Morgunblaðið - 11.01.1994, Page 27
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANUAR 1994
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANUAR 1994
27
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. ( lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Framtíð NATO
T leiðtogafundar Atlantshafs-
| j bandalagsríkjanna, sem hófst í
Brussel í gær, bíður erfitt verkefni,
að sumra mati eitthvert hið erfiðasta
sem bandalagið hefur staðið frammi
fyrir frá upphafi. Á dagskrá fundar-
ins er að skilgreina framtíðarhlutverk
NATO og ákveða hvernig bregðast
skuli við aðildarumsóknum fyrrver-
andi aðildarríkja Varsjárbandalags-
ins. Hefur verið ákveðið að bjóða leið-
togum ríkja í Mið- og Austur-Evrópu
þátttöku_ í svokallaðri „Friðarsam-
vinnu“. í henni fælist náið samstarf
á sviði varnarmála án þess þó að til
jafn bindandi skuldbindinga kæmi og
á vettvangi Atlantshafsbandalagsins.
NATO hefur átt í erfiðleikum með
að finna sér nýjan starfsgrundvöll í
breyttu umhverfi. Á tímabili voru
uppi hugmyndir um að bandalagið
hefði frumkvæði að því að aðstoða
Austur-Evrópuríkin við að koma á
markaðshagkerfi en þær voru fljót-
lega gefnar upp á bátinn enda slíkt
ekki á sérsviði bandalagsins. Þá veltu
menn einnig fyrir sér hvort hægt
væri að gera NATO að eins konar
undirverktaka Sameinuðu þjóðanna
og RÖSE varðandi friðargæsluverk-
efni í Evrópu. Slíkt gæti hins- vegar
aldrei orðið tilgangur eða meginverk-
efni bandalagsins.
Sumir telja NATO vera óþarfa
tímaskekkju eftir að kalda stríðinu
lauk. Aðrir benda á að bandalagið
hafí tryggt frið í Evrópu í fjörutíu
ár og á þeim óvissutímum sem nú
ríki geti verið hættulegt að fóma
þeirri stofnun, sem hvað helst stuðli
að stöðugleika í álfunni. Nær væri
að stækka bandalagið og þar með
það öryggi sem aðild að því fylgir í
austurátt. Það eru ekki síst stjórn-
málamenn úr austurhluta Evrópu,
sem leggja mikla áherslu á mikilvægi
þess að aðildarríkjum NATO fjölgi.
Þeir telja óljósar yfírlýsingar lítils
virði og benda máli sínu til stuðnings
á hve lítið Vesturlönd hafa megnað
að gera til að binda enda á átökin í
fyrrverandi Júgóslavíu.
Með hinni nýju Friðarsamvinnu
stæði ríkjunum í austurhluta Evrópu
til boða að eiga viðræður við NATO
ef þau telja öryggi sínu ógnað. Sam-
kvæmt fimmtu grein stofnsáttmála
NATO telst hins vegar árás á eitt
aðildarríki árás á öll ríki Atlantshafs-
bandalagsins.
Hins vegar má færa sterk rök fyr-
ir því að það öryggi sem felist í
NATO-aðild beri ekki einungis að
skýra með þessari fimmtu grein
Washingtonsáttmálans. í raun eru
NATO-ríki ekki skuldbundin til að
grípa til hernaðaraðgerða þó að ráð-
ist sé á eitthvert annað aðildarríki.
Öryggið hefur falist í hinni sam-
ræmdu herstjórn, sameiginlegum
mannvirkjum, veru bandarískra her-
manna og til skamms tíma kjarnorku-
vopna í Evrópu og staðsetningu her-
manna frá mörgum aðildarríkjunurr
við austurlandamæri bandalagsins.
Talsmenn þessa sjónarmiðs spyijs
hvort í raun sé vilji fyrir því að færs
austurlandamæri NATO mörg hund-
ruð kílómetra í austur? Á til dæmÍE
að setja upp bandarískar herstöðvai
í Póllandi?
