Morgunblaðið - 11.01.1994, Page 4

Morgunblaðið - 11.01.1994, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994 Fylffst með lækKiin á virðisauka- skattinum STARFSMENN á vegum eftirlits- skrifstofu ríkisskattstjóra eru þessa dagana að kanna í ýmsum fyrirtækjum á höfuðborgarsvæð- inu hvernig staðið hefur verið að lækkun virðisaukaskatts á matvæl- um sem gildi tók um áramótin. Að sögn Ragnars Gunnarssonar for- stöðumanns eftirlitsskrifstofunnar fer samskonar eftirlit einnig fram á ýmsum stöðum á landsbyggðinni. „Það er ekki komið að skiladegi á virðisaukaskatti, en við erum með menn úti í nokkrum fyrirtækjum núna sem eru að fylgjast með og kannski fyrst og fremst leiðbeina mönnum um atriði hvaða vörur falla undir 14% þrepið og einnig að leið- beina mönnum um tekjuskráningu og kynna þeim ákvæði sem giida þar um,“ sagði Ragnar. Hann sagði að þessu starfi yrði haldið áfram næstu daga og síðan yrði árangurinn af því metinn og gripið til ráðstafana eftir því sem þörf krefði. Sinueldar í Fossvogsdal Morgunblaöið/Ámi Sæberg SLÖKKVILIÐINU í Reykjavík bárust átta útköll vegna sinuelda á sunnu- dag og í gær. Ekki var um teljandi hættu að ræða að sögn aðalvarð- stjóra slökkviliðsins en talsverð óþægindi hlutust af einkum fyrir íbúa Kópavogsmegin í Fossvogsdal en reyk lagði yfír byggðina frá sinueldum sem kveiktir voru þar í þrígang í fyrrakvöld. Flest voru útköllin rakin til leiks bama með eldspýtur. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 12. JANUAR YFIRLIT: Um 500 km suður af Ingólfshöfða er víðáttumikil 960 mb djúp laagð sem þokast vestur en 1035 mb hæð eryfir norðaustur Grænlandi. SPA: A morgun verður ncrðaustan stormur og sfydaa norðan til a Vest- fjörðum, en austan og suðaustan stinningskaldi eða allhvasst og skúrir eða slydduél annars staðar, nema í innsveitum norðanlands styttir smám saman upp. Heldur hlýnandi veður. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR A MIÐVIKUDAG: Austanátt og 3ja til 6 stiga hiti víðast hvar á landinu en ef til vill hvöss norðaustanátt og snjókoma eða siydda á Vestfjörðum. Rigning með köflum á Austurlandi, skúrir sunnanlands en þurrt að mestu vestanlands. HORFUR Á FIMMTUDAG: Vindur snýst smám saman tíl noröaustanátt- ar og kólnar lítið eitt. Éljagangur á Vestfjörðum og á annesjum norðan- lands, slydda á Norðaustur- og Austurlandi en þurrt og sums staðar bjart veður sunnanlands. HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðaustanátt og frost um mest allt land, þó líklega frostlaust á Suðausturlandi. Dálítil ól á norðan- og austanverðu landinu en bjart veður sunnanlands og vestan. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22. 30. Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað / / / / / / / / Rigning * / * * / f * f Slydda * * * * * Snjókoma Alskýjað V $ V Skúrir Slydduél Él____ Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig V - Súld = Þoka dig.. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 f gær) Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirlíti í síma 91-631500 og í grænni linu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavlk hitl 1 3 veóur snjókoma skýjað Bergen 2 skýjað Helsinki 2 frostúði Kaupmannahöfn 3 þokumóða Narssarssuaq +6 heiðskfrt Nuuk +7 heiðskírt Osló +4 snjókoma Stokkhólmur +1 léttskýjað Þórshöfn 6 rigning Algarve 13 skúr Amsterdam 5 skýjað Barcelona 14 skýjað Berlfn 2 þoka Chicago +4 alskýjað Feneyjar vantar Frankfurt 5 alskýjað Glasgow B skýjað Hamborg 4 súld London 8 skýjað LosAngeles a heiðskírt Löxemborg 2 skýjað Madríd 6 skýjað Malaga vantar Mallorca 14 léttskýjað Montreal * +24 heiðskfrt New York +8 heiðskirt Ortando 12 skýjað París vantar Madelra 17 léttskýjað Róm 14 skýjað Vín S þoka Washington +7 léttskýjað Winnipeg +14 snjókoma ÍDAGkl. 