Morgunblaðið - 16.01.1994, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994
B 15
tekið á móti ljósinu verðum við sjálf
að breytast. Þeir sem rækta sjálfa
sig eru betur búnir undir breytta
tíma.“
Guðrún segir að þess miskilnings
hafí gætt meðal kirkjunnar manna
að .álykta sem svo að obbinn af
hugmyndum nýaldarsinna eigi ræt-
ur sínar að rekja til Austurlanda.
Hugmyndin um endurholdgun sé
þannig kjami kenninga nýaldar-
sinna og að þeir trúi ekki Guð. Hún
segir þetta ekki rétt. Margir í Ný-
aldarsamtökunum eru í Þjóðkirkj-
unni en fínna þar ekki það sem
þeir leita að. „Við erum ekki að
slást um Guð og almennt lítum við
svo á að hann sé tíl. Fóik býr Guði
hins vegar mismunandi búning.“
Gagnrýni á hugmyndir nýaldar
hefur orðið vart frá fólki sem hallt
er undir vísindahyggju. Guðrún seg-
ist ekki vera nægilega mikið inn í
raunvísindum til að geta svarað
gagnrýni úr þeirri átt. Hún segir
þó að orkusvið mannslíkamans sé
staðreynd og að við höfum áru með
mismunandi litum. Við búum í mis-
munandi orkuumhverfí. „Það er til
mismunandi orka en við getum ekki
séð hana. Það er tiltölulega stutt
síðan maðurinn vissi ekki að raf-
magnið er til. Við sjáum til dæmis
ekki rafmagn né útvarpsbylgjur en
samt eru þær til. Sjónsvið okkar
er takmarkað. „Það er svo margt
sem ekki er hægt að færa sönnur
á vísindalega. Ef einhver vill gagn-
rýna skoðanir okkar þá er það
þeirra mál,“ segir Guðrún að lokum.
íslendingar eru tvíhyggjufólk
„Forfeður okkar íslendinga voru
raunsæir því þeir urðu að vera það.
Sjómennimir stóðu í sjó upp að
hnjám með salt í skegginu, meðan
að konurnar söltuðu físk mestan
hluta sólarhringsins. Þetta fólk varð
að trúa á mátt sinn og megin og
stóla á eigin rökhyggju í baráttunni
við náttúruöflin. Þess vegna eru
nútíma íslendingar einnig skynsam-
ir og leita til Iækna þegar eitthvað
bjátar á,“ segir Ólafur Ólafsson
landlæknir.
Hann hefur lýst skoðun sinni á
óhefðbundnum lækningum eða
„þeim aðferðum sem beitt er þegar
fólk leitar til annarra en lækna",
eins og Ólafur kýs að nefna það.
Islendingar em að mati Ólafs
mikið tvíhyggjufólk sem hefur gam-
an af alls kyns dulúð og „gutli“.
„Dulúðin er skemmtileg en hins
vegar dugar hún skammt. Kannan-
ir, m.a. Gallup könnun sem gerð
var fyrir skemmstu, sýna að aðeins
örlítil prósenta þeirra sem þurfa að
leita sér lækninga fara til annarra
en lækna. Þótt undarlegt kunni að
virðast þá er hér aðallega um fólk
að ræða sem er ánægt með læknis-
þjónustu. Það er niðurstaða tveggja
Hagvangskannanna. Trúlega er
fólkið að leita sér álits annarra.
Mest gagnrýni virðist koma frá
ungu fólki með mikla menntun að
baki sem lítið hefur þurft á læknis-
hjálp að halda. Þar af leiðandi er
gagnrýni þessa fólks á Iækna og
lof á annnars konar aðferðir meira
áberandi en ella.“
„Svokallaðir huglæknar eru í
sumum tilfellum góðir sálfræðing-
ar,“ segir Ólafur. „Eg þekkti einu
sinni einn slíkan sem náði að tala
fólk til og því batnaði. Fólk slakaði
á og létti á hjarta sínu. Það getur
bætt mikið en ekki allt. Hið sama
má segja um hugleiðslu, hún getur
dregið úr háum blóðþrýsting,
streitu og fleira en hún bætir ekki
allt. Dæmin sanna að óhefðbundnar
lækningar eru alla jafna ekki
hættulegar, allavega ekki hér á
landi. Nú má vera að það breytist
við tæknivæðingu kuklaranna."
