Morgunblaðið - 16.02.1994, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.02.1994, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994 3 Asókn í byggingalóðir í Reykjavík Lóðum úthlutað undir 137 íbúðir GENGIÐ var frá úthlutun á lóðum undir 137 íbúðir á fundi borgar- ráðs í gær. Þar af voru 115 íbúðir í síðasta áfanga í Engjahverfi en lóðirnar voru auglýstar í dagblöðum á laugardag. Að sögn Ág- ústs Jónssonar skrifstofustjóra borgarverkfræðings, var biðröð þeg- ar skrifstofan opnaði á mánudag. „Það er ríkir engin svartsýni mið- að við þessa ásókn,“ sagði hann. Vaktstjóri Læknavaktar segir blóraböggla ekki leitað Tiltekið mál verður skoðað ofan í kjölinn VAKTSTJORI Læknavaktarinnar, Magnús R. Jónasson, segir áð farið verði ofan í saumana á máli því sem Guðrún Guðlaugsdóttir blaðamaður skýrði frá í Morgunblaðinu í gær. Þar kom fram að Guðrún hefði sjálf þurft að fara með son sinn á Slysadeild um miðja nótt þrátt fyrir að hafa ítrekað leitað á náðir hjúkrunarfræð- ings og læknis Læknavaktarinnar að kvöldi 10. febrúar sl. Magnús segir að ekki verði reynt að finna blóraböggul en kannað verði hvort eitthvað reynist athugavert við starfsreglur Læknavaktarinn- ar. Aðspurður hvort til greina kæmi að ekki væri alltaf hlustað á fólk sem hringdi að leita aðstoðar sagði Magnús að það yrði kannað. „Það voru mjög góð viðbrögð við þessum lóðum,“ sagði Ágúst. „í síð- asta áfanga Engjahverfis eru 125 íbúðir og þar af fara 115 á fyrsta degi.“ Af þessum 125 íbúðum eru 86 í fjölbýlishúsum, 10 í einbýlishús- um og 19 í raðhúsum. Auk þess var úthiutað íbúðum í hverfum sem þeg- ar er búið að úthluta úr og þar var ein fjölbýlishúsalóð með 10 íbúðum og 12 íbúðir í raðhúsum. Ásókn í ný hverfi Ágúst sagði að ásókn í lóðir væri oft mikil þegar fyrstu lóðum er út- hlutað í nýjum hverfum, sérstaklega þegar fjölbýlishúsalóðir eiga í hlut. Lágmarks gatnagerðargjald fyrir 600 rúmmetra einbýlishús er 1.663.000 krónur. Fyrir raðhúsi er miðað við 500 rúmmetra íbúð og er lámarksgjald um 891.000 krónur fyrir hveija íbúð og í fjölbýlishúsi er miðað við 300 rúmmetra íbúð og er lágmarksgjald 237.500 krónur. Greiðsluskilmálar Innan mánaðar frá úthlutun ber að greiða 10% af gatnagerðargjaldi, 30% eftir 6 mánuði, önnur 30% eftir Sex millj. til lýðveld- isafmælis RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær tillögu Ólafs G. Einarssonar menntamálaráðherra um 6 milij- óna króna aukafjárveitingu vegna menningarkynninga erlendis í til- efni lýðveldisafmælis íslendinga. Ólafur segir að sendiráðum Is- lands erlendis hafí borist fjölmargar umsóknir frá íslendingafélögum og ýmsum öðrum félögum sem vilji halda tengsium við Island. Þau vilji gjarnan minnast 50 ára afmælis lýð- veldisins íslands erlendis með því að fá listamenn héðan að heiman til þess að flytja sína list. Ólafur segir menntamálaráðu- neytið styrkja slíka starfsemi á hveiju ári en í ár hafi orðið vart við verulega aukningu vegna lýðveldis- afmælisins. Því hafi hann lagt fram tillögu um aukafjárveitingu, 5 millj- ónir, til viðbótar þeim 6 sem mennta- málaráðuneytið hafði ætlað að veija til þessa málaflokks á árinu. Alls verði því um 11 milljónum varið til viðfangsefnisins á árinu. Ólafur segir að