Morgunblaðið - 16.01.1994, Síða 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANUAR 1994
eftir Guðmund Guðjónsson
EINN ER sá klúbbur hér á landi
sem er ef til vill erfiðara að kom-
ast inn í heidur en aðra. Þó er
hann engum lokaður. Menn
verða einungis að vinna ákveðið
afrek i ákveðinni íþrótt og þá
er sætið í kiúbbnum tryggt um
aldur og ævi. Þetta er klúbburinn
Einheijar og inngöngu í þann
klúbb fá þeir sem farið hafa holu
í höggi í golfi. Það er raunar
ekki alfarið nóg að fara holu í
höggi, heldur þarf slíkt að eiga
sér stað í votta viðurvist. Þá hafa
einstakir aðilar sótt um inngöngu
út á „afbrigði", en reglurnar eru
skýrar og yfirleitt er dyrunum
skellt á þá. Dæmi um „afbrigði"
verða nefnd hér í fyllingu pláss-
ins. En í Kappleikjabók kylfinga
frá árinu 1973 stendur eftirfar-
andi: Draumur hvers kylfings er
að fara einhvern tímann holu á
golfvellinum í einu höggi og þá
að sjálfsögðu að hafa að því vitni
og annað sem með þarf. Þótt
ótrúlegt sé, hafa nær fimmtíu
kylfingar, þar af tvær konur,
farið „holu í höggi“ hér á landi.
Sumir þeirra hafa jafnvel farið
oftar en einu sinni, og einn
þeirra, Ólafur Skúlason, fór
tvisvar „holu í höggi“ í sama 18
holu hringnum á Grafarholtsvell-
inum. „Nú, tuttugu árum síðar,
hafa um 500 íslendingar farið
„holu í höggi“,“ segir Kjartan
L. Pálsson formaður Einherja til
margra síðustu ára. Sjálfur hefur
Kjartan sex sinnum á ferlinum
leikið holu í höggi og hefur eng-
inn hérlendur leikið það eftir
honum jafn oft, hvað þá oftar.
Okki skal rýrð kastað á afrek
Kjartans, það hlýtur að
sönnu að vera mikið afrek að leika
holu í höggi sex sinnum. Kjartan
hefur engu að síður staðið frammi
fyrir því að banda frá sér minni-
máttarkennd, andspænis írskum
golfsnillingi. Kjartan, eða KLP eins
og hann er oft kallaður, var að slá
á frábærum velli á eyjunni grænu
fyrir nokkrum árum. Skammt und-
an var fínn og fágaður heimamaður
einnig að slá og augljóst að þar var
mikill kunnáttumaður á ferð. Fatað-
ist KLP lítillega, en tók gleði sína
á ný er íranum varð starsýnt á
Einherjahúfu hans, en þar stóð
m.a. „The Hole in One Club of Ice-
land“. Gaf írinn sig þá á tal við
KLP, „Jæja, svo þú hefur leikið
holu í höggi?“ Bros færðist yfir
andlit KLP sem svaraði, „Já, heldur
betur, sex sinnum!" írinn hlustaði
kurteislega, en svaraði svo, „Er það
satt? Ég hef einnig leikið holu í
höggi oftar en einu sinni. Mér tókst
það sex sinnum í fyrra! KLP sagði
þessa sögu sjálfur, en var einnig
margorður um að í Ijós hafi komið
að hér hafí verið á ferðinni golf-
kennari sem léki marga hringi á
hverjum degi á auðveldum völlum
með mörgum „par-3“-holum.
Meðal kylfinga ríkir mikil spenna
og stemmning er hola í höggi er
annars vegar. Svo mjög að Kjartan
líkir fyrirbærinu við laxveiði. Að
leika holu í höggi sé ámóta og þeg-
ar laxveiðimaður nær að íjúfa 20
punda múrinn. Og báðir hlutaðeig-
andi, þ.e.a.s. kylfíngurinn og lax-
veiðimaðurinn, noti mikið fíngramál-
ið. Kylfingurinn sé með stutt á milli
vísifíngrana er hann útlistir hversu
litlu hafi munað, en laxveiðimaður-
inn hafi gjarnan eins langt á milli
vísifíngra og komist verður er hann
lýsir þeim stóra sem hann missti
í flæðarmálinu eftir dramatíska
viðureign. Rétt eins og með 20
punda laxinn, virðast líkumar á
því að leika holu í höggi einu sinni
eða oftar vera harla litlar. Engu
að síður koma hvað eftir annað
upp skemmtilegar tilviljanir. Áður
er t.d. getið Ólafs Skúlasonar
sem lék tvisvar holu í höggi á
sama l’8 holu hringnum. Frá síð-
asta sumri má einnig nefna hjón-
in Þuríði Sölvadóttur og Berg-
svein Alfonsson sem bæði léku
holu í höggi á síðasta ári.
