Morgunblaðið - 30.10.1993, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993
29
Minning
Viktoría Kolfinna Ket-
ilsdóttir frá Kaðla-
stöðum á Stokkseyri
Fædd 18. janúar 1898
Dáin 19. október 1993
Kynni mín af Viktoríu Ketilsdótt-
ur frá Kaðlastöðum hófust árið
1982, er ég hóf sambúð með dóttur-
syni hennar Símoni sem heitir eftir
afa sínum frá Kaðlastöðum. Hún
bjó þá hjá tengdaforeldrum mínum,
Bennu dóttur sinni og Tómasi í
Hafsteini á Stokkseyri.
Viktoría reyndist mér góður fé-
lagi og vinur frá fyrstu kynnum.
Oft sátum við saman í eldhúsinu i
Hafsteini og hún sagði mér sögur
frá því í „gamla daga“. Hún mundi
allt svo vel og sagði þannig frá að
unun var á að hlýða. Viktoría sagði
mér oft frá konu sem var vinnu-
kona á Kaðlastöðum og hét Þuríður
Árnadóttir og var kölluð Þura. Hún
lýsti henni þannig fyrir mér að mér
fannst ég hafa þekkt hana alla tíð
þótt hún væri löngu látin.
Viktoría prjónaði mikið, og mörg
vettlinga- og sokkapörin færði hún
á mitt heimili. Hún var barngóð og
fannst börnunum alltaf gaman að
fara til langömmu, sem mátti alltaf
vera að því að tala við þau og ósjald-
an laumaði hún upp í þau sælgætis-
mola.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú i friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku Viktoría! Ég veit að nú
ertu hjá Guði almáttugum og þú
færð að sjá og hitta þá sem gengn-
ir eru á undan og þú unnir svo
mjög. Guð geymi þig.
Fjóla B. Ægisdóttir.
í dag verður jarðsungin frá
Stokkseyrarkirkju elskuleg amma
okkar Viktoría Kolfinna Ketilsdótt-
ir, fyrrum húsfreyja að Kaðlastöð-
um á Stokkseyri. Hún var fædd 18.
janúar 1898 í Rauðarhóli á Stokks-
eyri, dóttir hjónanna Hildar Vigfús-
dóttur frá Jaðarkoti og Ketils
Jónassonar frá Keldnakoti. Amma
átti einn bróður, Guðmund, fæddan
1902, sama ár og fjölskyldan flyst
að Kaðlastöðum, þar sem hún bjó
alla tíð.
Amma giftist 1918 Símoni Stur-
laugssyni, f. 1895, frá Starkaðar-
húsum. Hófu þau sinn búskap að
Kaðlastöðum og tóku fljótlega við
búinu af foreldrum ömmu. Amma
og afi eignuðustu þrjú börn. Þau
eru Ketill Hilmar, f. 1919, Sturla,
f. 1920 d. 1989, og yngst er Bjarn-
fríður, f. 1921. Afi og amma bjuggu
venjulegu sveitabúi, en afi sótti líka
sjóinn og var formaður á Stokks-
eyri margar vertíðir.
Afi dó 1957 og var amma því
búin að vera ekkja í 36 ár. Á heimil-
inu var í um sjötíu ár Þuríður Árna-
dóttir, og héldu þær amma áfram
búskapnum í nokkur ár eftir að afi
dó. Þura gamla var miki! vinkona
okkar krakkanna og alveg sérstök
gæðasál og dugnaðarkona, en hún
dó 1974.
Árið 1978 var amma orðin heilsu-
lítil og fluttist hún þá að Hafsteini
til Bennu dóttur sinnar og manns
hennar Tómasar Karlssonar. Þau
önnuðust ömmu í mörg ár af mik-
illi umhyggju og alúð. Síðustu tvö
árin var amma sjúklingur á Sjúkra-
húsi Suðurlands á Selfossi, síðast á
Ljósheimum, þar sem hún andaðist
19. október sl. Amma varð sem
sagt tæplega 96 ára. Hún var farin
að heilsu og kröftum þegar hún
lést og við vitum að hún var hvíld-
inni fegin.
Börnin hennar ömmu giftust öll
og átti hún orðið 40 afkomendur.
