Morgunblaðið - 23.01.1994, Síða 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 1994
Lungnadeildir Heilsuvernd-
arstöðvar Reykjavíkur og
Vífilsstaða sameinast í ein-
stæðri rannsðkn á fyrir-
GETUM VK>
FYRIRBYGGT
KATTA- OG
RYKMAURAOFNÆMI?
katta- og rykmauraofnæmi
sem sjálfboðaliðar óskast í.
Kattahár alþakið ofnæmisvaka
sem losnar úr húðkirtlum kattar-
ins.
eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur
Um miðjan febrúar hefst merkileg rannsókn hér á landi. Þá
stendur lungna- og berklavarnadeild Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur í samvinnu við lungnadeild Vífilsstaða fyrir rann-
sókn á katta- og rykmauraofnæmi. Unnur Steina Björnsdóttir
ofnæmis- og ónæmislæknir hefur umsjón með þessari rann-
sókn í samvinnu við Sigríði Jakobínudóttur hjúkrunarfræðing
sem jafnframt hefur meistaragráðu í atferlisvísindum. Vitað
er að um sjö prósent íslendinga hafa greinst með kattaof-
næmi en rannsókn þessi miðar að því að sannreyna hvort
fyrirbyggjandi aðgerðir séu jafn árangursríkar og hefðbundin
lyfjameðferð. Hin fyrirhugaða rannsókn byggist á annarri sem
gerð var í Bandaríkjunum á einum ketti í háskóiasjúkrahúsi.
Kvaðst Unnur Steina Björnsdóttir hafa verið í sambandi við
þá sem hana framkvæmdu. í þeirri rannsókn var sýnt fram á
að hægt er að minnka ofnæmisvaka frá köttum mjög mikið
með ákveðnum aðgerðum en þessari rannsókn er ætlað að
leiða í Ijós hvort þær aðgerðir minnka ofnæmiseinkenni, svo
sem nefstíflur og astma, hjá fólki með kattaofnæmi. Til þess
þarf 60 manna hóp sjálfboðaliða sem eiga ketti og teija sig
hafa ofnæmi fyrir þeim.
essar fyrirbyggjandi aðgerðir
eru í stórum dráttum fólgnar
í að þvo eða fremur „spreyja" ketti
með hreinsuðu vatni, setja sérstök
ver utan um dýnur í rúmum fólks,
sem kemur þá líka að gagni í barátt-
unni við rykmaura. Oskað er eftir
sjálfboðaliðum í þessa einstæðu
rannsókn.
Til þess að fylgjast með árangri
ofannefndra aðgerða þurfa þátttak-
endur í rannsókninni, sem stendur í
heilt ár, að ryksuga aðra hveija viku
og nota þá sérstakan stút á ryksug-
una sem þeir skila svo sýnum úr
jafnóðum. Ofnæmisvakar verða svo
mældir úr sýnunum. Rykmauramir
í þessum sýnum verða einnig mæld-
ir. Einnig þurfa þátttakendur að
mæla nef og lungnastarfsemi sína
daglega.
Hér á landi er fólk með mikið af
gæludýrum, eins og raunar í ná-
grannalöndum okkar. í rannsóknum
erlendis hefur komið í ijós að allt að
helmingur heimila eru með eitthvert
gæludýr. Hér á landi eru kettir mjög
algeng gæludýr, en þeir virðast vera
sýnu verri ofnæmisvakar en t.d.
hundar," segir Unnur Steina.
Rykmaurar búa í teppum
og bólstruðum húsgögnum
Hvað skyldi það vera við köttinn
sem veldur slíkum ofnæmisviðbrögð-
um hjá fólki?
„Aðalefnið er kallað Fel d I og er
eggjahvítusamband sem er í kirtlum
undir húð kattarins og losnar úr
læðingi t.d. þegar kötturinn sleikir
sig. Þetta eru mjög smáar agnir sem
festast bókstaflega við allt þegar
kötturinn gengur um heimilið. Af því
agnirnar eru svo smáar og lengi í
loftinu þá fær fólk með kattaofnæmi
fremur einkenni frá augum og nefi
en t.d. þeir sem eru með ofnæmi
fyrir rykmaurum. Rykmauramir búa
í teppum, bólstruðum húsgögnum og
dýnum, hversu þrifalega sem fólk
gengur um hýbýli sín. Ryksugan
hefur harla lítið að segja í barátt-
unni við rykmaur, öðru máli gegnir
hins vegar um ofnæmisvaka frá kött-
um.
Margir sem hafa kattaofnæmi
hafa einnig ofnæmi fyrir rykmaur-
um. Rykmaurar lifa á húðflögum af
fólki og dýrum. Fæða rykmauranna
eykst mikið þegar kettir eru að valsa
um íbúðir auk fólksins sem þar býr.
Dýnuverin sem áður voru nefnd eru
úr sérstöku efni sem hindrar ryk-
maurana í að komast upp úr dýnum
fólks og minnka þannig ofnæmis-
vaka. Slík ver eru dýr en þátttakend-
ur í umræddri rannsókn fá þau
ókeypis. •
Þeir sem ekki eiga ketti en hafa
ofnæmi fyrir þeim finna um leið og
þeir stíga inn í hús, að þar er kött-
ur, en fólk sem hefur átt ketti í ein-
hvem tíma en hefur ofnæmi fyrir
þeim gerir sér oft ekki grein fyrir
áhrifum þess. Það er oft með viðvar-
andi kvefeinkenni, stundum haldið
slappleika, sefur mikið og er ekki
vel upplagt til vinnu, Seinni hópurinn
fær ekki eins svæsin einkenni og sá
fyrri af því ofnæmisvakinn er stöugt
í umhverfinu.