fjármununum verði dreift í samvinnu við sendiráðin og umsóknir hafi flestar borist frá Norð- urlöndunum, Þýskalandi, Bretlandi og Vesturheimi. ------» ♦ ♦------ Skipaður • setudómari Dómsmálaráðherra hefur skip- að Sigurmar K. Albertsson hæsta- réttarlögmann til að vera setu- dómari í máli því sem Geir Waage formaður Prestafélags Islands hefur höfðað gegn ríkisvaldinu til þess að hnekkja bráðabirgðalög- um ríkisstjórnarinnar á úrskurð kjaradóms frá því sumarið 1992. Búast má við að Sigurmar tilnefni með sér meðdómendur til þess að fjalla um málið. Þeir meðdómendur mega ekki koma úr röðumdómenda í landinu en sem kunnugt er hafa allir héraðsdómarar í Reykjavík úr- skurðað sig vanhæfa frá málinu. 12 mánuði og loks 30% eftir 18 mánuði. Sagði Ágúst að þessir breyttu greiðsluskilmálar hefðu haft mikil áhrif á úthlutun lóða í borginni en þeir voru teknir upp 18. ágúst 1992. „Á síðasta ári var úthlutað lóðum undir 350 íbúðir og árið í ár bytjar vel,“ sagði Ágúst. Úthlutun á árinu Langt er komið með skipulagnignu í Borgarhverfi, að sögn Ágústs, og mun hverfið koma til úthlutunar að hluta til í vor. Þá er verið að vinna að skipulagi í Víkurhverfi, þar sem gert er ráð fyrir á annað hundrað Lóðir renna út LÓÐUM undir 115 íbúðir hefur verið úthlutað í síðasta áfanga í Engjahverfi. íbúðum. Hafa samtök bygginga- meistar Qg byggingafyritækja fengið fyrirheit um lóðirnar og munu þær koma til úthlutunar á þessu ári. Áuk þess er gert ráð fyrir byggingu um 50 íbúða á lóð Eimskipafélagsins við Borgartún á árinu. „Við munum að sjálfsögðu skoða þetta mál ofan í kjölinn. Ég er búinn að kanna hveijir voru á vakt þetta kvöld. Við sem stöndum að Læknavaktinni munum að sjálf- sögðu ræða bæði við hjúkrunar- fræðinginn sem var á vakt og vakt- lækninn, sem síðan hringdi í augn- lækni. Ætlunin er ekki að kanna þetta til þess að finna sökudóiga heldur fyrst og fremst til þess að skoða hvort við þurfum að breyta okkar vinnureglum. Ég vil að fram komi að á Læknavaktinni eigum við um 20 þúsund samskipti á ári, það er komur til okkar og vitjanir. Það fer aldrei hjá því að þegar svo mikið er umleikis fer ekki alltaf allt sem skyldi. Við erum öll mann- leg og ekki hægt að ætlast til þess að allir séu fullkomnir. Við fáum athugasemdir á hveiju ári og okk- ur finnst þær ekki margar miðað við fjölda tilfella sem til okkar koma,“ sagði Magnús. rfri'yiYrwfaTO % Iiiilii'JiiiJíiftifc A er hefðbundinn fjáröflunardagur Rauða kross deildanna. A hverju ári síðan 1925 hafa börn og unglingar aðstoðað Rauða krossinn við landssöfnun þennan dag. I ár bjóða sölubörnin áletraða penna til sölu sem kosta 200 krónur og stendur salan fram að næstu helgi. Fénu sem safnast er varið til mannúðar- og þjóðþrifamála á vegum Rauða kross deildanna sem eru 50 talsins. Við hvetjum alla landsmenn til að taka vel á rnóti sölubörnunum og styrkja þannig innanlandsstarf Rauða kross Islands á sjötugasta afmælisári hans. + Rauði kross Islands Rauöarárstíg 18,105 Reykjavík, sími 91-626722 Sölubörti athugið: Afhending penna fer fram í öllum félagsmiðstöðum í Reykjavík, hjá URKI R Þingholtsstræti 3, félagsmiðstöðinni Vitanum Hafnarfirði og Bólinu í Mosfellsbæ. c/m

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.