Morgunblaðið - 30.10.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 30.10.1993, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993 Minning’ * Margeir G. Asgeirs■ son frá Hnífsdal Fæddur 12. ágúst 1931 Dáinn 20. október 1993 Kveðja frá tengdabömum Við kveðjum í dag hann Margeir tengdaföður okkar. Maggi eins og hann var alltaf kallaður var reglumaður í orði og í verki. Hann bjó yfir ríkum sjálfs- aga, var ákveðinn og ábyrgðarfullur og lagði rækt við allt sem hann tók sér fyrir hendur. Það eru fáir af hans kynslóð virk- ir þátttakendur í heimilisstörfum. En Maggi var það. Af frumkvæði og festu gekk hann í húsverkin. Hann var snyrtimenni, óreiðu og seinagang þoldi hann illa. Njóta nú synir hans góðs af þessu viðhorfi. Tengsl Magga við heimahaga sína, Hnífsdal, voru mjög náin og fóru hann og Addý þangað vestur á hverju ári, nú síðast í sumar sem leið. Það er mikil gæfa að njóta góðr- ar heilsu. Maggi var vel meðvitaður um það, enda gerði hann líkamsæf- ingar á hverjum morgni og fór í sundlaugina að loknum vinnudegi. Hann var ímynd hreysti og heil- brigði. Fyrir einu og hálfu ári fór tilvera Magga að sýna á sér nýja hlið. Það var kominn brestur í stoðir lífsins og lífið tók á sig annan blæ. Fram að þessum tíma hafði Maggi ekki einungis notið líkamshreysti. Hug- arstyrk átti hann og fékk sá styrk- ur að njóta sín nú þegar á móti blés. Viljinn og sjálfsaginn knúðu hann áfram til þess að halda sínu striki - haggast ekki - fá sér sund- sprett hvenær sem færi gafst og tíðir voru göngurtúramir, allt þar til líkaminn gat ekki meira. Maggi var alltaf svo góður við hana Addý. „Hún Addý mín“ sagði hann. Í veikindum sínum gætti hann þess að henni liði ekki illa. Hann var sterkur, stóð eins og klett- ur upp úr hafinu og hlífði Addý sinni. Hann fylgdist vel með börnum sínum og barnabömum. Hann naut þess að sjá þau vaxa úr grasi og samvera með Magga afa fyllti þau gleði og skildi eftir Ijúfar minning- ar. Við kveðjum Magga með þakk- læti fyrir samfylgdina hér á jörð, minningamar geymum við í hjarta okkar. Við biðjum góðan guð að styrkja Addý. Anna, Hafsteinn, Sveinbjörg og Sigríður Ragna. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. (Kahlil Gibran) Í dag verður til foldar borinn frá Keflavíkurkirkju Margeir Guð- mundur Ásgeirsson fískmatsmaður, Hólabraut 11 Keflavík sem lést árla að morgni h. 20. október sl. á sjúkrahúsinu í Keflavík. Margeir var sonur hjónanna Ás- geirs R. Kristjánssonar verkamanns og Rannveigar Vilhjálmsdóttur í Hnífsdal en þau eru bæði látin. Hann var áttundi í röð tólf bama þeirra en af þeim em nú sex á lífí. Að honum stóðu sterkir vestfírskir stofnar. Foreldrar Ásgeirs voru Kristján Bjömsson, Helgasonar f. í Botni í Súgandafírði og k.h. Guðrún Ásgeirsdóttir, Pálssonar, Ásgeirs- sonar. Hún er í niðjatali Guðmund- ar Bárðarsonar í Ámardal, N-ísa- fjarðarsýslu, Arnardalsætt. For- eldrar Rannveigar vom Vilhjálmur Markússon, sjómaður í Hnífsdal og Bolungarvík, ívarssonar lausa- manns að Möðruvöllum í Eyjafírði, Jónssonar og Elísabet Guðnadóttir. Rannveig taldi í föðurætt til frænd- semi við Vilhjálm Stefánsson, land- könnuð í Kanada. Margeir ólst upp í Hnífsdal og byrjaði að vinna algenga verka- mannavinnu á þeim tíma eftir nám í bamaskólanum þar. Hann tók mikinn þátt í íþróttum í Hnífsdal og síðar einnig á ísafírði. 