Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 16.01.1994, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994 B 31 í anddyri Þjóðleikhússins skömmu áður en viðhafnarsýningin hófst. Frá vinstri: Vilhjálmur Þ. Gislason, formaður þjóðleikhúsráðs, Ingiriður drottning, Friðrik konungur, forsetafrú Dóra Þórhallsdóttir, for- seti Islands Asgeir Asgeirsson og Guðlaugur Rósinkranz þjóðleikhússtjóri. Bílalestin kemur eftir Tjarnargötunni. Við lá að lögreglan fengi ekki við mannfjöldann ráðið. Friðrik konungur níundi, klæddur í flotaforingja- búning danska sjóhersins, veifar af tröppum Þjóð- leikhússins. Við hlið hans er Ingiríður drottning. SÍMTALID ER VIÐ ÞÓR BRAGASON VERSL TJNARMANN Dansað með sveiflu 32655 Halló. - Góðan dag, þetta er á Morg- unblaðinu, Kristín Marja Baldurs- dóttir, gæti ég fengið að tala við Þór Bragason? Það er hann. - Jú, komdu sæll, ert þú ekki einn af þeim sem eru með nám- skeiðin Komið og dansið? Það er rétt. - Hvernig eru þessi námskeið, hvað er kennt? Þetta eru námskeið í sving, við kennum fólki að leika sér eftir þess- ari sveiflumúsik þannig að gleðin haldi sér í dansinum. Námskeiðin standa yfír í tvo daga, tvo og hálf- an tíma í senn, og kennsluaðferðina fengum við að láni frá Norðmönn- um. Þegar ég byijaði bjóst ég ekki við miklu því ég er sjálfur búinn að stunda dans frá sjö ára aldri, en ég er búinn að sjá að það er hægt að nota þennan dans okkar við 70 til 80% af þeirri músik sem spiluð er á almennum dansstöðum. Og ég get sagt þér það að ég var á balli þar sem hljómsveitin spilaði sömbu, þeir eiga það nú til að vera með of hraðan takt í henni, en þá var hægt að skipta yfir og dansa sving. Þannig að þessi dans er ekki bund- inn við ákveðna músik. - Hvað eruð þið margir kennararn- ir? Við erum einir sjö sem höfum réttindi, en svo eru margir aðstoð- armenn í kringum okkur. Námskeið- in eru þannig hjá okkur að við neitum engum, fólk þarf ekki að koma parað. Ef konu langar að læra þetta getur hún komið, við getum útvegað karl- mann á móti. - Nú segir þú konu, er algeng- ara að þær komi? Já. - Er það ekki undarlegt, nú velt- ur dansinn á ykkur því að þið stjórnið? Mikið rétt, en það hefur alltaf verið erfiðara að koma karlmönn- um út á gólfið. - Enda erum við alltaf á nálum þegar þið bjóðið okkur upp, við vitum ekki hvort þið getið dansað. Þá get ég sagt þér annað, þetta er eini dansinn þar sem karlmaður getur dansað við tvær í einu. - Nú, er það já? Með smáæfíngu! - Heyrðu, er þetta tjútt? Eg vil nú ekki segja að þetta sé tjútt, vegna þess að íslenska tjúttið er sérafbrigði. En það koma þarna spor inn í sem eru svipuð. Aðalat- riði hjá okkur er að kenna handa- beitingar. Þú kannast nú við ís- lenska tjúttið, menn áttu það til að toga þær úr axlarliðum, en það kemur ekki fyrir hjá okkur. Hver hreyfíng er hárná- kvæm. Nú svo eru margir sem halda áfram eftir að þeir hafa verið hjá okkur og fara í danskóla eða í íjóðdansafélagið. - Og hvert á fólk að snúa sér ef það vill koma til ykkar? Hringja til okk- ar í síma 620700 eða 20010. FRÉTTA LJÓSÚR FORTÍD Saltvik’71 sjálfsljórn unga fólksins lítil“ ÞEGAR unglingum nútímans er legið á hálsi fyrir drykkjuskap og svall ættu þeir að spyija foreldra sína hvort þeir hafi sótt Saltvíkurhátíðina árið 1971. Samkvæmt fyrirsögn í Morgunblað- inu 2. júní 1971 var þar mikil ölvun og sjálfstjórn unga fólksins lítil. Hátíðina sóttu um tíu þúsund manns á aldrinum 15-20 ára. „Var þetta fyrsta tilraun, sem gerð hefur veríð, til að leysa hvíta- sunnuvandamálið svonefnda, en það voru drykkjuferðir ungs fólks um hvítasunnuhelgina, sem oft enduðu illa. Var það mat þeirra,;- sem áttu mestan þátt í undirbún- ingi og framkvæmd hátíðarinnar, að þessi tilraun hafi fyllilega átt rétt á sér, en hins vegar hafi ýmislegt farið verr en vonast hafi verið til,“ segir Morgunblaðið. Hljómsveitirnar sem léku voru Trúbrot og Mánar, Arkímedes, Dýpt, Tiktúra, Ævintýri, Tilvera, Jeremías, Akropolis, Júmbó, Tor- rek, Trix, Náttúra, Ríó Tríó, Þijú á pallj, Kristín og Helgi, Lítið eitt, Tilvera, Roof Tops, Haukur, Plantan, Bill og Gerry auk Árna Johnsens og Ingva Steins. í frásögninni segir að ölvun á laugardeginum hafi verið mun meiri en föstudaginn og hafi hún verið mjög almenn um kvöldið. „Allt fór þó friðsamlega fram lengi vel, en um kvöldið tók leikur- inn þó heldur að æsast. Kom þá mikið af eldra fólki, frá tvítugu og þaðan af eldra, og var áfengis- neysla þessa fólks og ölvun mun meiri en yngra fólksins. Sköpuð- ust nokkur vandræði af þessu eldra fólki, enda kom margt að því einungis til að drekka og koma af stað ólátum. Eftir að skemmti- stöðum í Reykjavík var lokað klukkan hálf tólf um kvöldið var einnig straumur fólks úr borginni í Saltvík í leigubílum. Var því hlið- um öllum lokað kl. eitt um nóttina og gafst sú ráðstöfun vel, enda þótt ónæðissamt hafi verið hjá hliðvörðum um nóttina." Það kemur fram aó nokkur fjöldi bandarískra hermanna af Keflavíkurflugvelli hafi sótt hátíð- ina. Framkoma þeirra hafi verið með ágætum en hins vegar hafi verið áberandi ölvun franskra sjól- iða sem þarna voru allnokkrir. í lokin er þess getið að sú til- gáta að ofneysla unglinga á áfengi stafi af því að þeir hafi ekkert við að vera eigi ekki við mikil rök að styðjast. Ölvunin hafi engu minni verið meðan hljómlistaflutningurinn stóð yfir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.