Einnig er í fyrrnefndum kirtlum
katta efnið albumin, sem veldur um
fimmtán prósentum af tilvikum
kattaofnæmis meðal fólks. Það efni
er mun sjaldnar mælt en hitt, en í
okkar rannsókn munum við mæla
bæði þessi efni í öllum þeim sem
gefa sig fram sem þátttakendur í
þessari rannsókn. Skilyrði fyrir inn-
göngu í þessa rannsókn er að fólk
eigi kött og að það telji sig hafa
ofnæmi fyrir köttum, hafí í langan
tíma haft viðvarandi kvefeinkenni,
jafnvel augnpirring, mikið rennsli
aftur í kok, hnerraköst og kláða í
kringum nef og augu.
Með kattaþvotti má
minnka ofnæmisvaka
Við vonumst til að með aðgerðum
eins og að þvo köttum uppúr eimuðu
vatni með einu prósenti af sápu í sé
hægt að minnka það mikið ofnæmis-
vakana frá þeim að fólk með kattaof-
næmi geti haldið áfram að hafa sinn
kött og geti jafnvel verið alveg lyfja-
laust. Það hefur sýnt sig að þótt
fólk viti mæta vel að það hafí of-
næmi fyrir köttum þá losar það sig
ekkert endilega við köttinn. Sumir
láta sig jafnvel hafa það að láta ketti
sofa inn í svefnherberginu hjá sér
þótt það valdi eigandanum hósta og
hnerraköstum hveija nótt. Erlendar
rannsóknir sýna að þótt fólk sé greint
með alvarlegan astma vegna kattaof-
F.h. Unnur Steina Björnsdóttir og Sigríður Jakobínudóttir. Ljósmyndari Kristinn/Morgunbiaðið
Rykmaurinn í hægðum sínum, ofnæmið stafar einmitt af úrgangi ryk-
mauranna.
Magn Fel d I í loftsýnum
eftir aö köttur er þveginn
Dugir
Á Ifnuritinu sést hvernig kattaofnæmisvakinn snarminnkar eftir þvott.
næmis þá er einungis um þriðjungur
af ofnæmissjúkum kattaeigendum
sem losa sig við þá. Ef tækist að
sýna fram á að fólk gæti með fyrr-
nefndum aðgerðum minnkað svo
mikið ofnæmisvaka frá kettinum að
það gæti átt hann áfram án þess að
vera með einkenni eða lyf, þá væri
það bæði mikil heilsufarsbót og
myndi jafnframt spara heilbrigð-
iskerfinu og þar með þjóðfélaginu
öllu stórfé," segir Unnur Steina.
Unnur lagði áherslu á að miklu
skipti að fólk hefði samband við
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur,
lungna- og berkladeild, í síma 22400
sem allra fyrst, þar sem rannsóknin
á katta- og rykmauraofnæminu hefst
þann 15 febrúar nk. „Það er mikil-
vægt að hefja rannsóknina sem allra
fyrst, þar sem margir þeirra sem eru
með kattaofnæmi eru líka með gras-
ofnæmi og einkenni frá því fara að
sýna sig snemma í vor. Þeim má
ekki rugla saman við einkennin frá
katta- og rykmauraofnæminu,"
sagði Unnur Steina ennfremur.
Ekki fyrirhafnarsöm þátttaka
Unnur lagði einnig áherslu á að
það væri ekki nein óskapleg fyrir-
höfn sem fylgdi þátttöku í þessari
ársrannsókn. „Við afhendum fóiki
úðabrúsa til þess að úða úr yfir kött-
inn, hann sleikir svo eimaða vatnið
af sér sjálfur. Það er ekki mikið verk
að setja ver yfir dýnur og fólk ryk-
sugar hvort sem er. Vatnið munu
þáttttakendur fá hjá okkur og einnig
fá þeir, sem lenda í samanburðar-
hópi sem fær lyf, þau sér að kostnað-
arlausu í rúmt ár. Þeir þátttakendur
sem ekki lenda í lyfjahópnum þurfa
einnig að mæla lungna- og nefstarf-
semi sína daglega, en það er hvorki
sárt né fyrirhafnarsamt. Við von-
umst til að fólk bregðist skjótt og
vel við Til mikils er að vinna eins
og fyrr sagði í heilsufarlegu og efna-
hagslegu tilliti. Einnig er ástæða til
að hafa í huga að þetta er fyrsta
rannsókn sinnar tegundar í heimin-
um svo niðurstöður hennar munu
þykja merkar fregnir fyrir þá fjöl-
mörgu sem þjást af astma og of-
næmi. Komi í ljós að umræddar að-
gerðir skili þeim árangri sem vonast
er til opnast leið fyrir fólk að varð-
veita bæði sjálft sig og aðra með
fyrirbyggjandi aðgerðum gegn of-
næmisvökum frá köttum og ryk-
maurum," sagði Unnur Steina að
lokum.
i