1956 brá hann heimdraganum, fór á físk- matsnámskeið og eftir það var hann skamma hríð í foreldrahúsum. Það var síðla vetrar 1956 að Margeir Ásgeirsson kom fyrst á heimili okkar við Túngötu á ísafírði. Þau Ásthildur Árnadóttir, Addý systir okkar, höfðu kynnst um haustið og hann gerði komur sínar tíðar. Hann var lífsglaður og frjáls- legur og frá fyrstu kynnum áttum við krakkamir, yngri systkin henn- ar með honum góðar stundir og skemmtun. Ekki var að sökum að spyrja, Maggi varð fljótt í hópi okk- ar bestu heimilisvina. Þau- Addý voru heitbundin um haustið og Maggi varð einn af fjölskyldunni. Þau fluttust til Keflavíkur í árslok, en foreldrar okkar höfðu flust þang- að síðsumars. Hinn 14. desember 1957 var brúðkaup þeirra og þau settu bú saman í lítilli leiguíbúð við Kirkjuteig, fluttust fáum ámm síðar í eigið hús að Vatnsnesvegi 22, enn síðar í rýmri íbúðarhæð að Hóla- braut 11 og hafa búið þar alla tíð síðan. Börn þeirra em: 1) Ámi, f. 29. okt. 1957, auglýsingateiknari, e-k. Anna Ingólfsdóttir, dætur þeirra eru Ásthildur, Erla María og Una, þau búa á Egilsstöðum, 2) Ragn- hildur, f. 10. júní 1960, skrifstofu- maður, e-m. Hafsteinn Hafsteins- son, vinnuöryggiseftirlitsmaður, böm þeirra em Margeir og Guð- ríður, áður hafði hún eignast soninn Margeir Einarsson, en hann lést á bamsaldri 1981 eftir ógnarhörð veikindi, þau búa í Njarðvík, 3) Ásgeir f. 13. des. 1961, bygginga- verkfræðingur, e-k. Sveinbjörg Ein- arsdóttir, hjúkmnarfræðingur, syn- ir þeirra eru Margeir, Einar og Ólaf- ur, þau búa í Hafnarfirði, 4) Veig- ar, f. 6. júní 1972, tónlistarmaður og nemi, heitkona Sigríður Ragna Jónasdóttir, förðunarfræðingur. Barnabörnin em því orðin níu en eitt þeirra látið. Maggi tók óvenju mikinn þátt í heimilisstörfum og þau Addý vom einstaklega samtaka. Hún var hon- um alltaf „Addý mín“ og milli þeirra ríkti sterk gagnkvæm ást, virðing, umhyggja og tillitssemi. Hann var umhyggjusamur faðir og vinur barna sinna allt frá bemsku til full- orðinsára, mótandi uppalandi sem fylgdist grannt með framfömm þeirra og þroska, leiðbeindi þeim og hvatti ótrauður og studdi í því sem þau tóku sér fyrir hendur. Ekki síst var hann stoltur af þeim þegar þau stóðu sig vel og náðu settu marki. Þegar barnabörnin bættust í hópinn tókst með þeim og honum sama vináttan. Hann hafði yndi af börnum og naut þess að hæna þau að sér og fylgjast með framfömm þeirra og þroska. Eftir að Maggi fluttist úr for- eldrahúsum frá Hnífsdal og eignað- ist eigin fjölskyldu var dalurinn og húsið undir bakkanum áfram fastur liður í athöfnum hans og fyölskyld- unnar. Umhyggja hans og hlýja við aldraða móður var kærleiksrík. Heimsóknir til Rannveigar ömmu, Ellu systur og Hinna bróður urðu jafn fastir punktar í tilvem bam- anna þeirra Addýjar. I dalnum lærðu þau að njóta lífsins í fámennu og kyrrlátu þorpi við Djúp. Silungs- veiði fram undan fjöruborðinu neð- an hússins, berjaferðir inn til hárra fjallahlíða og stöku bæjarferð í kaupstaðinn var viðburður í kyrrð- inni. Hann var ötull og verkhygginn í störfum enda greindur vel og fyrir- hyggjusamur. Hann stundaði físk- vinnu, í ágúst 1958 hóf hann skreið- armat og 1964 einnig saltfískmat, enn ásamt almennri fiskvinnu. I maí 1977 varð hann