Morgunblaðið - 30.10.1993, Síða 26

Morgunblaðið - 30.10.1993, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993 Ljósmyndarinn Jóhannes Long HJÓNABAND. Gefin voru saman í hjónaband 28. ágúst sl. í Dóm- kirkjunni af sr. Valgeir Ástráðssyni Birna Björk Þorbergsdóttir og Helgi K. Sigurðsson. Heimili þeirra er á Holtsgötu 22, Reykjavík. HJÓNABAND. Gefin voru saman í hjónaband 21. ágúst sl. í Landa- kirkju af sr. Kjartani Erni Sigur- bjömssyni Guðrún Kristín SÍgur- geirsdóttir og Börkur Grímsson. Heimili þeirra er á Höfðavegi 29, Vestmannaeyjum. Ljósmyndarinn.Jóhannes Long HJÓNABAND. Gefin vom saman í hjónaband 28. ágúst sl. í Bústaða- kirkju af sr. Pálma Matthíassyni Guðrún Gunnarsdóttir og Sölvi Sölvason. Heimili þeirra er í Aðal- stræti 55, Patreksfirði. Ijósmyndastofa Suðurlands, Selfossi HJÓNABAND. Gefin voru saman í hjónaband 21. ágúst sl. í Odda- kirkju af sr. Sigurði Jónssyni Haf- dís Garðarsdóttir og Sigfús Davíðs- son. Heimili þeirra er á Arnarsandi 4, Hellu. Ljósm.st. Jóh. Valg. HJÓNABAND. Gefín voru saman í hjónaband 20. ágúst sl. í Hafnar- kirkju af sr. Baldri Kristjánssyni Heiður Kristjana Sigurgeirsdóttir og Reynir Þórðarson. Heimili þeirra er á Höfn. Hamslausar Hamfarir Hljémplötur Árni Matthíasson Hljómsveitin Ham verður seint allra og líklega eru þeir fleiri sem leggja á hana fæð, en dá. Það er þó í góðu samræmi við vilja Hamliða, sem segjast frekar vilja hatur en hlutleysi. Þeir sem dá Ham, gera það þó af hamsleysi, ef svo má segja, og þeim svíður nokkuð að enn verður bið á „almennilegri" breiðskífu frá sveitinni, þó Ham, Saga rokksins 1988-1993, sem kom út fyrir stuttu, sé vel tii þess fallin að halda mönnum við efnið. Á Sögu rokksins er að finna eins- konar safn af því sem hljómsveitin Ham hefur fengist við frá því fyrsta plata sveitarinnar, 10“ Hold, vakti deilur þegar hún kom út 1988, fram til síðasta hausts, þegar síðustu lögin á plötunni voru tekin upp. Eðli málsins samkvæmt hlýtur plata sem þessi að verða sundur- leit, ef ekki bara fyrir þróunina í tónmáli þá fyrir mannabreytingar sem hafa verið nokkrar á þessum tíma, þó sami kjaminn sé enn til staðar. Hljómsveitin Ham er í dag skipuð þeim Sigurjóni Kjartans- syni, helsta lagasmið sveitarinnar, gítarleikara og söngvara, Óttari Proppé, söngvara og textasmið, Bimi Blöndal bassaleikara, en þeir þrír hafa verið í sveitinni frá upp- hafi, Jóhanni Jóhannssyni gítarleik- ara, og Arnari Ómarssyni, en við sögu á plötunni koma ýmsir aðrir, þar helstur Flosi Þorgeirsson gítar- leikari. Niðurröðun á plötuna er í öfugri tímaröð, sem kemur skemmtilega út; stigið er niður til heljar og eftir því sem á plötuna líður verður hljómur hrárri og tónlistin að sama skapi grófari og nær hámarki (lág- marki?) í lokalagi disksins, titillagi áðumefndrar 10“, Hold. Siguijón Kjartansson er lunkinn lagasmiður, eins og þeir fjölmörgu sem sáu Sódómu Reykjavík geta vitnað um, en í myndinni og á diski sem kom út með tónlistinni átti Ham stórleik. Öll lögin sem þar heyrðust hefðu átt erindi á þennan disk, ekki síst þegar litið er til þess að fyrstu