Morgunblaðið - 30.10.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.10.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993 21 Verður Evrópubandalag- ið að Evrópusambandi? Reuter Mótmæli BELGÍSKIR verkamenn mótmæltu í gær niðurskurði ríkisstjórnar- innar á sama tíma og leiðtogafundur Evrópubandalagsins var hald- inn í borginni. NOKKUR óvissa ríkir um /framtíð Evrópubandalagsins, EB, á leiðtogafundi hans, sem hófst í Brussel í gær. Astæðan er Maastricht-samkomulagið frá 1991, sem nú hefur loksins verið staðfest af öllum aðild- arríkjunum tólf og tekur gildi á mánudaginn. Maastricht, sem er samkomulag um efna- hagslegan og pólitískan sam- runa ríkjanna, gerir nefnilega ráð fyrir að Evrópubandalag- ið breytist við þann samruna í Evrópusambandið, ES. Eng- inn virtist hins vegar vita hvort nafnið ætti að nota. „Eg fer algjörlega hjá mér út af þessu,“ sagði Bruno Dethom- as, aðaltalsmaður Jaqcues Delors, forseta framkvæmda- sljórnar EB, er hann skýrði frá því að ekki hefði fengist niðurstaða í málinu. Margar þjóðir hafa uppi efa- semdir um ágæti þess að tala um Evrópusamband, ekki síst Bretar, sem telja orðið „samband" bera of mikinn sambandsríkiskeim. Sagði Douglas Hurd, utanríkis- ráðherra Breta, fyrr í vikunni, að hann hygðist ekki breyta orða- forða sínum þó að Belgar, Þjóð- veijar og fleiri aðildarþjóðir væru yfir sig hrifnir af „sambandinu". Með Maastricht er ætlunin að dýpka samstarf EB-ríkjanna á fjölmörgum sviðum. Stefnt er að peningalegum samruna og upptöku sameiginlegs gjaldmiðils í síðasta lagi árið 1999. Stefnt er að því að taka upp sameiginlega utanríkis- og varnarmálastefnu. EB fær aukið vald til að taka ákvarðanir á fjölmörgum sviðum, s.s. varðandi umhverfismál, menntamál, neytendavernd, heil- brigðismál og samgöngumál. Maastricht gerir einnig ráð fyr- ir aukinni samvinnu dómsmála- og lögregluyfirvalda f baráttunni gegn glæpum innan bandalagsins. Meðal annars verður sett á lagg- irnar stofnunin Europol, sem síðar gæti þróast í samevrópska rann- sóknarlögreglu. Þá ætla öll EB-ríkin, að Bretum undanskildum, að taka upp sam- eiginlega löggjöf á sviði félags- mála. Þrátt fyrir hin háleitu markmið samkomulagsins er óvíst að það muni breyta miklu að það hafi nú endanlega verið staðfest. Frá því að samkomulagið var undirritað hefur komið í ljós megn andstaða við samrunahugmyndirnar í flest- um ríkjum bandalagsins. Þá er Gengissamstarf Evrópu (ERM), sem átti að mynda grunninn að Myntbandalagi Evrópu (EMU) hrunið. Jacques Delors, helsti hug- myndafræðingurinn á bak við Maastricht, sagði í samtali við frönsku sjónvarpsstöðina France-3 í gær að honum liði ekk- ert allt of vel í starfi, honum fynd- ist hann vera gagnslaus enda væri hugmyndum hans oftast hafnað eða þær saltaðar. Þá kvartaði hann yfir því að vegna efnahagskreppunnar væru aðilar- þjóðirnar líka farnar að líta í edig- in barm í auknu mæli. Þá sagðist hann óttast að EB væri smám saman að breytast í laustengt, „sálarlaust“ fríverslunarsvæði. Líbýa Fréttum um uppreistir vísað á bug Lundúnum. Reuter. MUAMMAR Gaddafi, leið- togi Líbýu, vísaði í gær á bug fréttum um uppreistir innan hersins og sagði þær „óskammfeilna lygi“. Bandaríska dagblaðið The Washington Post hafði á fimmtudag eftir stjórnar- erindrekum og líbýskum út- lögum í Kaíró að Gaddafi hefði þrisvar sinnum beitt sprengjuflugvélum til að kveða niður uppreistir her- manna, sem væru óánægðir með að hafa ekki fengið laun sín í marga mánuði. Breska útvarpið BBC hafði einnig skýrt frá því að líbýski flug- herinn hefði gert loftárásir á uppreisnarmenn í bænum Misratah, austur af Tripoli. Oskammfeilin lygi „Við stöndum hér frammi fyrir óskammfeilinni lygi,“ sagði Gaddafi í ræðu á fundi með háskólanemum og kenn- urum í Tripoli. Hann kvað BBC og bresku leyniþjón- ustuna hafa logið fréttunum til að skaða Líbýumenn og draga úr baráttuþreki líbýsku þjóðarinnar. QUATTRO HEIMTUG - SMEKKLEG - ÓDÝR Þola hreinsun með klórblöndu! EKKERTBERGMAL Hljóðeinangrandi eiginieikar Imprel-CR tryggja gott hljóðísog. EIMGAR TRGÐNAR SLÓOIR Þristrend bygging Imprel-CR nylonþráðanna tryggir frábært fjaðurmagn og endurreisn á teppaflosinu. Hinn þétti svampbotn er gerður úr Baysal T — hágæða latexi frá Bayer. AUOPRIFIO Teppin eru auðþrifin án þess að litir láti á sjá — jafnvel á miklum álagssvæðum. BRUNAPOLIÐ BS 4790 brunaþolspróf: Imprel—CR teppi á actionbotni sýna lítinn íkveikjuradíus (WIRA-prófað). LITRÍKUR SPRETTHLAUPARI Innlæst litakorn tryggja varanlega og samfellda litun. GLEOUR AUGAÐ Samræmdir og skýrir litir gera teppið eins og gamalt málverk í nýjum ramma. Litir falla saman I eina heild á stórum sölum. SANNURHARÐJAXL Þrístrenda formið í nylonþræðinum tryggir frábært álagsþol. £ íl lo') BLÁSIÐ Á BLETTI Flestir óhappablettir hverfa auðveldlega. Á erfiðari bletti má nota klórefni. ENGIN RAFSTUÐ BEKINOX leiðandi málmþráður ofinn í garnið gerir teppið varanlega afrafmagnað. Engin óþægileg stuð vegna stöðuspennu. r.., □RKUSPARANDI Imprel-CR teppi eru mjög einangrandi og draga því úr hitunarkostnaöi. Sligahúsalilboð till.des. 20% afsláttur af Quattro stigateppum en það samsvarar ÓKEYPIS LÖGN á stigahúsið. Leitið tilboða. Við mælum, sníðum og leggjum, fljótt og vel. Fjarlægjum gömul teppi. SUÐURLANDSBRAUT 26 - SÍMI 681950

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.