Morgunblaðið - 16.02.1994, Síða 16

Morgunblaðið - 16.02.1994, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994 Utanríkisviðskipti Gerð samningsins gæti tekið 2-3 ár - segir utanríkisráðherra um fríverslunarsamning við Bandaríkin verður væntanlega í haust. Það er ekki mikill viðskiptalegur hvati fyrir bandarísk stjórnvöld að gera slíkan samning við ísland. Það er ekki eft- ir miklu að slægjast á þessum dvergsmáa markaði. Hins vegar má ætla að í kjölfar nýlegrar endumýj- unar á löngu og farsælu varnarsam- starfi þessara þjóða sé engu að síð- ur jákvæður pólitískur vilji til þess,“ sagði Jón Baldvin. við ákvörðun löggjafa - segir skattstjóri um meint misræmi í skattalögum Skattar Framkvæmd miðast STARFSHÓPUR sem ríkisstjórnin skipaði árið 1992 til að kanna kosti við gerð fríverslunarsamnings við Bandaríkin mun væntanlega skila niðurstöðum sínum í þessum mánuði. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi á mánudag að þegar Bandaríkjaþing hefði afgreitt lagasetningu vegna fríversl- unarsamnings Norður Ameríkurílqa (NAFTA) í haust, muni á það reyna hvort af fríverslunarsamningi milli íslands og Bandaríkjanna getur orðið. Hann sagði jafnframt að undirbúningur og gerð slíks samnings gæti tekið 2 til 3 ár miðað við reynsluna af gerð EES-samn- ingsins í svari_ utanríkisráðherra við fyr- irspum Áma R. Árnasonar Sjálf- stæðisflokki kom fram að árið 1992 skipaði ríkisstjórnin starfshóp til að gera forkönnun á gerð fríverslunar- samnings við Bandaríkin. í bráða- þirgðaskýrslu hópsins á seinasta ári var slíkur samningur talinn vænleg- ur kostur fyrir ísland og að aðild að NAFTA kæmi einnig til álita, en NAFTA-samningurinn er opinn öðmm ríkjum. Jákvæður pólitískur vilji „Er ráðgert að starfshópurinn skili endanlegum niðurstöðum sín- um í þessum mánuði. í kjölfarið reikna ég með að ríkisstjórnin taki afstöðu til málsins. Eftir er að láta reyna á hvort Bandaríkin em reiðu- búin til viðræðna um gerð fríversl- unarsamnings. Ég reikna ekki með að það geti orðið fyrr eftir að Banda- ríkjaþing hefur afgreitt nauðsynleg- ar lagabreytingar vegna GATT, sem Sjávarútvegur ENDURNYJUN — Endurnýjun stendur nú yfir á sjónvarps- tækjum á öllum herbergjum Hótels Sögu og fékk hótelið nýlega af- hent 220 tæki af gerðinni SABA frá Radiobúðinni. Á meðfylgjandi mynd sjást þeir Úlfar Marinósson og Konráð Guðmundsson, frá Hót- el Sögu taka við gámi með tækjunum frá Óla Laxdal hjá Radiobúð- inni hf. Hafnarfell kaupir húsHvaleyrar HAFNARFELL hf. fyrirtæki í eigu Jóns Guðmundssonar, forsljóra Sjólaskipa hf. í Hafnarfirði, hefur nú fest kaup á húsi Hvaleyrar hf. við Hafnarfjarðarhöfn af íslandsbanka. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun kaupverð og kostnaður við lagfæringar á húsinu verða nálægt 100 milljónum króna, en það er alls 5.000 fermetrar að stærð. Jón Guðmundsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að ekki væri ætlunin að heija fiskvinnslu í húsinu á ný, hvað sem verða kynni. „Hér er hins vegar skortur á frysti- geymslum og því verður byijað á því að gangsetja frystiklefa húss- ins. Hluti af húsinu er þegar í leigu, en auk þess verður einhver starf- semi hafín þama á ný. Þannig ættu að skapast mörg, þegar starfsemi verður hafín í húsinu, enda ætti að vera hægt að reka starfsemi tengda sjávarútvegi í húsi á hafnarbakkan- um,“ segir Jón Guðmundsson. Egyptaland Rlabeinsströndin Ghana Kamerún Marokkó Siena Leone Túnis Zimbabwe Ástraiia Puerto Rico Perú msmnk Hin alþjóðlega STARFAMIÐLUN AIESEC (Alþjóðleg samtök viðskipta- og hagfræðinema) Aðgangur að með £ dS ★ ódýru vinnuafli ★ vel menntuðum og metnaðargjörnum einstaklingum ★ aþjóðlegan viðskiptahugsunargang ★ fjölþjóða tungumálakunnáttu fyrir & > cz tz 1 «5" 55' f 3- 3- 3 ★ skammtíma verkefni, ★ ýmis sérverkefni og alþjóðlega aðstoð Þitt fyrirtæki setur upp allar þær kröfur, sem starfskrafturinn þarf að uppfylla og gefur upp það tímabil sem hentar best (6-78 vikur). AIESEC sér um að útvega húsnæði og tilskilin leyfi. Nánari upplýsingar á skrifstofu AIESEC, Bjarkargötu 6, simi 29932, tax 627173. 