Morgunblaðið - 11.01.1994, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANUAR 1994
9
Útsala - 40% afsláttur
Úrval frá stærð 34
TESS
IM t
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
S. 622230.
Opiðvirka daga
kl.9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS 30. OG 31. JANÚAR
Maður úr iðnaðarstétt í
4. sæti:
Hilmar Guðlaugsson
múrari
Skrifstofa stuðningsmanna er í Listhús-
inu við Engjateig, austurenda.
Opiðalla daga kl. 13 til 21.
Kaffi á könnunni.
Símar: 68 42 86 - 68 42 87 - 68 42 88
Lokad í dag
Útsalan hefst á morgun
Polarn&Pyret
KRINGLUNNI 8-12.
UMBOOS' QG HEttÐVEBSttJN
SÍMI 91-24020 FAX 91-623145
MOULINEX
gufustraujárn með
krómuðum botni, skila
sléttum og snyrtilegum
fatnaði.
MOULINEX gufustraujárn
fyrir þá vandlátu.
Faast í næstu
ranSkjaverslun
í verki
Breytingaskeið Tímans
Alþýðublaðið fjallar síðastliðinn föstu-
dag um mörg og tíð breytingaskeið dag-
blaðsins Tímans: „Hér á árum áður með-
an SÍS var SÍS og Framsóknarflokkurinn
drottnaði til sjávar og sveita í lokuðu
samfélagi samtryggingarinnar, var
Tíminn kátt og feitt tíðindablað fyrir
bændur og framsóknarmenn í bæjum...",
stendur þar.
NT-ævintýrið
Alþýðublaðið kemst
svo að orði síðastliðinn
föstudag, þegar það rek-
ur sögu dagblaðsins
Timans:
„Tíminn leið. Ungir og
kappsfullir menn komu
til sögunnar, nýkomnir
frá námi og höfðu lesið
þýzk stórblöð. Tíminn
var látinn víkja fyrir NT.
Hið nýja stórblað fram-
sóknarmanna var að
sjálfsögu frjálst og óháð
og allt sem hét félags-
hyggja, samvinnustefna
eða framsóknarvist
bannað í blaðinu.
NT fór á hausinn á
nokkrum mánuðum.
Framsóknarflokkur-
inn fór hér um bil á haus-
inn eftir NT-tilraunina
sem margir kölluðu
TNT-tilraunina. Hefði
það ekki verið fyrir vel-
vilja bankaráðs Lands-
bankans hefði Fram-
sóknarflokkurinn farið á
hausinn. Flokkurinn
seldi allar sinar eignir og
stóð samt uppi með botn-
lausar skuldir."
Gjörgæzlu-
deildin
„Nýtt endureisnar-
timabil hófst.
Tíminn læknar nefni-
lega öll sár. Sérstaklega
ef hami er gefinn út með
hagnaði. Framsóknar-
flokkurinn fékk aftur
tögl og hagldir í blaðinu.
SIS mætti aftur til leiks,
reyndar öllu limlestara
en í gamla daga, enda
landið farið að opnast,
sérstaklega eftir að Jón
Baldvin og vondu
kratarnir komust í ríkis-
sljórn. Samt var eim að
finna eina og eina drátt-
arvélaauglýsingu á
stangli.
Tíminn silaðist áfram.
En einhverra hluta
vegna fékk þjóðin ekkert
að frétta af stöðu mála í
Landsbankanum. Gjör-
gæzludeild ríkisbankans
hjúkraði þar SÍS sem
Tímanum dag og nótt.
Á sama tima jókst veg-
ur DV dag og nótt. Blað-
ið skrifaði daglega niður-
rifsleiðara um íslenzkan
landbúnað, framsóknar-
vist Islendinga og hæll-
ærislega rikisútgáfu
flokksblaða. Mest var
Tíminn skammaður.“
Mótvægið og
tilheyrandi
„Að lokum sveið Tím-
anum svo undan skömm-
um DV og annarra fjöl-
miðla að hann ákvað að
nú væri tími til kominn
að blaðið yrði aftur
markaðsvara: Fijálst og
óháð dagblað.
