Morgunblaðið - 11.01.1994, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994
13
Gunnar B. Dungal, Guðrún Einarsdóttir og Halldór Ásgeirsson.
Styrkir veittir úr
Listasjóði Pennans
MENNING/LISTIR
Myndlist
Sýning- á verkum
Stanley Brouwn
Opnuð hefur verið sýning á verkum
Stanley Brouwn í sýningarsalnum Ann-
arri hæð á Laugavegi 37. Stanley Bro-
ywn fæddist í Surinam árið 1935 en
flutti snemma til Hollands. Verk hans
hafa verið sýnd um alla Evrópu og cr
hann nú prófessor við listaakademíu
Hamborgar.
I fréttatilkynningu segir m.a.: „Verk
hans fjalla um göngur, vegalengdir og
mælieiningar. Hann hefur unnið sam-
fellt, afar kerfisbundið og á vísindalegan
hátt að verkum sínum frá því um 1960,
mörgum árum áður en byijað var að
tala um hugmyndalist. Hann er talinn
brautryðjandi þeirrar tegundar listar. Á
yfirborðinu virðast verkin afar einföld
og rökrétt en að baki liggur ákaflega
óvenjulegt vinnuferli og þegar grannt
er skoðað eru niðurstöðurnar oft óvenju-
legar og ekki einungis afurðir einfaldrar
rökhugsunar."
Sýningin er opin á miðvikudögum frá
kl. 2-6 út febrúar.
Ljósmyndasýning á
veitingastaðnum 22
Nú stendur yfir ljósmyndasýning á
veitingastaðnum 22. Þar sýnir ljósmynd-
arinn Sigfús Pétursson, sem hefur um
árabil búið í Gautaborg, 12 myndir.
Þetta er hluti af stærri sýningu sem
var styrkt af íslendingafélögunum f
Svíþjóð og sambandi íslendingafélag-
anna á Norðurlöndum. Sýningin var
fyrst sett upp á „Bok och Bibliotekmáss-
an“ í Gautaborg haustið 1990, en þar
fékk Island sérstaka kynningu. Mynd-
irnar eru nú settar upp í 7. skipti en
Eitt verka Sigfúsar Péturssonar,
á ljósmyndasýningu á veitinga-
staðnum 22.
hafa áður verið sýndar á öllum Norður-
löndunum.
Sýningin mun standa yfir í mánuð.
STYRKIR úr Listasjóði Penn-
ans voru veittir í annað sinn,
fimmtudaginn 6. janúar sl. Að
þessu sinni hlaut Haildór Ás-
geirsson myndlistarmaður
300 þúsund króna styrk, auk
þess fékk Guðrún Einarsdóttir
myndlistarmaður 200 þúsund
króna vöruúttekt í Pennanum
í skiptum- fyrir listaverk.
Sjóðurinn ver stofnaður í til-
efni 60 ára starfsafmælis
Pennans árið 1992 til minning-
ar um hjónin Baldvin Pálsson
Dungal og Margréti Dungal.
Halldór Ásgeirsson stundaði
myndlistarnám í París árin 1977-
1980 og 1983-1986. Hann hefur
haldið á annan tug einkasýninga
hér á landi og erlendis og tekið
þátt í fjölda samsýninga. Verk
hans eru einkum skúlptúr.
Guðrún Einarsdóttir er listmál-
ari. Hún stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1984-1989. Guðrún hefur haldið
átta einkasýningar hér á landi og
tekið þátt í jafn mörgum samsýn-
ingum.
Stjóm Listasjóðs Pennans skipa
Gunnar B. Dungal, Hringur Jó-
hannesson listmálari, fulltrúi SÍM,
og Bjarni Daníelsson, skólastjóri
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands.
una. Brynhildur Olgeirsdóttir leik-
ur Jackie, frænku þorparans, og
Þorsteinn Ólafsson John lækni,
ráðsettan piparsvein sem ekki er
dauður úr öllum æðum.
Þýðing Ásgerðar Ingimarsdótt-
ur er á vönduðu máli en of form-
legu fyrir sviðsverk af þessu tagi.
Eðlilegra talmál hefði verið bæði
trúverðugra og leikendum þjálla í
munni.
Leikfélagið Snúður og Snælda
hefur verið starfrækt síðan 1990.
Það er fyrsta leikfélag eldri borg-
ara hér á landi, en slík leikfélög
hafa starfað með miklum blóma á
hinum Norðurlöndunum í rúman
áratug. Meðal verka sem leikfélag-
ið hefur flutt er einþáttungurinn
„Fugl í búri“ eftir Iðunni og Krist-
ínu Steinsdætur og var það fmm-
uppfærsla. Leikfélagið hefur
gengist fyrir fjölda námskeiða í
upplestri, framsögn og leikrænni
tjáningu og þjónar því þýðingar-
miklu hlutverki meðal eldri borg-
ara.
Margt býr í þokunni er ánægju-
leg tilbreyting frá sjónvarpsgláp-
inu, ánægjuleg sem sýning og
einnig vegna þess að sú lífsfylling
sem listin veitir skín í gegn. Listin
sameinar fólk en stíar því ekki í
sundur.
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, sótti frumsýningu. Það
yljaði mörgum um hjartarætur að
sjá að hvað sem einhverri opin-
berri stefnu eða byggingarverk-
tökum líður er hún forseti ailra
þegna þessa lands.
Hæsta ársávöxtun
á innlánsreikmngi
Hæsta ávöxtun á innlánsreikningum hjá bönkum og
sparisjóðum árið 1993 kom í hlut þeirra sem skipta
við sparisjóðina. 9,95% ársávöxtun sem jafngildir
6,76% raunávöxtun!
Enn einu sinni hefur reynslan sýnt að þeir.sem vilja
ávaxta sparifé á innlánsreikningum geta borið mest úr
býtum hjá sparisjóðunum. Hafðu þetta í huga þegar þú
leggur drög að ánægjulegri framtíð.
*
SPARISJÓÐIRMR
fyrir þig og þtna