yfírfiskmats- maður á Suðurnesjum og í apríl 1983 réðst hann eftirlitsmaður hjá Sölusambandi íslenskra fískfram- leiðenda. í hverju starfí var hann afburðamaður, kunnáttusamur, ör- uggur og forsjáll. Hann var maður stéttvís, tók þátt í málefnum verka- fólks, sat í ýmsum nefndum VSFK, í trúnaðarráði þess um árabil og var fulltrúi þess á þingi ASÍ. Þar sem annars staðar reyndist hann tillögu- og úrræðagóður og fylginn sér þegar honum þótti máli skipta. Maggi var heilsugóður enda stundaði hann ávallt útvist, íþróttir og líkamsrækt, og reglusemi var eitt hans aðalsmerkja. Þegar veik- indin gerðu vart við sig var hann sterkbyggður og vel á sig kominn. Hann var. staðfastur í baráttunni við hinn stranga sjúkdóm og lét hvergi bugast. Samt tókst honum ekki að yfírvinna þann banvæna vágest. Lífíð var Magga ekki mjúk- hent fremur en öðrum. En lífsvið- horf hans gerðu honum kleift að mæta köldum vindum lífsins og bera byrðar þess með jafnaðargeði. Hann var trúaður maður, en bar ekki trú sína á torg. Sorgir sínar og þjáningar bar hann allar í hljóði. Þrátt fyrir afar kvalafull veikindi fóru kvörtunarorð aldrei um hans varir. Hann barðist af æðruleysi og féll með reisn. Maggi naut í veikindum og þján- ingu líknsamrar umönnunar ágæts hjúkrunarfólks og lækna Landa- kotsspítala og síðast sjúkrahússins í Kefiavík. Öllum þeim og öðrum starfsmönnum og stjómendum sem lögðu honum lið flyt ég einlægar og hlýjar þakkir hans nánustu. Sér- staklega kærar þakkir þeirra færi ég stjórnendum og starfsmönnum á vinnustöðum þeirra beggja. Með- an á veikindum hans stóð hafa þau hjón bæði notið þar einstakrar vin- áttu og velvildar, hann hjá SÍF, hún hjá Hótel Keflavík og Ofnasmiðju Suðumesja og eigandanum Jóni W. Magnússyni og fjölskyldu hans. Enn fremur færi ég hlýjar þakkir þeirra sr. Ólafí Oddi Jónssyni sókn- arpresti fyrir mikla hjálp til að standa þungar raunir í sorg og söknuði. Ég átti því láni að fagna að kynn- ast Magga vel. Hann var maður skemmtilegur að hitta, áhugasamur um landshagi og þjóðmál, fylgdist vel með tíðindum, naut rökræðu um álitaefni hvers tíma og var hrein- skiptinn. Minna þótti honum til koma ef menn létu tilfínningar bijótast fram í þeim umræðum, en sló þá léttari strengi enda gaman- samur i góðra vina hópi. Hann hafði mikið yndi af tónlist og var sjálfur söngvinn vel. Það var honum enda ánægjuefni þegar yngsti sonur hans sýndi ungur tónlistaráhuga og er fram leið varð list Veigars sérstakt stolt hans. Lífsviðhorf okkar Magga voru um sumt ólík, en þó á stundum hafí á milli borið í skoðunum á þjóð- málum bar samt aldrei skugga á vináttu okkar. Þar réð mestu um drenglyndi hans og umburðarlyndi sem hann var ríkulega gæddur. Hann var sannarlega drengur góður og vinur vina sinna. Með Magga er héðan horfinn ein- stakur mannkostamaður. Hann var samviskusamur svo að af bar, hóg- vær, hófsamur, trúfastur og stöð- uglyndur að allri skapgerð, blíður og umhyggjusamur ástvinum sín- um, trygglyndur og hugljúfur vin- um sínum og fágætur starfsmaður. Hans er minnst með ást, þakklæti og virðingu af okkur öllum sem höfum notið ástrikis hans og hlýju í ríkulegum mæli. Maggi var einstaklega hlýr, hjálpfús og elskulegur tengdafor- eldrum sínum, rétt sem foreldrum sínum meðan þeirra naut við. Sam- band hans og foreldra