Stönyin inn og fleiri furður
Eins og Kjartan Pálsson
Ljósmynd
Bjami Eiríksson
getur og aðrir kylfíngar taka undir,
er langsamlega algengast að menn
leiki holu í höggi á tiltölulega léttum
par-3 holum, þótt ekki sé það ein-
hlítt. Má til dæmis geta holu einnar
suður með sjó sem gengur undir
nafninu Bergvíkin. Hún er ekki
löng, en menn þurfa að kýla tuðr-
una yfir sjávarvog og margri kúl-
unni hefur þar verið sökkt í grænan
sæ. Kylfingur einn bjóst til að slá
yfir Bergvíkina og leist lítt á blik-
una. Mikill hliðarvindur geisaði og
í víkinni brimaði hressilega. Höggið
virtist mislukkað og kúlan lenti í
brimlöðrinu í þann mund að voldug
alda brotnaði. En hvað var nú þetta?
Skyndilega þeyttist kúlan upp úr
öldurótinu, inn á flötina og rakleið-
is ofan í holuna. Þótti sýnt, að kúl-
an hefði smollið í klöpp og e.t.v.
fengið púst frá Nirði gamla að auki.
Það þótti að minnsta kosti senni-
legra heldur en að hún hafi fleytt
kerlingar með þessum hætti.
Það þarf stundum ekki auðvelda
holu til. Að leika holu í höggi er
trúlega oftast einhvers konar sam-
suða af kunnáttu og heppni. Kunn-
áttu til að slá fast og hnitmiðað,
heppni að ná svo öruggri stefnu að
það skeiki ekki millemetra. En eng-
in regla er án undantekninga.
Skussar og byijendur geta leikið
holu í höggi, til vitnis um það er
skor fýrstu sex hola sem nýliði einn
lék á Akureyrarvelli fyrir nokkrum
árum. Skorið var þetta: 9-9-8-9-1-
12!
Svo er annað að fyrir kemur að
um yfirgengilega hundaheppni er
að ræða. Þannig var það á Islands-
móti einu í lemjandi slagveðri á
sjötta áratugnum. Keppandi einn
stillti upp á teig og þurfti að beija
gegn veðurhamnum. Hann lagði
allt í höggið og náði feikna-
skoti. Kúlan lenti á flötinni,
en höggið var of fast og
kúlan þeyttist fram hjá
holunni. Én þá greip Kári
til sinna ráða, þeytti frá
sér gífurlegri hviðu sem
stöðvaði framrás kúlunnar,
snéri henni við og feykti til
baka. Beint ofan í holuna ... Já,
ótrúlegt en satt.
Annars konar furður hafa
átt sér stað við holu í höggi.
Til dæmis mun það hafa oft
gerst við slík tækifæri að teig-
skotin hafa verið of föst, en fyr-
ir einskæra heppni (eða tækni!)
hafa þau smollið í flaggstöng-
unum og kúlan fallið beint
holuna. Stöngin-inn.
Brítinn
Sú var tíðin að hollenskt
áfengisfírma verðlaunaði
hérlenda kylfinga sem fóru
holu í höggi. Auk skraut-
ritaðs heiðursskjals kom
vegleg. sending að utan.
Sérskreyttur brúsi full-
ur af áfengistegund
þeirri sem framleidd
var hjá hinum hol-
lensku golfáhuga-
mönnum. En menn
urðu að hafa vitni
eins og gengur og
þurfti að skila vott-
festu skjali til um-
boðsmanns fyrirtæk-
isins hér á landi. Eitt
sinn voru ijórir félagar að slá sam-
an. Þeir skiptust á teigskotum og
héldu síðan út á braut, hver til sinnar
kúlu. Einn í hópnum fann ekki kúlu
sína og enginn hafði getað fylgt
henni eftir. Um síðir hugkvæmdist
einum úr hópnum að kíkja í holuna
og þá var kúlan auðvitað þar og
hvergi annars staðar. Þetta þótti
mönnum ekki einleikið, en viðkom-
andi kylfingur hugsaði gott til glóð-
arinnar og gekk frá sinni vottfestu
skýrslu. En hvernig sem á þv? stóð,
þá barst enginn brúsi að utan. Ýtti
kylfingurinn við umboðsmanninum
af og til, en fátt var um svör. Var
kylfingnum strítt með þeim orðum
að þeir hollensku hlytu að þekkja
til hans og vita því að afrekið væri
gabb og vitleysa. Ekki var það nú
og vildi okkar maður fá sinn brúsa.
Þótti mönnum þolinmæði hans með
endemum. Loks var stundin runnin
upp, fylgibréf frá Hollandi, brúsinn
var kominn. Sjö árum eftir að kúlan
lenti í holunni.
