Morgunblaðið - 16.02.1994, Side 1

Morgunblaðið - 16.02.1994, Side 1
56 SIÐURB/C 38. tbl. 82. árg. MIÐVIKUDAGUR16. FEBRÚAR 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Viðskiptadeila Bandaríkjanna og Japans Refsiaðgerðimar verða tilkynntar innan mánaðar 4 Wa-shington, Tókýó. Reuter. MICKEY Kantor, viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna, sagði í gær að Japanir hefðu ekki staðið við loforð um að heimila innflutning farsíma til Japans. Hann lýsti ennfremur yfir því að fyrirhugaðar refsiaðgerðir Bandaríkjastjórnar vegna þessa yrðu tilkynntar inn- an 30 daga. Aung San Suu Kýi Stjórn Búrma AungSan ekki látin laus í ár Bangkok. Reuter. AUNG San Suu Kyi, hand- hafi friðarverðlauna Nóbels og stjórnarandstöðuleiðtogi í Búrma, verður áfram í stofu- fangelsi í Rangoon þar til á næsta ári að minnsta kosti, að sögn embættismanns her- foringjastjórnarinnar í Búrma í gær. Orðrómur hefur verið á kreiki um að Aung San Suu Kyi verði leyst úr haldi í júlí þegar fimm ár verða liðin frá því hún var svipt frelsinu. Sam- kvæmt lögum í Búrma má ekki halda fólki í stofufangelsi leng- ur en í fimm ár. Kyaw Win, aðstoðarfram- kvæmdastjóri leyniþjónustu hersins í Búrma, sagði hins vegar að Aung San Suu Kyi hefði fyrsta árið verið í venju- legu fangelsi og ekki sett í stofufangelsi fyrr en árið 1990. Bandaríski þingmaðurinn William Richardson heimsótti Aung San Suu Kyi í gær og í fyrradag og sagði að hún væri við góða heilsu. Aður höfðu aðeins nánustu skyldmenni hennar mátt heimsækja hana og Kyaw Win sagði að hér eft- ir fengju erlendir embættis- menn að koma til hennar ef þeir hefðu „jákvæð viðhorf“ til Búrma. Japanir réðu Bandaríkjamönnum frá því að grípa til viðskiptaþvingana og sögðu það geta stofnað samninga- viðræðum um viðskiptadeilu ríkjanna í hættu og jafnvel orðið til þess að binda enda á þær. Orðrómur um að Bandaríkjamenn myndu grípa til 'refsiaðgerða varð til. þess að Bandaríkjadollar féll talsvert í verði á gjaldeyrismörkuðum í Asíu og verðbréf snarlækkuðu í kauphöll- inni í Tókýó. Tilraunir til að leysa ágreininginn fóru út um þúfur í Washington í vik- unni sem leið, en þar komu Bill Clint- on Bandaríkjaforseti og Morihiro Hosokawa, forsætisráðherra Japans, beint við sögu. Japanir lögðu til í gær að leiðtogarnir reyndu öðru sinni að finna málamiðlunarlausn í við- skiptadeilunni. Hosokawa er sagður vilja gera sitt til að leysa deiluna. Fregnir herma að hann hafi við heim- komuna frá Washington skipað ráðu- neytum að leggja tafarlaust fram tillögur um aðgerðir sem hægt yrði að kynna Bandaríkjamönnum sem tilboð um að opna markaði í Japan. Reuter Ólympíuleikar Serba SERBAR í Bosníu hafa efnt til sinna eigin Ólympíuleika á Jahorina- Qalli skammt frá Sarajevo og vilja þannig minnast þess, að tíu ár eru liðin frá því Vetraróiympíuleikarnir voru haldnir í borginni. Þá lifðu íbú- amir saman í sátt og samlyndi og þar eru ennþá mikil mannvirki, sem reist voru vegna leikanna. Raunar væri réttara að tala um mannvirkja- leifar því að þau eru að mestu í rúst eftir stanslausa sprengjuhríð Serba í marga mánuði. Myndin var tekin við opnunarhátíð Serbaleikanna. Verðlauna- nefnd Nób- els mútað? Stokkhólmi. Reuter. NEFND í Svíþjóð sem veitir Nób- elsverðlaunin í læknisfræði vís- aði í gær á bug fréttum ítalskra dagblaða um að hún hefði þegið fé fyrir að veita ítölskum vísinda- manni verðlaunin árið 1986. Öll dagblöðin á Ítalíu skýrðu frá því í gær