Morgunblaðið - 16.02.1994, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994
21
RÚSSNESKA mafían hefur haslað sér völl á Norðurlönd-
um. Hún leitaði fyrst fyrir sér í Finnlandi en hefur nú
fært úr kvíarnar til Svíþjóðar. Dönum til hrellingar segir
sænska lögreglan að það sé ekki spurning hvort, heldur
hvenær rússneska mafían hefur starfsemi í Danmörku,
segir í frétt danska blaðsins Politiken.
HERNAÐARLEG UMSVIF SÞ I SARAJEVO
Sameinuðu
þjóöirnar settu
hundruð gæsluliða tii
eftiriits milli herja Serba og
múslima í Sarajevo sl. fimmtudag
og er þeim ætlað að framfylgja
vopnahléinu, sem ákveöið var
um leið og NATO setti
Serbum úrslitakosti.
Liklegl er, aO þung-
vopnaöar og tölvu-
væddarAC-130
.Sprectre'-lallbyssu-
vélar veröi notaöar
komi lil lottárása.
Pale:
Höfuöborg Serba
' Bosníu. Svæði
tveggja km
frá borgarmiðju
er undanskilið
ákvæðum
úrslita-
kostanna.
20 km
radfus:
Serbum og
múslimum var
gefinn 10 daga
frestur til að flytja
burt eða afhenda
SÞ öll þungavopn,
sem væru i minna
en 20 km fjarlægð
frá miðborg Sarajevo.
Starfssvið mafíunnar er vítt;
meðlimir hennar stunda fjárkúgun,
vændi, mannrán, smygl, peninga-
þvott, allt sem tengist eiturlyfjum,
rekstur næturklúbba, rán og morð.
Bandaríska alríkislögreglan segir
rússnesk glæpasamtök vera um
4.000, þar af starfi 174 þeirra utan
Rússlands, flest í Firinlandi og Sví-
þjóð. Finnska lögreglan hefur sett
nokkra menn í að fylgjast með
starfsemi rússnesku mafíunnar og
sænskur prófessor í afbrotafræði
segir rússnesku mafíuna án nokk-
urs vafa vera komna til að vera á
Norðurlöndunum.
Eitt aðalverksvið mafíunnar er
„vernd“ sem t.d. eigendum fyrir-
tækja er boðin. Við lá að verslunar-
eigandi við eina aðalverslunargöt-
una í Helsinki murkaði lífið úr út-
sendara rússnesku mafíunnar, sem
bauð vernd fyrir fáeinum mánuðum.
Eigandanum berst nú fjöldi lífláts-
hótana en hann gefur sig ekki.
Hann neitar því ekki að hann sé
óttasleginn en segir að takist maf-
íunni ætlunarverk sitt einu sinni,
sé varla nokkur leið að losna úr
klóm hennar.
Finnskar vændiskonur eru æva-
reiðar yfir síharðnandi samkeppni
en rússneskar stúlkur streyma yfir
landamærin og bjóða þjónustu sína
fyrir um 1.100 krónur, alla nóttina
fyrir 5.500, sem er helmingi lægri
upphæð en finnsku stúlkurnar taka.
REUTER |
Major reynir
að sefa Rússa
Moskvu. Reuter.
JOHN M^jor, forsætisráðherra Bretlands, reyndi í gær að róa rúss-
neska ráðamenn vegna hugsanlegra loftárása á stöðvar Serba í Bosníu
og lagði áherslu á það við Borís Jeltsín, forseta Rússlands, að Atlants-
hafsbandalagið, NATO, myndi ekki taka afstöðu með einhverjum stríðs-
aðilanum. Major undirritaði í gær samkomulag við Rússa um að ríkin
hættu að beina Iqarnaflaugum sínum hvort gegn öðru og um sameigin-
legar heræfingar þeirra á næsta ári.
Major er fyrsti vestræni léiðtog-
inn, sem hittir Jeltsín að máli eftir
að NATO setti Bosníu-Serbum úr-
slitakosti, og hann lagði sig allan
fram við að draga úr áhyggjum hans
og annarra rússneskra ráðamanna
Mjóslegn-
ir stræt-
isvagnar
Helsinki. Reuter.
FINNAR, sem kunna að klæða sig
á köldum vetri, óttast nú, að nýj-
ar, evrópskar reglur um stærð
strætisvagna muni verða til að
gera þeim lífið heldur leitt, jafn-
vel að þeir komist ekki almenni-
lega fyrir í bílunum.
Finnar stefna að því að ganga í
Evrópusambandið á næsta ári en
finnsku strætisvagnarnir eru stærri
og þyngri en nýjar Evrópusambands-
reglur leyfa.
„Samkvæmt þeim mega vagnarnir
aðeins vera 2,50 m breiðir eftir 2001
en okkar bílar eru 2,60 m á breidd
og það er allt of dýrt að breyta þeim.
