Morgunblaðið - 11.01.1994, Síða 51

Morgunblaðið - 11.01.1994, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1994 51 Þrír bruggarar dæmdir í fangelsi ÞRÍR menn voru í gær dæmdir í óskilorðsbundið fangelsi í Hér- aðsdómi Reykjavíkur fyrir landabrugg. Einn hlaut fjögurra mánaða fangelsi og 300 þús. kr. sekt, annar hlaut fangelsi I sex mánuði, þar af eru rúmlega fjór- ir vegna óafplánaðra eftirstöðva af eldri dómi, og 100 þús. kr. sekt og sá þriðji fangelsi í 60 daga og 70 þúsund króna sekt. Mestar sakir voru í máli þess þremenninganna sem hlaut fjög- urra mánaða fangelsi. Sá er 33 ára og byggðist dómurinn yfir honum á afskiptum lögreglu af honum í þrjú skipti frá því sumar- ið 1992 þegar frá þremur og upp í 80 lítrar af sterkum landa fund- ust í fórum hans, auk gambra og tækja og áhalda til að útbúa áfengi. Maður þessi hefur verið margsinnis sektaður og dæmdur fyrir ýmis brot, þar á meðal tvisv- ar fyrir bruggun á árunum 1985 og 1986 og í apríl á liðnu ári var hann dæmdur í tveggja ára skil- orðsbundið fangelsi í Þýskalandi fyrir fíkniefnabrot. Oft dæmdur áður Sá sem hlaut 60 daga fangelsi er 38 ára gamall maður sem hefur þrívegis verið dæmdur fyrir áfeng- isbruggun og sölu auk þess sem hann hefur fimm sinnum hlotið fangelsisdóma. Nú var honum refsað fyrir að hafa lagt í um 140 lítra af gambra sem hann var ekki farinn að eima þegar lögregla réðst inn á heimili hans í ágúst sl. og fann auk gambrans fjóra lítra af sterku áfengi. Sá sem hlaut sex mánaða fang- elsið er 23 ára og var refsað fyrir að afhenda þremur mönnum um 70 lítra af sterku áfengi til þess að selja. Af sex mánaða fangelsinu sem hann var dæmdur til fyrir þetta voru 137 dagar, rúmlega 4 'h mánuður, vegna reynslulausnar af eldri refsivist sem maðurinn hafði verið dæmdur til, en þetta var sjö- undi refsidómur mannsins. Hreppsnefnd Austur-Eyjafjallahrepps hafnar opinberri rannsókn Óþörf þar sem skuld odd- vita var að fullu greidd SAMÞYKKT var með fjórum atkvæðum í hreppsnefnd Austur-Eyja- fjallahrepps að hafna opinberri rannsókn á meðferð oddvita, Guðrún- ar Ingu Sveinsdóttur, á fjármunum hreppsins en félagsmálaráðuneyt- ið hafði óskað þess að nefndin tæki afstöðu til þess. Einn hrepps- nefndarmaður sat hjá. Að sögn Sigurðar Björgvinssonar, sem gegn- ir starfi oddvita um tveggja mánaða skeið í stað Guðrúnar Ingu, var rannsókn talin óþörf þar sem víxill sem oddvitinn var samþykkj- andi að á sínum tíma hafði verið að fullu greiddur. Fundurinn var lokaður og hefur hann verið kærður til félagsmálaráðuneytisins. Að sögn lögfræðings félagsinálaráðuneytisins er kæran lögð fram á grundvelli vanhæfisákvæða í sveitarstjórnalögum því oddviti sat fund hreppsnefndar sem ætlað var að meta störf hans. Óveður geisaði á Austfjörðum í gær „Skaflinn var upp að andliti“ ESKFIRÐINGAR urðu verst fyrir barðinu á óveðrinu sem geisaði á Austurlandi í fyrrinótt og fram eftir degi í gær. Skóla- haldi í bænum var aflýst og er mikill snjór í bænum að sögn Hilmars Hilmarssonar, skólatj- óra Grunnskóla Eskifjarðar. Bjami Sveinsson, aðalvarðstjóri á Eskifirði, sagði að víða næði snjórinn upp í mitti. „Ég þurfti að byija á því að moka mig út í morgun til að komast í vinnuna," segir hann. „Skaflinn var upp að andliti og varð ég að byrja á því að moka snjónum inn til að kom- ast út.“ Hann sagði að engin óhöpp hefðu orðið í bænum vegna óveð- ursins og flestir hefðu haldið sig heima við. Veðrið staðbundið Síðdegis í gær var farið að hlýna fyrir austan og segir Guðmundur Hafsteinsson, veðurfræðingur að hætt hefði að snjóa en bytjað að rigna í staðinn. Hann segir að veðr- ið hafi verið mjög staðbundið, en úrkoman hafi. líklega verið mest Austanlands og í kviðum hafi vind- hraðinn verið 10-11 vindstig. Flestir vegir á svæðinu eru ófærir, allir fjallvegir eru lokaðir og ófært er niður á firði. Hjá Vega- eftirlitinu fengust þær upplýsingar að mikill skafrenningur hafi verið á vegum og því ekki hægt að moka. Ófærðin gerði það að verkum að fresta varð setningu Mennta- skólans