Morgunblaðið - 16.02.1994, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994
Síldarverksmiðjur ríkisins á Seyðisfirði
6000 tonna við-
bótarþróarrými
SÍLDARVERKSMIÐJUR ríkisins á Seyðisfirði hafa tekið á
leigu hráefnisgeymslur Hafsíldar, sem nú eru í eigu Byggða-
stofnunar, alls um 6.000 tonna rými. Geymslurnar verða notað-
ar fyrir rotvarða loðnu sem unnin verður í lok loðnuvertíðar.
Á Siglufirði er eingöngu bræðsla
því höfnin liggur svo langt frá mið- _
unum að loðnan geymist ekki nógu
lengi til að hægt sé að frysta hana
þegar komið er til hafnar. Verk-
smiðjan á Seyðisfirði tekur á móti
loðnu fyrir frystihúsin á staðnum
og fer hún í gegnum flokkunarvélar
sem SR og frystihúsin eiga í samein-
ingu. Þar er hrygnan flokkuð frá
og fer hún til frystingar. Þetta spar-
ar frystihúsunum mikla vinnu, þau
geta tekið við hrygnunni og sett
hana beint í öskjur til frystingar.
Að sögn Gunnars Sverrissonar,
verksmiðjustjóra SR á Seyðisfirði,
hefur þetta fyrirkomulag gefist vel
og er til mikils hagræðis fyrir frysti-
húsin. Að sögn Gunnars lengir við-
bótarrýmið vinnslutímann og mögu-
legt verður að taka örar inn loðnu
fyrir frystihúsin.
Þórður Jónsson, rekstrarstjóri hjá
SR, sagði að sum skipanna sem
færu norður með síld til Raufarhafn-
ar og Siglufjarðar kæmu við í höfn-
um á Austfjörðum og iosuðu þetta
eitt til tvöhundruð tonn af loðnu og
færu með restina í bræðslu. Mun
hærra verð fæst fyrir ioðnu sem fer
í fiystingu en sem fer í bræðslu.
Þórður sagði að loðnan hefði jákvæð
áhrif á atvinnuástandið, fólk hefði
m.a. komið ofan áf Héraði tii að
vinna í loðnuvinnslu á fjörðunum.
Þórður Andersen, verksmiðju-
stjóri á Siglufirði, sagði loðnuvinnsl-
una gera heilmikið fyrir bæinn, hann
íifnaði allur við og hefði t.d. fækkað
um 20 á atvinnuleysisskrá vegna
þeir-ra sem fóru til starfa í verksmiðj-
unni. Þórður sagði menn ánægða
yfír þessu og þeir vonuðust til að
vinnsla héldist sem lengst, helst út
marsmánuð.
Vfi VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti vsður Akureyri +1 akýjað Reykjavík 1 snjókoma
Bergen 1 léttskýjað
Helsinki +2 skýjað
Keupmannahöfn +1 léttskýjað
Narssarssuaq +26 heiðskírt
Nuuk +14 skýjað
Osló +10 léttskýjað
Stokkhólmur léttskýjað
Þórshöfn 4 skýjað
Algarve • 10 þrumuveður
Amsterdam 1 skýjað
Barceiona 15 léttskýjað
Berlín +2' heiðskírt
Chicago +1 heiðskírt
Feneyjar 1 léttskýjað
Frankfurt 0 skýjað
Glasgow 2 snjókoma
Hamborg +12 heiðskirt
London 2 alskýjað
LosAngeles 9 skýjað
Lúxemborg +2 skýjað
Madríd 7 skýjað
Malaga vantar
Mallorca 15 léttskýjað
Montreal +18 léttskýjað
New York +8 léttskýjað
Orlando 11 léttskýjað
París 7 skýjað
Madeira 14 skúr
Róm 8 þokumóða
Vfn +4 helðskírt
Washlngton +2 þokumóða
Winnipeg +17 léttskýjað
Morgunblaðið/Snorri Aðalsteinsson
Loðnufrysting
SKIPVERJAR á Brettingi vinna við loðnufrystingu um borð.
Frystitogarar sækja
í loðnufrystingiina
TVEIR frystitogarar, Brettingur og Andey, liggja nú bundnir við
bryggju á Höfn og frysta loðnu. Ágúst Sigurðsson, framleiðslustjóri
hjá Borgey hf. á Höfn, segir að allt að tíu skip hafi sóst eftir hráefni
til frystingar á Höfn.
Ágúst sagði að Andey og Brett-
ingur hefðu keypt flokkaða loðnu
af Borgey, Brettingur um 60 tonn
og Andey um 40 tonn. Togararnir
voru þó verkefnalausir sl. mánudag
þar sem bræla var á loðnumiðunum,
en úr hefur ræst á ný.
