Morgunblaðið - 11.01.1994, Side 48

Morgunblaðið - 11.01.1994, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994 Farsi Þetta eru jú góð meðmæli, en af hveiju skrifaði mamma þín þau? HÖGNI HREKKVÍSI BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Skrif Ólafs um Suður- virki hf. í Keflavík Frá Herborgv Árnadóttur: Á aðventunni eða nánar 16. desember sl. las ég í Morgunblað- inu siðabótagrein Olafs Björnsson- ar fyrrverandi útgerðarmanns og skreiðarfrömuðar til varnar utan- ríkisráðherra, Jóni Baldvin Hannibalssyni, vegna ámælis er hann hlaut frá umboðsmanni Al- þingis og frá var skýrt í fr^tt Morgunblaðsins 24. nóvember sl. Augljóslega fer þarna fram maður sanninda og sanngirnis í þeim til- gangi að segja þjóðinni að ekkert sé að marka starf og niðurstöður umboðsmanns Alþingis, sanngjarn og réttlátur ráðherra hafi fullnægt réttlætiskennd sinni. Staðreyndum snúið við Ólafur byijar á því að rangfeðra mig með því að kalla mig Einars- dóttur. Það er svo að ég er Árna- dóttir, fædd og uppalin á Kirkju- teignum í Keflavík þar sem fjöl- skylda mín býr enn. Ég er því Suðurnesjamaður eins og Ólafur. Það fellur ekki að rökstuðningi Ólafs í hans grein, sem er ætlað að gera verk umboðsmanns Al- þingis tortryggileg, að því sé hald- ið á lofti en þó er það svo að ég hef átt mjög prýðileg samskipti við fólk og fyrirtæki á Suðumesjum persónulega og síðar í tengslum við reksturs Suðurvirkis hf. Þá er enn á ný snúið við stðreyndum og því haldið fram að Suðurvirki hf. sé fyrirtæki stofnað og starfrækt á Selfossí. Hefði Ólaf- ur brugðið vana sínum en tryggt sig fyrir fram um að staðhæfingar hans væru á rökum reistar, þá hefði honum verið innan handar að kíkja í firma- eða hlutafélaga- skrár. Það þjónar hinsvegar ekki markmiðinu, því þar stendur að Suðurvirki hf. var stofnað og skrá- sett í hlutafélagaskrá í Keflavík árið 1984. Lítil jólasaga greinar- höfundar um fyrirtæki á Suður- nesjum sem fær til sín verkefni frá fyrirtæki á Selfossi er því ekki sannleikanum samkvæm frekar en margt annað í þessari grein. Með því að kynna sér sögu fyrir- tækisins hefði hann hinsvegar get- að komið þeirri vitneskju á fram- færi við lesendur að viðskiptum Suðurvirkis með verkkaup, við- gerðarþjónustu og framkvæmdir hverskonar hefur frá því fyrirtæk- ið hóf starfsemi sína fyrir varnar- liðið öllum verið beint til fyrir- tækja starfandi í Suðurnesjum, sem ásamt bæjarfélaginu í Kefla- vík hafa með því fengið óbeina hlutdeild í afkomu félagsins. • Grunsamleg fyrirhyggja eða forsjálni? Þá finnst mér fjarska fróðlegt að heyra fyrrverandi útgerðar- mann og að ég hélt athafnamanna í atvinnulífi tala um „grunsamlega fyrirhyggju" þegar hann rifjar upp er Suðurvirki hf. tók ákvörðun um að bjóða varnarliðinu að taka að sér urðun á óbrennanlegu sorpi. Því er lýst hvaða undrun það olli að fýrirtækið keypti sértækan bún- að „sorptroðara“ sem lið í að bjóða varnarliðinu þessa þjónustu. Það er rétt að með kaupum á þessu „óvanalega tæki“ hættu hluthafar Suðurvirkis persónulegum eignum sínum til tryggingar hjá lánastofn- unum hefði fyrirtækið ekki lánast og þessari urðunaraðferð á sorpi verið hafnað af varnarliðinu. Hins- vegar af fyrri reynslu af þessum málum og þekkingu sem félagið hafði aflað sér var vitneskja fyrir því að þessa „undrunarverða“ tæknibúnaðar er krafist við urðun sorps í Bandaríkjunum og víða í Evrópu. Það ætti ekki að undra athafnamenn eða vera grunsam- legt í þeirra augum að einhveijir hugsi lengra en til dagsins í gær í undirbúningi að verki. Hinn l.janúar 1987 ákvað varn- armálanefnd formlega að fela Suð- urvirki hf. að annast umrætt verk. Verksamningur Suðurvirkis hf. við varnarliðið skapaði tvö ný föst störf fyrir Suðurnes auk annarra framkvæmda- og þjónustustarfa sem óhjákvæmilega fylgja. Konur eru menn eins og karlar Þó að vart sé svaravert, verður ekki hjá því komist að víkja að þeim aðdróttunum