Morgunblaðið - 11.01.1994, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANUAR 1994
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
HASKOLABIO
SÍMI 22140
„Sprenglefnl! Spennan í botni í harkalega fyndinni
atburðarás. Slater og Arquette eru tryllingslega fynd-
ið og kynæsandi par“ rolling stone
„★★★* SÖNNASTerofsaiegasvöl“síxtysecondpreview
„Lífleg og eggjandi" time magazine
„SKEMMTUN ENGU ÖÐRU LÍK'
THE NEW YORK TIMES
„HRÍFANDI"
NEWSWEEK MAGAZINE I
KENNETH BRANAGH
ROBERT SEAN LEONARD
EMMA THOMPSON
BRÁÐFYNDIN FJOLSKYLDUMYND
“ „AFBRAGГ
TIME MAGAZINE
,STÓRKOSTLEG“
NEW YORK MAGAZINE
MICHAEL KEATON
KEANU REEVES
DENZEL WASHINGTON
meft
íslensku taii
Dennis HOPPER
Vol KILMER
Gory OLDMAN
Brod PITT
Chrislopher WAIKEN
★★★».!. Mbl.
A KENNETH BRANACH FH.M
w ★* ★ ★
mk NEW YORK POST
★ ★★★
EMPIRE
★★★★★★
Rás 2 MBL.
Lelksjíil
YS OG ÞYS UT AF ENGU
SONN AST
KRUMMARNIR
Stórskemmtileg gamanmynd
með íslensku tali fyrir alla fjöl-
skylduna.
Sýnd kl. 5 og 7.
Sýndkl.9.15.
Allra síðustu
sýningar.
B.i. 14 ára.
Allra siðustu sýningar,
Sýnd kl. 9 og 11.05.
B.i. 16ára.
Nýjasta stórmynd leikstjórans Kenneths Branagh, sem m.a. gerði
myndirnar „HENRY V“ og „PETER'S FRIENDS". Myndin hefur
fengið frábæra dóma bæði erlendis og hérlendls.
UNA S'
Ný hörkugóð spennumynd frá Tony Scott sem leikstýrði „Top Gun".
..skondið sambland al „The Getaway" og „Wild at Heart", mergjuð
ogeldheitástarsaga...sönnásteródrepandi.“ ★ ★ ★ A.l. Mbl.
Sýnd kl. 5, 7.05, 9 og 11.15. B.i. 16 ára.
„Ys og þys Branaghs er fyrirtaks skemmtun, ærslafullt oghressi-
legt bió sem svíkur engan.“ ★ ★ ★ A.l. Mbl.
m
UR DAGBOK
LÖGREGLUNNAR
REYKJAVIK:
7. -10. janúar 1994
Hundrað og einn ökumaður var
kærður fyrir að aka of hratt um
helgina. Þá eru 10 grunaðir um
að hafa verið undir áhrifum áfeng-
is, 2 reyndust réttindalausir, 15
hunsuðu rauða Ijósið og 31 var
kærður eða áminntur fyrir önnur
umferðarlagabrot. Alls var tilkynnt
úm 20 umferðaróhöpp. í tveimur
tilvikanna var um að ræða minni-
háttar slys á fólki og í fjórum tilvik-
um er grunur um að ökumenn
hafi verið undir áhrifum áfengis.
Þá var ekið á álft á Hringbraut-
inni gegnt Tjöminni. Skráningar-
númer voru tekin af þremur öku-
tækjum, en á næstunni mun lög-
reglan á Suðurnesjum, á höfuð-
borgarsvæðinu og í Ámessýslu
fara um svæðið og klippa skráning-
arnúmer af öllum þeim ökutækj-
um, sem ekki voru færð til skoðun-
ar á síðastliðnu ári. Þá mun sér-
staklega vera hugað að dekkja-
og ljósabúnaði bifreiða.