Ef ákveðið verður í framtíðinni að
fjölga aðildarríkjum Atlantshafs-
bandalagsins felst vandinn ekki síst
í því að gera upp á milli þeirra þjóða,
sem lýst hafa yfir áhuga á aðild eða
jafnvel lagt inn aðildarumsókn. Nær-
tækast væri að veita Pólverjum,
Tékkum, Ungvetjum og hugsanlega
Sióvökum inngöngu í bandalagið til
að byija með. Þessi ríki eru lengst á
veg komin með að taka upp vestræna
stjórnarhætti og markaðshagkerfi.
En hvað um önnur fyrrverandi Var-
sjárbandalagsríki? Hvað með Rúmen-
iu og Búlgaríu? Hvað með gömul
sovétlýðveldi á borð við Eystrasalts-
ríkin, Úkraínu og Asíulýðveldin?
Hvað með sjálft Rússland? Á að gera
upp á milli þessara ríkja og þá með
hvaða rökum?
Tímasetningin skiptir einnig veru-
legu máli. Líklega hefði það gengið
tiltölulega átakalaust fyrir sig að
veita Pólveijum, Tékkum og Ungveij-
um aðild að NATO fyrir um ári. Síð-
ast í ágústmánuði lýsti Borís Jeltsín
Rússlandsforseti því yfir að Rússar
myndu ekki standa í vegi fyrir aðild
þessara ríkja. Síðan hefur margt
breyst á skömmum tíma. Mikið fylgi
þjóðernisöfgamannsins Vladímírs
Zhírínovskíjs í rússnesku þingkosn-
ingunum hefur gjörbreytt afstöðu
rússneskra stjórnvalda. Jeltsín og
stuðningsmenn hans krefjast þess nú
af Vesturlöndum að þau grípi ekki
til aðgerða sem myndu enn frekar
efla stuðning við Zhírínovskíj og hans
líka í Rússlandi. Um helgina ritaði
þannig Andrej Kozyrev, utanríkisráð-
herra Rússlands, grein í þýskt dag-
blað þar sem hann spáði því að það
myndi hafa „hroðalegar afleiðingar"
í för með sér ef Austur-Evrópuríkin
gengju í NATO. Þá væri verið að
veita rússneskum öfgamönnum vopn
í hendurnar til að endurreisa rúss-
neska heimsveldið í því skyni að veij-
ast „ógninni úr vestri“.
Það má líka spyija hversu nauð-
synlegt það sé í raun fyrir Austur-
Evrópuríkin að ganga í NATO. Mörg
þeirra stefna einnig að því að gerast
aðilar að Evrópubandalaginu en það
hefur, eftir gildistöku Maastricht-
sáttmálans á síðasta ári, það að
markmiði að taka upp sameiginlega
stefnu í öryggismálum. Skuldbind-
ingar aðildarríkja Vestur-Evrópu-
sambandsins, hins hernaðarlega arms
EB, til að veija önnur aðildarríki eru
líka nokkuð víðjækari en sambærileg-
ar skuldbindingar í Washingtonsátt-
málanum. Aðild að EB ætti því form-
lega séð að tryggja öryggi viðkom;
andi ríkis á tilhlýðilegan hátt. Á
móti má spyija hvort einmitt það
kalli ekki á samhliða NATO-aðild.
Menn hafa bent á hve flókin staða
gætið komið upp, ekki síst með tilvís-
un til sögunnar, ef NATO-ríki á borð
við Þýskaland myndi skuldbinda sig
til að veija til dæmis Pólveija á
grundvelli VES.
Atlantshafsbandalagið er á marg-
an hátt homsteinn vestrænnar sam-
vinnu. Það er þó ljóst að bandalagið
hlýtur að taka verulegum breytingum
á næstu árum vegna breyttrar heims-
myndar. Ef NATO á að tryggja ör-
yggi núverandi aðildarríkja í framtíð-
inni hlýtur það að leiða til þess að
bandalagið reyni að koma í veg fyrir
átök í austurhluta álfunnar er gætu
ógnað ríkjum í vestri. Til að það geti
gerst verður pð færa út starfsemi
bandalagsins á einn eða annan hátt
til austurs. Það er grundvallaratriði
í því sambandi að Rússar munu aldrei
getað fengið neitunarvald yfir nýjum
aðildarríkjum eða haft áhrif á stefnu
bandalagsríkjanna með hótunum.
