Morgunblaðið - 16.02.1994, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 16.02.1994, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994 AKUREYRI Könnun á hög’um at- vinnulausra MIÐSTÖÐ fólks í atvinnuleit verður með opið hús í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju í dag, miðvikudag, frá kl. 15 til 18. Þuríður Sigurðardóttir félags- ráðgjafi kynnir niðurstöðu könn- unar sem nýlega var gerð að til- hlutan félagsmálaráðs og atvinnu- málanefndar á högum atvinnu- lauss fólks á Akureyri. Þá verður tónlistaratriði og Friðrik Vagn Guðjónsson heilsu- gæslulæknir mun sjá til þess að viðstaddir komi blóðinu á hreyf- ingu. Veitingar verða á boðstólum og ýmsar upplýsingar og dagblöð liggja frammi. ■ MESSA verður í Kaþólsku kirkjunni við Eyrarlandsveg 26 á Akureyri í dag, miðvikudaginn 16. febrúar, kl. 18. Messa verður í kirkjunni á sama tíma fimmtu- dag, föstudag og laugardag. ### _ 9 Morgunblaðið/Rúnar Þór Saltkjot og baumr MARGIR notuðu tækifærið í gær, á sprengidaginn, og gæddu sér á saltkjöti og baunum. Félagamir Guðmund- ur Jónasson og Jónas Pálsson iögðu leið sína á Súlnaberg í þessu skyni og hafa eflaust orðið sprengsaddir. Bæjarstjórn samþykkir frumvarp að nauðasamningum Odda Landsbanki Islands mun eignast allt fyrirtækið 40-50 starfsmenn ekki endurráðnir og bærinn tapar um 70 milljónum króna AKUREYRARBÆR tapar rúmlega 70 milljónum í kjölfar þeirra að- gerða sem gripið verður til við endurreisn fjárhags Slippstöðvarinnar- Odda hf. Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti í gær tillögu um að frum- varp að nauðasamningum sem fyrirtækið ætlar að gera við lánar- drottna sína verði samþykkt, en í frumvarpinu er gert ráð fyrir að greidd verði 30% af hærri kröfum en 50 þúsund krónum. Landsbanki Islands eignast Slippstöðina-Odda að loknum aðgerðum, en bankinn mun ieggja 10 milljónir króha í fyrirtækið. Um 40-50 starfsmenn fyrir- tækisins verða ekki endurráðnir, en þeir eru alls um 160 talsins nú. Á fundi bæjarstjómar Akureyrar í gær lagði Haildór Jónsson bæjar- stjóri fram tillögur þess efnis að frumvarp að nauðasamningum sem Slippstöðin-Oddi hefur nú sent lán- ardrottnum sínum, alls um 300 aðil- um verði samþykkt, að því tilskyldu að þær kröfur sem fyrirtækið hefur stofnað til á greiðslustöðvunartím- anum falli utan nauðasamninganna. í frumvarpinu býðst fyrirtækið til að greiða að fullu kröfur undir 50 Greiðsluáskorun Sýslumaðurinn á Akureyri skorar hér með á gjaldend- ur, sem ekki hafa staðið skil á gjöldum, sem voru álögð 1993, og féllu í gjalddaga til og með 15. jan- úar 1994 og eru til innheimtu hjá ofangreindum inn- heimtumanni ríkissjóðs, að greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan 15 daga frá dagsetningu áskorun- ar þessarar. Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur og tekjuskattshækk- un, virðisaukaskattur fyrir nóvember og desember ásamt virðisaukaskattshækkunum vegna fyrri tíma- bila, staðgreiðsla og tryggingagjald fyrir desember og janúar. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir van- goldnum eftirstöðvum gjaldanna að liðnum 15 dög- um frá birtingu áskorunar þessarar. Athygli er vakin á því, að auk óþæginda hefur fjár- námsaðgerð í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að kr. 10.000 fyrir hverja gerð. Þinglýsingargjald er kr. 1.000 og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Jafnframt mega þeir, sem skulda virðis- aukaskatt, staðgreiðslu og tryggingagjald, búast við að starfsstöð verði innsigluð nú þegar. Akureyri, 15. febrúar 1994. Sýslumaðurinn á Akureyri. þúsund krónum, en þeir sem eiga hærri kröfur en 50 þúsund fái 30% þeirra greidd, 10% fjárhæðarinnar verða greidd strax en afgangurinn á 5 árum. Jafnframt er gert ráð fyrir að núverandi hluthafar færi hlutafé sitt niður um 99%. Viðbrögð lánardrottna við nauðasamningaum- leitunum Slippstöðvarinnar-Odda hafa verið jákvæð, að sögn Knúts Karlssonar stjómarformanns. 