Tillinningamálið
Það er haft fyrir satt að margir
af snjöllustu kylfingum landsins
hafa aldrei slegið holu í höggi og
sumir þeirra taka það nærri sér.
Ekki síst vegna þess að Einheijar
sumir hveijir láta seint af stríðni
og segjast fá meiri upphefð heldur
en íslandsmeistari sem byggir afrek
sitt á 72 holu 4 daga bardaga við
fjölda jafningja. Og enn kemur lík-
ingin við laxveiðina. Sumir eru allt-
af í stórlaxi á meðan aðrir setja
vart í stærri lax en 5 til 6 punda.
Konur fara holu í höggi, Ólöf
Geirdóttir úr Nesklúbbi hefur fjór-
um sinnum leikið holu í höggi og
börn niður í 11 ára hafa unnið af-
rekið. En dæmin sýna að þeir bestu
fara ekki síður holu í höggi og jafn-
vel í þeirra tilvikum er kannski um
óvænta slysni að ræða. Þannig var
með íslandsmeistarann Þorstein
Hallgrímsson síðasta ár. Hann var
sárkvalinn af völdum bijóskloss í
baki, en var samt við kennslu, en
nemendurnir voru nokkrar ungar
konur. Þau voru stödd á kvennateig
og meistarinn stillti upp. Vegna
meiðslanna þurfti hann einhvem
veginn að hrökklast á eftir sveifl-
unni til þess að geta sýnt hana
skammlaust. Svo kom höggið.
Stíllinn óaðfinnanlegur, en til að
lina höggið á meiðslunum, hrökkl-
aðist Þorsteinn á eftir sveiflunni.
Árangurinn: Hola í höggi.
Hinir aparnir
Fyrir hefur komið, að menn hafa
sótt um nokkurs konar aukaaðild
að Einheijum þar sem þeir hafa
talið sig hafa leikið „afbrigði“ af
holu í höggi. Þá hefur það líka hent
að umræður hafa orðið um hvort
kúla hafí endað í holunni með rétt-
rnætum hætti. Skal nú sitthvað rifj-
að upp:
Dag einn var kylfingur einn að
slá á Nesvellinum. Á annari braut
fór eitthvað úrskeiðis, kúlan þeytt-
ist upp á þak golfskálans sem þarna
stendur eigi langt undan. Hrökk
kúlan niður um strompinn og end-
aði í eldstæðinu. Þessi maður var á
því að í vissum skilingi hafí hér
verið um holu í höggi að ræða og
sótti því um aukaaðild að Einheij-
um. Ékki voru menn á þeim bæ á
því að viðurkenna afrekið.
Svo var önnur brosleg uppákoma
á móti einu á Hvaleyrarvelli. Frá
því er greint í gömlu fréttablaði
GSÍ. Þar segir þannig frá atvikinu:
Eiríkur Smith var að slá á 7. braut
og kom boltinn á flötina svo allir
sáu. Þá bar að mann, sem var að
koma frá því að skoða „hina apana“
í Sædýrasafninu. Sá vissi ekkert
um golf og tók upp boltann og labb-
aði af stað með hann í átt til mann-
anna, en þetta var í keppni. Þegar
hann heyrði í þeim öskrin, varð
hann hræddur og kastaði boltanum
aftur fyrir sig yfír öxlina. Hann
valt og valt ... og beint í holuna.
Málið var þegar tekið fyrir og Eirík-
ur tapaði því ... þ.e.a.s. hann fékk
ekki holuna í höggi í þetta sinn.“
Það heitir fleira furðuskot í golfi
heldur en hola í höggi. Ófáar kríur
hafa fallið í valinn, rottur og mink-
ar hafa fengið sinn skammt of fyr-
ir vestan sló kylfingur út í á og
rotaði væna sjóbleikju sem var að
athuga hrygningarmölina. Þessi
greinarstúfur hófst á tilvitnun í for-
mann Einheija, Kjartan L. Pálsson.
Við skulum enda hann á reynslu
hans af furðuskotum. Kjartan var
að stilla upp á teig þegar menn
urðu þess varir að hann hneig
skyndilega niður hljóðandi. Kúlu
hafði verið skotið af hörkuafli í
neðanvert bak hans. Hann var
nokkuð þjáður og var studdur til
skála. Honum þótti best að sitja og
var því þannig uppstoppaður í sófa
við vegg andspænis útsýnisglugga-
num. Á meðan menn veltu fyrir sér
hvað best myndi til bragðs að taka,
kvað við glymjandi brothljóð, rúðan
mikla hrundi í milljón brotum og
kúla small af feiknarafli í vegginn
örfáa sentimetra frá höfði Kjartans.
Mátti litlu muna að þar yrði gerð
hola með höggi. En Kjartan slapp
og vitanlega voru þetta hrein slysa-
skot.