Morgunblaðið - 30.10.1993, Side 7

Morgunblaðið - 30.10.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993 7 Lausn í sjónmáli í leikskóladeilunni STARFSEMI leikskóla spítalanna verður tryggð áfram ef starfshóp- ur málsaðila í deilunni nær samkomulagi. Að sögn heilbrigðisráð- herra, Guðmundar Arna Stefánssonar, er það nú í sjónmáli. Landakotsspítali leig1- ir einkaaðilum leik- skólann Brekkukot LANDAKOTSSPÍTALI hefur gert samning við einkaaðila um að leigja leikskólann Brekkukot frá 1. janúar á næsta ári. Börn sem þar eru í vistun núna fá forgang um vistun hjá nýjum rekstraraðil- um ef forráðamenn þeirra geta sætt sig við þau kjör sem boðið verður upp á. Að sögn Guðmundar Árna felst samkomulagið í því að sveitarfélög- in koma að málinu, hagrætt verður í rekstri leikskólanna og ríkið mun styrkja starfsemina þar til börn sem nú eru í vistun komast á grunn- skólaaldur. „Sum þeirra ganga út strax næsta sumar og önnur verða lengur. Nú er verið að ræða undir hvaða formerkjum nýta megi pláss sem losna. Með samkomulaginú nást markmið um að tryggja áfram- haldandi vistun barnanna, um starf- * Listasafn Islands Sýning Braga framlengd YFIRLITSSÝNING á grafík- verkum Braga Ásgeirssonar í Listasafni íslands hefur verið framlengd um eina viku. í frétt frá safninu segir að sýn- ingin hafi fengið góðar undirtektir og aðsókn. Er þetta fyrsta sýningin í nýjum flokki sérsýninga sem Listasafnið hyggst standa fyrir á næstu árum, þar sem tekið verður saman úrval verka eftir íslenska myndlistarmenn af eldri kynslóð, eða dregnar upp heildarmyndir af afmörkuðum þáttum í sköpunar- starfi þeirra. semi leikskólanna og störf fóstra og annars starfsfólks leikskólanna. Áform um sparnað heilbrigðisráðu- neytisins munu nást að stórum hluta. Ég vænti þess að hægt verði að binda þessa hnúta á næstu viku eða 10 dögum. Þá eiga menn að vita hvar þeir standa á grundvelli þessarar lausnar," sagði Guðmund- ur Árni. Aðeins framtíðarlausn kemur til greina Hópur fóstra fór á fund heilbrigð- isráðherra á miðvikudag og gaf hann þá fyrirheit um að uppsagnir starfsfólks yrðu dregnar til baka fyrir 10. nóvember. Að sögn Hrafn- hildar Sigurðardóttur leikskóla- stjóra á Furuborg, sem er einn af leikskólum Borgarspítalans, er starfsfólk leikskóla orðið mjög óró- legt og lagði hún á það mikla áherslu að finna yrði lausn á málinu til frambúðar. Ekki kæmi til greina af hálfu fóstra að endurráða sig á leikskóla sem reka ætti til óákveð- ins tíma. „Við viljum fá að vita sem fyrst hvaða framtíðarlausn er sjáanleg. Ég vona að ríkið og sveitarfélögin taki höndum saman um rekstur leikskólanna því þetta er mál sem snertir 700 börn, foreldra þeirra og 200 starfsmenn leikskólanna, þar af um 100 fóstrur. Eins og málum er háttað nú taka sveitarfélögin ekki við þessum börnum nema í hámark 6 tíma vistun," sagði Hrafnhildur. Fundað um stöðuna og framtíðina Fulltrúar foreldra hafa boðað foreldra barna og starfsmenn á leik- skólum og skóladagheimilum rík- isspítala á fund á mánudag. Á fund- inum verður rætt um framtíð leik- skóla og skóladagheimila og stöð- una eins og hún er í dag. í fundar- boði segir að Guðmundi Árna Stef- ánssyni og stjórnendum spítalanna verði boðið á fundinn. Fundurinn verður í Eirbergi, gamla hjúkrunar- skólanum, mánudaginn 1. nóvem- ber kl. 20. ------♦---------- Dýrara að flytja mjólk Ytri-Tjörnum, Eyjafjarðarsveit KAUPFÉLAGSSTJÓRI og sam- lagsstjóri Kaupfélags Eyfirðinga ákváðu nú nýverið að fengnu samráði við stjórn Félags eyfirskra nautgripabænda að hækka flutningsgjald á mjólk úr kr. 1,74 í 2,00 krónur vegna halla á mjólkurflutningum. Inniagt mjólkurmagn hjá mjólk- ursamlagi