Morgunblaðið - 16.02.1994, Page 19

Morgunblaðið - 16.02.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994 19 Umræður á Alþingi um kaup á björgunarþyrlu Vinnubrögð ríkissljórnar- innar harðlega gagnrýnd RÍKISSTJÓRNIN var gagnrýnd mjög harðlega í fyrirspurnar- tíma á Alþingi á mánudag fyrir að hafa ekki gengið til samn- inga um kaup á björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna. í svari við fyrirspurn frá Inga Birni Albertssyni Sjálfstæðis- flokki sagðist Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra vænta þess að innan skamms verði hægt að ganga til samninga um kaup á björgunarþyrlu. lngi Björn riljaði upp ummæli forsætis- og dómsmálaráðherra frá síðasta ári um að fljótlega yrði gengið til samninga um kaup á þyrlu en staðhæfði að ríkisstjórnin hefði eingöngu ætlað að draga málið á langinn. „Ríkisstjórnin hef- ur aldrei viljað kaupa þyrlu. Það er málið. Vilji þingsins er skýr og vilji þjóðarinnar er skýr. Ég segi eins og aðrir þetta er hneyksli og ég skammast mín fyrir svona ríkis- stjórn," sagði Ingi Björn við umræð- urnar. Þorsteinn rifjaði upp að í ágúst- mánuði sl. hafi legið fyrir drög að samningi um kaup á notaðri þyrlu. Sagði hann að viðræður við fulltrúa Bandaríkjastjórnar um málefni björgunarsveitar varnarliðsins hefðu haft þau áhrif að dregist hefði að taka afstöðu til samnings- uppkastsins og nú hefði sú þyrla verið seld. Að undanförnu hefði því verið leitað eftir kaupum á annarri sambærilegri þyrlu. Þorsteinn sagði Háskólafyr- irlestur um skoðanir hlustenda á málfari FIL. DR. Áke Jonsson, lektor í sænsku við háskólann í Umeá, flytur opinberan fyrirlestur í boði heimspekideildar Háskóla íslands fimmtudaginn 17. febr- úar kl. 17.15 í stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn nefnist: „Men snalla Sveriges radiol“ og fjallar um skoðanir hlustenda á málfari sænska ríkisútvarpsins. Áke Jonsson varði doktorsritgerð 1978 og bar hún heitið „Den om- sorgsfulle málaren. Studier i Sven Jerrings radiosprák". Á árunum 1981-1991 var hann aðalmálfars- ráðunautur sænska ríkisútvarpsins. Nú stundar hann rannsóknir á kvörtunum almennings um málfar í ljósvakafjölmiðlunum. Fyrirlesturinn verður fluttur á sænsku og er öllum opinn. litinn... DU PONT bílalakk notað af fagmönnum um land allt. Er bíllinn þinn grjótbarinn eða rispaður ? DU PONT lakk á úðabrúsa er meðfærilegt og endingargott. Faxafeni 12. Sími 38 000 að hugsanlegt samstarf við björg- unarsveit varnarliðsins gæti haft áhrif á val björgunarþyrlu en ekk- ert yrði þó dregið úr kröfum um hæfni og búnað hennar. „Móðgun við þing og þjóð“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar sem til máls tóku beindu harðri gagnrýni að ríkisstjóriþnni. Ólafur Þ. Þórðarson sagði vinnubrögð rík- isstjórnarinnar móðgun við þing og þjóð og Steingrímur J. Sigfússon og Guðrún Helgadóttir sögðu að meðferð málsins væri hneyksli og vanvirðing við skýran vilja meiri- hluta Alþingis. • • Oskudagsball í Gerðubergi EINS og undanfarin ár verður haldinn grímudansleikur fyrir börn í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi á öskudaginn, miðvikudaginn 16. febrúar. Dansleikurinn hefst kl. 14 stundvíslega. Hljómsveitin Fjörkarl- ar leika fyrir dansi. Aðgangseyrir er 300 kr. en fullorðnir fá frítt ef þeir eru í fylgd með grímubúnum börnum. Fólk er alltaf að vinna í Gullnámunni: 315 milljomr Frá því að Gullnáman tók til starfa um miðjan desember 1993 hafa þúsundir íslendinga unnið rúmlega 315 milljónir samtals í happdrættisvélum út um allt land. Þetta eru bæði veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öðrum vinningum* Silfurpottar frá byrjun: Staða Gullpottsins kL 13*22,14* febrúar var 5*614*122 krónur* Dags. Staður: Upphæð í kr.: 16. des. Hótel Saga 443.946 17. des. Mónakó 114.952 20. des. Hofsbót, Akureyri 274.753 23. des. Mónakó 254.898 27. des. Rauða Ijónið 132.351 27. des. Háspenna, Laugavegi 80.540 28. des. Háspenna, Hafnarstræti 106.691 1. jan. Ölver 272.941 4. jan. Mamma Rósa, Kópavogi 157.943 5. jan. Hótel Saga 192.876 6. jan. Pizza 67, Hafnarfirði 73.871 9. jan. Rauða Ijónið 216.332 9. jan. Ölver 79.658 11. jan. Háspenna, Laugavegi 106.513 12. jan. Ölver 143.780 14. jan. Háspenna, Laugavegi 178.578 15. jan. Mónakó 66.821 16. jan. Hótel Búðareyri 119.243 18. jan. Háspenna, Laugavegi 153.815 18. jan. Kringlukráin 54.191 21. jan. Mónakó 209.080 22. jan. Hótel Saga 79.685 22. jan. Kaffi Milano 73.149 25. jan. Háspenna, Laugavegi 143.409 26. jan. Hótel Saga 85.298 26. jan. Pizza 67, Hafnarfirði 62.575 30. jan. Flughótelið, Keflavík 262.103 4. feb. Rauða Ijónið 342.772 4. feb. Háspenna, Laugavegi 76.067 4. feb. Ölver 91.279 6. feb. Hótel Búðareyri 137.266 7. feb. Háspenna, Laugavegi 89.814 8. feb. Háspenna, Laugavegi 95.441 8. feb. Háspenna, Laugavegi 73.367 9. feb. Háspenna, Laugavegi 76.833 12. feb. Mamma Rósa, Kópavogi... 232.475 12. feb. Ölver 58.862 Silfurpottarnir byrja alltaf I 50.000 kr. og Gullpottarnir byrja alltaf í 2.000.000 kr. og hækka sföan jafnt og þétt þar til þeir detta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.