Morgunblaðið - 11.01.1994, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANUAR 1994
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Vernharð bestur hjá KA
VERNHARÐ Þorleifsson júdómaður var kjörinn íþróttamaður KA,
Sigmundur Þórisson formaðtir félagsins lýsti kjörinu og afhenti
honum bikar af því tilefni.
• • '
Okumaður bifreiðar lenti í ískaldri Laxá í Aðaldal
Koinst út um hliðarrúðu
og var dreginn í land
Björk, Mývatnssveit.
ÖKUMAÐUR bifreiðar lenti í
ískaldri Laxá í Aðaldal
skammt frá Helluvaði í síð-
ustu viku. Samferðamanni
hans á öðrum bíl tókst að
bjarga honum á þurrt land,
en ekki mátti miklu muna að
verr færi.
Atvikið varð er tveir menn
voru að koma austan af landi og
voru á tveimur bílum. Ekki voru
neinir farþegar með, aðeins öku-
menn. Þegar ökumaður fremri
bílsins var kominn skammt fram-
hjá Helluvaði leit hann til baka
og varð ekki var við ferðafélaga
sinn. Sneri hann þá við og á
móts við Helluvað sá hann bílinn
í Laxá, spölkorn frá landi.
Ökumaðurinn hafði misst vald
á honum við ristarhlið, sem þarna
er á veginum, með fyrrgreindum
afleiðingum. Stjórnandi bifreið-
arinnar komst út með því að
skrúfa niður hliðarrúðu. Vatns-
dýpið þarna í Laxá tók upp á
miðja framrúðu bílsins og
straumur mikiil og áin ísköld.
Dreginn til lands
Félaga hans tókst að kasta til
hans kaðli þar sem hann hélt sér
í bílinn í ánni og draga hann til
lands. Síðan var fenginn krana-
bíll og mannskapur til að ná bif-
reiðinni úr ánni. Urðu menn að
fara út í ána í vöðlum með línu
bundna utan um. sig til að koma
böndum á bílinn. Það tókst um
síðir.
Þarna var mikið frost þennan
dag og fraus allt sem frosið gat.
Hætt er við að þarna hefði getað
orðið mannskaði ef ökumaður
bifreiðarinnar sem í Laxá fór
hefði verið einn á ferð enda lítt
búinn til að lenda í sliku volki.
Krislján
Vernharð
íþrótta-
maður KA
VERNHARÐ Þorleifsson júdómað-
ur var kjörinn íþróttamaður Knatt-
spymufélags Akureyrar, KA, við
athöfn í KA-húsinu sl. laugardag.
Vemharð stóð sig afar vel í íþrótt
sinni á liðnu ári og þykir með bestu
júdómönnum landsins. Hann er í 30.
sæti á afrekslista júdómanna í Evr-
ópu, varð Islandsmeistari í flokki 21.
árs og yngri. í 2. sæti á opna Skandin-
avíska og í 5. sæti bæði á opna aust-
urríska og opna skoskra mótinu.
í öðru sæti í kjörinu var Vilhelm
Þorsteinsson skíðamaður sem vann
margar frækilega sigra á síðasta ári
og í þriðja sæti var Alfreð Gíslason
handknattleiksmaður og þjálfari
fyrstu deildarliðs KA í handknattleik.
-----»--»-4---
Vélsleða-
og útilífs-
sýning
ÁRLEG vélsleða- og útilífssýning
Landssambands íslenskra velsleða-
manna verður haldin í Iþrótta-
skemmunni á Akureyri um næstu
helgi, 15. og 16. janúar, og verður
hún stærri og glæsilegri en oftast
áður, þannig að þeir sem áhuga
hafa á vélsleðum, fjallamennsku
og almennri útivist geta á einum
stað fundið allan útbúnað.
Stærstu aðilar sýningarinnar eru
vélsleðaumboðin fjögur sem sýna
sleða frá Arctic Cat, Polaris, Ski-doo
og Yamaha, en að auki sýna um 20
aðilar ýmsan útivistarbúnað og verður
það stærri hluti sýningarinnar en oft-
ast áður. Þar má nefna auka- og
varahluti í vélsleða ásamt öryggisbún-
aði af ýmsu tagi, leiðsögu- og stað-
setningartæki, hjálma og fatnað og
fleira. (Fréttatilkynning)
Beiðni um rannsókn á hagsmunatengslum fyrirtækis við íslandsbanka og Húsnæðisnefnd
Olga vegna kaupa á fimm fé-
lagslegum íbúðum í Drekagili
Þriggja herbergja íbúð breytt í fjögurra herbergja íbúð
KAUP Húsnæðisnefndar Akureyrarbæjar á fimm félagslegum íbúðum
í Drekagili 28 af byggingafyrirtækinu A. Finnsson nokkru fyrir jól
hafa leitt til þess að Vilhjálmur Ingi Árnason formaður Neytendafé-
lags Akureyrar og nágrennis hefur formlega farið þess á leit við fjór-
ar opinberar stofnanir að kannað verði ofan í kjölin hvort um óeðlileg
hagsmunatengsl sé að ræða milli íslandsbanka hf. og byggingafyrirtæk-
isins A. Finnssonar hf. annars vegar og Húsnæðisnefndar Akureyrar
auk annarra aðila hins vegar. „Þessi hagsmunatengsl virðast miða að
því að stýra opinberum fjármunum í „rétta“ vasa,“ segir í bréfi for-
mannsins þar sem óskað er eftir rannsókn á málinu.