Aftur á móti má ekki heldur ein-
angra Rússa í Evrópu. NATO verður
að eiga við þá stöðugt samráð og
samstarf til að treysta frið og stöðug-
leika í Evrópu. Hin nýja Friðarsam-
vinna er ekki fullkomin leið að þess-
um markmiðum. Hún virðist hins
vegar vera sú raunhæfasta miðað við
aðstæður í dag.
Fjölmenni sótti fund um lífrænan og vistvænan landbúnað hér á landi
Lítið vantar á
að lambakjötið
fái viðurkenn-
ingxi sem lífrænt
HAUKUR Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda,
segir að sérfróða aðila telja að íslensk sauðfjárrækt sé ná-
lægt því að flokkast sem lífræn (organic) og að flest bendi til
að lítið þurfi að gera til að afurðirnar hljóti viðurkenningu
sem slíkar. Kröfur eru mismunandi eftir löndum og segir
Haukur meðal annars koma til álita að breyta þurfi búskapar-
háttum varðandi bólusetningar, áburðargjöf og fóðrun, til að
uppfylla skilyrði lífrænnar ræktunar.
í þessu sambandi kemur einnig
til greina að seinka sauðburði svo
lömbin komist sem fyrst í úthaga,
eins þarf slátrun að fara fram um
leið og féð kemur af fjalli. „Okkur
sýnist að munurinn sé svo lítill frá
hefðbundnum búskaparháttum að
það ætti að vera auðvelt að mæta
þessum kröfum,“ sagði Haukur
Halldórsson í viðtali við blaðið.
„Magn aðskotaefna í kjöti og gróðri
hefur verið athugað undanfarin ár
í samvinnu við yfírdýralæknisemb-
ættið og niðurstöðumar verið okkur
mjög í hag.“ Vistvæn vara er fram-
leidd þannig að engin umhverfís-
spjöll hljótist af en við Iífræna fram-
leiðslu verður auk þess að fylgja
ströngum reglum, meðal annars um
áburðamotkun og lyfjagjöf.
Fjölsóttur fræðslufundur
Framleiðsla vistvænna og líf-
rænna matvæla var efni fræðslu-
fundar sem haldinn var á Hótel
Sögu síðastliðinn laugardag undir
yfirskriftinni Til móts við framtíð-
ina. Að fundinum stóð starfshópur
um markaðssetningu landbún-
aðarvara og sóttu fundinn rúmlega
160 manns, að sögn Baldvins
Jónssonar erindreka starfshóps-
ins. Meðal gesta voru forseti ís-
lands, frú Vigdís Finnbogadóttir,
Halldór Blöndal landbúnaðarráð-
herra, Össur Skarphéðinsson um-
Lífrænn landbúnaður
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FRÆÐSLUFUNDUR um framleiðslu vistvænna og lífrænna landbúnaðarafurða var haldinn á Hótel Sögu
síðastliðinn laugardag. Meðal gesta voru (f.v.) forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir, Halldór Blön-
dal landbúnaðarráðherra, Sveinbjörn Dagfinnsson ráðuneytisstjóri, Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri,
Brynjólfur Sandholt yfirdýralæknir, Hákon Sigurgrímsson framkvæmdastjóri, Haukur Halldórsson for-
maður Stéttarsambands bænda og Jón Helgason formaður Búnaðarfélags íslands.
hverfisráðherra og helstu forsvars-
menn landbúnaðarins. Fyrirlesari
var Carl Haest markaðsmaður.