KEA hefur dregist óeðli- lega hratt saman á undanförnum vikum og er til muna minna en á sama tíma í fyrra. Líkleg skýring á því er að hey eru lakari að gæðum en á undanförnum árum. Benjamín Að sögn Bjarna Arthúrssonar, rekstrarstjóra Landakotsspítala, var gengið til samninga um að leigja leikskólann í framhaldi af ákvörðun heilbrigðisráðherra um að loka leik- skólum spítalanna um næstu ára- mót. „Þetta er í samræmi við bréf frá ráðherra þar sem hann til- kynnti um uppsagnirnar. Þar bend- ir hann einnig á að til greina komi að aðrir aðilar leigi leikskólana og brugðumst við við bréfinu á þann hátt sem sem uppálagt var,“ sagði Bjarni. „Með þessum hætti höfum við einhverjar tekjur af húsnæðinu auk þess sem við lítum svo á að við höfum tryggt börnunum sem þar dvelja nú valkost. Þau hafa forgang að plássum á leikskólanum eftir að nýr rekstraraðili tekur við.“ Leikskólinn hefur verið leigður áhugahópi um stofnun barnaheimil- is og þar munu starfa fóstrur, grunnskólakennarar, listgreina- kennarar og listamenn úr hinum ýmsu listgreinum auk aðstoðar- fólks. Að sögn Bjama er samning- urinn ekki gerður til neins ákveðins tíma en í honum eru uppsagnar- ákvæði. Á Brekkuborg eru nú starfandi níu fóstrur. Þær láta allar af störf- um um áramót og hefur ekki verið boðin önnur vinna. Að sögn Mar- grétar Bjarman fóstru á Brekku- borg kemur engin af þeim fóstrum sem þar vinna núna til með að vinna á leikskólanum eftir að nýir rekstr- araðilar taka við. 0 Morgunblaðið/Kristinn Lunar bækur STARFSMAÐUR Bústaðasafns kannar úrval lúinna bóka sem eru til sölu í safninu, en yfirleitt leggja útibúin fjóra til fimm bókakassa fram í einu og bjóða fólki til kaups á lágu verði. Mikið er um úreltar fræðibækur og reyfara. Selja bækur sem ekki eru lengur boðlegar til láns BORGARBÓKASAFN Reykjavíkur hefur undanfarna mánuði selt í þremur útibúum sínum bækur sem eru búnar að lifa sitt fegursta og yrði fargað að öðrum kosti. Þórdís Þórarinsdóttir, borgarbókavörður, segir að þegar bókasafnið tölvuvæddist hafi verið farið í gegnum bókakostinn til að meta hvaða bækur væru ekki þess virði að vera flokkaðar. „Við vildum ekki eyða tíma í að lagfæra þær bækur sem eru verð- litlar hvort sem er né að líma á þær strikaletursmiða og fara með þetta í gegnum tölvukerfið vegna kostnaðar því samfara," segir Þór- dís. Hún segir að Borgarbókasafn afskrifi á hveiju ári jafnaðarlega um níu þúsund bækur og aðeins sé til sölu brot þess fjölda en öðru sé hent. „Magnið fer eftir því hversu mikið við finnum, jafnóðum og unnið er í gegnum bókaforðann," segir Þórdís. „Okkur finnst blóðugt að þurfa að eyðileggja bækur og viljum gefa fólki kost á.að njóta þeirra á einhvern hátt. Þetta er lít- il fjáröflunarleið fyrir safnið." Bækurnar eru seldar í Bústaða- safni, bókasafninu í Gerðubergi og í Sólheimasafni og kosta flestar frá 50-100 krónum, þó að sumar séu seldar fyrir lægra verð og sumar ögn hærra. Þórdís segir sölu sem þessa algenga víða erlendis, t.d. á Norðurlöndum, og húni þjóni hvar- vetna þeim tilgangi að rýma til í húsakynnum safna og losna við að henda bókum á haugana. Ágætu viðskiptavinir: Breyttur opnunartími frá og með 1. nóvember. ► Verslun Skútuvogi 16: 8:00 9:00 10:00 11:00 12:00 13:00 14:00 15:00 16:00 17:00 18:00 l_________|________|________|________|_________|__ Mánudaga til föstudaga kl. 8 Laugardaga kl. 10 ► Timbursala Súðarvogi 3-5: Mánudaqa til föstudaqa kl 8 Laugardagalokað Verslun og timbúrsala Helluhrauni 16: Mánudaga til föstudaga kl 9 Laugard. 9. Geymið auglýsinguna. HÚSASMKMAN Súðarvogi 3-5 • Skútuvogi 16 • Helluhrauni 16 riqðt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.