680 þúsund eftir í máli Halldórs kom fram að skuldir og ábyrgðir Akureyrarbæjar vegna Slippstöðvarinnar-Odda nemi liðlega 11 milljónum króna, skuld fyrirtækisins við Hafnarsjóð er ypp á tæpar 3 milljónir, ógreiddur eldri arður er upp á 1,8 milljónir, skuld við rafveituna er um 1,1 milljón og við hitaveitu um hálf milljón og þá er bærinn í ábyrgð fyrir láni upp á um 4 milljónir. Hlutafé Fram- kvæmdasjóðs Akureyrar er um 63 milljónir, en að loknum þeim aðgerð- um sem fyrirhugaðar eru standa eftir um 680 þúsund krónur af þeirri upphæð. Landsbanki íslands mun breyta hluta af lánum í hlutafé eða 10 millj- ónum króna og eftirstöðvum verður breytt í víkjandi lán sem mögulegt verður að breyta í hlutafé síðar meir, en í kjölfarið eignast bankinn fyrirtækið. Þá munu Iðnlánasjóður og Iðnþróunarsjóður leysa til sín skrifstofubyggingu fyrirtækisins og léttir það mjög á rekstri þess, að sögn Knúts Karlssonar stjórnar- formanns þess. Hörmulegt Úlfhildur Rögnvaldsdóttir (B) sagði á bæjarstjórnarfundinum að fyrirtækið yrði ekki hið sama og það var áður eftir fyrirhugaðar aðgerðir, það yrði mun minna í kjölfar þess að 40-50 manns myndu missa vinn- una. Jakob Björnsson (B) sagði að staðan væri hörmulegri en tárum tæki, bærinn hefði nú tapað öllu því fé sem sett hefði verið í fyrirtækið við fjárhagslega endurskipulagninu þess í fyrra. Heimir Ingimarsson (G) Sellóleikur í Deiglunni SIGURÐUR Halldórsson sellóleik- ari heldur einleikstónleika í Deiglunni, Grófargili, anriað kvöld, fimmtudagskvöldið 17. febrúar kl. 20.30. Á efnisskránni eru sjö verk, öll samin á síðustu 30 árum, Elegia, eftir Aulis Sallinen, Solitaire eftir Hafliða Hallgrímsson, Just for one, eftir Josep Straesser, Passacaglia eftir William Walton, Út um mel og móa eftir Hilmar Þórðarson, Cello pieces eftir Andries van Rossem og Figura eftir Maarten Altana. Stuðningur í sorg og gleði ELSA Friðfínnsdóttir, hjúkrun- arfræðingur og lektor við Háskólann á Akureyri flytur fyrirlestur á vegum samtaka um sorg og sorgarviðbrögð í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju annað kvöld, fimmtudagskvöldið 17. febrúar kl. 20.30. í fyrirlestri sínum fjallar hún um stuðning í sorg og gleði og eru allir velkomnir á hann. (Fréttatilkynning.) formaður atvinnumálanefndar sagði það ekki í valdi bæjarins að ráða mannahaldi fyrirtækisins eftir að nýir eigendur tækju við því og raun- ar alls óvíst að bærinn ætti mann í stjórn þess eftir aðgerðirnar. Hér eftir væri það fyrst og fremst hlut- verk bæjarins að bjóða upp á góða hafnaraðstöðu til að gera fyrirtækið samkeppnisfærara og að því máli væri nú unnið með athugun á .því að koma upp flotkví við stöðina, en niðurstaða þeirrar könnunar mun liggja fyrir síðar í vikunni. Föstuguðs- þjónusta FÖSTUGUÐSJÓNUSTA verður í Akureyrarkirkju í kvöld, miðvikudagskvöldið 16. febrúar, og hefst hún kl. 20.30. Um árabil hafa sérstakar kvöldguðsþjónustur verið í Ak- ureyrarkirkju á föstunni þar sem lesnir eru og hugleiddir kaflar úr píslarsögunni og sung- ið úr Passíusálmum Hallgríms Péturssonar. Slíkar kvöldstundir verða í kirkjunni næstu 6 vikur eða fram að dimbilviku og verð- ur farið yfir píslarsöguna alla á þessu tímabili. Er þess vænst að safnaðar- fólk notið tækifærið til að hug- leiða og leggja rækt við boðskap kirkjunnar á föstunni. (Úr fréttatilkynningfu.) Límmiðar NÝIR eigendur Vörúmiða hf., Ari og Gísli Karlssynir, við fjögurra lita prentvél fyrirtækisins. Nýir eigendur taka við Vörumiðum BRÆÐURNIR Ari og Gísli Karls- synir hafa keypt húseignir og vél- ar fyrirtækisins HS Vörumiða og breytt heiti þess í Vörumiða hf. Fyrirtækið er rekið á Hamarstíg 25 eins og var fyrir gjaldþrot HS Vörumiða og er lögð áhersla á fagleg vinnubrögð við prentun límmiða. Vörumiðar hafa yfir að ráða fjögurra lita prentvél með innbyggðri fólíó- gyllingu sem er aukalitur og plast- húðun. Þá er einnig þrílita prentvél fyrir minni verkefni. Hægt verður að velja milli ýmissa tegunda af lím- pappír með mismunandi áferð. Vörumiðar hafa umboð fyrir heild- verslunina og innflutningsfyrirtækið Möndul sem flytur inn límbönd, um- búðaöskjur fyrir fiskafurðir og fleira.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.