Hann rakti þróun lífrænnar rækt-
unar og vistvæns landbúnaðar,
gerði grein fyrir markaðssetningu
afurða af þessu tagi og ræddi um
sérstöðu íslands og möguleika til
að skipleggja íslenska landbúnað-
arframleiðslu með tilliti til vist-
vænna og lífrænna sjónarmiða.
Fjölili fyrirspurna var borinn fram.
Haukur Halldórsson segir ís-
lenska bændur hafa mikinn áhuga
á að kanna möguleika á markaðs-
setningu íslenskra afurða sem vist-
vænna og lífrænna, ekki síst ef
raunin sé sú að þessir markaðir
gefi verulega betri verð en hingað
til hafa fengist.
Iðnlánasjóður selur
eignir Hrauns hf.
IÐNLÁNASJÓÐUR hefur selt í þrennu lagi eignir Rekstrarfélagsins
Hrauns hf., sem tók yfir rekstur Oss húseininga hf. í Garðabæ sl. vor.
Pípugerðin hf. keypti röradeild, BM Vallá hf. keypti helluverksmiðju
ásamt lager og vélar og tæki til einingaframleiðslu úr verksmiðju Hrauns
hf. hafa verið seld Björgun hf., BM Vallá hf. og Steypustöðinni hf. í
nafni óstofnaðs hlutafélags. Sömu aðilar hafa keypt eignir Iðnlánasjóðs
á Breiðhöfða 10 þar sem áður var Byggingariðjan. Steypusölu Hrauns
hf. hefur verið hætt frá og með deginum í gær. Óljóst er um framtíð
starfsmanna Hrauns hf. en þar hafa starfað 25 manns auk þess sem
átta steypubílar í eigu sjálfstæðra verktaka hafa verið í vinnu hjá fyrir-
tækinu. Formleg yfirtaká þessara fyrirtækja á starfseminni verður eigi
síðar en 31. janúar. I fréttatilkynningu segir að kaupendur leggi áherslu
á að staðið verði við allar þær viðskiptaskuldbindingar sem Hraun hf.
hafi gert.
Samanburður á vöxtum verðtryggðra og óverðtryggðra lána á 4. ársfjórðungi 1993
Raimávöxtun óverðtryggðra
lána 6 prósentustigum hærri
Bankar og sparisjóðir breyta ekki útlánsvöxtum í dag
ÚTLÁNSVEXTIR banka og sparisjóða breytast ekki á vaxta-
breytingardegi í dag, nema vextir viðskiptaskuldabréfa spari-
sjóðanna lækka um 1,90 prósentustig. Vextir óverðtryggðra
skuldabréfa eru um fjórum prósentustigum hærri en verð-
tryggðra skuldabréfa. Meðalvextir verðtryggðra skuldabréfa
eru 7,2-7,7%, en meðalvextir óverðtryggðra skuldabréfa eru
11,4-11,9%. Vextir skammtímalána eins og yfirdráttarlána og
á skipti- og raðgreiðslum greiðslukorta eru enn hærri eða frá
því að vera rúm 13% og yfir 16%. Lánskjaravísitala janúarmán-
aðar lækkaði frá desember, þannig að höfuðstóll verð-
tryggðra lána lækkaði milli mánaðanna. Munur á ávöxtun
verðtryggðra og óverðtryggðra lána á mælikvarða lánskjara-
vísitölu á síðasta ársfjórðungi nýliðins árs var rúm 6 prósent-
stig. Raunávöxtun verðtryggðra lána varð 8,3%, en aðgerðir
ríkisstjórnar í vaxtamálum tóku gildi um mánaðamót októb-
er/nóvember, á sama tíma og raunávöxtun óverðtryggðra
lána varð 14,4%.
