Morgunblaðið - 11.01.1994, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994
ÍSLANÐSMÓT
f K)LFJMI I9Q4
Glæsileg
sveifla hjá
Battu dans-
hópnum í at-
riði frá Útilífi.
Til í tuskið.
Rusell At-
hletic sport-
fatnaður var
kynntur, en
hann nýtur
mikilla vin-
sælda meðal-
ungs'íþrótta-
áhugafólks
hérlendis.
ÐSMOT
IMl 1994
félk í
fréttum
SKEMMTUN
Fjölmennt
á þolfimikeppni
Mikið var um dýrðir á íslands-
mótinu í þolfími á laugar-
daginn þar sem hátt í tvö þúsund
manns komu saman og fýlgdust
með líflegri keppni og fjölda
skemmtiatriða. Magnús Scheving
fór með sigur af hólmi í flokki
karla og Unnur Pálsdóttir sigraði
í kvennaflokki. í paraflokki
hrepptu systkinin Anna og Karl
Sigurðarböm fyrsta sæti.
Fimleikamenn, ballerínur,
sterkustu konur landsins, söngvar-
ar, dansarar og keppendur fóra á
kostum. Á milli þess sem keppt
var til meistara vora flutt mörg
framsamin atriði, m.a. glæsileg
tískusýning, sem sett var upp af
Helenu Jónsdóttir á nýstárlegan
hátt með Battu danshópnum. Þar
tóku átta dansarar og tvær fyrir-
sætur sporið í sýningu á sportfatn-
aði frá Hreysti og Utilífí og tísku-
fatnaði frá Blazer og Vera Moda.
Sýningin var mjög óvenjuleg,
þar sem blandað var saman göngu
og flóknum danssporum, m.a. með
undirspili tveggja trommuleikara,
sem vöktu mikla lukku.
„ Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Keppendum í Islandsmótinu í þolfimi fjölgar stöðugt og hér sést
ánægður hópurinn í lok keppninnar.
Kvennakór - Kórskóli - Skemmtikór - Léttsveit - Antikhópur
Söngstarf kórsins á nýju ári hefst nú senn
og verða fyrstu æfingar sem hér segir:
Kvennakórinn
Kórfélagar mæti 17. janúar kl. 20:30.
Stjórnandi kórsins er sem fyrr Margrét J.
Pálmadóttir, raddþjálfari Jóhanna V.
Þórhallsdóttir og píanóleikari Svana
Víkingsdóttir.
Kórskólinn
Hann verður starfræktur áfram í vetur og er
ætlaður áhugasömum konum með litla
eða enga reynslu af söngstarfi. Kennd
verður raddbeiting, tónfræði og samsöngur.
Kennsla hefst 17. janúar kl. 18:30.
Söngkennari verður Margrét J. Pálmadóttir.
Skemmtikór
Hér er um nýmæli að ræða í starfi kórsins.
Skemmtikórinn er ætlaður konum sem áður
hafa komið að söngstarfi og verða æfingar
einu sinni í viku, fyrsta æfing 18. janúar kl. 20.
Leiðbeinendur verða Jóhanna V. Þórhalls-
dóttir og Aðalheiður Þorsteinsdóttir.
í vetur verður einnig starfrækt Léttsveit og
Antikhópur. Léttsveitin í umsjón Svönu
Víkingsdóttur og Bjarkar Jónsdóttur stefnir að
miðsvetrartónleikum ásamt Kuran Swing, en
Antikhópurinn í umsjón Margrétar J. Pálma-
dóttur mun standa fyrir tónleikum í Krists-
kirkju á Dymbilviku.
Allar æfingar fara fram í Aðventkirkjunni
við Ingólfsstræti.
Innritun verður og frekari upplýsingar veittar í
símum 15263 og 622027 þessa viku kl. 9-12.
r
-»
KVENNAKÓR REYKJAVÍKUR
u/fun sófar/trirtamn