Morgunblaðið - 16.01.1994, Page 19

Morgunblaðið - 16.01.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994 B 19 Prince hefur löngum verið lag- inn við að vekja á sér at- hygli og þá oftlega með ein- hverju sem snertir ekki Sérvitur Prince. -Jffef v , Morgunblaðið/Sverrir Tóngjörningur Birgir Örn „Curver“ Thorarensen. Gnægtabrunnur MYNDBAND og tónlist fer vel að flétta saman, sem sannast væntanlega á sýningu Gnægtabrunnsins i Sólon íslandus í næstu viku. Það verða sýnd ýmis myndbands- verk aukinheldur sem rokksveitir og listamenn troða upp. Gn’iægtabrunnurinn er myndbanda- gjöminga og hljóð/tónlistardagskrá sem þau leiða Jóhann Eiríks- son og Kristrún Gunnars- dóttir. Jóhann segir þau vilja vekja spurninga um eðli myndbandsins og annarra listforma í samhengi band- myndarinnar. Nú stendur yfir sýning/tilraun á Bíó- barnum, en á Sólon íslandus 20. og 21. janúar nk. troða upp ýmsir listamenn og myndbönd verða sýnd. Nýtt myndband Reptilicusar með tónlist verður frumsýnt, hljómsveitin INRI blandar saman tónlist og vídeógjörn- ingi, Hjálmar H. Ragnarsson sýnir verkið Flateyjar-Freyr — hljómur orðanna, Birgir Örn Thorarensen (Curver) flytur tóngjörning, Finnbogi Pétursson sýnir bandmynd, Gunnar Grímsson hljóðlista- maður flytur hljóðinstallati- on, Björk Sigurðardóttir flyt- ur píanóverk og myndlistar- menn sýna bandmyndverk. Herlegheitin verða á efri hæð Sólonar íslandus, en einnig hyggjast menn koma skjá fyrir við inngang hússins til að senda út dagskrána jafn- óðum. Sýningin á Bíóbarnum er annars eðlis. Hún hófst 6. janúar og stendur til 5. febr- úar. Kaflaskipti MARGT hefur verið sagt um Prince, og ekki allt fagurt. Fáir treysta sér þó til að neita því að hann er með hæfileikamestu tónlistarmönnum rokksögunnar og sannaði það eftirminnilega með safnplötum á síðasta ári. tón- list hans. Það er þó sem tónlist- armaður sem hann er í mestum met- um og safn- plötupakkar sem hann sendi frá sér í haust sanna að þar komast fáir með tærn- ar sem hann hefur hæl- ana. Annars vegar sendi hann frá sér tvo diska með vinsælum lögum, hinsvegar þriggja diska kassa sem á eru 36 lög sem náð hafa vinsældum og 20 laga safn af sjaldheyrðri en ekki síður markverðri tónlist. Þó Prince sé rétt kominn á fertugsaldurinn á hann að baki langan tónlistarferil og á síðasta ári voru liðin fimmtán ár frá því fyrsta breiðskífan kom út. Síðan eru þær orðnar allmargar og þykja misjafnar að gæðum. Hvað sem því líður er Prince liðtækur lagasmiður og á hverri plötu eru einhveijar perlur. Síðustu mánuði hafa menn velt því fyrir sér hvort sá pakki sem hér er til umfjöllun- ar sé saman settur í kveðjuskyni, en slíku getur enginn svarað þó ólíklegt sé að eins hæfíleikaríkur tónlistarmaður sé búinn að syngja sitt síðasta. Öllu líklega er að hér séu komin kaflaskipti og hitt er víst að næsti kafli verður síst for- vitnilegri. MARLEG hljómsveita- keppni Tónabæjar, sem kall- ast Músíktilraunir, nálgast óðfluga. Fyrsta tilrauna- kvöldið 1994 verður 10. mars, það annað 17. og þriðja svo 24. Úrslitakvöldið verður 25. mars. Síðustu til- raunir var metþáttaka, og komust þó færri að en vildu, | og ekki ber á öðru en nógu DÆGURTONLIST ErBláskjár búinn ab veraf Dúettar SAMVINNUPLÖTUR ýmiskonar eru legíó og marg- ar ætlaðar til að minna á listamenn og jafnvel endurvekja foma frægð. í það minnsta virðist það hafa verið helsta kveikja að útgáfu tveggja platna seint á síðasta ári; annarsvegar var verið að heiðra söngvarann Frank Sinatra og hinsvegar Elton John, sem telst helst lagasmiður, þó hann sé liðtæk- ur söngvari og píanóleikari líka. eftir ftrna ttotthíosson Sinatra, sem kallast Blá- skjár gamli í heima- landi sínu, á að baki lengri feril en flestir aðrir, hann tók upp sitt fyrsta lag fyr- ir 55 árum, en Elton John á lika lang- an kafla í poppsög- unni; hann sendi