á Egilsstöðum um einn dag, en hún átti að vera í gær, því stór hluti nemenda komst ekki til Egilsstaða. Einnig var skóla-. haldi í Nesjaskóla á Höfn í Horna- firði aflýst. Ekki er vitað um fleiri skóla á svæðinu sem aflýstu kennslu í gær. Sesselja Árnadóttir lögfræðingur ráðuneytisins segir að tilgangurinn með tilmælunum hafi verið sá að fá afstöðu hreppsnefndar „svart á hvítu“ eins og það var orðað. Hún segir einnig að umsagnar hrepps- nefndar um það hvemig fundurinn hafi farið fram, hvemig að honum hafi verið staðið og hveijir hafi setið hann verði leitað og síðan verði tek- in ákvörðun um það hvert framhald- ið verði af hálfu ráðuneytisins. „Við höfum ekki tekið afstöðu ennþá en reynum að hraða því sem kostur er,“ segir Sesselja. Sigurður Björgvinsson hrepps- nefndarmaður segir að sú afstaða hafi verið tekin að ekki væri ástæða til opinberrar rannsóknar. „Endur- skoðun reikningsskila fyrir árið 1992 er lokið og víxill sá sem oddvitinn samþykkti á sínum tíma að fullu greiddur," segir Sigurður. Fundurinn var lokaður Fundurinn var boðaður með skömm- um fyrirvara samkvæmt heimildum Morgunblaðsins og var ekki auglýst- ur. Var fundinum síðan lokað fyrir almenningi og hefur félagsmálaráðu- neytinu borist kæra vegna hans. Sig- urður segir að einn hreppsnefndar- manna hafi gert þá tillögu að loka fundinum enda sé það heimilt þegar um viðkvæm mál sé að ræða. Hafi sú tillaga verið samþykkt með tveim- ur atkvæðum, einn hafi setið hjá og einn verið á móti. Aðspurður hvort ekki hafi verið óeðlilegt af oddvita að sitja fundinn þar sem afstöðu átti að taka til þess hvort rannsaka bæri meðferð hans á fjárreiðum hreppsins sagði Sigurður: „Á fundinum voru fyrst rædd önnur mál og stjórnaði oddviti þeim hluta en vék síðan frá við umræðu um tilmæli félagsmála- ráðuneytis," sagði hann. Hvað til- mæli ráðuneytisins að öðru leyti varðaði sagði Sigurður að hrepps- nefndin tæki jákvætt undir það að bætt yrði úr daglegum rekstri hreppsins eftir því sem tök væru á. --------» » ♦- Amfetamín heima og á vimmstað Fíkniefnalögreglan lagði á föstudag hald á um 45 grömm af amfetamíni. Á heimili og vinnustað 24 ára gamals manns fundust 40 grömm og á heimili fólks sem teng- ist manninum fannst meira af efn- inu. Ekki þótti ástæða til þess að krefj- ast gæsluvarðhalds yfir þeim fjórum aðilum sem komu við sögu í málinu. Sá 24 ára hefur áður komið við sögu fíkniefnamála en hann flutti um hálft kg af amfetamíni til landsins 1992. COÍX3 RYU5TILL Kennarí Magnús St. Sigþórsson 2 Dan Lærði í Japan Verð kr. 3.800/mán. 8.900/3 mán. Aðgangur að nýjum tækjasal og gufu. SHOTOKAN 5TILL Reynir Z. Santos 3 Dan Einn af frumkvöðlum karate á ísiandi Sími683600 HEILSURÆKT Mörkin 8 v/Suðurlandsbraut, 108 Reykjavík, sími 683600 SKÓGARHLÍÐ 10 - SÍMI 20720 Endurklœdum húsgögn. Gott úrval ákleeba. Fagmenn vinna verkib. BólstnmÁsgríms, Bergstaðastræti 2, sími 16807. ITALSi 1ÉB . 1. leikvtka, 9. jan. 1994 Nr. Leikur:Rööin 1. Cremonesc - Juvcntus - X 2. Foggia - Uazio 1 - 3. Parma - Udinese - - 2 4. Reggiana - Inter 1 - - 5. Roma - Genoa - X - 6. Sampdoria - Napoli 1 - 7. Torino - Piacenza 1 - 8. Ancona - Lucchese 1 - 9. Cosenza - Cesena 1 - 10. Palermo - Padova - X 11. Ravenna - Bresda • X 12. Venczia - Ascoli 1 - 13. Vicenza - I’escara - X Heiidarvinningsupphæðin: 13,1 13 réttin 12 réttin 11 réttir: 10 néttin milljón krónur 3A15.420 1 96.230 Í 5.580 1 1.070 J 1. lcikvika , 8. jan. 1994 Nr. Leikur:Röðin: 1. Bolton - Everton - X - 2. Bristol C. - Liverpool - X - 3. Manch. City - Leicester 1 - - 4. Newcastle - Coventry 1 - - 5. Oldham - Derby 1 - - 6. Oxford - Tranmere 1 - - 7. Peterboro - Tottenham - X - 8. Sheff. Wcd - Notth For. - X - 9. Stockport - QPR 1 - - 10. Swindon - Ipswich - X 11. West Ham - Watford 1 - 12. Wolves - C. Palacc 1 - 13. Wycombe - Norwich - - 2 Hcildarvinningsupphæðin: 106 mill jón krónur 13 réttir: 1.350.160 | kr. 12 réttir: 24.690 | kr. 11 réttir: 2.000 | kr. 10 réttin 2 1 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.