Ágúst sagði að það færi alveg
eftir veiðinni hvort togararnir
fengju meira hráefni. Borgey hefur
fryst 600 tonn frá því loðnufrysting
hófst og í samræmi við allar áætlan-
ir. Fyrirtækið stefnir að því að
frysta a.m.k. 800 tonn á vertíðinni.
Helgi Jónsson, háseti á Brett-
ingi, sagði að með því að grípa inn
í loðnufrystinguna treini frystitog-
ararnir sér kvótann eitthvað lengur
fram eftir ári en góður markaður
er fyrir frysta loðnu í Japan. Þessa
stundina hefðu menn lítið fyrir
stafni en til stæði að hefja undir-
búning að frystingu smáloðnu á
meðan framboð af hráefni væri svo
lítið. Húnaröst kom á mánudag til
Hafnar með um 300 tonn af loðnu
en búist var við að mest af aflanum
færi til fiskvinnsluhúsanna.
Með metafla að landi
og beint í frystingu
Akranesi.
FRYSTITOGARINN Höfrungur III kom til heimahafnar á sunnudag-
inn eftir mánaðarveiðiferð og var aflaverðmæti skipsins tæpar sextíu
milljónir króna. Nokkrum stundum síðar var hafin loðnufrysting í
skipinu við hafnarbakkann og unnu skipverjar á vöktum og í fyrstu
lotunni sem stóð til hádegis á mánudag náðu þeir að frysta um 20 tonn.
Það er óhætt að segja að mikið
líf sé í fiskiðnaðinum þessa dagana
á Akranesi og lætur nærri að sjó-
mennirnir hafi á síðustu dögum fært
að landi afla að verðmæti um eitt
hundrað milljónir króna. Hjá Haraldi
Böðvarssyni hf. á Akranesi hefur
verið unnið jöfnum höndum við
frystingu hefðbundinna tegunda auk
loðnunnar og er hafin starfræksla í
frystihúsi Hafarnarins hf. sem þeir
fyrrnefndu hafa nú á leigu. Þar
starfa nú um 30 manns og lælur
nærri að skapist ný störf fyrir 60
manns í bænum með tilkomu loðnu-
frystingar og kemur það sér vel,
enda mikið atvinnuleysi háð fólki á
Akranesi að undanförnu.
í tilraunaskyni
Haraldur Sturlaugsson, fram-
kvæmdastjóri HB hf., segir að fyrir-
tækið sé vel búið til að taka upp
loðnufrystingu til jafns við frystingu
annarra tegunda og frysting loðnu
í frystitogaranum Höfrungi III sé
gerð í tilraunaskyni.
„Siglingatími á loðnumiðin er enn
það langur að ekki er kominn neinn
kraftur í frystingu hennar hjá okk-
ur,“ sagði Haraldur og aðspurður
sagði hann það ekki enn ákveðið
hvort um frekari loðnufrystingu yrði
að ræða um borð í togaranum.
- J.G.
Símabilun skýtur upp kollinum á ný
Samband rofnaði við
22 þúsund símanúmer
TUTTUGU og tvö þúsund símanúmer í Reykjavík voru sambands-
laus í um 15 mínútur í gærdag, vegna spennutruflunar í stafrænu
símstöðinni í Landsímahúsinu. Þorvarður Jónsson, framkvæmda-
stjóri fjarskiptasviðs Pósts og sima, segir að stöðin hafi verið til friðs
í tvo mánuði, eftir að skipt var um jarðnet hússins, en nú hefðu
sömu vandræði skotið upp kollinum og í nóvember og desember á
síðasta ári.
„Þegar bilanir voru sem tíðastar
í fyrra, í nóvember og byrjun des-
ember, mældum við spennutruflanir
frá jarðtengingu hússins," segir
Þorvarður. „Við endurbættum allt
jarðnetið og stöðin var til friðs í tvo
mánuði, eða þar til á mánudag,
þegar þessi númer voru sambands-
laus í 12-15 mínútur og það endur-
tók sig í 15 mínútur í gær. Við
verðum því að byrja upp á nýtt og
vona að okkur takist að einangra
þessa bilun og lagfæra hana. Við
munum hafa samstarf við Raf-
magnsveitu Reykjavíkur og endur-
bæta rafkerfi Landsímahússins.“
Neyðarnúmer í lagi
Þau 22 þúsund númer, sem sam-
band rofnaði við í gær og fyrradag,
byrja á 61 og 62 og örfá á 69.
„Símanúmer lögreglu og slökkviliðs
er tengt við þessa stöð, en neyðar-
númerið 0112 vinnur óháð henni
og var í fullkomnu lagi,“ segir Þor-
varður Jónsson.