12.00 Heimiid: Veðurstofa íslands (Byggt á veðurspá ki. 16.30 í gær) Ruddust inn á heimili sýslufulltrua Eyðilögðu símtæki og skildu mannínn eftir í blóði sínu 47 ÁRA gamall fulltrúi sýslumannsins á Eskifirði liggur mikið slasaður á sjúkrahúsi í Reykjavík eftir að þrír menn um tvítugt réðust inn á heimili hans á laugardagsmorgun og spörkuðu í hann og börðu svo að flytja varð hann mevitundarlausan með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Eftir að mennirnir réðust inn á fulltrúann eyðilögðu þeir símtæki hans en eftir að árásarmennirnir voru farnir tókst manninum að finna sím- tæki sem hann átti í skáp í húsinu, tengja það og hringja í lögreglu áður en hann missti meðvitund vegna innvortis áverka. skrokk á manninum og er talið að einn þeirra hafí haft sig sýnu mest í frammi með höggum og spörkum. Sími mannsins var eyðilagður en aðrar teljandi skemmdir ekki unnar í húsinu, að sögn Rannsóknarlög- reglu ríkisins en fjórir menn þaðan fóru austur um helgina til þess að rannsaka málið. Úr lífshættu Eftir að árásarmennimir voru á bak og burt tókst svo fulltrúanum að ná í og tengja símtæki sem hann átti á heimilinu og hringja í lögreglu áður en hann féll í öngvit. Þegar að var komið var strax farið með mann- inn til læknis á Egilsstöðum og það- an var flogið með hann í sjúkrahús í Reykjavík þar sem hann gekkst undir bráða aðgerð vegna lífshættu- legra innvortis áverka. í gær var maðurinn kominn á almenna deild og talinn úr bráðri lífshættu. Kardínálinn í New York til Islands EINN AF æðstu yfirmönnum kaþólsku kirkjunnar í Bandaríkjun- um, O’Connor kardínáli í New York, kemur í vináttuheimsókn hingað til lands þann 2G. janúar. Hér á landi messar hann tvisv- ar og heldur tvo fyrirlestra að sögn séra Georges, prests ka- þólska safnaðarins í Reykjavík. Það var 0’Connor kardínáli sem vígði Alfred Jolson til starfa sem biskup kaþólskra á Islandi árið 1988. Séra George segir að síðan hafi verið mikið samband á milli biskupsins og kardínálans, sem er einn þekktasti kardínáli Bandaríkj- anna. Messar tvisvar Kardínálar eru æðstu embættis- menn kaþólsku kirkjunnar, fyrir utan páfa, og sjá þeir um að velja hann úr sínum röðum þegar svo ber undir. O’Connor kardínáli messar í Landakotskirkju miðvikudaginn 26. janúar kl' 18. og aftur fímmtu- daginn 28.janúar, en séra George segir að enn hafí ekki verið ákveð- ið hvort messað skuli í Landakots- kirkju eða í Hafnarfírði. Einnig mun kardínálinn halda fyrirlestur í safnaðarheimili kaþólskra og fyr- ir guðfræðinema í Háskóla ís- lands. Tímasetningar eru enn óá- kveðnar. O’Connor kardínáli fer af landi brott að morgni 28. janúar. Árásarmennirnir þrír voru hand- teknir á Eskifírði á laugardaginn og voru þeir úrskurðaðir í gæsluvarð- hald, tveir til 12. janúar en einn til 21. febrúar næstkomandi. Þeir eru í haldi á Eskifírði og þar hefur verið unnið að rannsókn málsins af lög- reglu staðarins og fjórum rannsókn- arlögreglumönnum frá RLR. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er talið að tilefni árásar- innar hafí verið orðahnippingar mannsins og piltanna þriggja á veit- ingahúsi í bænum á föstudagskvöldið. Snemma laugardagsmorguns komu piltarnir þrír, sem allir eru um tvítugt, að húsi á Eskifírði þar sem fulltrúinn býr einn og ruddust inn. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins lá ekki fyrir viðurkenning þeirra á því að hafa komið á staðinn í því skyni að ráðast á fulltrúann. Eftir að þeir höfðu ruðst inn í húsið fóru piltarnir hins vegar að ganga í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.