Morgunblaðið - 16.02.1994, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 16.02.1994, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994 2 milljónum heitið fyrir Op Munchs ósló. Reuter. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins NORSK yfirvöld buðu í gær 200.000 kr. verðlaun, eða um 2 milljónir ísl. hverjum þeim sem getur gefið upplýsingar sem verða til þess að Ríkislistasafnið í Ósló endurheimtir Óp Edvards Munchs, sem stolið var á laugar- dag. Kvaðst forstöðumaður Ríkislista- safnsins vonast til að peningámir freistuðu þjófanna en berist fjöldi réttra ábendinga, mun lögreglan skera úr um hver fær verðlaunin. Öryggisráðstafanir á Ríkislista- safninu hafa verið hertar mjög eft- ir þjófnaðinn, traustara gler sett í glugga og vörður allan sólarhring- inn við verk Munchs. Mörgum Norð- mönnum þykir þó sú ákvörðun for- stöðumanns safnsins, að flytja verk- ið niður á fyrstu hæð, þar sem ör- yggisráðstafanir voru litlar, með eindæmum og hafa heyrst raddir þess efnis að hann eigi að láta af störfum. jrt'J- 1**11 * i i ^ Reuter Batafolk ottast orlog sm VÍETNAMSKT bátafólk í búðum í Hong Kong er í hungurverkfalli til að mótmæla þeirri ákvörðun alþjóða- ráðstefnu í Genf að vegna betri stjórnarhátta beri að senda bátamenn aftur til heimalandsins. Bátamenn eru því andvígir eins og fram kemur í áletrun á peysum þeirra. Samtök í norskum sjávarútvegi vilja að Frakkar bæti þeim tjón Leiðtogar franskra sjómanna vilja hætta verkfallsaðgerðum París, Ósló. Reuter, frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. LEIÐTOGAR franskra sjómanna hvöttu í gær til þess að verkfallsað- gerðum undanfarinna tveggja vikna verði hætt. Dominique Lapart, formaður neyðarnefndar sjómanna, sagði á fundi með sjómönnum að það væri öllum fyrir bestu að þeir myndu hverfa aftur til vinnu á miðvikudag. Annars væri hætta á að franskur sjávarútvegur í heild sinni myndi bíða gífurlegt Ijón. Hundruð sjómanna voru á fund- inum með Lapart, sem haldinn var í hafnarbænum Le Guilvenec á Bretagne-skaga, og voru margir þeirra mjög ósáttir við niðurstöðu nefndarinnar og sögðu hana jafn- gilda uppgjöf. Fóru margir þeirra af fundinum í fússi og kom ekki til atkvæðagreiðslu um hvort hætta bæri verkfallsaðgerðum. Lapart sagði ekki neina uppgjöf felast í þessu heldur sýndi ákvörðunin þvert á móti að sjómenn væru ábyrgir. Það eru aðallega hásetar á litlum ! I Ný ryksuga frá Miele Margfaldir verðlaunagripir fyrir hönnun og gæði. EIRVIK# Vesturgötu 25,101 Rvk. Sími 91-2 82 10. togurum, sem telja að stjórnvöld hafi ekki komið nægilega til móts við kröfur þeirra. Sjómenn lokuðu fjórum höfnum við Miðjarðarhafsströnd Frakkiands í gær annan daginn í röð og meðal annars lokuðu um 60 togarar hafn- armynninu við borgina Marseille. Norðmenn vilja skaðabætur Nokkur samtök norska sjávarút- vegsins hafa gert kröfu um að frönsk stjórnvöld bæti það tjón sem þau hafi orðið fyrir vegna aðgerða franskra sjómanna. Ráðist hefur verið á norskar flutningabifreiðar í Frakklandi undanfarna viku og töluvert af fiski eyðilagt. Meðal þeirra samtaka, sem krefjast þess að norsk stjórnvöld grípi til að- gerða, er Fiskerinæringens Lands- forening og samtök norskra laxút- flytjenda. Þegar hafa verið settar fram kröfur um að Frakkar fái ekki veiði- heimildir í norskri efnahagslögsögu, líkt og EES-samningurinn gerir ráð fyrir, á meðan aðgerðir franskra sjómanna standa yfir. 11.000 ára mannvist- arleifar í Noregi FUNDUR mannabústaða í Finn- mörku, sem talið er að séu um 11.000 ára gamlir, renna sterkum stoðum undir þá kenningu að fyrstu Norðmennirnir hafi verið veiðimenn frá Kólaskaga og hreindýraveiðimenn frá Norður- sjávarlandinu í suðri, sem nú er undir sjó. í frétt Aftenposten segir að merki um mannabústaði hafí fundist