Ólafs í minn garð þar sem hann gefur það í skyn að þó svo að ég sé fram- kvæmdastjóri Suðurvirkis hafi því verið stjórnað úr landbúnaðarráðu- neytinu af manni mínum. Auðvitað vita það allir sem fyrirtækið hefur átt skipti við að svo er ekki. Mín skýring á þessum hugrenningum Ólafs er sú að hann lifi enn í dag í karlaveldinu. Hann ætti að vita að konum er í dag ætlað jafnræði með körlum í atvinnuþátttöku og jafnvel að frekar skuli ráða konur en karla af tveim jafnhæfum í til- teknum tilvikum. Hvernig hefðu nú skrif Ólafs hljóðað hefði ég verið skrifstofu- stjóri í landbúnaðarráðuneytinu en maðurinn minn framkvæmdastjóri Suðurvirkis!! HERBORG ÁRNADÓTTIR, framkvæmdastjóri Suðurvirkis hf. Yíkveiji skrifar Hagkaup rekur myndarlega matvöruverzlun í Kringlunni með fjölbreyttu vöruúrvali og hag- stæðu verðlagi miðað við það, sem gengur og gerist. Nú liggur fyrir, að 10-11 hyggst opna matvöru- verzlun í Borgarkringlunni, sem verður opin á sama tíma og aðrar slíkar verzlanir þ.e. fram á kvöld. í frétt í Morgunblaðinu í fyrradag kemur fram, að Hagkaupsmenn muni hafa verzlun sína opna leng- ur, ef í ljós kemur, að hin nýja matvöruverzlun i Borgarkringlunni hafi áhrif á viðskipti hjá þeim. Hér er ekki bara spurning um opnunartíma heldur líka og ekki síður um verðlag. Verðlag í verzlunum 10-11 er hærra en í Hagkaupsverzlunum enda verzlan- ir 10-11 opnar lengur eða fram á kvöld, sem er auðvitað hagræði fyrir viðskiptavini. Hins vegar má búast við, að viðskiptavinum líki ilia að greiða hærra verð fyrir vör- ur í 10-11 í Borgarkringlunni held- ur en í Hagkaupsbúðinni í Kringl- unni. Það verður því fróðlegt fyrir viðskiptavini þessara verzlana að fylgjast með því, hver verðþróunin verður hjá 10-11 og fari svo að verðlag þar nálgist meir verðlag Hagkaupsmanna, hvort sama verð gildir þá í öllum 10-11 búðum. Víkveija sýnist Kristmann Magnússon í Pfaff hafa mik- ið til síns máls, þegar hann telur að óheimilt sé skv. EES-samning- um að leggja vörugjöld á ýmis konar heimilistæki. I 14. grein EES-samningsins um fijálsa vöru- flutninga segir:„Einstökum samn- ingsaðilum er óheimilt að leggja hvers kyns beinan eða óbeinan skatt innanlands á framleiðsluvör- ur annarra samningsaðila, umfram það, sem beint og óbeint er lagt á sams konar innlendar vörur.“ Um þetta segir Kristmann Magnússon í Pfaff í samtali við Morgunblaðið sl. sunnudag:„Við lítum svo á, að tollar og vörugjöld hefðu átt að falla niður á þeim iðnaðarvörum, sem ekki eru fram- leiddar hérlendis. Það er algjörlega siðlaust að leggja vörugjald á á þeim forsendum, að það mundi vera gert, ef viðkomandi vara væri framleidd hér. Ég túlka því ákvörðun stjórnvalda, sem brot á EES-samningnum.“ Samkvæmt orðanna hljóðan verður ekki annað séð en Krist- mann í Pfaff hafi rétt fyrir sér. Það verður fróðlegt að sjá þau efn- isleg rök, sem ijármálaráðuneytið færir fram fyrir þessari ákvörðun. Nú dugar ekki lengur að stjórna með geðþóttaákvörðunum. Nú verða menn að hafa rök fyrir sínu máli. Hver eru þau? Fyrir íslenzka neytendur skiptir þetta miklu máli. Umrædd tæki lækka verulega í verði miðað við það að ákvæðum EES-samningsins sé fylgt. xxx Eru íslendingar búnir að átta sig á því, að atvinnuleysi verður viðvarandi hér næstu ár? Þessari spurningu varpaði íslenzk kona búsett í útlöndum fram við Víkveija fyrir nokkrum dögum. Og svarið er, að líklega erum við ekki búnir að átta okkur á því. Sennilega lítum við svo á, að at- vinnuleysið hér sé tímabundið vandamál, sem leysist, þegar ný uppsveifla verður í atvinnulífinu. Það er hins vegar merkilegt hvað þjóðfélagið virðist þola víð- tækt atvinnuleysi lengi án þess, að það valdi verulegu þjóðfélags- legu uppnámi. Slíkt hefði verið óhugsandi fyrir þremur til fjórum áratugum. Hvað veldur? Þokkaleg- ar atvinnuleysisbætur? Eða er þeim sama, sem hafa næga vinnu?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.