A sunnudagskvöld var tilkynnt
um tvo menn vera að reyna að brjót-
ast inn í hús við Síðumúla. Styggð
kom að mönnunum, en þeir skildu
eftir sig kúbein á vettvangi og skóf-
ar á útihurðinni. Um nóttina var
tilkynnt um innbrot í fyrirtæki við
Grensásveg. Ekki var að sjá að neinu
hafi verið stolið. Á sunnudagsmorg-
un var tilkynnt um innbrot í bensín-
afgreiðslu við Ægisíðu, þegar lög-
reglan kom á staðinn flúðu fimm
unglingar sem brotist höfðu inn á
bensínstöðina. Eftir nokkra leit í
hverfinu fundust þrír þeirra og voru
færðir á lögreglustöðina. Þeir höfðu
ekki haft mikið upp úr krafsinu.
Tilkjmnt var um innbrot í bifreið,
sem stóð á bifreiðastæði við ijölbýlis-
hús við Þangbakka. Úr bifreiðinni
var stolið farsíma. Tilkynnt var um
innbrot í sölutum við Njálsgötu.
Stolið var peningum úr Lukkuskjá
ásamt skiptimynt. Þá var tilkynnt
um innbrot í bifreið við Þingholts-
stræti. Ur henni var stolið skjala-
tösku. Á föstudagsnóttina var brot-
ist inn í myndbandaleigur við Selja-
braut og við Kleppsveg. Þá var einn-
ig brotist inn í hárgreiðslustofu við
Pósthússtræti og verslun við Lauga-
veg. Þar var maður handtekinn á
hlaupum frá versluninni með fullt
fangið af fatnaði. Hann var vistaður
í fangageymslum og væntanlega
sleppt að yfírheyrslu lokinni. Á
föstudagsmorgun var tilkynnt um
innbrot í fimm fýrirtæki við Bygg-
garða, bifreið við Suðurlandsbraut
og fyrirtæki við Stórhöfða.
Alls er bókfært 31 innbrot eftir
helgina. Lögreglan hefur haft uppi
sérstakt eftirlit með ákveðnum
svæðum þar sem innbrot hafa ver-
ið tíð. Henni hefur orðið allvel
ágengt við að handtaka innbrots-
þjófa, en þeir virðast samt sem
áður alltaf spretta upp aftur. Verið
er að þróa hugmyndum að setja á
sérstakt eftirlit með þeim einstakl-
ingum, sem oftar en aðrir koma
við sögu slíkra mála. Hins vegar
er nauðsynlegt að til séu virk úr-
ræði til þess að hægt sé að taka
utan um unga afbrotamenn og
sinna þeim sérstaklega þegar á
reynir og að þeim eldri, sem sýnt
hafa sérstaka virkni á þessu sviði,
verði sinnt sérstaklega í réttarkerf-
inu, þ.e. að þeim verði gefinn kost-
ur á að taka út refsingu sína í sem
beinustu framhaldi af afbrotum.
Nokkrum sinnum var tilkynnt um
Iausan eld í grenitijám, sem húseig-
endur höfðu skilið eftir yfir utan hús
sín eftir að þau höfðu nýst þeim um
jólin. Teljandi vandræði hlutust þó
ekki af þessu háttarlagi.
„Einungis“ var tilkynnt um 4
minniháttar líkamsmeiðingar, tvær
utan dyra og tvær innan dyra.
Önnur átti sér stað i heimahúsi og
hin á veitingastað. Fátt fólk var í
miðborginni að næturlagi. Mestur
fjöldinn er þar þegar hleypt er út
af veitingahúsunum. Það er von
lögreglunnar að borgarbúar gefi
sér það á 50 ára lýðveldisafmælinu
að þeir aðstoði lögregiu og aðra
við að koma málurn miðborgarinn-
ar í það horf á árinu að sómi megi
verða af í framtíðinni.
Ölvunartilvik voru hlutfallslega
fá, eða „einungis“ 41 að tölu. Auk
þeirra var tilkynnt um 25 hávaða
og ónæðistilvik, mest vegna
háttarlags ölvaðs fóiks. Tæplega
30 manns gistu fangageymslurnar,
en þar af voru 12, sem óskuðu
gistingar af sjálfsdáðum þar sem
þeir áttu ekki í önnur hús að venda.
Sigurður Gunnarsson, fuglatalningarmaður. Morgunblaðið/Silh
Aldrei fleiri fugl-
ar taldir á Húsavík
Húsavík.
í HINNI árlegu fuglatalningu á Húsavíkursvæðinu voru taldir alls
29.375 fuglar og fjöldi tegunda reynist vera 37 og flestir voru fýlarn-
ir, 14.301, og æðurnir 11.139.