Brynjólfur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbanka íslands,
sagði að útlánsvextir bankans
myndu ekki breytast í dag. Unnið
væri að því að fara yfir málið. Það
væri ástæða væri til að lækka vexti
á óverðtryggðum lánum, en hins
vegar væri ekki ljóst hve mikið. Þá
þyrfti einnig að athuga að vextir á
verðtryggðum Iánum í Landsbanka
Islands væru hálfu prósentustigi
lægri en þeir vextir í öðrum bönkum
og hefðu ekki lækkað að sama skapi
og í Landsbankanum. Þeir væru
7,2% að meðaltali samanborið við
7,7% hjá öðrum. Einnig þyrfti að
hyggja að því hvemig hagsmunir
sparifjáreigenda yrðu sem best
tryggðir þegar vextir væru orðnir
jafnlágir og raun bæri vitni.
Munurinn eykst
Vextir óverðtryggðra lána hafa
verið hægri en verðtryggðra lána
síðustu fjögur ár og hefur þessi
munur aukist verulega á síðustu
tveimur árum. Munurinn var í
kringum eitt prósentustig árin 1990
og 1991, en meira en tvöfaldaðist
á árinu 1992 og á nýliðnu ári og
var 2,4-2,5 prósentustig á mæli-
kvarða lánskjaravísitölu. Þetta kem-
ur fram í grein Ólafs K. Ólafsson-
ar, viðskiptafræðings, í Vísbendingu
sem er vikurit um viðskipti og efna-
hagsmál.
Raunávöxtun verðtryggðs láns
1992 var 9,3% en 11,8% á óverð-
tíyggðu láni. 1993 var raunávöxtun
verðtryggða lánsins 9,1% en óverð-
tryggða lánsins 11,5%. Miklar
sveiflur urðu á vöxtunum innan
ársins. Þannig urðu vextir óverð-
tryggðra skuldabréfalána lægstir
8,8% á þriðja ársfjórðungi að meðal-
tali en hækkuði í 14,4% á fjórða
ársfjórðungi. Á sama tíma lækkaði
raunávöxtun verðtryggðra lána
vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar úr
9,4% á þriðja ársfjórðungi að meðal-
tali í 8,3% á fjórða ársfjórðungi og
var því munur á ávöxtun verð-
tryggðra og óverðtryggðra lána þá
rúm sex prósentustig.
Raunávöxtun skuldabré banka og sparisjóða á síðasta ári w** m.v. lánskjaravísitölu fa 15 % 14
Óverðtryggð II \ skuldabréf II
Verötrygg skuldabré ) t -9
1. á rsfj. ’93 2 ársfj. 3. ársfj. 4. írsfj.
Pípugerðin hf. á Sævarhöfða, sem
hét áður Pípugerð Reykjavíkurborg-
ar, er í eigu borgarsjóðs og Aflvaka
Reykjavíkur hf. og var breytt í hluta-
félag í ársbyijun 1993. í kjölfar
kaupanna á röradeild Hrauns hf.
verður rekstur fyrirtækisins endur-
skoðaður með tilliti til aukinna um-
svifa og jafnframt hugað að útvíkkun
eignaraðildar að fyrirtækinu.
Pípugerð í Garðabæ í tvö ár
Valur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Pípugerðarinnar hf.,
segir röradeild Hrauns hf. afkasta
meiru en Pípugerðin hf. í framleiðslu
röra en vegna samdráttar á markaðn-
um sé óraunhæft að ætla að þar með
muni framleiðsla Pípugerðarinnar
rúmlega tvöfaldast. Það eigi eftir að
koma í ljós hve framleiðsluaukningin
verði mikil því áherslur verði misjafn-
ar í framleiðslunni. Valur segir Pípu-
gerðina hf. hafa samið um að vera
með starfsemi í Garðabæ í tvö ár og
hann segist reikna með að svo verði
þótt ekkert endanlegt hafi verið
ákveðið í því efni. „Við verðum með
framleiðslu þarna áfram og munum
ráða starfsfólk í því skyni. Ég ræddi
við starfsfólkið í gær og tíminn fram
að formlegri yfirtöku verður notaður
til þess að ákveða framhaldið.“ Valur
sagði ótímabært að tjá sig um hveij-
ir væru hugsanlegir aðilar að svokall-
aðri útvíkkaðri eignaraðild að Pípu-
gerðinni.