Ólafur segir að það séu gerðar
gífurlegar kröfur til læknavísinda
sem og til annarra vísindagreina.
„Þróun læknisfræðinnar eftir seinni
heimstyijöldina hefur verið á þanr.
veg að allar viðmiðanir verða að
standast nákvæmar hávísindalegar
kröfur. Þess vegna hlýt ég að and-
mæla einhveiju sem heitir heilun
eða handayfírlækning sem ekki
stenst á nokkurn hátt vísindalegar
kröfur. Því er hinsvegar ekki að
neita að sumir eru betri sálfræðing-
ar en aðrir. Mín vegna má kalla
það hugorku sem þeir beita. Við
getum tekið sem dæmi læknastöð
þar sem starfa fímm læknar. Ein-
hverra hluta vegna sækja sjúkling-
arnir mest til eins læknisins.
Kannski býr hann yfír einhverri
hugarorku en það er ekki hægt að
sanna það.“
Ólafur segist ekki vilja tjá sig
um annað én það sem heilbrigðis-
geiranum viðkemur. „Fólk getur
velt fyrir sér álfum og öðrum verum
mín vegna ef það hefur gaman af
því. Það kemur mér ekkert við.“
Kuklið getur verið hættulegt
- „Það er mikið um andlegt hungur
í heiminum og við fínnum mikið
fyrir því hér á íslandi. Þjóðkirkjan
hefur ekki verið starfí sínu vaxin
að seðja þetta hungur og því hefur
fólk leitað í auknum mæli annað,
m.a. til Nýaldarsamtakanna. En
það finnur ekki svörin þar og því
hefur fólk leitað í æ ríkara mæli
til trúfélaganna," segir Gunnar
Þorsteinsson forstöðumaður Kross-
ins.
„Það hefur myndast tómarúm
hjá fólki, það fær ekki svör við
þeim spumingum sem það leitar
að. Þá er gripið í þann skósóla sem
er næstur. Fólk verður sjúkt þegar
það innbyrðir ómeti og því getur
þetta kukl verið hættulegt".
Gunnar segir að Nýaldarsamtök-
in starfí undir því yfírskini að vera
andleg samtök. „Raunin er sú að
allt sem heyrir undir kukl og fjöl-
kyngi er sett undir hatt nýaldarinn-
ar og selt sem leiðir til andlegs
þroska. Nýöldin er óvinur sannleik-
ans þrátt fyrir að myndbirting ný-
aldarinnar sé oft lík því sem gerist
innan kristinnar trúar. Nýöldin á
hinsvegar ekkert sameiginlegt með
lifandi trú. Nýöldin býður upp á
margar leiðir til sannleikans, maður
skoðar bara úrvalið og velur það
sem hentar best.“ En Gunnar segir
myrkraöflin hér að verki. „Það er
aðeins einn sannleikur sem er Jesús
Kristur. Það er aðeins ein leið að
honum og aðrar leiðir eru vegleysa.
Nýaldarfólk trúir ekki á Jesú Krist
heldur trúir það því að hann hafí
verið til, sem spámaður eða kenni-
maður. Það trúir hinsvegar ekki á
alveldi hans eða guðdómi. Jesús
Kristur er vegurinn, sannleikurinn
og lífíð. Fólk verður að kunna að
gera skil milli feigs og ófeigs.“
„Nýöldin er kolkrabbi með marga
anga sem dreifa sér út um allt.
Kolkrabbi þessi hefur eitt höfuð sem
er Lúsifer. Fólk hefur verið að
föndra við andaglas, stjörnuspeki
og fleira sem tehgist myrkraöflun-
um. Komið hefur fyrir að það fari
mjög illa út úr þessu föndri og kem-
ur því til okkar í ieit að hjálp. Að
þessu leyti geta nýaldarhugmyndir
verið hættulegar. Það er kannski
of djúpt í árina tekið að segja þetta
beinlínis andfélagslegt. Fólk, sér-
staklega unglingar, fær sér orku-
steina eða fylgist með komu geim-
vera af skilningsleysi og vanþekk-
ingu. Yfírleitt er fólk samt fljótt
að afleggja þessu föndri."