í skýrslu Gauks Harðarsonar, sem
hafði umsjón með talningu, kemur
meðal annars eftirfarandi fram:
Fjöldi einstaklinga er meiri en
nokkru sinni fyrr og munar þar
mestu um fjölda fýla sem fjölgaði
um 3.951 og æðarfugls, sem fjölg-
aði um 2.898. Það kom ekki á óvart
að sjá mikinn fjölda af fýlum vegna
hlýinda talningardaginn, því í hlý-
indum virðast fýlar koma að landi
og jafnvel setjast í björg um hávet-
ur. Fjölgun æðarfuglsins var mest-
ur við Húsavíkurhöfða, en mun
færri voru við utanvert Tjörnes en
undanfarin ár, og ef til vill hafa
æðarfuglar af öllu Tjömesi hópast
saman í æti við afrennsli frá rækju-
vinnslunni á Húsavík.
Færri tegundir fugla komu fram
í talningunni nú en mörg undanfar-
in ár. Þar veldur trúlega kaldur
desembermánuður, svo og litlar
komur erlendra flækingsfugla til
landsins í haust. Sjaldgæfustu teg-
undirnar sem sáust í talningunni
voru hrafnsönd, ísmáfur og lundi,
en af öðrum sjaldgæfum fuglateg-
undum má nefna lóm, æðarkóng
og tildru.
Fjöldi straumanda var nokkru
meiri en í meðalári, en toppendur
voru færri. Fremur lítið var af stór-
um máfum og fjöldi svartbaka var
innan við helming meðaltals und-
anfarins áratugs og skýrist það ef
til vill með bættum frágangi á úr-
gangi frá sláturhúsi og fiskvinnslu.
Fremur lítið var af snjótitlingum
þrátt fyrir kuldatíð að undanförnu.
Sigurður Gunnarsson á Húsavík
er mikill fugla- og náttúruunnandi
og var hann nú, sem áður einn, af
talningar-mönnum á Húsavík-
ursvæðinu. En Sigurður hóf taln-
ingu þá fyrst var skipulögð jólataln-
ingin fyrir allt landið 1952 og hefur
talið nær öll árin síðan. Hann seg-
ist vita að af þeim 11 sem hófu
talningu 1952, telji enn auk sín,
þeir Þorsteinn Einarsson íþrótta-
fulltrúi og Hálfdán Björnsson, Kví-
skerjum, og líklega Agnar Ingólfs-
son prófessor, Arnþór Garðarsson
prófessor og Friðrik Jessén.
- Fréttaritari.
Aðalsteinn
íþróttamað-
ur UMFJ
^ Vaðbrekku, Jökuldal.
ÁRLEG uppskeruhátíð Ung-
mennafélags Jökuldæla var hald-
in nú um áramótin. Nokkur hefð
er komin fyrir þessari hátíð sem
hefst jafnan á að spiluð er félags-
vist þar sem keppt er um vegleg
bókaverðlaun.
Hápunktur Uppskeruhátíðarinn-
ar er síðan þegar formaður Ung-
mennafélagsins stígur í ræðustól
og gerir heyrum kunnugt hver hef-
ur verið útnefndur Iþróttamaður
ársins hjá UMFJ. íþróttamaður árs-
ins 1993 var útnefndur Aðalsteinn
Sigurðsson. Fram kom í máli for-
manns félagsins, Stefáns H. Jóns-
sonar, að það væri fyrir góðan
árangur á Sumarhátíð UA.
Einnig fengu viðurkenningar fyr-
ir góðan árangur á árinu þau Elsa
Guðný Björgvinsdóttir í yngri
flokki, Benný Rósa Aðalsteinsdóttir
og Vilhjálmur Vernharðsson í eldri
flokki.
Aðspurður sagði Aðalsteinn Sig-
urðsson að honum hefði ekki komið
á óvart að verða útnefndur þar sem
þau krakkarnir gætu reiknað þetta
út frá árangri sumarsins. Hannn
kvaðst ætla að æfa vel fyrir næsta
sumar og reyna að endurtaka leik-
inn þá. - Sig. Að.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Aðalsteinn Sigurðsson, íþrótta-
maður ársins á Jökuldal, með
bikara sína.