Fjórir fylgja helluframleiðslu
Víglundur Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri BM Vallár hf., segir
að hellugerð Hrauns hf. verði starf-
rækt í Garðabæ í nokkrar vikur og
síðan verði starfsemin flutt á Breið-
höfða þar sem helluframleiðsla BM
Vallár hf. er í dag. Víglundur sagð-
ist gera ráð fyrir að fjórir starfsmenn
Hrauns hf. verði ráðnir til BM Vallár
með hellusteypunni.
Stofnfundur nýs
fyrirtækis í vikunni
Björgun hf., Steypustöðin hf. og
BM Vallá hf. keyptu eignir Iðnlána-
sjóðs við Breiðhöfða 10, þar sem
áður var Byggingariðjan, auk véla
og tækja til einingaframleiðslu úr
verksmiðju Hrauns hf. Að sögn
Braga Hannessonar, forstjóra Iðn-
lánasjóðs, er á Breiðhöfða 10 um að
ræða verksmiðjuhús með véluni og
tækjum til framleiðslu holplatna,
veggeininga og strengjasteypu auk
skrifstofuhúss í byggingu. Breið-
höfði 10 var áður í eigu Byggingar-
iðjunnar sem varð gjaldþrota síðasta
sumar. Að sögn Braga leysti Iðnlána-
sjóður þessar eignir ekki til sín fyrr
en 11. desember sl. vegna þess að
skiptastjóri þrotabús Byggingariðj-
unnar leigði fyrirtækið fram til þess
tírna.
Stofnfundur nýs fyrirtækis verður
haldinn nú í vikunni og að sögn
Sveins Valfells, framkvæmdastjóra
Steypustöðvarinnar hf., verður síðan
haldinn framhaldsstofnfundur síðar
í mánuðinum. „Þá verður fyrirtækið
opnað og ég geri ráð fyrir að þá
komi að því breiðfylking verktaka
og annarra hráefnisframleiðenda á
markaðnum. Fyrirtækinu verður
ætlað að framleiða holplötur,
strengjasteypueiningar og aðrar ein-
ingar í hæsta gæðaflokki og taka
yfir framleiðslu þá sem var áður
Byggingariðjunnar og holplötufram-
leiðslu Hrauns hf.“ Sveinn sagði að
hjá nýja fyrirtækinu myndu væntan-
lega verða starfsmenn frá báðum
þessum fyrirtækjum en ekki væri
búið að ráða í nein störf.
Kæra felld niður
Aðspurður um kæru á hendur
Iðnlánasjóði til Samkeppnisstofnun-
ar sem Steypustöðin lagði fram í
júní sl. sagði Sveinn að þar sem
Hraun hf. hætti rekstri þá félli kær-
an niður. Kæran snerist um það
hvort Iðnlánasjóður hefði styrkt
Hraun hf. með sérstökum rekstrar-
framlögum og þar með veitt óheiðar-
lega samkeppni á markaðnum.
Bragi Hannesson hjá Iðnlánasjóði
sagði að seljendur hefðu lagt áherslu
á að vel yrði vandað til fyrirtækisins
því sjóðurinn kæmi til með að lána
því fjármuni auk þess sem hann yrði
hluthafi í því.
Óvissa um framtíð starfsmanna
Framleiðsla Hrauns hf. var stöðv-
uð í gærmorgun og fundur haldinn
með starfsmönnum kl. 14. Að sögn
Magnúsar Pálmasonar, eins starfs-
manna Hrauns hf., hafði starfs-
mönnum skilist að í kaupsamningi
hafi verið skilyrði um að nýir kaup-
endur myndu ráða a.m.k. 13 núver-
andi starfsmenn til starfa en eftir
fundinn í gærdag virtust þeir verða
eitthvað fleiri, a.ni.k. meðan starf-
semi væri enn í húsnæðinu í
Garðabæ. Engu að síður væri fram-
tíð starfsmannanna mjög óljós.