Við systkinin eigum ömmu margt
að þakka. Hún var mjög góð við
okkur og reyndist Baldri bróður
okkar alveg einstaklega vel í veik-
indum hans þau ár sem hann dvald-
ist á Kaðlastöðum. Amma hjúkraði
mörgum sjúklingum um ævina og
var mjög nærgætin og hlý við þá
sem áttu bágt.
í bernskuminningunni stendur
PIPU-
EINANCRUN
kk í sjálflímandi rúllum,
WC plötum og hólkum.
Þ. ÞORGRÍIUISSON & CO
ÁRMÚLA 29 - REYKJAVÍK - SÍMI 38640
BSamkomur með Richard
Perenchief í Veginum
laugardag og sunnudag
Richard.Perenchief byrjaöi í þjónustu árið 1987
undir leiðsögn Benny Hinn. Hann er alinn upp í
hefðbundinni kristinni kirkju. Nú er hann pastor yfir
tveimur kirkjum í mið-Flórída. Einnig leiðir Richard
biblíuskóla sem þjálfar fólk í þjónustu. Þetta er í 5.
skipti sem Richard kemur til íslands síðastliðin 2 ár.
Honum þykir vænt um (sland og vill tendra
hugsjón hjá ungu fólki því til blessunar í framtíðinni.
Komið og verið með í því sem Guð er að gera.
okkur skýrast fyrir sjónum þegar
amma fór í peysufötin sín á hátíð-
is- og tyllidögum. Það þótti okkur
alveg stórkostlegt og amma var svo
falleg og tignarleg.
Kvenfélagsjólaböllin með ömmu
og áramótin á Kaðlastöðum verða
okkur alltaf ógleymanleg. í raun-
inni var alltaf hátíð þegar við kom-
um að Kaðlastöðum. Amma tók á
móti okkur ærslafullum og óþekk-
um krökkum með svo mikilli mildi
og hlýju að það virtust aldrei vera
nein vandamál á þeim bæ. Margir
unglingar voru í sveit á Kaðlastöð-
um og er óhætt að fullyrða að
amma og afi komu þeim öllum til
nokkurs þroska og höfðu mannbæt-
andi áhrif á ungar og ómótaðar
sálir. Það er einmitt mildin hennar
ömmu sem við minnumst einna
best úr bernskunni. Amma var fé-
lagi í Kvenfélagi Stokkseyrar og
var í stjórn Sjálfstæðisfélagsins í
mörg ár.
Við þökkum af alhug starfsfólk-
inu á Ljósheimum fyrir hjúkrun
hinnar látnu.
Blessuð sé minning hinnar látnu.
Hildur og Viktoría.
_____________Brids_________________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridsdeild Húnvetninga
Miðvikudaginn 27. október var spil-
aður tvímenningur í tveimur 10 para
riðlum.
Úrslit A-riðill:
Alfreð Kristjánsson — Jón Viðar Jónmundsson 124
Ólafur Ingvarsson - Jason Vilhjálmsson 121
Björn Kjartansson - Eyjólfur Ólafsson 119
Urslit B-riðill:
Aðalfriður Pálsdóttir - Steinn Sveinsson 117
Aðalsteinn Helgason - Sveinn Sigurgeirsson 115
Þorsteinn Erlingsson - Sæbjörg Jónsdóttir 113
Miðvikudaginn 3. nóvember hefst 5
kvölda hraðsveitakeppni. Skráning hjá
Valdimar í síma 37757, sem einnig
aðstoðar við að koma saman sveitum.
Bridsfélag SÁÁ
26. október sl. mættu 17 pör og
spilaður var Mitchell-tvímenningur.
Efstu pör urðu: N/S
Rúnar Hauksson - Rósmundur Guðmundsson 226
GesturPálsson - MagnúsÞorsteinsson 212
Guðmundur Vestmann - Páll Bergsson 196
A/V
Páll Sigurðsson - Sigurður Pálsson 224
ÞorsteinnKarlsson-ÞóroddurRaparsson 216
Bjöm Bjömsson - Guðm. Sigurbjömsson 210
Spilað er á þriðjudagskvöldum kl.
19.45.