okkar var því sterkt og náið. Þau hafa misst kæran son og vin og sakna hans nú og syrgja. Þau biðja fyrir ást- samlega hinstu kveðju er hann leggur á móðuna miklu og biðja fyrir velferð hans handan hennar um leið og þau þakka honum góða samleið. Vináttusamband okkar systkin- anna og maka okkar við Magga var alltaf bjart og við áttum margt sam- an að sælda. Börnin okkar, sem nú eru fullorðið fólk, minnast enn með þakklæti hve hann var natinn við að taka þau með í leiki, íþróttir og útivist. Sérstakt sæti í huga þeirra verma skautaferðirnar á Seltjörn sem enduðu með kakó- og pönnu- kökuveislu á Hólabrautinni. Við biðjum öll fyrir elskulega hinstu kveðju og þakkir er leiðir skiljast og biðjum honum náðar og líknar hins hæsta. Dýpst og ströngust er sorg elsku- legrar systur minnar, hennar Addýjar, barnanna þeirra fjögurra og afa-bamanna. Þau hafa mátt standa hjá og fylgjast með kvölum hans og baráttu án þess að geta lagt lið umfram það að gera þján- ingamar bærilegri. Það er erfítt hlutskipti og á það bar hann sjálfur gott skynbragð. Þó þau hafí undir- búið sig fyrir hið óhjákvæmilega varð það þeim samt óvænt og sárt áfall. Að þeim er þungur harmur kveðinn, þau hafa misst ástríkan og umhyggjusaman eiginmann, föður, tengdaföður og afa, vin í raun á hveiju sem gekk. Hjá þeim er hugur okkar í samúð og bæn. Við biðjum algóðan Guð að gefa þeim huggun í raun, sefa sorgina og styrkja þau til að minnast með gleði þeirra stunda sem þau áttu bestar með honum sem nú er kvadd- ur hinstu kveðju. Að leiðarlokum þakka ég Magga samfylgd og vináttu sem aldrei hefur slegið fölva á. Megi hann á himnum fá góða heimkomu í ríki hins kærleiksríka föður. Ef tilvera tekur við af þessari þá á hann víst að á móti honum taka ástvinir, þar á meðal ástkæri drengurinn sem fór svo fljótt og við öll söknum enn, nafni hans Margeir litli. Það verður fagnaðarfundur. Hann var göfuglyndur og dreng- ur góður. Hann var vinur í raun og við gleymum honum aldrei. Minning hans lifir í okkur sem með honum gengum. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Vert þú sæll, vinur.^ Árni Ragnar Árnason. Margeir Ásgeirsson frá Hnífsdal verður jarðsunginn í Keflavík í dag, en hann lést 20. þessa mánaðar eftir baráttu við erfiðan sjúkdóm. Margeir Ásgeirsson var fæddur 12. ágúst 1931 og var því aðeins sextíu og tveggja ára þegar hann lést. Hann var alinn upp á sjávar- kambinum í Hnífsdal, rétt við gull- kistuna miklu sem ísafjarðardjúp var og er. Oft bárust Vestfirðirnir í tal þeg- ar við vorum að vinna saman og minnist ég þess hvað Margeir átti í rauninni djúpar rætur fyrir vest- an. Á sumrin fór hann til æsku- stöðvanna að heimsækja aldraða móður sem nú er látin, systkini og fjölskyldur þeirra. Þegar hann rifj- aði upp æskuárin talaði hann gjarn- an um hvað gaman hefði verið að leika sér í fjörunni sérstaklega að veiða en þá gekk sjóbirtingur upp í ós Hnífsdalsár. Veiðiáhuginn blundaði ævinlega í honum og fór hann árlega í Veiði- vötn með nokkrum félögum. Síðast- liðið sumar fór hann einnig þó að hann væri fársjúkur. Margeir var ævinlega hraustur og hress og það leið varla sá dagur að hann gerði ekki eitthvað til þess að „smyija skrokkinn á sér“ einsog hann sagði stundum, „við verðum að halda okkur í formi, strákar". Fyrir vestan kynntist