„Þetta fór allt frám með mikilli
íeynd og í rauninni held ég að þegar
fólkið var boðað á fund í gær þá
hafi það haldið að tilkynna ætti sölu
fyrirtækisins í heilu lagi eins og tals-
menn Iðnlánasjóðs höfðu alltaf gefið
í skyn. Þess í stað er þessu skipt í
fimm einingar; röradeild, hellugerð
og holplötudeild seldar, steypustöðin,
sem er verðmætasta einingin, lögð
niður og eftir situr húsnæðið í eigu
Iðnlánasjóðs. Húsnæðið er líklega
dýrasti hlutinn í þessum pakka en
við höfum ekki fengið kaupverðin
uppgefin," sagði Magnús.
Magnús sagði að nú störfuðu 25
starfsmenn hjá Hrauni hf. og 6 bíl-
stjórar sem eiga og hefðu rekið
steypubíla sjálfír. 8 bílar hefðu verið
við stöðina og þar af 6 í notkun
undanfarið. Af þessum 8 hefðu þrír
bílar verið í eigu efnissala sem myndi
finna mjög fyrir því að starfsemi
steypustöðvarinnar yrði aflögð. Þá
væru steypubílstjórar verkefnalausir
og við einhveijum þeirra blasti gjald-
þrot við.
Auðunn Bjarni Olafsson starfar á átakasvæðunum á Balkanskaga
Reyiium að hugsa sem
minnst um hætturnar
„Við erum í skotheldum vestum og með hjálma þegar við ferðumst um
átakasvæðin í fylgd friðargæsluliða og auðvitað er alltaf hætta á ferðum
enda kemur fyrir að skotið er við bílalestirnar. En við reynum að hugsa
sem minnst um hætturnar og leggjum áherslu á að ljúka verkefnum okk-
ar,“ segir Auðunn Bjarni Olafsson í samtali við Morgunblaðið, en liann
starfar um þessar mundir við hjálparstörf í Króatíu á vegum Hjálparstofn-
unar kirkjunnar og Lúterska heimssambandsins. Verkefni hans er að sjá
um framleiðslu og dreifingu á ofnum til húshitunar og eldunar. Hafa
þegar verið smíðaðir 46 þúsund ofnar og er dreifing þeirra að hefjast,
en verkefni þetta er að mestu leyti kostað af Sameinuðu þjóðunum.
„Þessir ofnar eru hannaðir af fyr-
irtæki í Sviss sem er í eigu manna
sem starfað hafa um árabil við hjálp-
arstörf víða um heim og hafa síðan
snúið sér að ráðgjöf og hönnun og
einbeitt sér að störfum á átaka- og
hörmungarsvæðum," segir Auðunn
Bjarni. „Ofnarnir eru hitaðir upp með
viði eða kolum og koma í stað annarr-
ar húshitunar sem nú er öll í molum
víðast hvar á Balkanskaga, sérstak-
lega í Mið-Bosníu, því öll rafveitu- og
gaskerfi eru ónýt.“
— Hvernig hefur framleiðslan
gengið fyrir sig?
„Við höfum yfir þremur aðalverk-
smiðjum að ráða sem smíða ofnana
og reykrörin en hráefni fáurn við
bæði á Balkanskaganum og í Tékk-
landi. Svo eru nýttar einar sex litlar
vélsmiðjur, einskonar bílskúrskarlar,
sem smíðað hafa einstaka hluta, t.d.
eldstæði eða festingar og allt er síðan
sett saman í þessum þremur aðalverk-
smiðjum. Þannig hefur tekist að smíða
þessa 46 þúsund ofna á tiltölulega
skömmum tíma.“
Miklar tafir
Dreifing ofnanna er nýlega hafin
og hefur hún gengið þokkalega en
Auðunn Bjarni segist kvíða framhald-
inu:
„Það er vegna þess að til þessa
hefur verið tiltöluiega hlýtt hjá okkur
en nú eftir áramótin má búast við
meiri kuldum og langvarandi. Þá verð-
ur erfiðara að komast gegnum allar
varðstöðvar því fylkingar hinna stríð-
andi aðila reyna að nota okkur og
aðra sem sinna hjálparstörfum í átök-
unum sín á milli.