Og aftur vildi svo
heppilega til að ungir
menn unnu á blaðinu,
nýkomnir frá útlöndum
og höfðu lesið erlend'
dagblöð. Allir þekkja
framhaldið.
Mótvægi hf. er nú tek-
ið til gjaldþrotaskipta.
Nýju ungu mennimir,
sem höfðu dvalið í út-
iöndum eru sennilega
komnir þangað aftur.
Framsóknarflokkur-
inn er enn og aftur kom-
inn í björgunargallann
og mættur með bruna-
slöngumar sem erfitt er
að tengja við Landsbank-
ann núorðið..."
„Tímaþjófar“
„En hveijir em komn-
ir-til bjargar?
Jú, engir aðrir en erki-
íjendumir, eigendur DV.
Tvístirnið Hörður og
Sveinn keyptu Tímann
með húð og hári, nema
hvað Framsóknarflokk-
urinn má ráða ritsljóra
og ritsljórn og öliu sem
stendur í Tímanum.
Þetta er talinn snjall-
asti viðskiptasamningur
sem Steingrímur Her-
mannsson hefur nokkurn
tima gert, og hefur liann
þó gert marga snjaUa,
eins og þegar hann fékk
hóp manna til að leggja
svimandi fjárhæðir í Mót-
vægi sáluga.
Hörður og Sveinn fara
hins vegai- á spjöld sög-
unnar sem hinir einu og
sönnu tímaþjófar.
Fijáls fjölmiðlun gefur
þvi út árdegis- og síðdeg-
isblað. Árdegisblaðið er
ríkisstyrkt flokksmál-
gagn sem berst fyrir lok-
un landsins og peningum
skattgreiðenda í botn-
lausa sjóði. Síðdegisblað-
ið berst hins vegar gegn
ríkisstyrktum flokksmál-
gögnum, gegn sjóðakerfi
og stendur vörð um
skattgreiðendur..."
Af einhveijum ástæð-
um fjallar Alþýðublaðið
ekki um þaim kapítula í
þessari sögu, þegar sömu
menn og nú standa fyrir
útgáfu Tímans með sér-
stökum samningi við for-
ystumenn Framsóknar-
flokksins, stóðu að út-
gáfu Alþýðublaðsins með
sérstökum samningi við
forráðamenn Alþýðu-
flokksins. Hvers vegna
er þess ekki getið í ofan-
greindum leiðara?!
Nýtt útbob spariskírteina
ríkissjóbs fer fram
mibvikudaginn 12. janúar
Á morgun kl. 14:00 fer fram nýtt
útboð á spariskírteinum ríkissjóðs.
Um er að ræða Jjefðbundin,
verðtryggð spariskírteini í eftirfarandi
flokkum:
Þessir flokkar eru skráðir á Verðbréfa-
þingi íslands og er Seðlabanki íslands
viðskiptavaki þeirra.
Spariskírteinin verða seld með tilboðs-
fyrirkomulagi. Löggiltum verðbréfa-
fyrirtækjum, verðbréfamiðlumm,
bönkum og sparisjóðum gefst einum
kostur á að gera tilboð í spariskírteinin
samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu.
Lágmarkstilboð er kr. 5.000.000 að
nafnverði.
Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í
spariskírteinin em hvattir til að hafa
samband við framangreinda aðila,
sem munu annast tilboðsgerð fyrir
þá og veita nánari upplýsingar.
Öll tilboð í spariskírteinin þurfa að
hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir
kl. 14:00 á morgun, miðvikudaginn
12. janúar. Tilboðsgögn og allar
nánari upplýsingar eru veittar hjá
Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6,
í síma 62 60 40.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sírai 91- 62 60 40.
GOTT FÓLK / SÍA