Auk þess þýddi breytingin, að færri
farþegar kæmust fyrir í bílunum,"
sagði talsmaður félags fólksflutn-
ingabílstjóra í Finnlandi.
af hugsanlegum loftárásum. Rússar
hafa löngum verið bandamenn Serba
auk þess sem þjóðernisöfgamenn á
borð við Vladímír Zhírinovskij hafa
notað þetta mál til að kynda undir
óvild í garð vestrænna ríkja og rúss-
nesku ríkisstjórninni, sem hún sakar
um undirlægjuhátt gagnvart Vestur-
veldunum. Jeltsín er því eins og á
milli steins og sleggju i þessu máli.
Jeltsín blíðkaður
Til að blíðka Jeltsín lýsti Major
því yfír við komuna til Moskvu, að
hann styddi umsókn Jeltsíns um að-
iid að „klúbbi ríku mannanna", Sjö
ríkja hópnum svokallaða, en Bill
Clinton, forseti Bandaríkjanna, tók
undir þá hugmynd við Major í síð-
ustu viku. Fyrir Major sjálfan er
Rússlandsferðin einnig kærkomin
hvíld frá gróusögum og hneykslis-
málum heima í Bretlandi og embætt-
ismenn hans sögðu fréttamönnum,
að það væri til einskis fyrir þá að
spyija hann um eitthvað, sem lyti
að innanlandsmálum.
Fresturinn, sem Serbum var gef-
inn til að flytja burt stórskotavopnin
frá nágrenni Sarajevo, rennur út
aðfararnótt næsta mánudags en Sir
Michael Rose hershöfðingi og yfir-
maður gæsluliðs SÞ í Bosníu segist
viss um, að Serbar muni fara eftir
úrslitakostunum og flytja burt vopn-
in. Það er því von flestra, að ekki
komi til loftárása en Rose kvaðst
hins vegar ekki tnundu hika við að
fyrirskipa árásir reyndist þess þörf.
Flat Uno Arctic
-fyrir norðlœgar slóðir
Bestu bílakaupin!
Uno Arctic býðst nú á miklu lægra verði en
sambærilegir bílar frá V-Evrópu og Asíulöndum.
Verð frá kr.
748.000
á götuna - ryðvarinn og skráður.
UNO 45 3D
Það borgar sig að gera verðsamanburð við aðra bíla. Við tökum gamla
bílinn upp í og lánuin aiit að 75% kaupverðs til 36 mánaða.
Komið og reynsiuakið
Handhqfar bifreiðastyrks Tryggingastofnunar ríkisins!
Við sjáum um pappírsvinnuna
fyrir ykkur og gerum úthlutunina fjfMK |M
að peningum STRAX. , mMEAMmM
ITALSKIR BILAR HF.
Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • sími (91)677620
Rússnesk glæpasamtök hasla sér völl utan heimalandsins
Mafían komin til að
vera á Norðurlöndum
Mafían til Svíþjóðar
EINN Rússanna þriggja, sem Svíar saka um að hafa lagt á ráðin um
að ræna Peter Wallenberg og krefjast lausnargjalds.
Hafa þær síðastnefndu neyðst til
að slá verulega af verðinu.
Mannrán og morð
í Svíþjóð standa nú yfír réttar-
höld yfir þremur Rússum og einum
Svía af pólskum ættum, sem sakað-
ir eru um að hafa ætlað að ræna
iðnjöfrinum Peter Wallenberg og
krefjast fyrir hann um 200 milljóna
ísl. króna.
Sænska lögreglan telur að leigu-
morðingar mafíunnar hafi fra all-
nokkur morð í Svíþjóð á síðustu
tveimur árum, eftir pöntun. Þá hef-
ur hefur eigendum sænskra fyrir-
tækja í Moskvu hefur verið hótað
öllu illu, greiði þeir ekki fyrir vernd
og gekk málið svo langt að sænski
sendiherrann kvartaði yfir ágangi
mafíunnar við rússneska innanríkis-
ráðuneytið.
Eiturlyf flæða nú yfir Evrópu frá
Rússlandi. Finnska lögreglan gerði
fyrir skömmu upptækt eitt tonn af
kókaíni í Viborg. Kókaínið kom frá
Medellín-eiturlyfjahringnum í
Suður-Ameríku, sem á í samstarfi
við rússnesku mafíuna. Slíkt sam-
starf er þó heldur á undanhaldi, þar
sem Rússar rækta og framleiða eit-
urlyf í síauknum mæli. Nú eru þau
ræktuð á um einni milljón hektara
lands og er framleiðslunni stýrt frá
Kákasuslýðveldunum. Spilltir og illa
launaði rússneskir landamæraverð-
ir líta svo framhjá þegar koma þarf
sendingunum yfir landamærin.
Þá er ýmiskonar málmum og
geislavirkum efnum smyglað til
Norðurlandanna. í fyrrasumar
handtók sænska lögreglan forstjóra
fyrirtækis sem gleypt hafði 380
hylki sem innihéldu sesíum 133,
banvænt eitur. Hefði eitt hylkjanna
gefið sig, hefði forstjórans beðið
afar kvalafullur dauðadagi.