Við höfum þegar nokkrum sinnum
lent í miklum töfum þegar samninga-
viðræður milli fulltrúa hjálparstofnana
og stríðsaðila hafa tekið langan tíma
á þessum varðstöðvum og stundum
verðurn við að bíða vegna átaka og
óróa á vissum svæðum. Venjulega
förum við með 8 vörubíla í lest sem
eru þá að flytja fyrir okkur, Rauða
krossinn eða CARE-hjálparstofnun-
ina. Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóð-
anna fylgja okkur og eru með skrið-
dreka í bak og fyrir. Þeir hafa sam-
band við sína menn þar sem við förum
um og ef átök eru í gangi verðum við
að bíða. Friðargæsluliðarnir hafa hins
vegar engin afskipti af viðræðum okk-
ar við stríðsaðila á leiðinni, þeir eiga
aðeins að fylgja okkur og reyna að
verja okkur ef ráðist er að bílalest-
inni.“
Auðunn Bjarni segir að ekki hafí
verið skotið á bílalestir sem hann hafi
verið í en oft megi heyra skothvelli
og átök á leiðinni og í næsta ná-
grenni. Allir eru í skotheldum vestum
og með hjálma og reynt er að gæta
Framleiddir hafa verið um 46
þúsund ofnar og nú er dreifing
að hefjast, meðal annars til svæða
í Mið-Bosníu.
fyllsta öryggis. Stundum þarf að gista
á leiðinni, t.d. I yfirgefnum skólum
eða öðrum byggingum sem fulltrúar
Sameinuðu þjóðanna hafa lagt undir
sig og þá er oftast búið að veija þær
með sandpokum.
Aðsetur hjálparstarfs Lúterska
heimssambandsins er í Zagreb í Kró-
atíu og þar starfa 6 manns. Yfírmað-
ur starfsins er John Wood sem kom
í heimsókn til Islands sl. vor. Auðunn
Bjarni segir að auk hörmunga á átaka-
svæðum séu mikil vandamál í Króatíu
vegna flóttamanna frá Bosníu sem
komist hafa inn í landið.
„Margir bændur og aðrir sem búa
við landamæri Bosníu hafa tekið á
móti flóttamönnum og haldið þeim
uppi \ikum og mánuðum saman. Á
þessum svæðum voru átök og þarna
eru því húsin iðulega skemmd og land-
búnaðurinn hefur orðið fyrir skakka-
föllum. En fólk setur það ekki fyrir
sig og hjálpar flóttamönnunum og
finnst mér að þessi vandi fólksins
hafi fallið dálítið í skuggann fyrir
öðrum málum. Lúterska heimssam-
bandið hefur komið þessu fólki nokkuð
til hjálpar með því að útvega bygging- ■
arefni til lagfæringar á húsum og
sáðkorn og nú síðast höfum við ráðið
bændur og jafnvel flóttamenn í vinnu
við að smíða bretti sem við notum við
ofnaflutningana. Þannig höfum við
reynt að skapa þessu fólki örlitla vinnu
og gefið því á ný trú á sjálft sig og
þessi viðleitni hefur getið Lúterska
heimssambandinu góðan orðstír á
þessu svæði.“
Auðunn Bjarni á konu og þijú börn
og var hér í stuttu leyfi yfír jól og
áramót og er ráðinn til starfa í Króat-
íu út mars. — En hyggst hann halda -
áfram svona störfum ef þau bjóðast?
„Ég myndi alveg vilja halda áfram
svona starfí, hvort heldur væri í stríðs-
hijáðu landi eða þar sem annars kon-
ar neyð er annars vegar. Það er gam-
an að geta orðið að liði á þennan
hátt og það er greinilegt að Lúterska
heimssambandið rekur árangursríkt
hjálparstarf meðal þessara stríðs-
hrjáðu þjóða.
jt