að háttsettur embættis- maður í ítalska heilbrigðisráðuneyt- inu, Duilio Poggiolini, hefði haldið þessu fram við yfirheyrslur sak- sóknara. Hann hefði sagt að lyfja- fyrirtækið Fidia hefði mútað nefnd- inni til að tryggja að ítalski vísinda- maðurinn Rita Levi Montalcini fengi verðlaunin. Þetta hefði hann fengið að vita hjá Francesco Della Valle, fyrrverandi forstjóra Fidia. Della Valle, Montalcini og nóbels- verðlaunanefndin vísa þessu algjör- lega á bug. ♦ ♦ ♦----- N-Kórea sam- þykkir eftirlit Vín. Reuter. NORÐUR-Kóreumenn sam- þykktu í gær að heimila Alþjóða- kjarnorkumálastofnuninni í Vín að hafa eftirlit með sjö kjarn- orkutilraunastöðvum. Vonast er til að samkomulagið verði til þess að binda enda á deilu Norður-Kóreumanna og stofnunar- innar sem staðið hefur í ár. Eftirlit- ið á að hefjast á næstu dögum. Major bjartsýnn á að umsátrinu um Sarajevo verði aflétt án loftárása Jeltsín ræður Vesturlönd- um frá því að hunsa Rússa Moskvu, Wasliington, Palc. Rcutcr, The Daily Telegrapli. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, réð í gær leiðtogum Vesturlanda frá því að hunsa sjónarmið Rússa í deilunni um Bosníu. John Major, forsæt- isráðherra Bretlands, sem ræddi við Jeitsin i Moskvu, kvaðst vongóður um að umsátrinu um Sarajevo, höfuðborg Bosníu, yrði aflétt án þess að til loftárása á umsáturslið Serba kæmi. „Sumir eru að reyna að leysa Bosníu-deiluna án þátttöku Rússa. Við látum það ekki viðgangast," sagði Jeltsín eftir viðræðurnar við Major. Rússneski forsetinn minntist þó ekki beint á hótun NATO um að gera loftárásir á umsáturslið Serba <fari það ekki að minnsta kosti 20 kílómetra frá Sarajevo fyrir mið- nætti á sunnudag. Rússneska stjórnin hefur verið treg til að fallast á loftárásir á Serba vegna harðrar andstöðu þjóðernis- sinna á rússneska þinginu sem eru vinveittir Serbum. Andrej Kozyrev utanríkisráðherra hefur sagt að Rússar geti aðeins sætt sig við loft- árásir sem neyðarúrræði en Pavel Gratsjov varnarmálaráðherra hefur gagnrýnt áform NATO og sagt að þau séu dæmd til að mistakast. Major var vongóður um að ekki þyrfti að grípa til hernaðaraðgerða í Sai'ajevo. „Við erum nú að sjá raun- verulega möguleika á friði í Sarajevo." Ratko Mladic, yfirmaður hers Bosníu-Serba, sagði í gær að engin serbnesk stórskotavopn yrðu flutt frá hlíðum fjalianna við Sarajevo. Rado- van Karadzic, leiðtogi Bosníu-Serba, sagði hins vegar að einhver vopnanna kynnu að verða flutt þaðan. Hann kvaðst ekki búast við frekari átökum við bosnísku höfuðborgina og sagði að Serbar gætu notað vopnin í varn- arskyni annars staðar. Bandaríkjastjórn sagði ekkert hæft í fréttum um að ágreiningur hefði komið upp milli embættis- manna NATO og Sameinuðu þjóð- anna um túlkun úrslitakostanna sem Serbum voru settir. Stjórnin sagði að gerðar yrðu loftárásir á öll serbn- esk stórskotavopn innan við 20 km frá bosnísku höfuðborginni ef serb- nesku hersveitirnar létu þau ekki af hendi. Áður höfðu embættismenn Reutcr Skálað í Kreml JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, og Borís Jeltsín Rússlands- forseti skála í Kreml eftir að þeir undirrituðu samkomulag um að ríkin hættu að beina kjarnaflaugum sinum hvort gegn öðru. Sameinuðu þjóðanna gefið til kynna að friðargæsluliðarnir þyrftu ekki að taka við vopnunum, nægilegt væri að fylgjast með þeim úr fjai'lægð. Sjá „Major reynir að sefa Rússa ...“ á bls. 21.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.