Bridsfélag Suðurnesja
Sveit Jóhannesar Sigurðssonar fékk
hæstu skor í hraðsveitakeppni sl.
mánudagskvöld, hlaut 625 stig. Sveit
Högna Oddssonar fékk 600 stig,
Gunnars Guðbjömssonar 561 stig og
sveit Garðars Garðarssonar fékk 555
stig.
Minningarmótinu um Guðmund
Ingólfsson verður fram haldið nk.
mánudagskvöld kl. 19.45 stundvíslega.
Bridsfélag Akureyrar
Nú er lokið 11 umferðum af 27 í
aðaltvímenningi félagsins. Staða efstu
para er nú þessi:
Pétur Guðjónsson - Anton Haraldsson 176
Gylfi Pálsson - Helgi Steinsson 125
Magnús Magnússon - Jakob Kristinsson 121
Ævar Ármannsson - Sverrir Þórisson 97
Ásgeir Stefánsson - Hermann Tómasson 61
Stefán Vilhjálmsson - Vilhjálmur G. Pálsson 58
Af Sunnuhlíðarbrids eru þær fréttir
að 14 pör sjriluðu síðastliðið sunnu-
dagskvöld. I fyrstu þremur sætum
urðu Ragnhildur Gunnarsdóttir og
Gissur Jónasson með 202 stig, Reynir
Helgason og Sigurbjörn Haraldsson
með 187 stig og Kristján Guðjónsson
og Jakob Kristinsson með 172 stig.
Paraklúbburinn
Nú er eitt kvöld eftir í hraðsveita-
keppninni. Hæsta skor síðasta spila- kvöldið:
Sv. Ljósbrár Baldursdóttur 603
Sv. Gróu Eiðsdóttur 587
Sv.EdduThorlacius 571
Sv. Borgarapóteks Heildarstaðan: 569
Sv. Gróu Eiðsdóttur 1.235
Sv. Ljósbrár Baldursdóttur 1.170
Sv. Erlu Siguijónsdóttur 1.165
Sv.EdduThorlacius 1.098
Sv. Sigrúnar Jónsdóttur 1.074
Sv. H.J.Ó.L. 1.064
Sv. Guðnýjar Guðjónsdóttur 1.159
Bridsfélag kvenna
Lokið er þremur kvöldum í baromet-
emum og er staða efstu para þessi:
DúaÓlafsdóttir-MariaÁsmundsd. 181
Sigriður Pálsdóttir - Ingibjörg Halldórsd. 172
Dóra Friðleifsdóttir - Sigriður Ottósdóttir 132
SigrúnPétursdóttir-GuðrúnJörgensen 131
Elín Jóhannsdóttir - Hertha Þorsteinsd. 131
Erla Sigvaldadóttir - Lovísa Jóhannsdóttir 108
Bridsfélag Sauðárkróks
Kristján Blöndal og Einar Svansson
sigmðu í tveggja kvölda Butler tví-
menningi sem nýlega er lokið. Þeir
hiutu 119 stig en Sigurður Sverrisson
og Jón Örn Bemdsen veittu þeim
harða keppni, hlutu 118 stig. í þriðja
sæti urðu Birgir Rafnsson og Sigur-
geir Angantýsson með 92 stig.
Bridsdeild Rangæinga
Nú er hausttvfmenningi (Sigurleifs-
bikar) lokið. Lokastaða:
Rafn Kristjánsson - Þorsteinn Kristjánsson 983
Auðunn R. Guðmundsson - Leifur Kristjánsson 957
BaldurGuðmundsson-JónHjaltason 882
Sigurleifur Guðjónsson - Páll Vilhjálmsson 857
Hæstu skor í sðasta spilakvöldi
keppninnar fengu:
Auðunn - Leifur 207
Rafn - Þorsteinn 189
SPARIÐ ALLT AÐ 50% OG
SETJIÐ SAMAN SJALF
'jörninn býður upp á gott og
fjölbreytt úrval efniviðar til
smíði á eldhús- og baðinnréttingum
og fataskápum.
Fagmenn okkar sníða efnið eftir
þínum þörfum.
Þú setur innréttinguna saman
sjálffur) og sparar þannig
peninga.
Gerðu verðsamanburð.
— Það borgar sig.
Eldhúsinnréttingar.
Fataskápar.
BJÖRNINN
BORGARTÚNI28 S. 6215 66
AMt trétyet^, óf<m#Áúsg