Morgunblaðið - 16.01.1994, Page 32
32 B
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1994
HASKÓLI ÍSLANDS
ENDURMENNTUNARSTOFNUN
HYGGUR ÞU A NAM I ÞYSKALANDI?
Undirbúningsnámskeið í þýsku fyrir inntökupróf í þýska háskóla
Námskeiðiö er haldið í samvinnu við Göethe-
Institut og er ætlað fólki, sem hyggur á há-
skólanám í Þýskalandi. Nemendur verða und-
irbúnir fyrir málapróf, sem erlendir náms-
menn verða að taka áður en þeir heQa nám
í Þýskalandi.
Gert er ráð fyrir allgóðri undirstöðukunnáttu
í þýsku og munu þátttakendur taka stöðupróf
áður en námskeiðið hefst.
Leiðbeinandi: Katharina Schubert MA í mál-
vísindum, kennari í þýsku fyrir útlendinga
við „Volkshochschule Göttingen“ í Þýska-
landi.
Tími: 25. janúar- 19. maí, á þriðjudögum
og fimmtudögum kl. 17.15—19.45.
Verð: 35.000 kr.
Upplýsingar og skráning í símum
694923,-24,-25.
Dregið um 54 milljón-
ir króna í HHÍ
í TILEFNI af 60 ára afmæli Happ-
drættis Háskóla íslands 10. mars
nk. verður dreginn út í þriðja
flokki þess hæsti happdrætti-
svinningur sem dreginn hefur
verið út hérlendis og verður að-
eins dregið úr seldum miðum.
Alls verða dregnar út 54 milijónir
króna við hátíðlega athöfn í Há-
skólabíói og geta þær allar fallið
í hlut eins heppins miðaeigenda,
segir í frétt HHÍ.
Dregið verður úr gömlu tromlunni
sem ávallt var notuð við útdrátt í
Happdrætti Háskóla íslands þar til
Hæsta ársávöxtun
á iimlánsreikningum
Húsnæðis-
sparnaðarreikningur
RnUhjarl
N S
Húsnæðissparnaðarreikningur sparisjóðanna bar hæstu vexti
allra innlánsreikninga hjá bönkum og sparisjóðuin árið 1993.
10,04% ársávöxtun jafngildir 6,85% raunávöxtun!
Bakhjarl Sparisjóðanna bar hæstu vexti almennra
innlánsreikninga hjá bönkum og sparisjóðum árið 1993.*
9,83% ársávöxtun jafngildir 6,64% raunávöxtun.
Bakhjarl er aðeins bundinn í 24 mánuði.
Enn einu sinni hefur reynslan sýnt að þeir sem vilja
ávaxta sparifé á innlánsreikningum geta borið mest úr
býtum hjá sparisjóðunum. Hafðu þetta í huga þegar þú
leggur drög að ánægjulegri framtíð.
: Besti kostur Sparisjóðsins í Keflavík her sömu vexti og Bakhjarl.
SPARISJÓÐIRNIR
fyrir þig og þína
tölvutæknin hélt innreið sína. Ein-
vörðungu verður dregið úr seldum
miðum, þannig að tryggt er að vinn-
ingurinn gengur út. Fimm raðir eru
í flokkahappdrætti HHÍ, merktar
B, E, F, G og H. í B-miða röðinni
eru svonefndir trompmiðar og jafn-
gildir hver slíkur miði fimm einföld-
um miðum, en einfaldir miðar eru
merktir bókstöfunum E, F, G og
H. Eigi maður alla miðana sem bera
sama tölunúmerið, er sá hinn sami
eigandi svonefndrar Níu.
í afmælisútdrættinum verður þess
gætt að vinningur falli á seldan •
miða í öllum fimm röðunum. Þegar
fyrsta tala hefur verið dregin úr
tromlunni er gætt að því hvaða mið-
ar með þessu tölunúmeri eru seldir.
Komi í ljós að sami aðili eigi alla
miða með þessu tölunúmeri þ.e.a.s.
sé eigandi Níu fær hann 54 milljónir
í sinn hlut og er þessum sérstaka
hluta útdráttarins þar með lokið.
Komi hinsvegar í ljós t.d. að miði í
H-röð sé eini seldi miðinn með út-
dregnu tölunúmeri fær eigandi þess
miða 6 milljónir króna en það verðáJt
ekki fleiri miðar í H-röð sem fá 6
milljónir í þessum útdrætti en 48
milljónir yrðu enn til ráðstöfunar og
næsta tölunúmer yrði nú dregið úr
tromlunni. Það er þannig alveg klárt
að einhver fær a.m.k. 30 milljónir í
sinn hlut, sá sem á trompmiða, 54
milljónir fara út, en við vitum ekki
fyrr en við útdráttinn hvort fjöldi
vinningshafa verður einn, tveir, þrír,
fjórir eða fimm.
Aukavinningar koma að venju á
næstu númer fyrir neðan og ofan
útdregið tölunúmer í hverri miðaröð,
50 þúsund krónur í einföldum röð-
um, 250 þúsund krónur í B-röðinni,
trompmiða-röðinni. Þar sem dregið
er í þessum sérstaka útdrætti uns
seldir miðar koma upp, kemur auka-
vinningur nú á númerin sem eru sitt
hvoru megin við vinningsnúmerin.
Auk þessa sérstaka útdráttar
verður svo í beinu framhaldi dregið
á venjulegan hátt um aðra vinninga
sem eru í vinningaskrá fyrir þriðja
flokk.
Að lokum skal hér áréttað, að í
desember nk. verður dregið um fjóra
5 m.kr. vinninga á einfalda miða,
25 m.kr. á trompmiða og 45 m.kr. á
„Níu“.
-------♦ ♦ ♦--------
Styðja starf-
semi Iþrótta-
sambands
fatlaðra
FLUGLEIÐIR og íþróttasam-
band fatlaðra hafa gert með sér
samning um stuðning Flugleiða
við fatlaða íþróttamenn næstu
tvö árin. Styrkurinn er jafnvirði
samtals um einnar og hálfrar
milljónar króna. <
Ólafur Jensson, formaður
íþróttasambands fatlaðra, sem und-
irritaði samninginn fyrir hönd
íþróttasambandsins segir að þetta
sé óneitanlega hjálp fyrir íþrótta-
menn sem búa sig undir Norður-
landamót fatlaðra, Heimsmeistara-
mót og Ólympíumót fatlaðra og
geri íþróttasambandi fatlaðra kleift
að halda áfram þeim markvissa
undirbúningi sem er nauðsynlegur
til árangurs í íþróttum.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, sagði eftir undirritun
samningsins að árangur fatlaðra
íþróttamanna á síðustu árum væri
hvatning öllum landsmönnum, því
hann sýndi svo ekki yrði um villst
hverju sterkur vilji og ástundun
fengi áorkað. Flugleiðum væri því
sérstök ánægja að styðja við
íþróttasamband fatlaðra og hvetja
félaga þess til dáða.
Samningur Flugleiða og íþrótta-
sambands fatlaðra gildir fram yfir
Ólympíumót fatlaðra í Atlanta í
Bandaríkjunum 1996. v