1 Filippseyjar Hong Kong Indland Indónesía Japan Nýja Sjáland Malasía Papua New Guinea Bretland Perú GESTUR Steinþórsson, skatt- sljóri í Reykjavík, segir að sú túlk- un og framkvæmd skattalaga. að ekki gildi sömu heimildir um móttekna dagpeninga fyrir aðila í einkarekstri og launþega í fyrir- tæki, eins og greint var frá í Morgunblaðinu, hafi tíðkast frá því að lögin voru sett á Alþingi árið 1981, auk þess að vera stað- fest af yfirskattanefnd og ríkis- skattanefnd. Lögfræðingur Versl- unarráðs íslands telur lögin dæmi um ójafnræði í skattalögum sem mismuni einstaklingum. „Fram- kvæmd skattayfirvalda byggist á ákvörðun löggjafa. Aðili í einka- rekstri verður að bóka kostnað sinn af t.d. ferðalögum sem er nauðsynlegur til öflunar tekna í samræmi við lögin, ekki sem dag- peninga heldur sem útlagðan kostnað vegna rekstrar og þá getur vel verið að það komi fram sem frádráttur frá rekstrartekj- um eins og alls konar annar reksttarkostnaður sem til þessa fellur,“ segir Gestur. „Ég get ekki séð að þetta þurfi að valda ójafnfræði með mönnum, ef viðkomandi aðiii er með sannan- legan kostnað sem tengist þessum rekstri hans. Þetta getur komið ná- kvæmlega eins út ef kostnaðurinn sem hann hefur af sínu ferðalagi er jafnhár eða á svipuðu róli og dagpen- ingagreiðsia hefði verið,“ segir Gest- ur. Aðspurður um þá gagnrýni sem fram hefur komið að skattayfirvöld hafi á seinustu tveimur árum þrengt verulega heimildir fyrirtækja og ein- staklinga til að draga frá liði sem hafa lengst af þótt eðlilegir, kveðst hann ekki telja að túlkanir á skatta- lögum hafi breyst. Hins vegar sé það alveg .rétt að verulegar breytingar hafi orðið á heimildum launþega til þess að draga frá tekjum sínum og hafi þær orðið við upptöku stað- greiðslu. „Þá var gerð lagabreyting, beinlínis til þess að einfalda fram- kvæmd starfsins og voru heimildir markvisst teknar úr lögunum í því skyni,“ segir Gestur. SAMSTARFSSAMNINGUR — Fyrirtækin Ellingsen hf. í Reylq'avík og Netagerðin Ingólfur í Vestmannaeyjum hafa gert með sér samstarfssamning. Hann felur í sér að Netagerðin Ingólfur tekur að sér umboðssölu fyrir Scanrope togvíra og snurpuvíra, Fram- stálkeðjur og mun að auki bjóða vörur frá Ellingsen í verzlun sinni í Vestmannaeyjum. í framhaldi af því mun netagerðin Ingólfur stækka verzlun sína og auka vöruúrval. Ellingsen hf. tekur að sér sölu á Swan Net flottrollum og veiðarfærum, Perfect-toghlerum og allri framleiðslu inlegum innkaupum erlendis og innan lands geta fyrirtækin boðið vörur sínar á hagstæðu verði. Það voru Birkir Agnarsson og Óttar Ellingss- en, sem undirrituðu samstarfsamninginn fyrir hönd fyrirtækjanna. HÁSKÓLI ISLANDS ENDURMENNTUNARSTOFNUN Stefnumótun fyrirtækja Efni: Fjallað um hvernig skipuleg mótun á framtíð- arstefnu í rekstri kemur fyrirtækjum að notum. Rýnt í aðferðir og vinnuferli við stefnumótun. Einnig fjallað um markmiðasetningu og hvernig hægt er að skoða innri rekstur og rekstrarum- hverfi fyrirtækis á kerfisbundinn hátt, m.a. með það að markmiði að tryggja að árangursmarkmið náist. Leiðbeinandi: Jóhann Magnússon, rekstrarráðgjafi hjá Stuðli hf. Tími:21. febrúarkl. 10.00-16.00. Yerð: 6.800 kr. Skráning í síma 694940. Fax 694080. Upplýsingasímar 694923, -24 og -25.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.