á Magerey í Finnmörku og Rennesey á Rogalandi. Strendur Finnmerkur og Rogalands eru tvær af fjórum hlutum strandlengju Noregs, þar sem ísa leysti um 2-3.000 árum áður en á öðrum hlutum strandarinnar. Samkvæmt aldursgreiningu eru mannvistarleifamar í Magerey 10.280 ára gamlar en um 10.700 ára í Rennesey. Vitað er að byggð var í Karmsund, suður af Stafangri fyrir um 9.500 til 10.000 ámm. Segja norskir vísindamenn að ýmis- legt hafí bent til þess að byggð hefði hafíst í Noregi seint á ísöld, fyrir um 10.000-12.000 áram en sannanir þess hafi skort. Nú vonast vísindamenn jafnvel til þess að finna ummerki um enn eldri byggðir. Norðursjávarlandið Fyrstu veiðimennirnir sem settust að við Jæren fyrir sunnan Rennes- ey, vora frá Norðursjávarlandinu, sem nú liggur 100 metra undir vatni. Það tengdi Danmörku, Þýska- land og Holland við Bretland og um 100 kílómetra breiður fjörður skildi Norðursjávarland og Rogaland í Noregi að. Fundist hafa greinileg merki um samskonar vopn og verkfæri í Jæren og í Norður-Þýskalandi. Talið er að veiðimenn í Þýskalandi hafi tekið sig upp fyrir um 10.000-11.000 árum síðan, í humátt á eftir hópum hreindýra sem fóru að íslausri vesturströndinni, þar sem nú er Stafangur. Telja vísindamennirnir að á veturnar hafi fjörðinn milli Norðursjávarlands og Rogalands og hreindýr og veiðimenn komist yfir þurrum fótum. Fær nauðg- ari 1023 ára dóm? SAKSÓKNARI í Barcelona á Spáni krafðist þess í gær að 35 ára maður verði dæmdur í samtals 1.023 ára fangavist fyrir rúmlega 50 nauðganir. Maðurinn neitar sekt sinni og ber við minnisleysi. Hann lét til skarar skríða gegn fyrsta fórnarlambinu aðeins níu dög- um eftir að hann var látinn laus eftir að hafa setið af sér sjö ára dóm fyrir nauðgun. Koma vodka til bjargar RÚSSNESKA stjórnin ákvað í gær að reyna koma vodkafram- leiðslunni til bjargar með því að lækka skatta á rússnesku vodka. Sömuleiðis verða gjöld á innfluttu vodka hækkuð úr 100% í 300%. Fjöldamorð- ingi líflátinn ANDREJ Tsjíkatílo, sem fund- inn var sekur um 52 morð í þremur sovétlýðveldum á árun- um 1978-90, var leiddur fyrir aftökusveit í gær. Hann gekk undir nafninu kviðristirinn í Rostov og var tekinn af lífi í samnefndu héraði, Rostov-on- Don. Voru Frakkar mannætur? RANNSÓKNIR á steinaldar- hellum skammt frá Angouléme í vesturhluta Frakklands benda til að þar hafi búið fólk er lagði sér mannakjöt til munns. Að sögn José Gomez de Soto, sem hefur yfíramsjón með uppgr- eftrinum, hafa fundist bein er benda til þessa. Hann' segist ekki vera í nokkram vafa um að þarna hafí búið mannætur á steinöld og svipaðir uppgreft- ir í austurhluta landsins benda til hins sama. Pólskir hafna Polonez PÓLSKA bifreiðaeftirlitið, BOR, hefur komist að þeirri niðurstöðu að pólska bifreiðin Polonez standist ekki þær ör- yggiskröfur, sem gera verður til þeirra bifreiða, er æðstu menn ríkisins aka um í, jafnvel þó þeir séu sérhannaðir. Mælir BOR með að ráðherrar og aðr- ir fyrirmenn aki frekar um í Volvo, Mercedes eða Lancia- bifreiðum. Embættisbifreið for- sætisráðherrans, Waldemars Pawlaks, og flestra ráðherra í ríkisstjórninni er af gerðinni Polonez. Iðnaðarráðherrann Marek Pol segist gera sér grein fyrir göllum bifreiðarinnar en stöðu sinnar vegna verði hann að sýna tiltrú á pólska fram- leiðslu. Sjá aumur á lávarði FULLTRÚAR í lávarðadeild breska þingsins ætla að hefja fjársöfnun til stuðnings lávarð- inum af Katanesi. Hann sagði af sér ráðherraembætti í kjölfar þess að eiginkona hans svipti sig lífi í síðasta mánuði og hef- ur orðið að sækja um atvinnu- leysisbætur. Lávarður úr röðum íhaldsmanna sagði að fæstir hefðu gert sér grein fyrir erf- iðri fjárhagsstöðu ráðherrans fyrrverandi, sem stendur uppi auralaus.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.