Bréf Vilhjálms Inga Árnasonar er hafi forstöðumaður Húsnæðisskrif-
sent til félagsmálaráðuneytis, við-
skiptaráðuneytis, Húsnæðisskrif-
stofu ríkisins, Bankaeftirlits_ Seðla-
bankans og bankastjómar íslands-
banka.
„Ég hef verið að vekja athygli á
þessu frá því síðasta sumar, en nú
þegar fyrir liggur álit þriggja fagað-
ila þar sem berlega kemur í ljós að
pottur er brotinn ákvað ég að biðja
formlega um að þetta mál verði
kannað ofan í kjölinn," sagði Vil-
hjálmur Ingi og vísaði til greina sem
Björn Jósef Amviðarson bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokks, Einar S.
Bjamason húsnæðisnefndarmaður
og Pétur Jósefsson fasteignasali
skrifuðu og birtust í dagblaðinu Degi
um og eftir áramót.
Ekki borið undir bæjarráð
í grein Bjöms Jósefs kemur fram
að Húsnæðisnefnd hafi ákveðið að
ganga til samninga við A. Finnsson
um kaup á fimm íbúðum í Drekagili
og óumdeilanlega em slíkar ákvarð-
anir bomar undir bæjarráð, en það
hafi ekki verið gert í umræddu til-
felli heldur sent beintti! bæjarstjórn-
ar til afgreiðslu. Við athugun á þessu
máli hafi m.a. komið í ljós að á þeim
fundi húsnæðisnefndar þar sem lagt
var til að ráðast í umrædd kaup
Hársnyrtifólk
Til sölu eru nýleg hársnyrtitæki, m.a. Olymp
hársnyrtistólar og vaskastóll. Wellonda Clima-
son og rúlluborð. Einnig góður Ijósabúnaður.
Upplýsingar gefur Eyjólfur í síma 96-11210.
stofunnar á Akureyri lagt fram
greinargerð þar sem fram kom að
varhugavert væri að kaupa stórar
og dýrar íbúðir; margt benti til þess
að mjög erfítt gæti reynst að fínna
að þeim kaupendur, en íbúðimar sem
áformað var að kaupa af A. Finns-
syni vom einmitt í þeim flokki. Þrátt
fyrir það hafí allir nefndarmenn
nema Einar S. Bjarnason mælt með
kaupunum.
Teikningum íbúðanna var breytt
í kjölfarið þannig að þriggja her-
bergja íbúð varð að íjögurra her-
bergja íbúð og kemur fram í grein
Bjöms Jósefs að áhöld em um að
íbúðimar standist byggingareglu-
gerð þó svo að teikningamar hafi
verið samþykktar í bygginganefnd.
Við afgreiðslu bæjarstjómar á
íbúðakaupunum lagði Bjöm Jósef
fram tillögu um að vísa málinu til
bæjarráðs til frekari umfjöllunar, en
hún var felld. Hann telur að gera
megi ráð fyrir að erfítt verði að selja
íbúðimar og geti kaupin því bakað
bænum vemlegan kostnað. Björn
Jósef segir athyglisvert að einungis
fímm bæjarfulltrúar hafi tekið þátt
í atkvæðagreiðslu í bæjarsljórn, en
hún fór þannig að hann greiddi at-
kvæði á móti tillögu Húsnæðisnefnd-
ar, tveir framsóknarmenn, einn frá
Sjálfstæðisflokki og einn fulltrúi AI-
þýðubandalags greiddu tillögunni
atkvæði, en sex bæjarfulltrúar sátu
hjá.
Formaður Neytendafélags Akur-
eyrar og nágrennis segir þetta bera
keim af „ítölsku stjórnmálasiðferði",
búið hafí verið að taka pólitíska
ákvörðun um að Húsnæðisnefndin
yrði látin kaupa íbúðirnar í Drekag-
ili til að bjarga byggingafyrirtækinu
úr fjárhagsörðugleikum og að al-
menningur á Akureyri væri látinn
greiða fyrir þá björgun.
Teikning A sýnir rúmlega 86 fermetra þriggja herbergja íbúð.
Teikning B sýnir hvernig sömu íbúð hefur verið breytt í fjögurra
herbergja íbúð. „Það þarf ekki sérfræðing til að sjá að slík breyting
gerir íbúðina gersamlega óhæfa til íbúðar," segir Pétur m.a. í grein