frá sér fyrstu breiðskífuna fyrir 25 árum. Ferill Franks Sinatras hefur verið upp og ofan, sem vonlegt. er á löngum tíma, en síðustu áratug- ina hefur enginn ógnað stöðu hans sem nestors raularanna, nema þá Bláskjár Sinatra Iupphafi frægðarferils- helst Bogomil Font. Síðan Sinatra var síðast í sviðs- ljósinu hafa þó vaxið upp heilar kynslóðir plötukaup- enda, sem lítið eða ekkert þekkja til Bláskjás og því má segja vel til fundið að taka upp lagasafn hans með yngri stjömum í bland, þó ekki hafi neinn þeirra sem syngja „með“ Sinatra á dúettaplötu hans hitt kappann þegar upp- tökur áttu sér stað. Þannig söng Bono sinn hluta í lag- inu 1 Got You Under My Skin á írlandi, en Sinatra sinn part I New York. Það kemur þó ekki alltaf að sök því ljósvakaflugur hafa tekið því lagi einkar vel og því má segja að útgáfan hafi vel náð tilgangi sínum. Aðrir sem hefja upp raust sína með Sinatra á plöt- unni eru Luther Vandross, Aretha Franklin, Barbra Streisand, Juiio lglesias, Gloria Estefan, gamla brýnið Tony Bennett, Nat- alie Cole, Charles Aznavo- Stjaraa Elton John (kunnuglegum steliingum. ur, Carly Simon, Liza Min- elli og Anita Baker, en einnig blæs Kenny G lítið eitt í einu lagi. Eins og áður segir hefur Elton John haldið velli meira og minna f aldar- Qórðung og á áttunda ára- tugnum seldi hann fleiri plötur en flestir aðrir, Síð- ustu misseri hefur verið hljótt um hetjuna, sem kannski má eins skrifa á áhugaieysi hans og breytt- an smekk manna, því ekki er langt síðan hann sendi frá sér breiðskífu sem seld- ist prýðilega. Dúettaplata hans á sér víst skamman aðdraganda og tekin upp á mettíma ( ýmsum lönd- um. Ekki var málum þó eins háttað og hjá Sinatra að hver tók upp í sínu horni, en heyra má að ekki var legið yfir öUum lögum. Með Elton syngja P.M. Ðawn, Little Richard, Kiki Dee, Don Henley, Chris Rea, Tammy Wynette, Nik Kershaw, Gladys Knight, RuPaul, Marcella Detroit, Paul Young, Bonnie Raitt, George Michael og Leon- ard Cohen, aukinheldur sem Elton syngur einn einn dúettanna sem hann semur sjálfur, en ekki á hann nema tvö lög önnur á plöt- unni, hin eru eftir ýmsa. margir séu um hitun að þessu sinni, því þátttökutilkynning- ar eru þegar famar að ber- ast. Sigurlaunin í Músíktil- raunum eru jafnan hljóðvers- tímar og hafa nýst sigur- sveitunum til útgáfu eða kynningar, en sigursveit síð- asta árs, Yukatan, sendi ein- mitt frá sér sína fyrstu breið- skífu síðasta haust. Rapp kvendi RAPPIÐ er stráka- tónlist, því þó til sé sitthvað af fyrirtaks kvenröpp- urum, eru þær marg- ar á kafi í Skass Boss, rappinu á eða bara Lic- forsendiun helle Laws. piltanna. Teljum til sögunna Boss, sem sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu fyrir skemmstu og slær flestum körlum við í hörku. Stór hluti rappsins gengur út á að gera lítið úr konum, enda séu þær bara til eins brúklegar sem ekki verður rakið hér. Að vísu hafa flestir helstu rapparar seinni ára reynt að reka af því slyðruorðið, en með litlum árangri á meðal lúðar eins og 2 Live Crew njóta hylli. Boss gefur lítið fyrir slíkt jóss og gefur að nokkru álíka frat í kynsystur sínar, sem hún segir veiklundaðar og ragar við að taka málin í eig- in hendur, nokkuð sem hún verður seint sökuð um. Boss er upprunin i Detroit og flutti sig um set til Los Angeles að komast á samn- ing. Það gekk eftir, því hún getur vel rappað og semur fyrirtaks lög, sem hefur aflað henni virðingar meðal karl- anna, en ekki síst hefur það hvemig hún hefur komið ár sinni fýrir borð vakið at- hygli, því allt viðskiptakyns hefur hún í eigin höndum og á meðan karlamir em á kafi í brennivíni, dópi og kven- fólki, leggur Boss gmnninn að framtíð sinni og hagræðir fjármálunum með það i huga að þó hún sé heit í dag, þá sé eins víst að allt sé búið á morgun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.