Morgunblaðið - 16.02.1994, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRUAR 1994
17
Atvinnuleysi í nóv. 1993 ti janúar 1994
Hlutfall atvinnulausra af heildarvinnuafli.
Á höfuðborgarsvæðinu standa
4.249 atvinnulausir á bak við
töluna 5,5% í janúar og fjölg-
aði um 201 frá því í desember.
Alls voru 9.515 atvinnu-
lausir á landinu öllu í
janúar og hefur
fjölgað um 1.469
frá því í desember.
N D j
N D J
N D J
Fjölmiðlun
Viacom hlutskarpast
í Paramount-stríðinu
Grófa
beyglan
er
tilbúin!
Grófu beyglurnar eru komnar á
markaöinn, svo aö nú geturöu valiö
um þrjár geröir af beyglum frá
Samsölubakaríi: Fínar, grófar og
beyglur meö kanil og rúsínum.
Taktu grófa beyglu úr frystinum,
kipptu henni í sundur, ristaöu hana,
skreyttu meö áleggi og hún er
tilbúin og alveg ómótstœöileg!
Ný, ennþá fullkomnari skuröarvél
tryggir aö beyglurnar eru jafnt
skornar og því er nú léttara ab
losa frosnar beyglur í sundur.
New York (Reuter)
BARATTUNNI um kaupin á fjölmiðlarisanum Paramount Communic-
ations í New York lauk í gær þegar kapalsjónvarps- og útvarpsfyrir-
tækið Viacom tryggði sér yfirráðin með tilboði í 75% hlutafjár Para-
mount. Tilkynning Viacom markar endalok mestu baráttu um kaup
á fyrirtækjum í Bandaríkjunum á þessum áratug.
Að sögn Viacom höfðu hluthafar
Paramount samþykkt tilboð í 91,7
milljónir hlutabréfa eða 74,6 af
hundraði þegar frestur til þess að
skila tilboðum rann út á miðnætti
á mánudag að staðartíma. Aðeins
50,1% hlutafjár nægði til sigurs í
baráttunni um Paramount, sem á
kvikmyndafélagið Paramount Pict-
ures, forlagið Simon & Schuster,
hafnaboltaliðið New York Knicks
og ísknattleiksliðið New York
Rangers.
Slagurinn um Paramount hófst
fyrir fimm mánuðum og þar leiddu
saman hesta sína stjórnarformaður
Paramount, Martin Davis, og Barry
Diller, forstöðumaður innkauparás-
arinnar QVC Network í West Chest-
er í Pennsylvaníu, sem lét af störf-
um hjá Paramount eftir harðar deil-
ur fyrir áratug og bauð einnig í
fyrirtækið.
„Við erum sannfærðir um að sam-
steypa Viacom, Paramount og
Blockbuster verði óviðjafnanlegur
fjölmiðlaaflvaki á heimsmælikvarða
í skemmtanaiðnaðinum," sagði
Sumner Redstone, stjórnarformað-
ur Viacom, þegar sigurinn var í
höfn.
Viacom hefur einnig samþykkt
að sameinast myndbandasölu-fyrir-
tækinu Blockbuster Entertainment
í Fort Lauderdale á Florida, sem
er þekkt fyrir myndbandaleigur víðs
vegar í Bandaríkjunum.
Að sögn Viacom verður QVC
Network að draga tilboð sitt til
baka þegar skýqþ verður opinber-
lega frá sigri Viacoms. QVC til-
kynnti á sunnudaginn að tilboð þess
yrði ekki hækkað. Þá var talið að
Diller stjórnarformaður væri að
íhuga nýtt tilboð, ef hvorugt fyrir-
tækið fengi nógu mörg hlutabréf
til þess að tryggja sér sigur daginn
eftir. Sérfræðingar höfðu spáð því
að Viacom mundi tryggja sér nógu
mörg hlutabréf í Paramount til þess
að sigra í baráttunni.
Viacom bauð peninga og hlutafé
sem sérfræðingar mátu á að
minnsta kosti 9,5 milljarða dollara.
Sams konar lokaboð QVC var met-
ið á 8,9 milljarða dollara.
Kauphallaviðskiptamenn áttu
30-50% hlutafjár Paramount og
kváðust styðja tilboð Viacom því
að þar væri gert ráð- fyrir meiri
peningum og lofað að verðgildi
Viacom-hlutafjár í samningnum
yrði tryggt.
Fresturinn til að skila útboðunum
rann út eftir viðburðaríka viku, sem
virtist sýna að QVC væri að reyna
að leita leiða til þess að hækka til-
boð sitt í Paramount og komast hjá
ósigri. Tilkynning QVC á sunnudag
reyndist veikleikamerki og upphafið
að endalokunum.
- bakar brauðið þitt!