag, kl. 17 og
mánudaginn 1. nóvember kl. 19.
Myndin gerist í norskum smábæ
í byijun aldrarinnar og fjallar um
loftskeytamanninn Rolandsen sem
gerir ýmislegt annað en hamra á
morstæki, hann er uppfinningamað-
ur, heimspekingur, draumóramaður
en fyrst og fremst ómótstæðilegur
kvennabósi. Honum nægir ekki sá
kvenkostur sem hann auðveldlega
kemst yfir og rennur því hýru auga
til dóttur ríkisbubba staðarins sem
lofuð er ríkum kaupmanni að tilskip-
an föður síns.
Myndin er margþætt smábæjar-
lýsing með aragrúa skemmtilegra
persóna sem gera hana að eftirminni-
Iegri gamanmynd.
(Úr fréttatilkynningu.)
Meistarakokkar Westra Piren á íslandi
Sænsk-franskir dag-
ar á Hótel Holti
SÆNSK-frönsk matargerð verður í fyrirrúmi á Hótel Holti
vikuna 1.-5. nóvember í samvinnu við veitingahúsið Westra
Piren í Gautaborg. Westra Piren er líkt og Holt meðlimur í
samtökunum Relais & Chateaux og hefur þar að auki hlotið
hina eftirsóknarverðu Michelin-stjörnu. Verður matargestum
boðið upp á sjö rétta máltíð með eðalvínum, kaffi og koníaki
á 5.500 krónur þessa viku.
Skr"s,0,us,|6rar Hvað hafa þau í laun?
Mishá laun yfirmanna stjórnarráðsins
Skrifstofustj óri
með 475 þúsund
SÁ skrifstofustjóri í ráðuneyti, sem hæst hefur laun, hefur haft
475.500 krónur í mánaðarlaun að jafnaði það sem af er árinu og
hæstlaunaðasti ráðuneytisstjórninn hefur haft 441 þúsund krónur í
mánaðarlaun. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrir-
spurn á Alþingi um laun starfsmanna ráðuneytanna.
fulltrúa tæpar 125 þúsund krónur.
Launamunur
Það eru matreiðslumeistarar
Westra Piren, þeir Mikael Öster og
Mats Sjölander, sem sjá um matar-
gerðina á Hótel Holti í næstu viku
en Westra Piren er einn þekktasti
og vinsælasti veitingastaður Sví-
þjóðar. í þessari viku hafa tveir af
matreiðslumeisturum Hótel Holts,
þeir Eiríkur Ingi Friðgeirsson og
Hallgrímur Þorláksson, séð um
matargerðina á Westra Piren með
megináherslu á íslenskt lambakjöt
og ferskan fisk.
Guðmundur Birgir Stefánsson,
aðstoðarhótelstjóri á Hótel Holti,
sagði hugmyndina að þessu sam-
starfi hafa vaknað er Eiríkur Ingi
hefði verið gestakokkur hjá veit-
ingastaðnum Lejontornet í Stokk-
hólmi fyrr á þessu ári. Þá hefði einn
af eigendum Westra Piren komið
þangað í mat og líkað mjög vel.
Forráðamenn Westra Piren hefðu í
framhaldi af því haft samband við
Hótel Holt og spurt hvort að áhugi
væri á samstarfi. „Ef þetta gengur
vel ætlum við að gera þetta að ár-
vissum atburði og þá ekki endilega
bara binda okkur við Svíþjóð frekar
en önnur lönd,“ sagði Guðmundur
Birgir.
Finnur Ingólfsson alþingismað-
ur spurði fjármálaráðherra um
hver væru meðalmánaðarlaun og
hæstu og lægstu laun ráðuneytis-
stjóra, skrifstofustjóra ráðuneyt-
anna, deildastjóra og fulltrúa á
tímabilinu janúar til september á
þessu ári.
í svari ráðherra kemur fram,
að meðallaun ráðuneytisstjóra eru
338 þúsund krónur á mánuði og
er þá talið með öll yfirvinna og
þóknanir fyrir setu í nefndum,
stjórnum og ráðum. Meðallaun
skrifstofustjóra eru tæpar 287
þúsund krónur, laun deildarstjóra
tæpar 187 þúsund krónur og laun
Verulegur munur er á hæstu og
lægstu launum þessara hópa.
Hæstu heildarlaun ráðuneytis-
stjóra eru 441 þúsund krónur en
þau lægstu rúmar 237 þúsund
krónur. Hæstu heildarlaun skrif-
stofustjóra eru 475.500 krónur en
lægstu heildarlaun 157 þúsund.
Hæstu heildarlaun deildarstjóra
eru rúmar 338 þúsund en lægstu
rúmar 93 þúsund og hæstu heildar-
laun fulltrúa eru tæpar 271 þúsund
krónur en þau lægstu rúmar 66
þúsund krónur.
Jónmund-
ur yfirlög--
regluþjónn
á Selfossi
DÓMSMÁLARÁÐHERRA hef-
ur skipað Jónmund Kjartans-
son, settan yfirlögregluþón á
ísafirði, í stöðu yfirlögreglu-
þjóns á Selfossi í stað Jóns I.
Guðmundssonar sem er að láta
af störfum vegna aldurs um
þessar mundir. 15. umsóknir
bárust um stöðuna
Jónmundur Kjartansson er 38
ára og hefur starfað í lögreglu á
ísafirði en einnig hjá RLR. Hann
hefur undanfarið verið skipaður
aðstoðaryfirlögregluþjónn á
Isafirði og gegnt starfi yfirlög-
regluþjóns þar undanfarna mán-
uði.
Jónmundur Kjartansson
FISKVINNSLUDEILDIN
DALVlK
Frá siávafútvegsdeilillhni á Balvík - V.M.A.
30 rúmlesta skipstjórnarréttindanámskeið
veróur haldió.
Innritun fyrir 1. nóvember.
Upplýsingar í síma 96-61380.
Skólastjóri
\:
I
I
I
I
I
I
I
I
í
í
i
I
i