Morgunblaðið - 30.10.1993, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993
19
A
Ovenjulegar aðstæður
Óvenjulegar aðstæður bíða þeirra sem aka í frumskógarleiðangrinum, m.a. að ferja jeppa yfir ill-
færar ár á gummíbátum.
Undirbúningur hafinn fyrir erfiðasta jeppaleiðangur i heimi
Fjórir Islendingar reyna
við Ulfaldabikarinn
Jeppinn
Frumskógarjeppi kom til íslands vegna aðildar íslands að undir-
búningi leiðangursins.
FJÓRIR íslendingar hafa verið
valdir til að fara fyrir Islands
hönd í undankeppni fyrir Camel
Trophy jeppaleiðangurinn eða
Úlfaldabikarinn, sem verður á
næsta ári. Fara þeir Björgvin
Filippusson frá Akranesi, Vil-
helm Vilhelmsson frá Akureyri,
Guðbergur _ Guðbergsson og
Ólafur Orn Ólafsson frá Reykja-
vík til Svíþjóðar um næstu helgi,
til þátttöku í 48 manna úrtaki
norrænna keppenda fyrir leið-
angurinn. Aðeins fjórir af þess-
um 48 keppendum fá síðan sæti
einnar norrænar áhafnar i leið-
angrinum.
Camel Trophy er þekktasti
jeppaleiðangur heims og keppa 16
þjóðir um sigur í þessum leið-
angri, sem er settur upp sem
keppni við tímann. Ekið er á 16
Land Rover Discovery jeppum og
verða keppendur að leysa ýmsar
þrautir í akstri, skipulagningu og
ratvísi. Er ekið samfleytt í sextán
daga um 1.600 km leið í frumskóg-
um, stundum dag og nótt. Hefur
þessi keppni verið haldin í þrettán
ár og Islendingar eiga í fyrsta
skipti möguleika á þátttöku. Fyrst
verða þeir að komast í gegnum
undánkeppnina í Svíþjóð, þar sem
reynt verður á menn á ýmsan
hátt, andlega og líkamlega.
Keppnisstjórnin í Svíþjóð fékk
umsóknir frá tæplega fjögur
hundruð íslendingum og hafði síð-
an samband við þá sem þeir töldu
vænlegasta í þessari frumraun.
Völdu þeir síðan fjóra menn til
þátttöku úr þeim hópi.
Koma úr ólíkum áttum
Einn er bankastjóri, annar sölu-
maður í byggingarvöruverslun,
þriðji bifvélavirki og fjórði er að
ljúka verkfræðinámi í háskólan-
um. Tveir þeirra hafa talsverða
reynslu af akstursíþróttum, sem
er þó ekkert afgerandi atriði í
þessari keppni. „Eg held að þetta
sé mikið ævintýri og basl, sem
maður lendir ekki í dags daglega.
Þess vegna sótti ég um að komast
með í frumskógarferðina. Við eig-
um jafna möguleika og aðrir Norð-
urlandabúar í að komast áfram
og verðum að standa okkur,“ sagði
Ólafur Örn Ólafsson í samtali við
Morgunblaðið. Hann var á árum
áður liðtækur keppnismaður á
skíðum.
Mikill undirbúningur
Guðbergur Guðbergsson er búin
að undirbúa sig vel síðustu daga.
„Strax og ég vissi að ég hafði
verið valinn byijaði ég að undirbúa
mig, því fáir sleppa gegnum síuna
í Svíþjóð. Ég byijaði strax að
hlaupa til að fá aukið þol, fór á
hnúta- og áttavitanámskeið hjá
Hjálparsveit skáta og rifjaði upp
skyndihjálparkunnáttuna. Svo fór-
um við Björgvin saman og prófuð-
um spilvinnu á jeppa með spili,
skoðuðum síðan lítillega hvernig
er að keyra Land Rover Discovery
eins og gert verður í keppninni.
Svo hef ég verið að grúska í bók-
um yfir gagnverkið í jeppunum,
til að vita hvað bíður manns,“
sagði Guðbergur. G.R.
____STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN N
Kuldaskór m/rennilás
Verð: 3.995,- Stærð: 40-46 Litur: Svartur Tökum vifl notuðum skóm til handa bágstöddum. v
■ POSTSENDUM SAMDÆGURS ■ 5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTURl
Domus Medica, Kringlunni, Toppskórinn,
Egilsgötu 3, Kringlunni 8-12, Veltusundi,
sími 18519 ^— sími 689212 sími 21212.
eftir Astrid Lindgren
NOTUM GRÓFMYNSTRUÐ VETRARDEKK.
HÖGUM AKSTRI EFTIR AÐSTÆÐUM
GATNAMÁLASTJÓRI