tvö lögin á plötunni eru beinlínis hluti af þeim pakka. Það breytir því þó ekki að Saga rokks- ins er skemmtileg áheymar og reyndar furðumikið samhengi sé tekið tillit til samsetningar plötunn- ar og kannski er skemmtilega hrokafullur titill hennar ekki eins út úr kú og margur hefði haldið; eins og heyra má á tónleikum Ham og sjá á viðtökum sívaxandi hóps áheyrenda er Ham sönn sinfóníu- hijómsveit æskunnar sem felur í sér alla rokksöguna,' eða réttara sagt þá þætti hennar sem veigamestir eru. A TVINNUAUGL YSINGAR Hjúkrunarfræðingar í Skjólgarði á Höfn er staða hjúkrunar- fræðings laus nú þegar. Á heimilinu eru 32 hjúkrunarpláss, 12 á ellideild auk fæðingardeildar. íbúðarhúsnæði er til staðar. Skjólgarður greiðir fyrir flutning á staðinn. Allar nánari upplýsingar veita Amalía Þorgrímsdóttir, hjúkrunarforstjóri, og Ásmundur Gíslason, forstöðumaður, símar 97-81221/81118. Laus staða Staða skrifstofustjóra virðisaukaskattsskrif- stofu skattstofu Reykjavíkur er laus til um- sóknar og veitist frá 1. desember 1993. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi í lög- fræði, hagfræði eða viðskiptafræði eða hafa aflað sér víðtækrar sérmenntunar eða sér- þekkingar um skattalöggjöf og framkvæmd hennar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist fjármálaráðu- neytinu fyrir 22. nóvember 1993. Fjármálaráðuneytið, 28. október 1993. VEIÐI Laxveiðiá til leigu Veiðifélag Bakkár óskar eftir tilboðum í veiði- rétt í Bakká í Hrútafirði. Tilboðum skal skilað til Björgvins Skúlasonar, Ljótunnarstöðum, 500 Brú, sími 95-11169, sem jafnframt gefur upplýsingar, fyrir 20. nóvember. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. AUGL YSINGAR NAUÐUNGARSAÍA Uppboð Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins, Hafnarstrætl 1, ísafirði, þriðjudaginn 2. nóvember 1993 kl. 14.00 á eftirtöldum eignum: Hjallavegi 9, 0101, Flateyri, þingl. eign. Byggingarfélags Flateyrar hf., eftir kröfu Byggingarsjóðs ríkisins. Hjallavegi 9, 0102, Flateyri, þingl. eign. Byggingarfélags Flateyrar hf., eftir kröfu Byggingarsjóðs ríkisins. Hjallavegi 9, 0202, Flateyri, þingl. eign. Byggingarfélags Flateyrar hf., eftir kröfu Byggingarsjóðs ríkisins. Hjallavegi 9, 0104, Flateyri, þingl. eign. Byggingarfélags Flateyrar hf., eftir kröfu Byggingarsjóðs ríkisins. Hjallavegi 14, Flateyri, þingl. eign. Byggingarfélags Flateyrar hf., eftir kröfu Byggingarsjóðs ríkisins. Hjallavegi 16, Flateyri, þingl. eign. Byggingarfélags Flateyrar hf., eftir kröfu byggingarsjóðs ríkisins. Hjallavegi 18, neðri hæð, Flateyri, þingl. eign. Byggingarfélags Flat- eyrar hf., eftir kröfu Byggingarsjóðs ríkisins. Hjallavegi 18, efri hæð, Flateyri, þingl. eign. Byggingarfélags Flateyr- ar hf., eftir kröfu Byggingarsjóðs ríkisins. Hjallavegi 20, neðri hæð, Flateyri, þingl. eign. Byggingarfélags Flat- eyrar hf., eftir kröfu Byggingarsjóðs ríkisins. Hjallavegi 14, efri og neðri hæð, Suðureyri, þingl. eign Bergþórs Guðmundssonar, eftir kröfu Fjárfestingarfélagsins Skandiu hf. Mjallargötu 1, 2 h. C, 0203, ísafiröi, þingl. eign Byggingarfélags (sa- fjarðar hf., eftir kröfu Byggingarsjóðs ríksins. Sæbóli 2, Ingjaldssandi, Mýrahreppi, þingl. eign Elisabetar A. Péturs- dóttur og Ágústar B. Péturssonar, eftir kröfum JFE byggingarþjón- ustunnar hf. og Höfðafells hf. Sýslumaðurinn á ísafirði. skíðadeild Vetrarkaffi verður sunnudaginn 31. okt. í skíðaskála deildarinnar og hefst það kl. 15.00. Allir Víkingar velkomnir. Stjórnin. VEGURINN V Kristið samféiag Smiðjuvegi 5, Kopavogi Samkoma í kvöld með Richard Parenchief kl. 20.00. Athugið að síöasta samkoman með Richard Parenchief að þessu sinni verð- ur annað kvöld, sunnudags- kvöld, kl. 20.00. „Lát eigi hugfallast og óttast eigi, því Drottinn þinn er með þér.“ W > Frá Sálarrannsókna- félagi íslands Fyrirbænaguðsþjónusta verður haldin í Fríkirkjunni sunnudaginn 31. október kl. 14.00, Séra Cec- il Haraldsson þjónar fyrir altari. Séra Sigurður Haukur Guðjóns- son predikar. Oragnisti Pavel Smith. Einsöngur. Huglæknar taka þátt í guösþjónustunni. Erla Stefánsdóttir leiðir hugleiðslu. Sálarrannsóknafélag Islands. FERÐAFELAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 SÍMI 682533 Sunnudagsferðir 31.október 1. Kl. 13.00: Gálgaklettur-Sýl- ingarfell-Bláa lónið. Áhugavert gönguland norðan Grindavíkur. Bað í lok göngu ef vill. Verð 1.100 kr., frítt f. börn. Brottför frá BSl, austanmegin, (og Mörkinni 6). Stansað við kirkjug. Hafnarfj. 2. Kl. 14.00: Öskjuhlíð, saga, náttúrufar. Stutt ganga (1,5 klst.) í fylgd Helga M. Sigurðs- sonar, sagnfræðings, Árbæjar- safni. M.a. skoðaðar stríðsminj- ar, minjar um fjárborg og sel- stöðu. Gangan er í tilefni sýning- arinnar Hugspil, leikir og tóm- stundir í Perlunni. Ekkert þátt- tökugjald. Mæting við aöaland- dyri Perlunnar. Munið vættaferðina á Sela- tanga í kvöld, laugardagskvöldið 30. okt., kl. 20 (fullt tungl, fjörub- ál). Farið á slóðir Tanga-Tómasar. Hafiö Ijós meðferðis. Brottför frá BSÍ, austanmegin. Verð 1.100 kr. Allir eru velkomn- ir í Ferðafélagsferðir. Þriðjudagskvöldið 2. nóv. kl. 20.30: „Drekkið kaffi með Eiríki“ á opnu húsi í Mörkinni 6 (risi). Mætið í góðan félagsskap. Ferðafélag (slands. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Bænasamkoma kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Dagskrá vikunnar framundan: Sunnudagur: Ath. að brauðs- brotning færist fram á næsta sunnudag. Almenn samkoma kl. 16.30. Niðurdýfingarskírn. Ræðumaöur Svanur Magnússon. Miðvikudagur: Skrefið kl. 18.00. Biblíulestur kl. 20.30. Föstudagur: Gospel tónleikar kl. 20.00. Laugardagur: Bænasamkoma kl. 20.30. UTIVIST Hallveigarstig 1 • simi 614330 Dagsferð sunnud. 31. okt. Kl. 10.30: Brautarholt-Saurbær. Gömul þjóðleið á Kjalarnesi. Reikna má með 3-4 klst. langri göngu. Brottför frá BSl, bensín- sölu. Verð kr. 1200/1300. Haustblót 6.-7. nóvember Gist verður ( Nesbúð við Nesja- velli. Gönguferðir um Grafning og Hengilssvæöið. Sameiginleg- ur matur. Ath. að þeir, sem vilja taka þátt í lokaáfanga Þingvalla- göngu, verða sóttir í Nesbúð. Nánari upplýsingar og miðasala á skrifstofu Útivistar. Útivist.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.