Gunnar telur allan vind vera að
fara úr Nýaldarsamtökunum og
segist hann merkja það á tali manna
og mætingu á samkomu hjá þeim
fyrir stuttu í Fríkirkjunni. „Nýöldin
hefur beðið skipbrot vegna þess að
fólk er að átta sig,“ segir hann
ennfremur. „Islendingar eru skyn-
samt fólk og átta sig á falsspá-
mönnum," segir Gunnar að lokum.
Hugmyndir um lífið, tilveruna og
það sem tekur við eru með ýmsu
móti. Fólk er oft ósammála því
hvernig náunginn lítur á eilífð-
armálin og svarar þeim spumingum
sem ekki verður flett upp í alfræði-
orðabók. Ef til vill er hver og einn
of fljótur að fordæma án þess að
kanna til hlítar viðhorf annarra.
Umburðarlyndi er sá lykill sem
hentar best í hvetju samfélagi og
kannski sá lykill sem erfíðast er að
verða sér út um. Nauðsynlegt er
að kynna sér afstöðu annarra og
dæma eftir á. Það er einfaldlega
svo margt í boði að synd væri skoða
ekki úrvalið.
Höfundur er nemi í hagnýtri
fjölmiðlun.
Hatiðakvöldverður með þjóðlegu ívafí. Létt skemmtidagskrá með dansi,
söng og gamanmálum. O&vikin hátíðardagskrá með íslenskum
stjörnufans. Þjóðhátíðardansleikur fram á rauða nótt.
Z'/stt/ ð/sssifds. /f/fss) fs./%sse Af‘/>/f/ /f '.j/ffsf tfffs/ ffýf. -f/sf'sf/sff/fi/'f'ff^)ffs'/d/f'dffS'ffts/ffS'
f'fs'd/ssfff) fst y/ffS' .ifSff /ff^f $tff)Sttff/j ff fff) /■fff/ff /f'ffSf/ ff Aff/fdts/st/ Sftf’f)
Ás’/sszff/rZ//fs/s/ ■i&rsissi/ftt/s'/t)/ ryt ýrtrss/frstssttr/, ysyst /ffsýrff o^ff/f/f, fs'ss.-
Edda "Edda" Björgvinsdóttir
fjallkona, ráðskona og kvenréttindakona
Sigurður “Sig&i" Sigurjónsson
aerobikkennari, garðyrkju- og tamningamaður
Þjórhallur "Laddi" Sigurðsson
glímu-, brennu- og fjallkóngur og sláturhússtjóri með meiru.
Dagskrárstjórn er í höndum þjóðhátíðamefndar Sögufélagsins Mímis
en formaður hennar er
Haraldur "Halli" Sigurðsson
hreppstjóri, djákni og hundahreinsunarmaður héraðsins.
ötjórnin er í höndum Björns G. Björnssonar.
Auk þeirra koma fram hljómsveitin &3Q3 KlaðS og söngvararnir
Berglind Björk Jónasdóttir, Reynir Guðmundsson
og tugir annarra þekktra persóna úr þjóðlffi og fjölmiðlum.
ntcdsi
* 9 HUMAR.FYLLT LAXAVEFjA HREPPSTJÓRANS éða
KAMPAVÍNSBÆTT ÞJÓÐHÁTÍÐARSÚPA MEÐ KJÚKLINGU
©RILLSTEIKTUR LAMBAHRYGGUR FRAMREIDDUR MEÐ
SMfÖRRISTUÐÚM JURTUM FJALLKÓNGSINS eða
HUNANGSGLJÁÐUR GRÍSAHRYGGUR FJALLKONUNNAR eða
ÖRÆNMETISRÉTTUR SÖGUFLI.AGS 1NS
HINÖBERJATERTA KVENRÉTTINDAKONUNNAR,
MEÐ VANILLUSÓSU eða
ÍSRÉTTUR DJÁKNANS, Á SÚKKULAÐIGRUNNl
Verð: 4.700 kr.
Pantanir í söludeild í síma 91-29900
öértiiboð á gistingu
lofar góðu