Margeir stóra vinningnum í lífí sínu, Ásthildi Árnadóttur frá ísafírði. Fljótlega eftir að þau hófu búskap fluttust þau suður til Kefla- víkur þar sem þau hafa búið til þessa dags. Margeir var ánægður með hlut- skipti sitt í lífinu, fjölskyldu sína og lífsstarfið, en hann starfaði alla tíð við sjávarfang, einmitt það sem hann ólst upp við frá blautu barns- beini. Lengst af starfaði Margeir við gæðaeftirlit og leiðbeiningar- störf í saltfískvinnslu. Á árum áður starfaði hann sem matsmaður, aðal- lega í saltfiski. Hann hefur greini- lega staðið sig vel í því starfí, þar sem hann varð síðar yfírfískmats- maður á Suðumesjum í saltfíski og skreið á vegum Framleiðslueftirlits sjávarafurða eins og það hét þá. í upphafi árs 1983 hittumst við Mar- geir fyrst. Þá var hann í þessu starfi og undirritaður að hefja störf hjá SIF. Mér er það minnisstætt hvað Margeir tók mér vel og hvað gott var að vinna með honum. Hann var ósérhlífínn og hispurslaus í fram- göngu, stundum svo gustaði af hon- um ef hann var ekki ánægður með verk framleiðenda. Síðar á þessu sama ári hóf Margeir störf hjá SÍF, þar sem verið var að hefja eigið eftirlit á vegum Sölusambandsins. í eftirlitsdeild SÍF starfaði Margeir til dauðadags. Það var mikill fengur fyrir SÍF á þessum árum að fá Margeir til starfa með þá miklu reynslu sem hann hafði. Margeiri var það metnaðarmál að standa sig í því sem honum var trúað fyrir. Það svæði sem Margeir þjónaði hvað lengst, þ.e. á Suðurnesjum, hefur verið fram til þessa fram- leiðsluhæsta svæðið og oft á tíðum verið með flesta framleiðendur. Það þurfti því oft víða að fara og marg- ir sem þurftu að ná í Margeir. Áður en farsími kom til sögunnar gátu framleiðendur hringt heim til Mar- geirs og beðið um skilaboð til hans. Heimilið var því oft eins og símstöð og gengu Addý og krakkarnir að þessu einsog að hveijum öðrum sjálfsögðum hlut. Eftir hádegi eða að morgni gátu skilaboðin stundum verið í tugum, oft verkefni sem þurfti að leysa samdægurs. Þessu tók Margeir með miklu jafnaðar- geði, þó að sjálfsögðu hafí stundum reynt mikið á hann, sérstaklega á árum áður þegar mun meira magn af fiski var í umférð, fjöldi framleið-' enda meiri og hráefnið lakara. Oft var verið að fást við dauðblóðgaðan og stundum nokkura nátta fisk. Við þessar aðstæður reyndi mjög mikið á viðkomandi eftirlitsmann að samræma gæðastaðalinn og þar með störf fleiri tuga manna. Þetta leysti Margeir af hendi með stakri prýði. Um uppruna Margeirs, ætt og fjölskylduhagi verður eflaust fjallað af öðrum sem til þeirra mála þekkja betur en ég. Tveimur vikum fyrir andlátið komum við tveir samstarfsmenn Margeirs á heimili þeirra hjóna. Mikil breyting var nú orðin að sjá þennan stæðilega og hrausta mann, ekki kvartaði hann yfir sínum að- stæðum heldur tók þeim með æðru- leysi. Þau tóku á móti okkur bæði hlý og elskuleg sem var eðli þeirra beggja. Hálfum mánuði síðar var Margeir allur. Við samstarfsmenn Margeirs í Eftirlitsdeild SÍF minnumst hans með miklu þakklæti. Við vottum eiginkonu hans og fjölskyldunni allri innilegustu samúð. Fyrir hönd Eftirlitsdeildar SÍF, Bjarni Benediktsson. Síminn hringir árla morguns, ég heyri að símtalið er frá íslandi. Faðir minn tjáir mér að Maggi hafi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.